Morgunblaðið - 02.02.1999, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 21
VEFUR um verkefnið
Nýsköpun ‘99.
VEFUR helgaður minningu
Halldórs Laxness.
VEFUR vegna Landssímadeild-
arinnar í fótbolta.
VEFUR vegna Meistaradeildar-
innar í fótbolta sl. sumar.
SÉRSTAKUR vefur um landsleik
Islands og Rússlands.
VEFUR um Nissan-deildina í
handbolta.
SVIPMYNDAVEFUR með
myndum liðinna vikna.
JÓLA- og nýárskortavefur
mbl.is.
MYNDASÝNING Þorkels Þor-
kelssonar frá írak.
SÉRSTÖK myndasýning vegna
eldsumbrota í Grímsvötnum.
MYNDASÝNING Þorkels Þor-
kelssonar frá Kúbu.
STJÖRNUSPÁIN er aðgengileg
á vefnum.
til að mynda verði, fermetra- og/eða
herbergjafjölda, staðsetningu og svo
má telja. Margir fleiri vefír hafa ver-
ið opnaðir, alls á fjórða tug. Meðal
vefja má nefna vef í minningu Hall-
dórs Laxness þar sem hægt er að
lesa um verk skáldsins, minningar-
orð um það og æviatriði.
Iþróttaáhugamenn hafa verið stór
hluti af gestum vefjarins og hafa
fengið nokkuð fyrir sinn snúð því
fjölmargir vefir helgaðir viðburðum
á því sviði hafa verið opnaðir. Sumir
hafa verið vegna tímabundinna upp-
ákoma, eins og vefur vegna tug-
þrautarmótsins í Talence, þar sem
Jón Arnar Magnússon vann frækinn
sigur, vefur vegna landsleiks Islend-
inga og Frakka sem frægur varð,
vefur vegna landsleiks við Rússa og
síðan vefir sem fjalla um deildar-
keppni í boltaíþróttum; Landssíma-
deildina, þar sem lesa mátti um
hvern einasta leikmann í deildinni og
sjá mynd af honum, Meistaradeild-
ina, DHL-deildina og Nissan-deild-
ina. Einnig var settur upp vefur
vegna Heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu sl. sumar þar sem fínna
mátti upplýsingar um hvern einasta
leikmann keppninnar. Með því að
nýta gagnagrunn mbl.is hefur gefíst
fágætt tækifæri til að fá yfirsýn yfir
ýmsa tölfræði tengda íþróttinni, til
að mynda um markaskorun, brot og
þar fram eftir götunum.
Aður er getið um birtingu mynda
á vefnum, en á mbl.is hafa verið sett-
ar upp sérstakar myndasýningar
vegna ferða ljósmyndara Morgun-
blaðsins til Kúbu og Iraks. Einnig
var sett upp sérstök sýning á mynd-
um úr Grímsvatnagosinu, en í upp-
hafi hverrar viku eru settar inn á
vefinn svipmyndir frá liðinni viku,
innlendar og erlendar. Þar er einnig
hægt að sækja sér myndir til að nota
sem bakgrunn á skjáborð tölva.
Einnig hefur vefur með daglegri
stjörnuspá notið mikillai- hylli, en á
honum má einnig lesa spá fyrir árið
og kanna hversu vel merkin eiga
saman. Teiknimyndasagan um Dil-
bert hefur notið mikilla vinsælda,
enda sér margur skrifstofumaðurinn
sjálfan sig í heimi hans.
Fyrir jól var settur upp á mbl.is
sérstakur vefur í tilefni af útgáfu
Bókatíðinda, þar sem nálgast mátti
fróðleik um allar íslenskar bækur
sem komu út fyrir jól, og skömmu
síðar var settur upp samskonar
plötuvefur. Báðir þessr vefir eru í
fullu gildi og þar er til að mynda
hægt að lesa dóma um fjölmargar
bókanna og plötur einnig.
Sérstakur vefur var upp settur í
tilefni af sveitarstjórnarkosningun-
um í vor, sá umfangsmesti sinnar
tegundar hér á landi, en í honum var
að finna nöfn allra frambjóðenda í
kosningunum og myndir af hundruð-
um þeirra.
Fyrir jól var settur upp á vefnum
jóla- og síðar nýárskortavefur, þar
sem fólki gafst kostur á að senda
kort hvert á land sem er með mynd
að eigin vali úr talsverðu úrvali.
Skemmst er frá því að segja að sá
vefur naut mikillar hylli og fóru um
hann ríflega tólf þúsund jóla- og
nýárskort.
Nemendum grunnskóla er boðið í
starfskynningu á Morgunblaðinu og
þá einnig að bregða sér í hlutverk
blaðamanna og skrifa greinar sem
birtar eru á vefnum undir sérstökum
lið helguðum skólaheimsóknum.
Fréttir frá fimmtán slíkum heim-
sóknum má nálgast á vef mbl.is.
í árslok var síðan settur upp vefur
með svipmyndum líðandi árs og sér-
stakur fréttaannáll með yfirliti yfir
helstu fréttir ársins, hundruð frétta
ólíkrar gerðar þar sem raktir voru
helstu viðburðir hér heima og er-
lendis, íþróttaafrek og uppákomur.
Fréttavefur Morgunblaðsins hefur
einnig efnt til samstarfs við ýmsa
aðra netmiðla til að auka þjónustu
við lesendur sína og þannig má nálg-
ast Netfangaskrá Miðlunar og Gulu
línuna frá vef mbl.is, vefur um kvik-
myndir, Kvikmyndir.is, er einnig að-
gengilegur, hægt er að fá upplýsing-
ar um gengi af Fjármálatorgi Tölvu-
mynda, lesendur mbl.is geta fengið
allar helstu upplýsingar um verkefn-
ið Reykjavík - menningarborg Evr-
ópu árið 2000 með því að smella á
hnapp á forsíðu og svo má telja.
Náið samstarf milli deilda
Þar sem um nýjan miðil er að
ræða hefur vinnuferillinn tekið mikl-
um breytingum á árinu sem er liðið
og reglur um útlit, framsetningu,
kynningu og auglýsingavinnslu orðið
til nánast jafnharðan. í því skipti
sköpum náin samvinna auglýsinga-
deildar, markaðsdeildar, netdeildar,
ritstjórnar og framkvæmdastjóra.
Þar sem áhersla er lögð á að koma
fréttunum á framfæri sem fyrst er
nokkur eðlismunur á fi-éttum Frétta-
vefjarins og Morgunblaðsins, en
upplýsingar um fréttnæma viðburði
berast með svipuðum hætti og til
annarra fréttastofa, ábendingar, til-
kynningar og annað efni. Megin-
heimild að erlendum fréttum er
Reuters-fréttastofan sem gerður var
sérstakur samningur við um birtingu
frétta á Netinu, en einnig er fylgst
með öðrum fjölmiðlum á Netinu. í
ákveðnum málum hefur netdeild átt
samstarf um fréttaskrif við ritstjórn
Morgunblaðsins, en deildin nýtur
mikils stuðnings ritstjómar Morgun-
blaðsins við upplýsingaöflun.
Einn af kostunum við netblaða-
mennsku er að notendur eru í virku
sambandi og oft koma ábendingar
um fréttaefni frá þeim. Þeir veita
líka aðhald og eru fljótir að láta vita
ef eitthvað fer úrskeiðis, t.d. ef villur
verða í texta.
A virkum dögum eru að jafnaði
um 50-60 fréttir unnar af frétta-
mönnum Fréttavefjarins, og við það
bætast 30-40 fréttir úr Morgunblað-
inu á morgnana. Þessi tala er eitt-
hvað lægri um helgar. Alls hafa um
35.000 fréttir birst á Fréttavefnum
frá upphafi ef taldar eru með fréttir
þær sem settar hafa verið inn úr
Morgunblaðinu. Fréttirnar sem unn-
ar eru fyrir Netið birtast að öllu
jöfnu ekki í Morgunblaðinu en það
kemur auðvitað fyrir að fréttir sem
skrifaðar hafa verið á Fréttavefnum
birtast óbreyttar í Morgunblaðinu.
STJOhnU
OG HÚ
LjJ" J J
om
SMARETTiR
í VEISLUNA
JULIUS BRJANSSON SJONVARPSSTJARNAN UR „FOSTUM LH)UM“:
„VIL LEIKA MEIRA“ - PERSÓNULEIKAPRÓF - FL0TT PEYSA Á STRÁKA
HEIMIUSLÆKNIRINN - ÁSTIR 0G BANKARÁN' SMÁSAGA