Morgunblaðið - 28.11.1998, Síða 37
MORGUNB LAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 37
m
Mig dreymdi illa í nótt
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
Mynd/Kristján Kristjánsson
ANDI martraðar á sveimi.
Okkur er farið að lengja eftir
strútnum. Veltum því fyrir okkur
hvort erfítt hafí reynst að fanga
hann...
Það er mánudagskvöld og eftir æf-
ingu þann dag borðar liðið yfirleitt
saman og svo er haldinn fundur. Ekki
þó þennan dag, því eftir æfinguna var
farið á barnasjúkrahús í borginni og
heilsað upp á krakkana. „Það er orðin
hefð að fara þangað á um það bil hálfs
árs fresti. Svo gerir klúbburinn dálít>
ið af því að fara í minni bæina hérna í
grenndinni til að spila æfingaleiki við
litlu liðin og halda þannig góðum
tengslum við þau.“
Nú birtist þjónninn skyndilega
með strútinn; skammturinn er vel
útilátinn, kjötið í stórum sneiðum og
sveppir, spergilkál og rúsínur með á
diskinum. Púrtvínssósa er borin
fram með og rjómagratíneraðar
kartöflur í sneiðum í skál.
„Þetta er ekki sem verst,“ eru
fyrstu viðbrögðin. „A hvað minnir
þetta þig?“ Kjötið er ekki ljóst eins
og t.d. kjúklingur eða kalkún, frek-
ar í líkingu við
nautasneiðar,
nokkuð rautt.
Strúturinn minn-
ir blaðamann
einna helst á
hjartarkjöt sem
hann bragðaði í
Svíþjóð í fyrra.
Fyrst maturinn
er kominn á borð-
ið er ekki úr vegi
að spyrja einsetu-
manninn Arna
Gaut hvort hann
sé duglegur að
elda eða hvort
hann borði mikið
úti?
„Eigum við
ekki að segja, svo
amma fríki ekki
út, að ég sé dug-
legur að elda.
Annars fer ég
talsvert út að
borða, en elda
einföldustu rétti;
pasta og sitthvað
fleira. En það er
dýrt að lifa héma.
Maður borðar
einu sinni í viku í
klúbbhúsinu og
þegar leikir eru
tvisvar í viku borðum við með liðinu
þannig að oft eru það ekki nema fjór-
ir dagar í viku sem maður þarf að sjá
um sig sjálfur. Ég get að minnsta
kosti sagt að mér hafi farið fram í
eldamennskunni! En ég hef aldrei
eldað strút... Og þó mér hafi farið
fram er ég ekki orðinn það góður að
ég þori orðið að bjóða stelpu heim í
mat! Held ég byði henni frekar út.“
Markmenn í sóknarhug
Jorn Jamtfall, sem verið hefur að-
almarkvörður Rosenborg, meiddist í
haust og það varð til þess að Arni
Gautur fékk tækifæri. „Ég var
staddur á flugvellinum í Osló að bíða
eftir flugi til Þrándheims þegar
þjálfarinn hringdi í mig með þá frétt
að hann hefði meiðst á æfingu. Ég
var að koma að heiman eftir lands-
leikinn við Rússa. Það var deildar-
leikur framundan um helgina og svo
leikurinn við Galatasaray á heima-
velli í Meistaradeildinni í vikunni þar
á eftir og því mikið framundan. Ég
var nú tiltölulega rólegur yfir tíðind-
unum; það var fyrst og fremst gam-
an að vita að ég fengi tækifæri, þó
auðvitað sé leiðinlegt að annar þyrfti
að meiðast til þess. Ég hafði spilað
einn deildarleik þegar þetta var;
þjálfararnir sagt að þeir vildu að ég
fengi reynslu, og þama kom á dag-
inn að það hafði borgað sig.“
Skyldi Arni Gautur telja sig hafa
tekið framfijrum síðan hann kom til
til Noregs?
„Já, mér finnst það nú. Reyndar
er erfitt að benda á það nákvæmlega
hvernig, vegna þess að ég hef ekki
spilað það mikið. En ég finn það á
æfingum að ég hef bætt mig mikið.
Markmannshlutverkið hjá Rosen-
borg snýst ekki bara um að verja,
heldur er mikil áhersla lögð á sókn-
arleikinn. Um leið og markmaðurinn
fær boltann á hann að kasta honum
út á einhvern miðjumann sem er á
hlaupum, til að geta sótt hratt.
Heima er meira um að maður reki
liðið frá og sparki fram. Hér er rosa-
leg áhersla lögð á að koma bolta
strax í leik til að hægt sé að „keyra
yfii- mótherjana" - sækja hratt á þá
áður en þeir ná að stilla upp í vörn.
Þá er mikilvægt að vera vel þjálfaður
og lið Rosenborg er þekkt fyrir að
hafa gott úthald.“
Ami Gautur segir mikinn mun að
leika heima með Stjömunni, þar sem
áhorfendui- vora
iðulega 100 til
200, eða ytra, „en
hér era að meðal-
tali 13 þúsund
áhorfendur og á
stórleikjum yfir
20 þúsund“. Hann
segir leildna í
Meistaradeildinni
toppinn á ferli
sínum til þessa.
„Þetta voru ekki
endilega bestu
leikimir mínir, en
það var mikils
virði að upplifa
það að spila við
þessar aðstæður.
Sá fyrri, fyrsti
leikur minn í
Meistaradeild-
inni, var mjög
góður og frábært
að sigra og
stemmningin á
seinni leiknum
var ótrúleg. Sú
mesta sem ég hef
kynnst.“
Strúturinn er
horfinn af disk-
unum. Agætur
matur, þó blaða-
maður hafi átt
erfitt með að setja rúsínumar í sam-
hengi við annað og flestar urðu sam-
ferða þjóninum í eldhúsið aftur eftir
að hann tók diskinn.
Þjónninn upplýsfr okkur um að
veitingastaðurinn kaupi strútakjötið
ýmist frá Suður-Afríku eða Nýja-
Sjálandi. Strútabúskapur sé reyndar
stundaður í Noregi, en hið heima-
ræktaða kjöt sé allt of dýrt!
Þrátt fyrir mikinn _mat höfðum við
pláss íyrir eftirrétt. Árni Gautur vel-
ur sér karamellubúðing „að hætti
ömmu,“ eins og hann orðar það en
upplýsir reyndai- að hann hafi áður
lagt hann sér til munns og að búð-
ingur ömmunnar sé miklu betri.
Blaðamaður kaus hins vegar eftir-
réttakörfu Gosa, svonefnda, þar sem
finna mátti ís, jarðarber og fleiri
ferska ávexti og súkkulaðisósu ofan
á. Þetta bragðaðist afar vel.
Máltíðin var góð. Að síðustu var
borið fram kaffi og þar á eftfr kom
reikningurinn. Og eitt bros að auk
færðist þá yfir blaðamann, því í ljós
kom að við fengum 25% Rosenborg-
ar-afslátt. Þjónninn bar kennsl á
Arna Gaut og benti honum vinsam-
lega á að leikmenn félagsins nytu
þessara kjara. Reikningurinn hljóð-
aði upp á andvirði rámlega 8 þúsund
íslenskra króna sem verður að telj-
ast vel sloppið.
„MANSTU?" Ég hrökk upp með
andfælum, andstuttur og hjartað
dundi líkt og ég hefði hlaupið
maraþon. En ég hljóp ekld, ég
svaf og mig dreymdi að ég væri
að hlaupa undan manni með mik-
ið hár og beittar eggjar. Það
small í höfði mér ómur af hvassri
röddu í svefnrofinu, „manstu?“
Ég kveikti ljós en draumurinn
var enn skýr sem skuggi yfir
mér, svitinn rann niður hrygginn
er ég teygði mig í blokkina og
skráði drauminn.
Hvað er það sem kallar á ill-
fygli að raska svo næturró
manna? Hnífamenn, umskipt-
inga og púka sem trylla blóðrás-
ina svo svefninn verður spenna,
sviti og tár en ekki mjúk lend-
ing til morgundagsins? Ástæð-
urnar geta verið margar; upp-
söfnuð þreyta, stress, áhyggjur,
reiði eða bæld löngun til að ná
sér niðri á einhverjum, sem
kallar á þetta hrottafengna
myndasafn sem draumurinn
geymir fyrir blóð og barsmíðar.
Þar safnar maður úr sjónvarps-
þáttum, bíómyndum og blöðum
myndarlegum níðingsverkum til
að skreyta svefninn svo eitt-
hvert fútt verði í drauminum
um martröð. En draumar um
ásókn illra afla geta einnig verið
raunverulegir í þeim skilningi
að myrkrið hafi að geyma illar
hugsanir, vondar fylgjur og
sendingar frá illa innrættu fólki
sem vilji ná sér niðri á viðkom-
andi. Þar er draumurinn enginn
sýndarleikur heldur fúl alvara
svo best er að brynja sig vel.
Það gerir maður best með því
að skilja drauminn, tákn hans
og tilgang, þá getur hver maður
óhræddur mætt andstæðum sín-
um. Einnig gerist það að fyrri
líf sækja á mann með óuppgerð-
ar sakir, óútkljáð mál og lausa
hnúta sem krefjast átaka. Þá
hendir það að verk framtíðar
skáskerast inn í núið og rista
mann á kvið til að mæta syndum
sínum. Svo er það Maran sem
erfiðir draumar draga nafn sitt
af, hún er svarti senuþjófur
draumsins og í kvenlíki flækist
hún um Draumalandið, leggst á
fólk sem er óvarið á einhvem
hátt og sýgur úr því kraft til að
viðhalda sér og eflast í eilífri
kvöð sinni að kvelja menn, pína
þá og kremja eins og lesa má
um í ótal þjóðsögum Islendinga.
Draumur
„Ebba“ frá 7. sept.
Mér fannst ég vera staddur
uppi á raflínu sem liggur yfir
árósinn fyrir vestan Eyrar-
bakka. Var ég á fjórum fótum -
sem kallað er - á tveim af raf-
strengjunum. Er ég lít út á ána,
sé ég að kominn er aukastaur í
miðri ánni. Uppi á staurnum er
kringlótt skífa eða spjald og á
henni sé ég greinilega tölustaf-
inn 6. Nú gerist það að skífan
snýst við og hin hliðin veit að
mér. Á þeirri hlið er talan 3, en
miklu ógreinilegri. Þá hugsa ég
með mér að ég muni vera á
streng með mörg þúsund volta
spennu og sé í lífshættu. Bregð-
ur mér svo að ég vakna við.
Ráðning
Draumar snúast um allt sem
gerist í lífi manns, gott sem illt.
Upphaf lífsins kemur í draumi
líkt og dauðinn. Heilsa, veikindi,
ást og hatur. Allt hefur sinn tíma
með draumnum og hann gerir
öllu skil á sinn hátt. Þessi
draumur er viðvörun, hann gefur
í skyn að orka (rafmagnið) þín sé
þverrandi (á fjórum fótum á lín-
unni) og því er settur undir hana
nýr stuðningur (aukastaurinn)
sem endast eigi í sex ár. En
draumurinn talar um að sex árin
verði bara þrjú. Þó er draumur-
inn ekki staðfastari en svo að
óljóst (talan þrír var ógreinileg)
er hvort þessi þrjú ár verða
færri eða fleiri enda gerir hann
því skóna að því megi (í línunum
leynast mörg þúsund volt)
breyta.
„Katja“ sendir
draum
Mig dreymfr að ég sé stödd í
Reykjavík og er á reiðhjóli á leið
heim úr vinnu. Ég hjóla í aust-
urátt eftir einhverri aðalbraut og
kem fljótlega að ljósastýrðum
gatnamótum (mér finnst þau
vera við Grensásveg - en ég er á
leið í Grafarvog). Þá sé ég að
þykk og mikil hvít mengunar-
þoka liggur yfir borginni austan-
verðri og myndar eins konar
vegg við þessi gatnamót, þannig
að ég sé aðeins móta fyrir
fremstu bílunum við umferðar-
ljósin. Mér finnst þokan ná að
Artúnsholti. Ég hugsa með mér
að ég komist ekki heim í gegnum
þetta, því mér finnst ég svo óvar-
in á reiðhjóli fyrir hita sem mér
finnst fylgja þessu - eða ein-
hvers konar geislun (jafnvel ekki
örugg að vera í bíl). Mér finnst
þetta súrt í broti, en veit ekki til
þess að ég hafi reynt að komast í
gegn. Þó er eins og ég skynji
seinna að þokunni sé eitthvað að
létta.
Ráðning
Þoka. sem draumtákn veit
alltaf á erfiðleika, þeir geta verið
bæði huglægir sem hlutlægir og
þá má skilja sem viðvörun.
Draumurinn gefur í skyn að þú
tapir áttum á einhvern hátt í líf-
inu sem draumurinn skýrir ekki
nánar en mengunarþokan segir
þó sitt. Hann talar um að þú
verðir ein (á reiðhjóli) á þessum
villum vega og verðir sjálf að
finna leiðina út - í gegn (þó er
þama aðstoð til staðar). Þessi
ferð þín með sjálfri þér og með-
ferð (ætlaðir í Grafarvog en fórst
að Grensásvegi) bendir til árang-
urs.
• Þeir lesendur sem vilja fá
drauma sína birta og ráðna sendi þá
með fullu nafni, fæðingardegi og
ári ásamt heimilisfangi og dulnefni
til birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaðið
Kringlunni 1
103 Rcykjavík
AUGIÝSINGADEILD
Sími: 569 1111, Bréfsími: 569 1110
Netfang: augl@ml)l.is
mbl.is
-ALLTAf= £!TTH\/A£3 NÝTT
HEILSTEIKT
STRÚTAFILLET
KJÖTIÐ ER HEILSTEIKT
OO SKORIÐ Í SNEIOAR.
MEÐLÆTIO ER EFTIRFARAND!:
HÁLF PERA, SEM SOOIN ER I
BERJASAFA ÞAR TIL HÚN VERDUR
H/EFILEGA MJÚK.
HNETUMASSi; HESLIHNETUR OG
MÖNDLUR RISTAÐAR SAMAN Á
PÖNNU OG LAUK BÆTT ÚTÍ. PETTA
ER SÍDAN „KARAMELLÍSERAD“
EINS OG MATREIDSLUMEISTARI
PINOCCHIO, JON-KELGE DYBVIK,
OROAR PAÐ; SYKR! SEM SAGT
STRÁÐ YFIR OG HÚOAD PANNIG í
HITANUM Á PÖNNUNNI.
SVEPPIR, RISTAÐIR Á PÖNNU, OG
GUFUSODIÐ SPERGILKÁL.
HINDBERJASÓSA; KJÖTKRAFTUR,
RJÓMI OG HINDBERJASULTA.
PEGAR ÁRNI GAUTUR OG BLAÐA-
MADUR SNÆDDU Á PINOCCHIO
VAR SÓSAN RAUNAR KENND VID
PÚRTVÍN, SLETTU AF PEIM MIÐI
SEM SAGT BÆTT ÚT (.
.V~..................................................................................'__________________________________________________________________________A. - “ ~
• SJONVORP
• MYNDBANDSTÆKI
• FERÐATÆKI MEÐ GEISLA
• DVD SPILARAR
• VASADISKÓ
• BÍLTÆKI 0FL.
Httm
oq qóð kaupl
Sjónvarpsmiðstöðin
SIÐUMULA 2 • SIMI 568 9090 • www. sm.is