Morgunblaðið - 27.11.1998, Page 69

Morgunblaðið - 27.11.1998, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 69 FÓLK í FRÉTTUM KVIKMYNDIR/Sambíóin Álfabakka, Kringlubíó og Nýja bíó á Akureyri hafa tekið til sýninga kvikmyndina The Negotiator með Samuel L. Jackson og Kevin Spacey í aðalhlutverkum. MYNDBÖND Lögga eða bófí? Frumsýning LÖGREGLUÞYRLUR sveima yfir höfuðstöðvum innra eft- irlits lögreglunnar í Chicago og leyniskyttur hafa komið sér fyrir á húsþökum. Þær miða byssum sín- um á Danny Roman (Samuel L. Jackson), sem hefur tekið yfirmann og aðra starfsmenn deildarinnar í gíslingu. Roman hefur gripið til þessa óyndisúrræðis af því að hann er í örvæntingafullri aðstöðu; hann er borinn röngum sökum um morð og fjárdrátt. Roman veit að fólk hlust- ar þegar líf er í húfi. Hann veit að hann getur sannað sakleysi sitt ef hann fær til þess tíma, tíma til að komast að því hver stendur á bak við sakargiftirnar. Danny Roman veit hvað hann er að gera og skilur þá aðstöðu sem hann er að koma sér í með gíslatök- unni. Hann er lögreglumaður og helsti sérfræðingur borgarinnar í gíslatökum. En nú er Roman hinum megin við borðið, er búinn að taka gísla og þarf að ná í einhvern sem vill heyra hvað hann hefur að segja. Hann krefst þess að Chris Sabian (Kevin Spacey), annar virtur sérfræðingur í gíslatökum, verði fenginn til að stjórna samningaviðræðum við sig. Sabian þekkir þennan kollega sinn og andstæðing aðeins af afspurn og gengur til verks í því skyni að ná að skilja ástandið og afstýra þeirri hættu sem yfir vofir. í upphafi er Sabian sannfærður um að Roman sé búinn að týna glór- unni en smám saman fer að votta fyrir vafa hjá honum um hvort mað- urinn sé óður eða hvort það sé rétt sem hann segir, að hann sé heiðarleg lögga sem hefur neyðst til að brjóta lögin til þess að leita réttlætis. Hugmyndin að myndinni er byggð á sannri sögu. „Besti samn- ingamaður gísladeildar lögreglunn- ar í St. Louis var borinn röngum sökum af mönnum í lögreglunni og hann neyddist til þess að taka gísla til þess að svæla sökudólgana úr greni sínu,“ segir framleiðandi myndarinnar, David Hoberman. KEVIN Spacey er Chris Sabian, sem fær það hlutverk að leysa gíslana úr haldi. Hoberman segir að það sem hafi dregið sig að verkefninu hafi verið mótsögnin í sögunni, „að tákngerv- ingur laganna þurfi að brjóta þau til að sanna sakleysi sitt; lögreglumað- ur brýtur lög til að sanna að hann hafí ekki brotið Iög.“ Leikstjórinn F. Gary Gray var fenginn til að stýra verkinu. „Mér fannst sagan frumleg og fersk,“ segir hann. „Þetta er mynd sem ekki er auðvelt að flokka á einhvern hátt og það fellur mér vel. Gray segist ekki hafa trúað eigin augum og eyrum þegar Samuel L. Jackson og Kevin Spacey fengust til að leika í myndinni. „Þetta voru tveir fyrstu leikaramir sem mér datt í hug og þeir tóku báðir tilboðinu." Samuel L. Jackson segir að fyrir sig hafi skipt miklu máli að fá tæki- færi til að vinna með Kevin Spacey. „Ég hafði lesið handritið og mér leist vel á það en þegar það var nefnt við mig að Kevin léki á móti mér þá brosti ég breitt. Ég hitti Kevin svo í veislu og fór að tala við hann um The Negotiator. Ég sagði: „Ef þú leikur í myndinni þá geri ég það.“ Hann sagði: „Ef þú leikur í henni þá verð ég með.“ Þannig var það ákveðið." Við bjóðum jólavermi í Grillinu Á aðventunni jafnast ekkert á við jólavermi í Grillinu. Úrvals þjónusta, eðalmatseðill og sérvalin vín gera kvöldverðinn að hátíð í sígildu umhverfi með útsýni yfir borgina. Hringdu strax og tryggðu rétta kvöldið fyrir samstarfsmenn, viðskiptafélaga og fjölskyldu! Þú velur af okkar viðurkennda á la carte matseðli eða fimm rétta jólavermi á aðeins 4.900 kr. Hóte! Saga Hagatorgi 107 Reykjavík Sími 525 9900 Tóm von- brigði SAMUEL L. Jackson leikur Danny Roman, löggu sem tekur gísla. STÓRBORGIN fer á annan endann þegar lögreglumaður tekur gísla á lögreglustöðinni. „Við Sam höfum þekkst í 18 ár,“ segir Kevin Spacey. „Ég sá hann í mörgum leikritum og við reyndum stundum við sömu hlutverkin. Þeg- ar við lékum saman í Time to Kill þá kynntumst við því að okkur líkar vel að vinna saman. Við ákváðum að vinna saman aftur. Þegar okkur gafst færi á The Negotiator ákváð- um við að grípa tækifærið." Blues bræður 2000 (Blues Brothers 2000)______ Gamanmynd ★ Framleiðsla: John Landis, Dan Aykroyd og Lesley Belzberg. Leik- stjórn: John Landis. Handrit: Dan Aykroyd og John Landis. Kvik- myndataka: David Herrington. Tón- list: Paul Shaffer. Aðalhlutverk: Dan Aykroyd og John Goodman. 119 mín. Bandarísk. CIC myndbönd, nóvember 1998. Öllum leyfð. JOHN Landis leikstýrði „The Blu- es Brothers“ árið 1980 og útkoman var ein vinsælasta kvikmynd áratug- arins sem enn lifir góðu lífi sem „cult“ mynd. Hún var hættulega sér- viskufull og undar- leg, en gekk upp fyrir eitthvert furðulegt krafta- verk. Framhalds- myndin er eins og dæmisaga um hvernig hún hefði getað orðið ef allt hefði misheppnast gersamlega. Engu er bætt við, rétt eins og fyrir- myndin hafi verið skoðuð rækilega og svo ljósrituð, illa. Eitt af því sem gerði „The Blues Brothers" að því sem hún er, var að enginn hafði nokkurntíma séð neitt henni líkt áð- ur. Hún virtist ekki styðjast við neina formúlu. „Blues Brothers 2000“ er aftur á móti ekkert nema steingerð formúlaj slæm útfærsla á vondri hugmynd. I stuttu máli: tveir tímar af einskærum leiðindum. Guðmundur Asgeirsson. THE HHH ELEMENT LE0N T391 RTLANTtS AQQO NiKITA 1SSS THE EiG BLUE T38 5 SUBWAY 1383 THE LÍÍST BfeTTLE Nyjasta myndin ur s ndan myndinni veráur isiensks stuttmy A BLiNDFLUGI synd SYI\iD I HASKOLABIO!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.