Morgunblaðið - 02.02.1999, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 02.02.1999, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 49 hann hafði að geyma og hve hlýr hann í raun var. Við kveðjum í dag kæran félaga og samferðamann með söknuði. Þó er missir fjölskyldu hans mestur. Við vottum fjölskyldu Jóns okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að styrkja þau í þeirra miklu sorg. Vinnufélagar. Það dimmdi yfir þegar ég frétti að góður vinur okkar allra, Jón Árna, væri látinn. Mig langar að segja nokkur orð um fyrstu kynni af vini mínum Jóni Áma. Við kynntumst íyrir tíu árum, þegar hann hóf að æfa í World Class. Á þeim tíma var World Class opnað kl. 7.00 á morgnana og alltaf beið Jón í bflnum fyrir utan. Þá fór ég að mæta fyrr, fýrst tíu mínútum, síðan 20 mínútum og að endingu mætti ég kl. 6.30. Enn beið Jón fyrir utan og þá gafst ég upp og rétti hon- um lykil. í framhaldi af því sá Jón alfarið um að opna stöðina og á hann heiður af þeim langa afgreiðslutíma sem er í dag. Það má segja að World Class hafi verið eins og annað heim- ili Jóns þar sem hann missti varla dag úr æfingum. Það er mikill sjón- arsviptir og söknuður að horfa á bak góðum vini og félaga sem Jón var. Eg og allir í World Class sem þekkt- um Jón sendum Guðrúnu, Ama og Herði okkar innilegustu samúðar- kveðjur, því missir þeirra er mikill. Bjöm Leifsson. Elsku vinur. Nú ertu horfinn yfir móðuna miklu. Þitt skarð verður aldrei fyllt. Þitt kall er komið og enginn fær þar um breytt. Eftir sitjum við klökk og syrgjum þig sárt, kæri vinur. Við látum hugann reika tvo áratugi aftur í tímann. Þá vorum við ung og hress og nutum lífsins. Margt var þá brallað og enginn var hressari en þú. Þá var stutt í gamansemi þína og hlátur sem smitaði alla. Þú varst afbm’ða-bóngóður í orðsins fyllstu merkingu og það sást best á bílunum þínum hversu annt þér var um þá. Aldrei lástu á liði þínu þegar vinimir þurftu á því að halda. Þú komst í hvelli og bjargaðir hlutunum. Það lék allt í höndunum á þér. Snyrtimennska var þér í blóð borin - og hún var slík að stundum var erfitt að verjast brosi. Hjartans vinur. Hvíl þú í friði og hafðu þökk fyrir allt. Blessuð sé minning þín. „Sorgin er gríma gleðinnar. Og lindin, sem er uppspretta gleðinnar, var oft full af táram. Og hvernig ætti það öðruvísi að vera? Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. Þegar sál þín vegur gull sitt og silfur á metaskálum, hlýtur gleðin og sorgin að koma og fara.“ (Kahlil Gibran.) Elsku hjartans Guðrán, Ámi, Hörður, Salka Ósk og fjölskyldur, sorg ykkar er mikil. Megi algóður Guð styrkja ykkur og halda vemdarhendi sinni yfir ykkur. Kristín og Vignir. í dag kveðjum við Nonna. Hann var mikill hluti af okkar tilvera. Best þekktum við hann fyrir hvað hjálp- samur og góður maður hann var, hvort sem það var að hjálpa okkur við húsbyggingu, frágang á lóð eða bara alls konar snúningar fyrir okk- ur í Reykjavík. Aldrei stóð á því að gera allt sem hann gat fyrir okkur. Á svona stundu rifjar maður upp þá tíma sem við áttum saman, á ferðalögum í útilegu um helgar eða þegar við fóram hringinn í kringum landið. Þessum samvistum gleymum við aldi'ei. Við þökkum fyrir allar þær minningar sem við eigum um hann og kveðjum góðan dreng. Hans verður sárt saknað á okkar heimili. Elsku Guðrún, Árni, Hörður, Salka, Ósk og aðrir aðstandendur, við sendum ykkur einlægar samúð- arkveðjur. Logi, Fjóla og fjölskylda. INGOLFUR GUÐJÓNSSON + Ingólfur Guð- jónsson fæddist í Vestmannaeyjum 15. júlí 1913 og ólst upp á Skaftafelli. Hann andaðist á heimili sínu 23. jan- úar síðastliðinn. Foreldrar hans vom Guðjón Hafiiðason, f. 8.6. 1889, d. 13.7. 1963, og Halldóra Þórólfsdóttir, f. 10.7. 1985. Ingólfur átti tíu systkini og var hann elstur í þeim systkinahópi. Hin eru: Trausti, f. 13.8. 1915, Guðbjörg, f. 26.12. 1916; Auður, f. 7.4. 1918; Har- aldur, f. 12.12. 1920, d. 23.11. 1993; Rebekka, f. 23.3. 1923, d. 21.1. 1944; Elísabet, f. 5.3. 1926; Óskar, f. 26.12. 1927; Anna, f. 10.11. 1929; Ester, f. 4.4. 1934, og Hafiiði, f. 21.4. 1936. Hinn 20. nóvember 1943 kvæntist Ingólfur Jóhönnu Iljartardóttur frá Saurum í Laxárdal, f. 24.8. 1911, d. 27.12. 1998. Foreldrar Jóhönnu voru Hjörtur Jónsson, f. 4.12. 1889, d. 22.2. 1918, og Ása Egilsdótt- ir, f. 17.6. 1886, d. 1.7. 1931. Ingólfur og Jóhanna eignuð- ust tvo syni, átta barnabörn og átta barnabarnabörn. 1) Hjörtur Ásgeir, f. 29.5. 1945, kvæntur Margréti Helgadótt- ur, f. 16.12. 1945, og eiga þau þrjú börn. Þau eru: Jóhanna Inga, f. 1.7. 1966, Jónas Friðrik, f. 28.10. ,1969, og Hjördís Ósk, f. 20.9. 1978. 2) Jóhannes Esra, f. 7.10. 1948, kvæntur Báru Guð- mundsdóttur, f. 6.11. 1946, þau eiga fjögur börn. Þau eru: Ása Svanhvít, f. 15.9. 1966, Guð- mundur Ingi, f. 9.10. 1972, Ingólfur, f. 27.8. 1976, og Bryndís, f. 22.7. 1981. Jóhannes og Bára slitu samvistum. Seinni kona Jóhannesar er Guðný Anna Thórshamar, f. 18.1. 1953 og eiga þau eina dóttur, Irenu Dís, f. 4.2. 1991. Ingólfur og Jóhanna bjuggu lengst af í Lukku í Vestmanna- eyjum en fluttu til Reykjavíkur í gosinu 1973. I Vestmannaeyj- um vann Ingólfur í Lifrarsam- laginu, síðan sneri hann sér að hænsnabúskap og garðrækt. Er til Reykjavíkur kom vann hann sem baðvörður í Laugarnes- skóla þar til hann hætti störfum vegna aldurs. Útför Ingólfs fer fram frá Fíladelfíu, Hátúni 2, í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku afi minn, nú ertu kominn til hennar ömmu, ömmu sem dó fyrir aðeins 27 dögum. Þá sat ég og skrifaði minningargrein um hana. Einhvern veginn vissi ég að þið yrðuð ekki lengi hvort frá öðru, því þið voruð sem eitt en samt vonaði ég að við fengjum að hafa þig leng- ur. Þegar amma dó 27. desember sl. sá ég með eigin augum að þið voruð sköpuð hvort fyrir annað. En ástin mín, nú ertu þar sem þú vildir helst vera, hjá ömmu minni. Nú sé ég hvað Guð hefur elskað ykkur mikið því að hann hefur ekki viljað að þú yrðir meira lasinn en þú varst, lungun orðin léleg en öll hugsun góð. Þegar ég var lítil man ég svo vel eftir hvíta Land Rover- jeppanum og þú að keyra út eggj- unum úti í Eyjum. Ég og Asa frænka sátum aftur í og þú sagðir: „Leyfíð mér að heyra ykkur syngja“ og við sungum hástöfum og hossuðumst og það fannst okkur gaman. Þú varst svo passasamur upp á heilsuna, þegar við krakk- arnir komum í heimsókn þá var það fyrsta sem þú spurðir: „Takið þið ekki inn lýsi, eða er ég ekki unglegur?“ og síðan straukstu ömmu og sagðir, er hún ekki falleg. Þegar amma dó komum við Hall- dór og krakkarnir frá Vestmanna- eyjum. Mikið fannst mér gaman að hafa fengið að vera hjá þér þessa daga. Það er svo mikils virði er við systkinin skiptumst á að dekra svo- lítið við þig. Erfiðar voru fréttirnar þegar mamma hringdi í mig út til Póllands þar sem ég var stödd. En samt sagði ég að nú væri hann kominn til hennar ömmu, það var hans heitasta ósk. Elsku afi og amma, ég veit að þið passið okkur öll, ég hugsa alltaf til ykkar. Guð veri með ykkur. Elsku pabbi minn, þinn missir er mikill, báðir foreldrar þínir farnir á svona stuttum tíma. En þú veist, ástin mín, að þau gátu aldrei verið lengi í hvort í sínu lagi. Pabbi, mamma, Esra og við öll hin, megi góður guð vera með okkur öllum. Við skulum muna að hann er til og biðja til hans eins og þau kenndu okkur. Þín Jóhanna Inga. Elsku afi minn. Núna hefur þú kvatt okkur og ert farinn til ömmu sem þú saknaðir svo sárt. Oft töluð- uð þið amma um að þið vilduð helst fá að deyja saman, en ekki grunaði mig að svo stutt yrði á milli ykkar, tæpar fjórar vikur. Þessar vikur vora þér erfiðar og þótt við fjöl- skylda þín kæmum daglega til að stytta þér stundir og aðstoða þig vissum við að enginn kom í staðinn fyrir ömmu. Mér finnst ég hafa kynnst þér ennþá betur síðustu vik- urnar og samvera okkar og samtöl- umgleymi ég aldrei. Ég minnist þess að þegar ég var lítill strákur var ég varla kominn inn úr dyrunum hjá þér þegar þú spurð- ir mig hvort ég tæki ekki lýsi. í þá daga var ég nú stundum svolítið þreyttur á þessari spuraingu, en í dag veit ég að meiningin var svo góð á bak við hana. Ég á eftir að sakna þess að heyra þig segja þetta við mig og ég mun ekki gleyma að taka lýsi meðan ég lifi. Þú hugsaðir alltaf mikið um hollustu og heilnæmt mataræði og þegar þú heyrðir um eitthvað sem var hollt baðst þú mig gjarnan að nálgast það fyrir þig. Þú varst ekki alltaf jafn hrifinn af því þegar ég stundaði fótbolta, þér þótti það hættulegt og tímafrekt. Ég hafði gaman af því þegar þú sýndir mér fyrir stuttu gamla bók með fót- boltamynd af þér og þú sagðir mér stoltur frá því að þú skoraðir mark beint úr hornspymu. Síðustu árin hafðir þú sérstakt dálæti á smáfugl- unum, oft baðst þú mig að útvega þér kjötsag svo þú gætir fóðrað þá. Síðustu vikurnar hafðir þú ekki þrek til að gefa þeim sjálfur, þá baðst þú mig að dreifa saginu fyrir þig og þú hafðir svo gaman af því að sitja í stólnum þínum og horfa á þá éta. Dóttir mín var að æfa lag sem hún náði aldrei að syngja fyrir þig, text- inn minnir mig svo á þig, þetta er lagið: Frost er úti fuglinn minn, ég finn hvað þér er kalt... Elsku afi, mig langar að þakka þér fyrir allar þær stundir sem við CrfiscJrykkjur A VcKiflsohw/ið GflPi-mn Sími 555 4477 Skreytingar við öll takifitri Alvöru skreytinga- verkstaði Kransar Rauðibvammur Kistuskreytingar v/Suðurlandsveg, 110 Rvtk. Brúðarvendir áttum saman og allt sem þú gerðir fyrir mig. Minninguna um þig og ömmu mun ég varðveita, ég sé ykk- ur fýrir mér svo glöð og hamingju- söm eins og þið vorað alltaf. Elsku pabbi, mamma, Esra og fjölskyldur, megi góður Guð veita okkur styrk í sorg okkar. Jónas og fjölskylda. Er sárasta sorg okkur mætir, og söknuður huga vom grætir. Þá líður sem leiftur af skýjum, ljósgeisli af minningum hlýjum. (Hallgr.J. Hallgr.) I dag kveð ég gullmolann minn, hann afa minn. Hjarta mitt er fullt af söknuði og sorg, en þrátt fyrir alla sorgina er einnig mikil gleði í hjarta mínu. Því nú er hann afi minn kominn til ömmu minnar og heldur í hönd hennar og nú eru þau sameinuð á ný. Ég man að þegar ég var lítil fékk ég oft að gista heima hjá ömmu og afa í Ljós- heimunum og þá var svo gaman. Þau dekruðu við mig sem best þau gátu. Alltaf þegar klukkan sló tíu að kvöldi, var ávaxtatími, þá var amma búin að setja nokkra ávexti í skál og ég og afi gæddum okkur á þeim. Þetta fannst mér alltaf svo spennandi. Oft tók afi fram gítar- inn, og þá sungum við amma, eða við systkinin, þá var alltaf svo gam- an. Elsku afi minn, þú varst svo mikill listamaður, málaðir, saumað- ir og prjónaðir. Og eru til margar fallegar myndir eftir þig. Aidrei fékk ég afmæliskort nema á því væri teiknuð mynd sem hafði ein- hverja merkingu. Þegar ég var eins árs fékk ég mynd af kirkju og mjó- an veg að henni. Um þessa mynd talaðir þú oft og minntir mig á hvað hún ætti að merkja. Ég á alltaf að ganga mjóa veginn því hann er betri heldur en sá breiðari og hann mun leiðbeina mér á réttu brautina. Og það mun ég reyna að gera. Afmæliskortin .og jólakortin varðveiti ég á góðum stað. Þegar amma mín dó 27. desember sl. varst þú svo einmana. En þú varst alltaf svo ánægður og þakklátur fyrir það hvað við hugsuðum vel um þig. En ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að koma til þín því við kynntumst alveg upp á nýtt. Þegar ég kom inn og bauð góðan daginn sagðir þú: „Er þetta Hjör- dís, það er gott að sjá þig“ og ég kyssti þig á kinnina. Síðan spjölluð- um við um allt milli himins og jarð- ar. Og ekki leið á löngu þar til þú spurðir hvað þú ættir að fá að borða, og á meðan þú borðaðir sat ég og horfði á þig, gullmolann minn eins og ég kallaði þig svo oft. í síð- asta skiptið sem við hittumst kom ég til þín beint eftir skóla, þú varst sofandi inni í rámi svo ég lagðist fram í sófa. Þegar þú vaknaðir baðst þú mig um að koma og ég fór og lagðist í ömmu ból, alveg eins og þegar ég var lítil stelpa. Þegar þú kvaddir mig sagðir þú eins og alltaf: „Drottinn blessi þig og ég bið að heilsa.“ Núna þegar þú ert farinn sakna ég þess að geta ekki farið og gefið þér kvöldmatinn og spjallað við þig. En elsku afi minn, núna ertu með henni ömmu og ykkur líður vel. Drottinn blessi þig, afi minn, og hafðu þökk fyrir allt og allt. Elsku pabbi minn, mamma, Esra og fjölskyldur, missir okar er mikill á svona skömmum tíma. En nú eru þau sameinuð á ný og það var ósk þeirra beggja. Drottinn blessi ykkur. Þín afastelpa, Hjördís Ósk. Elsku afi, ekki er nema tæpur mánuður síðan við fylgdum henni ömmu til grafar. Ekki héldum við að svona stutt yrði á milli ykkar þó svo að við séum ekkert hissa á því, þið voruð nefnilega svo samrýnd hjón, að maður sá aldrei bara annað ykkar. Þið voruð alltaf saman hönd í hönd, hvar sem þið voruð. Elsku afi, við vitum að þér líður betur núna og við vitum líka að þetta var það sem þú vildir, að fá að deyja drottni þín- um sem þú þjónaðir svo vel alla tíð og að hitta hana ömmu aftur. Því að þótt þú hefðir okkur hin þá var bara búið að höggva svo stórt skarð í líf þitt þegar hún amma dó og þú bú- inn að eiga við veikindi að stríða að þetta var það sem þú hefðir beðið drottin um að gera fyrir þig og ég er viss um að þar varstu bænheyrð- ur, því að bæði þú og amma lifðuð í trúnni og fyrir trúna. Elsku afi, við þökkum fyrir þann tíma sem við höfðum með þér og sendum þér okkar hinstu kveðju og þennan sálm sem okkur fannst eiga svo vel við. Heyr orð min, drottinn, gef gaum að andvörpum mínum. Hlýð þú á kveinstafi mína, konungur minn og guð minn, því að til þín bið ég. Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína, á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig og ég bíð þín. (5. Davíðssálmur.) Ása, Guðmundur Ingi, Ingólfur, Bryndís og Ijölskyldur. A TILBOÐI 15 - 30% afsláttur ef pantað er í febrúar. 15% afsláttur af letri og skrauti. LEGSTEINAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.