Morgunblaðið - 02.02.1999, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Alnæmisveiran
rakin til einnar
apategundar
London. The Daily Teieuraph.
VISINDAMENN hafa uppgötv-
að, að HIV-1, veiran, sem veld-
ur alnæmi, eigi upptök sín í
ákveðinni sjimpansategund í
regnskógum Mið-Afríku en
hún er nú í útrýmingarhættu.
Þeir hafa því ráðið þá gátu,
sem glímt hefur verið við í 20
ár eða síðan sjúkdómsins varð
fýrst vart fyrir alvöru. Nú eru
að minnsta kosti 30 milljónir
manna sýktar.
Rannsóknirnar sýndu meðal
annars, að uppkoma sjúkdóms-
ins tengist eyðingu regnskóg-
arins og meiri neyslu á apa-
kjöti en hún hefur aukist eftir
því sem vegir hafa verið lagðir
lengra inn í skógana. Leggja
vísindamennimir áherslu á, að
allt verði gert til að vernda
umrædda sjimpansategund frá
útrýmingu því að hún kunni að
geta skýrt hvers vegna HIV-
veiran sýkir menn en ekki
apana þótt sjimpansar og
menn séu erfðafræðilega eins
að 98%.
Það voru þau dr. Beatrice
Hahn og dr. Feng Gao við há-
skólann í Alabama og Paul
Sharp, prófessor við háskólann
í Nottingham, sem unnu að
rannsókninni og kynntu niður-
stöður liennar á ráðstefnu í
Chicago í fyrrakvöld.
Ólíkar tegundir eftir öpum
Uppgötvunin fólst í því að
rekja ættartré hinna ýmsu af-
brigða veirunnar en í öpum
hefur fundist skyld tegund,
sem kallast SIV. Nú er Ijóst, að
SlV-veiran er mismunandi eft-
ir því í hvaða apategund hún
er og tekist hefur að tengja
HIV-1 við SIV í einni ákveðinni
tegund. Lifir hún í Mið-Afríku
eins og áður segir og heitir á
fræðimáli Pan Troglodytes
troglodytes. Gera vísinda-
mennirnir grein fyrir rann-
sóknum sínum í væntanlegu
hefti af visindatimaritinu Nat-
ure.
Það styður líka þá niður-
stöðu, að HIV-1 sé skyld SIV í
fyrmefndri apategund, að
heimkynni hennar em einmitt
á þeim svæðum í Vestur-Af-
ríku þar sem sjúkdómsins varð
fyrst vart.
Þótt alnæmissjúkdómurinn
hafi ekki orðið að faraldri fyrr
en eftir miðja þessa öld, þá tel-
ur dr. Hahn, að hann hafl oft
komið upp á liðnum öldum.
Hann hafí hins vegar orðið að
faraldri á þessari öld vegna
samfélagslegrar upplausnar,
flóttans til borganna, ófriðar
og stóraukins lauslætis. Finnst
honum ekki óliklegt, að enn
eigi sér stað smitun á milli
manna og apa.
Skógarhögg á verndarsvæði
í skýrslu frá Regnskóga-
stofnuninni segir, að Evrópu-
sambandið liafi kostað vegar-
lagningu í gegnum búsetu-
svæði fyrmefndra sjimpansa í
Kamerún án þess, að nokkurt
umhverfismat hafi farið fram.
í framlialdi af því sé nú stund-
að skógarhögg í Dja-griðland-
inu, sem er alþjóðlegt verndar-
svæði, og meðal annars af
frönskum, þýskum og ítölskum
skógarhöggsfyrirtækjum.
Reuters
Borís Jeltsín 68 ára
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
fékk Alexíj II patríarka, æðsta-
prest rússnesku rétttrúnaðar-
kirkjunnar, og Jevgení Príma-
kov forsætisráðherra í heim-
sókn til sín á 68 ára afmælis-
daginn í gær, en hann er enn að
ná sér af magasári. Eins og sjá
má var Jeltsín hinn kátasti þeg-
ar hann skálaði í tilefni afmæl-
isins við patríarkann.
Jeltsín dvelur nú á Barvikha-
heilsuhælinu rétt utan við
Moskvu, en hann var færður
þangað á laugardag eftir að
hafa legið 1 hálfan mánuð á
sjúkrahúsi. Læknar hans sögðu
lyljameðferð hafa skilað ár-
angri og uppskurður ætti ekki
að vera nauðsynlegur. En hann
þurfi ró í um tvær vikur í viðbót
til að magasárið grói.
ERLENT
Skorað á Saddam að
sýna samstarfsvilja
Bagdad, Davos, London. Reuters, The Daily Telegraph.
HÁTTSETTUR fulltrúi íraks-
stjómar sagði í gær að tilraunir
Bandaríkjamanna til að grafa und-
an stjóm Saddams Husseins væm
dæmdar til að mistakast. „írak mun
áfram verða til, ríkisstjórn Iraks
mun sitja áfram og Saddam
Hussein_jnun áfram vera forseti,"
sagði Hameed Saeed, aðstoðamáð-
herra í upplýsingaráðuneytinu, við
fréttamenn í Bagdad.
Ummæli Saeeds koma í kjölfar
þess að tveir fulltrúar bandarískra
stjórnvalda komu í heimsókn til
Persaflóaríkjanna í því augnamiði
að ræða um mögulegar leiðir til að
velta Saddam úr sessi. „Þessu fólki
mun mistakast ætlunarverk sitt,“
sagði Saeed og bætti því við að þeir
sem leituðu ásjár málaliða myndu
bíða ósigur.
Fyrr í gær hafði Hosni Mubarak,
forseti Egyptalands, hvatt Saddam
til að sýna Sameinuðu þjóðunum
samstarfsvilja því það væri eina
leiðin til að leysa íraksdeiluna.
Samþykkti öryggisráð SÞ á sunnu-
dag að endurskoða öll samskipti við
stjómvöld í Bagdad. Verður t.a.m.
lagt mat á stöðu afvopnunarmála í
írak og lífsskilyrði íbúa íraks sem
þurfa að þola skort vegna viðskipta-
þvingana SÞ.
Hafði Saddam gagnrýnt þessar
hugmyndir strax á sunnudag og Sa-
eed bætti um betur í gær. „Við höf-
um engan áhuga á þessum ákvörð-
unum SÞ því þær hunsuðu skoðanir
okkar.“ Vilja Irakar að viðskipta-
banninu verði aflétt umsvifalaust.
Reuters
IIAMEED Saeed, aðstoðarupplýsingamálaráðherra íraks, ræðir við
fréttamenn í Bagdad í gær.
Áfram árásir um helgina
Dagblöð í Irak greindu frá því í
gær að Saddam Hussein hefði lofað
hersveitum sínum tæplega einni
milljón íslenskra króna tækist þeim
að skjóta niður herþotui- Breta og
Bandaríkjamanna, sem eftirlit hafa
með flugbannssvæðinu yfir norðui--
hluta Iraks. Skutu breskar og
bandarískar herþotur eldflaugum á
skotmörk á jörðu niðri á sunnudag
og á laugardag höfðu bandarískar
herþotur einnig skotið eldflaugum á
skotmörk í nágrenni borgarinnar
Mosul í Norður-írak. Hafa breskar
herþotur ekki skotið eldflaugum á
skotmörk í Irak síðan fjögurra daga
árásunum á írak lauk í desember.
Sendu samtök útlægra íraka,
sem aðsetur hafa í London, frá sér
yfirlýsingu í gær þar sem því var
haldið fram að þrír háttsettir liðs-
foringjar í lýðveldisverði Saddams
hefðu verið teknir af lífi um miðjan
janúar fyi'ir að hafa lagt á ráðin um
að steypa Saddam af stóli. Voru
þeir skotnir, að félögum sínum að-
sjáandi, öðrum til viðvörunar.
Evrópuþingmaður breska Ihaldsflokksins í hneykslismáli
Tekinn í tollinum með
klámefni og eiturlyf
London. The Daily Telegraph.
TOM Spencer, þingmaður breska
íhaldsflokksins á Evrópuþinginu,
tilkynnti á sunnudag að hann hygð-
ist ekki bjóða sig fram fyrir flokk
sinn í Evrópuþingkosningunum í
sumar. Höfðu fjölmiðlar í Bretlandi
áður greint frá því að Spencer hefði
verið tekinn í tollinum með eiturlyf
og klámefni. Kom í kjölfarið upp úr
kafinu að Spencer hneigist ekki síð-
ur til karla en kvenna.
Spencer, sem m.a. hefur verið
leiðtogi þingmanna íhaldsflokksins í
Brussel, mun gegna þingmennsku
fram í júní en lætur þá af störfum.
Er hann fyrsta fórnarlamb nefndar
sem William Hague, leiðtogi íhalds-
manna, kom á fót og sem ætlað er að
úrskurða í málum þar sem þing-
menn flokksins hafa gerst sekir um
siðferðisbrest.
Hague er mikið í mun að sýna
fram á að menn gjaldi ekki fyrir
kynhneigðir sínar en sú staðreynd
að Spencer viðurkennir að hafa haft
meðferðis eiturlyf, og þar með brot-
ið lögin, þýðir að siðanefnd flokkins
hefði án efa komið í veg fyrir að
Spencer byði sig fram að nýju fyrir
íhaldsmenn.
Lét sjálfur vita af kókaini eftir
að tollvörðum yfirsást það
Spencer er giftur og tveggja
barna faðir en segist vera samkyn-
hneigður. Var hann tekinn í tollinum
á Heathrow fyrir tveimur vikum með
klámblöð og spólur fyrir homma, auk
þess sem tvær kannabisjónur fund-
ust einnig í farangri hans. Var
Spencer þá að koma frá Amsterdam
þar sem hann hafði eytt helgi með
vini sínum.
Farangur Spencers
týnst á leiðinni til
London. Hringdu toll-
verðir í þingmanninn
degi síðar og kváðust
hafa fundið farangurinn
en sögðu jafnframt að
þeir hefðu fundið klám-
efni og kannabis. Mun
Spencer hafa verið
samvinnufús og viður-
kenndi jafnvel að kóka-
ín væri í farangrinum,
þótt tollverðir hefðu
ekki fundið það.
„Ég leitaði í far-
angrinum og fann
kókaínið fyrir þá. Lög-
maður minn, sem var
með mér, hélt ég væri
gjörsamlega genginn af göflunum.
Þetta var afar lítið magn og þeir
sögðust ekki ætla að aðhafast neitt
heldur líta framhjá því. Ég hefði ein-
faldlega átt að fleygja því en ég nota
ekki kókaín, ég er ekki hlynntur
notkun þess.“
Greiddi Spencer sextíu þúsund
króna sekt og bæði klámefnið og eit-
urlyf voru gerð upptæk. Lýsti hann
hegðun sinni sem „hrikalega
heimskulegri".
Samkynhneigðin var
ekkert leyndarmál
Eiginkona Spencers, Liz, hefur
alla tíð haft vitneskju um samkyn-
hneigð eiginmanns síns og sömdu
þau hjón um það, er þau gengu í
hjónaband fyrir nítján árum, að þeg-
ar „homminn kæmi upp“ í Spencer
gæti hann látið undan
hvötum sínum þótt þau
lifðu að öðru leyti eðli-
legu lífi. Böm þeirra
tvö munu hins vegar
ekki hafa haft hug-
mynd um að faðir
þeirra hneigðist ekki
síður til karla en
kvenna.
Hefur Spencer aldrei
flíkað samkynhneigð
sinni og kvaðst ekki
vita hvort nokkur kjós-
enda hans hefði vit-
neskju um hana. Hann
hefði hins vegar alltaf
verið hreinskilinn við
fólk og aldrei reynt að
leyna neinu. „Fólk hefur einfaldlega
ekki spurt um þetta.“
Sagði Liz Spencer að hún myndi
standa með eiginmanni sínum eins
og endranær. „Fólk spyr mig stund-
um hvemig við getum haft svona
„samning“ og jafnframt sagst að-
hyllast hefðbundin „fjölskyldugildi“.
En ástúð er afar mikilvægt fjöl-
skyldugildi og heimili okkar er fullt
af ást.“ Sagðist hún einnig hafa
heyrt þær raddir að dætur þeirra
hjóna væra alls ekki dætur Toms
þar sem hann væri hommi. „En að
sjálfsögðu er hann faðir þeirra. Við
lifum afar ánægjulegu kynlífi þótt
hann sé líka gefinn fyrir karla.“
mun hafa
Tom Spencer