Morgunblaðið - 28.11.1998, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 4S'
SIGVALDIFANNDAL
TORFASON
+ Sigvaldi Fann-
dal Torfason
fæddist í Hvítadal í
Saurbæ í Dalasýslu
2. júlí 1922. Hann
lést á Héraðssjúkra-
húsinu á Blönduósi
19. nóvember síð-
astliðinn. Foreldrar
Sigvalda voru Guð-
rún Valfríður Sig-
urðardóttir frá
Stóra-Fjarðarhorni
og Sigurður Torfi
Sigurðsson frá Bæ á
Selströnd í Stranda-
sýslu, og var Sig-
valdi elstur sjö barna þeirra.
Sigvaldi kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Elísabetu
Finnsdóttur, 2. nóvember 1952.
Foreldrar hennar voru hjónin
Ingibjörg Jónsdóttir og Finnur
Guðmundsson frá Skrapatungu
í A.-Hún. Systkini Sigvalda eru:
Sigurkarl, f. 1924, d. 1997; Sig-
Mig langar til að minnast vinar
míns og tengdaföður með örfáum
orðum. Leiðir okkar Sigvalda lágu
saman fyrir tuttugu og fímm árum
er ég kynntist henni Ingibjörgu
minni, elstu dóttur hans. Svo mörg
ár eru langur tími í lífi manns en
hann hefur verið fljótur að líða. Pað
var þannig með okkur Silla, sam-
skipti okkar gengu alltaf fljótt og
vel fyrir sig. Silli vildi ekki láta hlut-
ina bíða til morguns ef hægt var að
gera þá í dag. Það er ekki fyrr en nú
sem mér er það ljóst hversu mikils
virði Sigvaldi hefur verið mér öll
þessi ár. Sá mikli söknuður og tóm-
leiki sem færst héfúr yfír mig núna
undanfarna daga hafa fært mér
heim sanninn um hversu kær vinur
þú varst mér. Við hefðum þurft að
fá að eyða fleiri árum saman eftir að
þú hættir að vinna fyrir tæpum
tveimur árum. Því hér áður fýrr var
ekki farið langt frá sínum skyldu-
störfum. Vinnan og fjölskyldan áttu
hug þinn allan. Silli var sérstaklega
barngóður og það hefur verið mikil
gjöf fyrir dætur mínar þrjár að fá
að alast upp í svo mikili nálægð við
afa sinn og ömmu, hjá þeim var gott
að vera. Sigvaldi var mikill gæfu-
maður í sínu starfi öll þau þrjátíu og
sjö ár sem hann vann hjá Olíufélag-
inu Esso, en hann dreifði olíu og
bensíni í Austur-Húnavatnssýslu og
Strandasýslu og voru aðstæður sem
nú eru barnalegar í samanburði við
þær sem voru fyrr á árum og er þá
sama hvort er talað um vegi eða
bílakost. Það er ekki að undra að
hann hafi verið kallaður „olíukóng-
ur“. Sigvaldi var vel kynntur maður
og átti stóran kunningjahóp. Er
mér minnisstætt er við vorum á
ferðalögum að alls staðar þekkti
hann einhverja sem hann hafði
kynnst á lífsleiðinni.
Elsku Sigvaldi minn, takk fyiár
allar góðar og skemmtilegar stund-
ir.
Elsku Bebe, stoð okkar og stytta,
guð styrki þig og fjölskyldu á þess-
um erfiðu tímum.
Helgi Arnason.
í fáum orðum vil ég minnast
tengdaföður míns og vinar, Sigvalda
F. Torfasonar. Eg kynntist Sig-
valda fyrir tæpum 16 árum, stuttu
eftir að mér tókst að fanga hjarta
einnar af hans myndarlegu dætrum.
Fljótlega eftir að við fluttum á
Blönduós var ég farinn að keyra
með honum í hinar ýmsu ferðir á ol-
íubílnum, bæði upp í sveitir og norð-
ur á Strandir. Sama hvar maður
kom, alltaf var Sigvaldi jafn vel
kynntur.
Hann var ekki gallalaus frekar en
aðrir menn, en þegar hann hafði
myndað sér skoðun fékk lítið henni
breytt. Sigvaldi hafði ætíð dálæti á
góðum og fallegum bílum. Einnig
átti hann alltaf töluvert af góðum
hrossum, má þar meðal annars
nefna Odd frá Blönduósi. Það var
alltaf jafngott að koma á Árbraut 14
urjón, f. 1926; Guð-
björg, f. 1929; Sig-
urrós, f. 1929;
Svavar, f. 1933; Sig-
hvatur, f. 1936.
Dætur Sigvalda og
Elísabetar eru: 1)
Ingibjörg, f. 1954,
maki Helgi Arna-
son. 2) Guðrún, f.
1955, maki Jón Ei-
ríksson. 3) Torfhild-
ur, f. 1960, maki
Þorvaldur Olafsson.
4) Sjöfn, f. 1966,
maki Guðmundur
Lúdvigsson. 5)
Svala, f. 1966. Barnabörnin eru
ellefu talsins.
Sigvaldi starfaði sem bílstjóri
alla tíð og annaðist olíudreif-
ingu fyrir Olíufélagið hf. frá ár-
unum 1959 til ársloka 1996.
Utför Sigvalda fer fram frá
Blönduóskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
til þeirra hjóna hvort sem kíkt var í
kaffi eða fjölskylduboð, en í þeim
var Sigvaldi eins og ættarhöfðingi
sem fylgdist stoltur með fjölskyldu
sinni. Sárt er að horfa á eftir eftir
góðum vini og félaga sem tengda-
faðir minn var mér. En ég get verið
þakklátur fyrir að hafa kynnst hon-
um og mun varðveita minningarnar
um hann um ókomin ár.
Elsku Elísabet mín, þú stóðst
eins og klettur við hlið hans og
studdir hann í veikindum hans.
Megi góður guð styrkja þig og aðra
aðstandendur.
Blessuð sé minning Sigvalda F.
Torfasonar.
Þorvaldur Olafsson.
Nú hefurðu yfirgefið þennan
heim, elsku afi. Þú varst ávallt stór
hluti af lífi okkar og því erfitt að
sætta sig við að þú sért ekki lengur
meðal okkar. Við finnum strax fyrir
söknuði og sorgin umlykur hjörtu
okkar en þegar við rifjum upp allar
þær góðu stundir sem við áttum
með þér vaknar hjá okkur gleði.
Eins og spámaðurinn kemst svo vel
að orði:
„Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert
glaður, og þú munt sjá, að aðeins
það, sem valdið hefur hi-yggð þinn,
gerir þig glaðan.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoð-
aðu þá aftur huga þinn, og þú munt
sjá, að þú grætur vegna þess, sem
var gleði þín.“
Minningarnar sem við eigum um
þig eru margar og góðar. Þegar við
vorum smástelpur í heimsókn á Ar-
brautinni hjá þér og ömmu var
alltaf nóg að gera. Milli þess sem
amma stjanaði við okkur og við lék-
um okkur úti í kofanum fórstu með
okkur út á Sillatún og sýndir okkur
hestana þína. A hverju hausti fórst
þú svo með okkur í réttarferðir en
eftirminnilegast af öllu eru auðvitað
bflferðirnar á olíubflnum. Að sitja í
framsætinu á þessum háa trukk var
merkilegast af öllu. Jólin sem við
höfum átt með þér og ömmu hafa
alltaf verið okkur einstök. Það var
alltaf gaman að sjá hvað þú varst
ánægður með að hafa okkur öll
saman og hversu stoltur þú varst af
fjölskyldu þinni. Fjölskyldan hefur
alltaf verið þér mikilvæg og þú
varst aldi'ei rólegur nema þú værir
fullviss um að allir væru á öruggum
stað. Flakk og óþarfa ferðalög voru
þér ekki að skapi.
A þessum æskuárum eigum við
margar minningar en þær eru ekki
síðri sem eru okkur nýrri. Þú varst
okkur alltaf innan handar og brást
okkur aldrei. Okkur þykir alveg
óskaplega vænt um þig og trúum
því að þú sért hérna með okkur í
anda.
Elsku afi, í dag kveðjum við þig.
Það er okkur erfið þraut en við vit-
um að þú ert á góðum stað og vakir
yfir okkur.
„Og hvað er það að hætta að
draga andann annað en að frelsa
hann frá friðlausum öldum lífsins,
svo og að hann geti risið upp í mætti
sínum og ófjötraður leitað á fund
guðs síns?
Aðeins sá, sem drekkur af vatni
þagnarinnar, mun þekkja hinn vold-
uga söng.
Og þegar þú hefur náð ævitindin-
um, þá fyrst munt þú hefja fjall-
gönguna.
Og þegar jörðin krefst líkama
þíns, muntu dansa í fyrsta sinn.“
(Úr Spámanninum.)
Þínar dótturdætur
Elísabet, Halldóra og Fjóla.
Þegar lýkur lífsins þrautum
látnir hverfa okkur frá.
Peú' á himins háu brautum
hlýju njóta, drottni hjá.
Elsku afi, allir sakna
alls sem veittir okkui' þú.
Það er gott þig vita vakna
vafinn hlýrri drottins trú.
Minningin um mildi þína
megnar best að þerra tár.
Hún mun skært sem perlur skína
skapa gleði og græða sár.
Hana verður gott að hafa
hugsa til þín afi minn.
Anda þinna góðu gjafa
greypta í sálum okkar finn.
Þó að englai' veginn vísi
vakti brautir jörðu frá.
Biðjum við að ljós þér lýsi
ljúfiim brautum himins á.
Barnabörn.
Mig langar í örfáum orðum að
þakka fyi'ir samfylgd og nágenni við
Sigvalda Torfason. Sigvaldi, eða
Silli eins og hann var kallaður, hafði
alveg einstaka nærveru og hann
ásamt konu sinni, Elísabetu Finns-
dóttur, mikilli prýðiskonu, hér eftir
kölluð Bebe og dætrum þeirra fimm
mynduðu frábært samfélag sem af-
ar ljúft var að hafa aðgang að. Eftir
að hafa verið nágranni Silla í rúm
tuttugu ár fer ekki hjá því að menn
fari að þekkja svolítið hver inn á
annan. Maður heyrði það t.d. á því
hvernig þvottahúsdyrnar lokuðust á
eftir honum hvernig lífið gekk fyrir
sig. Þá kom það oft fyrir að maður
brá sér yfir girðinguna og leit inn til
Bebe og Silla svona til að fá stöðuna
í samfélaginu. Maður fékk að heyra
sögurnar af Stígandadótturinni og
Oddi frá Blönduósi, hinum lands-
fræga gæðingi sem Sigurbjörn
Bárðason keypti af honum. Áhyggj-
urnar ef að fylgið við Framsóknar-
flokkinn fór minnkandi, nánast allt
var til umræðu. Það eru þessar
stundir, það er þessi nærvera sem
er horfinn með Silla, nærvera sem
var hluti af tilverunni og sagði
manni að allt gengi eðlilega fyrir sig
og ekkert gæti farið úr skorðum.
En allt tekur enda. Silli er horfinn,
við hin horfum á eftir góðum vini,
veröld okkar er ekki söm, en það er
okkar hlutverk að laga okkur að
breyttum heimi. Fjölskylda mín
þakkar fyi'ir ljúf kynni við góðan
mann og minningar sem eru okkur
afar kærar. Bebe, dætrum og fjöl-
skyldum þeirra sendum við hér á
Árbraut 12 okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll.
Jón Sigurðsson.
Vinir og kunningjar hverfa hver
af öðrum í áranna rás af hinu jarð-
neska sjónarsviði þegar aldur færist
yfir samtíðarfólk okkar. En þeir lifa
áfram í minningum hins liðna. Og
enn hefur maðurinn með ljáinn
höggvið stórt skarð í vinahópinn.
Sigvaldi vinur okkar á Blönduósi
ÞÓRARINN ÖRBEKK
VIGFÚSSON
+ Þórarinn Ör-
bekk Vigfússon
fæddist að Þor-
valdsstöðum á
Húsavík 18. desem-
ber 1909. Hann lést
á sjúkrahúsi Þing-
eyinga 19. nóvem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Helga Þórarinsdótt-
ir frá Fossseli í
Reykjadal og Vigfús
Vigfússon frá Króki
í Holtum í Rangár-
vallasýslu. Þórarinn
var elstur 5 alsystk-
ina. Hin voru: Valdimar, Guð-
bjartur sem er látinn; Laufey og
Kristjana. Auk þeirra átti hann
þrjú hálfsystkini: Guðjón; Guð-
björgu Helgu og Árna. Þau eru
öll látin. Kona hans er Magda
Agnette Jensen, af dönskum
ættum. Börn þeirra eru: Hinrik,
kvæntur Svövu Björgu Karls-
dóttir, þau eignuðust þijú börn
Þá er hetjan fallin. Afi minn, Þór-
arinn í Jörva, er látinn.
Ég heimsótti afa á sjúkrahúsið á
Húsavík nú í september. Þegar ég
tók í stóru, gömlu hendurnar hans
og horfði á hann, vissi ég að þetta
yi-ði eflaust i síðasta sinn sem ég
sæi hann á lífi. Amma sat þarna við
hlið hans, strauk honum og spurði
hvort hann færi ekki bráðum að
koma heim.
Það eru margar minningar um
afa minn, sem ég mun alltaf geyma í
huga mér. Hann var alltaf brosandi
og gleðin og stríðnin skein úr aug-
um hans. Mikið var ég stolt af því
sem barn og unglingur, að þessi
stóri og sterki maður sem allir á
Húsavík þekktu og virtu, væri afi
minn.
Afí var lengi til sjós, en eftir að
hann hætti að róa, dundaði hann
margt, því alltaf þurfti hann að hafa
eitthvað fyrir stafni. Hann átti trillu
og fengum við systkinin oft að fara
með honum að vitja um. Eins verk-
og er eitt þeirra á
lífi. Helga Þórarins-
dóttir, gift Ólafí
Karlssyni, þau eiga
þijú börn. Dóttur
Mögdu, Bergþóru
Guðjónsdóttur ól
liann upp sem sína
eigin dóttur. Berg-
þóra er gift Hös-
kuldi Sigurjónssyni,
þau eiga fimm böm.
Óll systkinin eru bú-
sett á Húsavík.
Barnabörnin era 11,
barnabarnabörnin
21 og 1 langalanga-
fabarn. Þórarinn stundaði sjó-
mennsku alla sína ævi, lengst af
sem skipstjóri. Hann var í stjórn
vélbátatryggingasjóðs Eyja-
fjarðar og einnig gjaldkeri
Sjálfsbjargar á Húsavík til
dauðadags.
Útför Þórarins fer fram frá
Húsavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
aði hann hákarl, „þann besta“
fannst mér, og skar hann í bita
handa okkur. Já, þetta var nú nam-
mið í þá daga.
Afi átti frægan jeppa sem gekk
undir nafninu Trölli. Hann var
þekktur fyrir þá sémsku sína í um-
ferðinni, að gefa aldrei stefnuljós,
sérstaklega á heimleið. Viðkvæðið
var, að menn ættu auðvitað að vita á
hvaða leið hann væri. Amma var
reyndar aldrei fullkomlega sátt við
Ti'ölla og fannst sá gamli dekstra
alltof mikið við hann. Þar að auki
þurfti hún að notast við tröppu, sér-
smíðaða af afa, til að komast upp í
farartækið.
Við systkinin áttum alltaf öruggt
skjól í Jörva hjá afa og ömmu. Gott
var að njóta matar hjá ömmu, alltaf
heitur matur í hádeginu og hennar
góðu gi'autar og súpur á eftir. Eins
voru alltaf heimabökuð vínarbrauð
og snúðar með kaffinu.
Afi átti alltaf lýsi á flösku sem
hann hellti yfir fiskinn sinn. Reyndi
varð að láta í minni pokann fyrir ill-
vígum sjúkdómi nú í byrjun vetrar.
Sigvaldi var farsæll og vel liðinn
hvar sem hann fór og í návist hans
leið samferðamönnum vel og það
eitt segir margt um hann.
Sigvaldi giftist góðri konu. Elísa-
beti Finnsdóttur og eignuðust þau
fimm mannvænlegar dætur. Og svo
voru barnabörnin þeim hjónum
þeirra yndi og stolt. Sigvaldi var
nærgætinn bæði sem faðir og afi og
var ávallt vakandi yfir velferð barn-
anna sinna og barnabarna.
Nú á nýliðnum haustdögum átt-
um við hjónin leið norður yfir heiðar
og gistum á heimili þeirra Sigvalda
og Bebe og var okkur tekið opnum
örmum og af höfðingsskap eins og
þeirra var von og vísa. Sigvaldi lék-"
þá á als oddi og taldi sig vera að
vinna sigur á veikindum sínum.
Hann var glaðsinna og bjó yfir
óvenjulegri kímnigáfu sem gerði ná-
vist hans eftirsótta. Var dvöl okkar
eftir því ánægjuleg þetta kvöld en
það var okkar síðasta með Silla. Og
nú er Sigvaldi horfinn af okkar jarð-
neska sviði.
Kynni okkar hjóna af Sigvalda og
fjölskyldu hans hófust á frumbýlis-
árum okkar. Við bjuggum þá í sama
húsi á sjávarbakkanum austan
Blöndu. Allt frá þeim tíma hefur
vinátta okkar haldist óslitið og
aldrei borið skugga á. Síðustu mán-
uðir hafa verið mikill reynslutími
fyrir vinkonu mína Bebe, en svo var*
eiginkona Sigvalda jafnan kölluð.
Hún missti bróður sinn, Ottó Finns-
son, nú i þessum mánuði. Blessuð sé
minning þeiri'a.
Um leið og við minnumst Sig-
valda með hlýhug og söknuði vott-
um við hjónin ekkju hans, dætrum,
tengdasonum og barnabörnum okk-
ar dýpstu samúð.
Jóninna Steingrímsdóttir og
Þormóður Pétursson.
hann mikið að fá okkur til acP
smakka og sagði að þá yrðum við
stór og sterk eins og hann.
Afi var mikill veiðimaður, gekk á
fjöll og veiddi gæsir og rjúpur og
fengu faðir minn og bræður oft að
njóta þess að fara með honum.
Elsku afi minn, nú veit ég að þér
líður vel og að vel hefur verið tekið
á móti þér af bræðrum mínum á
himnum. Ég kveð með þakklæti fyi'-
ir allt, minninguna um góðan afa
geymi ég í hjarta mér.
Ég bið þann sem öllu ræður að
halda verndarhendi yfir elsku
ömmu, pabba, Góu frænku og
Helgu frænku, sem hugsað hefur
svo vel um afa og ömmu í mörg ár,
sem og að styrkja okkur öll í þessarf
sorg.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof iýrir liðna tíð.
Mai’gs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þeni tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Vertu sæll, afi minn, við sjáumst
síðar á æðri stöðum.
Þín sonardóttir,
Pálína og fjölskylda.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/