Morgunblaðið - 02.02.1999, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 31
LISTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
WIMMEBAND á tönleikum í Norræna húsinu sl. laugardag.
Samagaldur
Tvær sjald-
heyrðar
smáperlur
TONLIST
IVorræna húsið
WIMMEBAND
Wimme Saari rödd, Tapani Rinne,
bassaklarínett og blokkflauta, Jari
Kokkonen bassasynti og samplerar,
Matti Wallenius gítar mandóhn ukul-
ele og banjó. Verk eftir Wimme og
samísk joik. 30. janúar 1999.
ÉG HEYRÐI fyrst í Tapani
Rinne árið 1991. Finnska útvarpið
dreifði diski er nefndist Radio mafia
þar sem nýir straumar í fmnskum
djassi voru kynntir og þar mátti
heyra magnaðar sveitir einsog
Krakatau með gítaristann Raul
Björkenheim í broddi fylkingar og
Rinneradio - sveit Tapani með Jari
Kokkonen á bassa og Vimme í joiki.
Þessar sveitir bjuggu yfir náttúru-
krafti sem ekki var algengur í nor-
rænum djassi þá, nema hjá landa
þeirra, trommaranum Edward Ver-
sala, en með honum hafði Tapai
leikið. Blés m.a. í meistarverki Ver-
sala, Lumi (ECM 13339).
Frægasta dæmi um samvinnu
djassleikara og joikara er þó þegar
stórmeistarinn Jan Garbarek fékk
Ingor Antte Allu Gaup til að joika
tvö lög á skífu sinni: I took up the
runes (ECM 1419). Oft hafði hann
einnig unnið með samísku heims-
söngkonunni Marie Boine.
Það var troðfullt í Norræna hús-
inu á laugardagskvöldið síðasta.
Alls konar fólk með alls konar
væntingar. Rinne, vinur minn, var
ekki í djasshorninu sínu eins og ég
hafði vænst. Blés þó hverja ryþma-
þrautina annarri betri í bassaklar-
ínettið og tók upp blokkflautuna á
viðkæmum stundum. Jari
Kokkonen stóð við hljómborðið og
hreyfði fingur endrum og eins -
annars var þetta allt samplað. Wal-
lenius skipti frá dvergvöxnum ukul-
ele til stókallalegs gítars og þegar
banjóið var uppi var kábojfílingur í
tónlistini og Wimmi sönglaði eins og
indíáni á sléttunni með Lukku Láka
í heimsókn. Annars voru lögin tólf á
efnisskránni öll með samískum blæ,
en Wimme er enginn þjóðlagaraul-
ari. Hann byggir á joik hefðinni
einsog meistari Pétur Pálsson
byggði á rímnahefðinni í sínum
verkum - en báðir lúta hinum list-
rænu lögmálum.
Balkantónlistin streymir nú um
heiminn og hún hefur ekki farið
framhjá Wimme eins og berlega
kom fram í fjórða verki tónleikanna.
Það var mjög vel heppnaður bræð-
ingur, aftur á móti var ekki eins
auðvelt að aðlaga barselíusömbuna
joikinu einsog Wimme reyndi í
tvígang. Meistari Jobim er af öðru
sauðahúsi en hreindýrahirðarnir í
norðri.
Hvað um það. Tónleikar Wimme-
bandsins voru dýrleg reynsla og
þakkir séu Norræna húsinu fyrir.
Snillingar á borð við Jan Garbarek
og Tapani Rinne hafa brætt
samíska tónlist í djassspuna sinn.
Frumkvöðull norræns þjóðlaga-
djass, Jan Johnasson, notaði upp-
tökur með tröllurum úr Dölunum til
að spinna með. Er ekki kominn tími
til að við hér á klakanum reynum
slíkt hið sama og tökum upp merki
Péturs Pálssonar, en með honum
eni margar stemmur til á segul-
bandi.
Vernharður Linnet
TONLIST
H á s a 1 i r
KAMMERTÓNLEIKAR
Haydn: „Lundúna“-tríó nr. 3;
Beethoven; Tríó op. 87. Petrea
Óskarsdóttir, flauta; Martin
Frewer, fiðla; Þórhildur Óskars-
dóttir, selló. Hásölum, Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar, laugardaginn
30. janúar ld. 16.
ÞAÐ voru stuttir en laggóðir
tónleikar sem þrír hljóðfæra-
kennarar við Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar efndu til á laugar-
daginn var, eða ekki nema rétt
rúmlega hálftími að lengd - að
meðtöldu aukalagi, lipurri útsetn-
ingu Martins Frewers á Litlu
fiugu Sigfúsar Halldórssonar.
Auk hins þráfalda tímaskorts til
samæfinga, sem löngum virðist
hrjá kammertónlistarlíf lands-
manna, gæti hér að vísu hafa
komið til verkaþurrð, því áhöfnin
flauta-fiðla-selló er ekki allt of al-
geng í sígildum tónbókmenntum
- eins og kannski sést bezt af því
að bæði verkin á dagskrá voru
frumsamin fyrir aðra hljóðfæra-
samsetningu, en hér leikin í um-
ritun; hvers eða hverra var ekki
tilgreint í tónleikaskrá.
„Lundúna“-tríó Haydns, alls
fjögur að tölu, voru frumsamin
fyrir tvær flautur og selló á önd-
verðum 10. áratug 18. aldar. Það
er merkilegt hvað verk sem þetta
- frá tímum þegar mörkin milli
„alvarlegrar-" og afþreyingartón-
listar voru ógleggri en seinna
varð (og sömuleiðis munurinn á
áhuga- og atvinnumennsku í
hljóðfæraleik) - hefur náð að
endast vel fram á okkar dag, þótt
ókunnara sé og minna flutt en
mörg örinur kammerverk
Haydns. Þrátt fyrir yfirbragð
skemmtitónlistar var yfir Tríói
nr. 3 þokki og jafnvel dýpt, sem
bar vott um þroska og reynslu
Haydns, og kannski líka um áhrif
Mozarts á hinn aldna meistara.
Komust þeir eiginleikar furðuvel
til skila í dágóðum leik þremenn-
inganna, þó að leikið væri fremur
beint af augum, án þess að nostr-
að væri sérlega mikið við smáat-
riði.
Samskonar aðhaldssemi í
hendingamótun, ekki sízt í stærri
einingum, mátti og greina í flutn-
ingi þeirra á Tríói Beethovens, en
þótt fersk og hispurslaus spila-
mennskan væri ekki óheillandi á
sinn hátt mátti samt gruna, að
hópurinn hefði getað fengið enn
meira úr báðum verkum með
lengri yfirlegu. Tríó Beethovens,
sem ber hina villandi ópustölu 87,
var samið á fyrstu árum hans í
Vínarborg og upphaflega fyrir
tvö óbó og enskt horn. I saman-
burði við Haydn-tríóið hafði það
ekki til að bera sama áreynslu-
lausa þokkann, en á hinn bóginn
varð hjá Beethoven áberandi vart
við þá frumlegu nýjungagirni
sem kom lærifóður hans Haydn
til að uppnefna hann „Stórmógúl-
inn utan af landi“ - t.a.m. í ný-
stárlegum módúlasjónum og
„dramatískri" gegnfærslumeð-
ferð sónötuformsins, sem hefur
ugglaust verið eins og köld vatns-
gusa framan í þann „galanta" stfl
sem ennþá eimdi töluvert eftir af
í Vín.
Það var vel til fundið að kynna
þessar fremur sjaldheyrðu smá-
perlur, sem þrátt fyrir nokkurn
skort á fínpússningu af hálfu
flytjenda voru leiknar í prýðilegu
jafnvægi og nutu sín vel í góðum
hljómburði nýja Tónlistarskóla-
salarins. Mætti gera meira af
slíku.
Ríkarður O. Pálsson
Áætla má að nú þegar séu u.þ.b. 3000 konur á íslandi sem taki inn að
staðaldry'J/fetlúpciCðfjölvítamín, ætluð konum 40 ára og eldri. Þökkum frábærar
viðtökur og munið að taka ávallt hylkið inn með máltíð og einu glasi af vatni.
Menopace er þróað af sérfræðingum til að hjálpa konum við að takast
á við breytingaraldurinn. Menopace inniheldur öfluga blöndu af 20
vítamínum og steinefnum. Menopace er mjög auðvelt í meðförum, aðeins
1 hylki á dag með máltíð. Menopace hentareinnig konum sem taka inn
hormónalyf. Menopace er fáanlegt í 30 og 90 daga skömmtum.
Góður valkostur til að viðhalda heilsu
og lífsþrótti, fyrir og eftir
breytingaraldur.
Fanný Jónmundsdóttir
leiöbeinandi Brian Tracy International
Menopace hylkin eru mjög hentug fyrir
nútimakonuna. Pau innihalda rikulega
skammta af helstu vítaminum og
steinefnum sem eru nauðsynleg konum fyrir
og eftir tíðarhvörf.
Hvet allar konur til að finna leiðir til
heilbrigðara lífernis á þessu frábæra
tirnabili.
VITABIOTICS
- þar sem náttúran
og vísindin vinna saman
Xínf^St'i*rn<fí -
vitamin- 'óg
■rissr.'sss-'
.............
Vttamin Jiaxmpý (• w
yjnk, stiw m
O
IfiTABtOTtCS
TiMOð
Ef þú kaupir 90 daga pakkningu af
Menopaœ þá fæst 1 glas af Orku Omega 3
Gildirtil 12.02/99
ORKU OMEGA 3
inniheldur ekki Aog D
vítamín og erþví frábært
viðbótarefni með
Menopace hylkjunum,
engin hætta á
ofskömmtum á þessum
fi tuuppleysanlegu
vítamínum.
mega
Fæst aðeins í lyfjaverslunum
Hringdu eftir bæklingi í síma 588 2334