Morgunblaðið - 02.02.1999, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þjóðhagsstofnun kannar tekjuþróun samkvæmt skattframtölum 1997
Meðalatvinnutekjur
124 þúsund á mánuði
næst hæstar voru þær á Vestfjörðum eða 1.835
þúsund kr.
Fram kemur við samanburð á tekjuskatts-
stofni framteljenda að 28,4% eða um 58 þúsund
manns voru með tekjur undir 58.466 kr. á mán-
uði, sem voru skattleysismörk í staðgreiðslu.
Einnig kemur í ljós að framtalinn arður af
hlutabréfum margfaldaðist á árinu 1997 saman-
borið við árin á undan. 1996 nam hann 1.389 millj.
kr. en á árinu 1997 var hann 4.208 millj. kr. skv.
framtölum og hafði aukist um 203%. A sama tíma
fjölgaði þeim sem töldu fram arð af hlutabréfum
um 12,3%.
■ Atvinnutekjur hæstar/6
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
MEÐALATVINNUTEKJUR landsmanna á ár-
inu 1997 voru 1.486 þúsund kr. eða um 124 þús-
und kr. til jafnaðar á mánuði. Kaupmáttur at-
vinnutekna jókst um 5,5% frá árinu á undan. Á
árinu 1997 voru meðalráðstöfunartekjur hjóna
2.730 þús. króna, eða 227,5 þús. kr. á mánuði að
jafnaði. Hækkuðu meðalráðstöfunartekjur hjóna
frá fyrra ári um 7,6%. Þetta kemur fram í frétt
frá Þjóðhagsstofnun þar sem gerð er grein fyrir
samanburði á tekjum og eignum framteljenda
samkvæmt skattframtölum vegna áranna 1996
og 1997.
„Þegar litið er yfir nokkurt árabil hefur dreif-
ing atvinnutekna hneigst í átt til meiri tekjumun-
ar. Undanfarin tvö ár hefur hins vegar dreifingin
haldist lítt breytt eða jafnvel orðið jafnari. Sköp-
um virðist skipta að dregicfhefur úr atvinnu-
leysi,“ segir í samantekt Þjóðhagsstofnunar yfír
niðurstöður samanburðarins.
Meðaltekjur hærri á
höfuðborgarsvæðinu
Á árinu 1997 voru meðalatvinnutekjur á höfuð-
borgarsvæðinu talsvert hærri en á landsbyggð-
inni eða 1.834 þús. kr. á móti 1.775 þús. kr. á
mann á landsbyggðinni og hækkuðu um 7,6% á
milli ára á höfuðborgarsvæðinu samanborið við
6,6% aukningu á landsbyggðinni, skv. saman-
burði stofnunarinnar. Meðaltekjur voru hæstar í
Reykjaneskjördæmi á árinu eða 1.897 þús. kr. og
Máli Sig-
urðar Giz-
urarsonar
vísað frá
HJÖRTUR 0. Aðalsteinsson héraðs-
dómari féllst í gær á frávísunarkröfu
Jóns G. Tómassonar ríkislögmanns,
þess efnis að vísa máli Sigurðar
Gizurarsonar, fyrrum sýslumanns á
Akranesi, frá héraðsdómi. Sigurður
hefur kært úrskurðinn til Hæsta-
réttar. Sigurður krafðist ógildingar
þeirrar ákvörðunar dómsmálai'áð-
herra að flytja sig úr sýslumanns-
embættinu á Akranesi til Hólmavík-
ur 5. júní 1998 og krafðist jafnframt
sjö milljóna króna miskabóta. Frá-
vísunarkröfuna byggði ríkislögmað-
ur á því að ríkið hefði fallið frá
ákvörðun sinni um að flytja Sigurð
til í embætti þar sem hann hefði
ákveðið sjálfur að segja upp starfi
sínu sem sýslumaður á Akranesi og
því væru engar forsendur fyrh- því
að dómtaka málið.
FUGLALÍFIÐ er fjörugt á
Blönduósi og þar er fagurt yfir
að líta þegar gott er veður. Þess
er þó varla að vænta að mikið
Fuglalíf
verði um stillur á næstunni því
Veðurstofan segir að hver
lægðin af annarri sé væntanleg
fram eftir vikunni.
Arnarnesland
Kynnti
hugmynd-
ir um
skipulag
JÓN Ólafsson, eigandi Skífunn-
ar, átti í gærmorgun fund með
bæjaryfirvöldum í Garðabæ um
framtíðai-skipulag lands, sem
hann keypti nýlega og er á Arn-
arnesi en tilheyrir Garðabæ.
Ingimundur Sigurpálsson,
bæjarstjóri í Garðabæ, sagði í
gær að Jón, sem komið hefði til
fundarins ásamt þremur mönn-
um, hefði kynnt sín sjónarmið
og hugmyndir og um leið verið
að spyrjast íyrir um stöðu mála.
Hann kvaðst ekki hafa mótað
afstöðu sína til tillagna Jóns á
þessu stigi og ætti hann von á
að þær yrðu bráðlega kynntar
með formlegum hætti þannig
að hægt yrði að taka málið fyrir
i bæjarstjórn.
Fundurinn í gær stóð í rúma
klukkustund og var farið yfir
skipulag bæjarins og forsendur
þess. Um er að ræða 44 hektara
land á Arnarneshálsi, austan
Hafnarfjarðarvegar. Kaupverð-
ið hefur ekki verið gefið upp, en
talan 700 milljónir hefur verið
nefnd.
*
Afengisverð
hækkar
um 0,85%
VERÐ á áfengi hækkaði um
mánaðamótin. Hækkar áfengi
að meðaltali um 0,85% og bjór
um 0,33%. Stafa breytingamar
af verðhækkunum hjá birgjum.
Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins hefur gefið út nýja
verðskrá með upplýsingum um
608 tegundir áfengrí sem seld-
ar eru í verslunum ÁTVR sem
kjarnavara eða í reynslusölu og
um 1.749 tegundir sem unnt er
að sérpanta. Verð á tóbaki
breytist ekki.
Norræni þróunarsjóðurinn er tiu ára um þessar mundir
Islendingar borga 1% en
fá 2% af framkvæmdum
Helsinki. Morgunblaðið.
FYRSTU tíu starfsár Norræna
þróunarsjóðsins (NDF) voru til
umræðu á fundi sjóðsins er haldinn
var í Helsinki í gær en hann var
settur á laggirnar árið 1989. Þar
kom m.a. fram að íslendingar hafa
notað aðstoð sjóðsins vel til að
koma þróunarverkefnum sínum í
framkvæmd, til dæmis í Malaví og
á Grænhöfðaeyjum.
Þegar litið er á niðurstöður
sjóðsins fyrir tímabilið 1989-1999
kemur í Ijós að íslendingar hafa
greitt eitt prósent af stofnfé sjóðs-
ins. Verkefni á vegum íslendinga
eru hins vegar hlutfallslega tvöfalt
umfangsmeiri. Þetta kemur m.a.
fram í tíu ára sögu sjóðsins sem
kynnt var í Helsinki í gær, en það
var Jónas H. Haralz er ritaði af-
mælisrit sjóðsins og rakti hann
helstu þætti í sögunni í erindi í
gær.
Norðurlandaþjóðirnar áforma nú
að auka stofnfé sjóðsins enda hafa
verkefni á hans vegum verið mjög
farsæl. Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra, sem sat fundinn í
Helsinki, segist viss um að Norður-
landaþjóðirnar muni ná samkomu-
lagi um að efla sjóðinn. Einnig komi
til greina að auka hlutdeild Islend-
inga lítillega.
Ingvar Birgir Friðleifsson, full-
trúi fslendinga í stjórn sjóðsins,
segist vilja undirstrika að íslend-
ingar hafi ekki hagnast á starfsemi
þróunarsjóðsins. Hins vegar hafí
verkefni að frumkvæði íslendinga
hreinlega verið svona umfangsmik-
il. Að takmarka verkefni við fram-
lag væri ekki skynsamlegt.
Ok á ljósastaur
KONA á fímmtugsaldri var flutt
á slysadeild með sjúkrabifreið
eftir að hafa ekið bifreið sinni á
Ijósastaur í miklu hvassviðri á
mótum Vesturlandsvegar og
Höfðabakka um þrjúleytið í gær.
Meiðsl hennar voru ekki alvar-
leg, en bifreiðin skemmdist tals-
vert og var dregin á brott með
kranabifreið.
Á ÞRIÐJUDÖGUM
: Örn sækir keppni út
: fyrir landsteinana /B5
'Ssss Heiiiuli -S*®
IÁSHK.MK
; Yorke skaut Manchester
; United á toppinn/B9
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is