Morgunblaðið - 07.02.1999, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999 7
UFEnRISSJOÐUR VERZLUNARMANNA
Upplýsingar um starfsemi á árinu 1998
MIKIL FJOLGUN SJOÐFELAGA
Lífeyrissjóður verzlunarmanna er stærsti lifeyrissjóður
landsins með 60,9 milljarða eignir. Á árinu 1998 greiddu
34.405 sjóðfélagar til sjóðsins og fjölgaði þeim um
4.204 eða um 14% frá fyrra ári. Iðgjaldagreiðslur til
sjóðsins námu 3.788 mkr. og er það aukning um 21 %.
Jafnframt greiddu 4.553 fyrirtæki til sjóðsins vegna
starfsmanna sinna og fjölgaði fyrirtækjum um 553 eða
um 14%.
RAUNÁVÖXTUN
Raunávöxtun sjóðsins á árinu 1998 var 7,7% og hrein
raunávöxtun, þ.e. raunávöxtun þegar rekstrarkostnað-
ur hefur verið dreginn frá hreinum fjármunatekjum var
7,6% á árinu. Meðalraunávöxtun sjóðsins síðustu 5
árin er 7,7%. Raunávöxtun sjóðsins skiptist þannig eftir
verðbréfaflokkum:
Innlend hlutabréf: Raunávöxtun innlendu hlutabréfa-
eignarinnar var 18,3% en til samanburðar hækkaði
Heildarvísitala Verðbréfaþings íslands um 4,7% á árinu
1998.
Erlend verðbréf: Raunávöxtun erlendu verðbréfa-
eignar sjóðsins var 10,9% á árinu 1998 og er árleg raun-
ávöxtun 12,8% frá því að sjóðurinn hóf erlendar fjár-
festingar á árinu 1994.
Skuldabréf: Raunávöxtun skuldabréfaeignarinnar nam
6,4% á liðnu ári.
VERÐBRÉFAVIÐSKIPTI OG
RÁÐSTÖFUNARFÉ
Ráðstöfunarfé sjóðsins á árinu 1998 var 12.091 mkr.
og nemur aukningin 33% frá fyrra ári. Hlutabréfavið-
skiptin námu 1.177 mkr. Þar af voru keypt hlutabréf
fyrir 611 mkr. og seld hlutabréf fyrir 566 mkr.
Skuldabréfaviðskipti sjóðsins námu 11.032 mkr. Þar af
námu kaup skuldabréfa 8.103 mkr. og sala skuldabréfa
2.929. Erlend verðbréfakaup námu 3.218 mkr.
LIFEYRISRETTINDI
Sjóðurinn skiptist í sameignar- og séreignardeild. Sam-
eignardeild sjóðsins greiðir ellilífeyrir, örorkulífeyrir og
maka- og barnalífeyrir. Greiðsla í séreignardeild sjóðs-
ins veitir góða viðbót við þau réttindi sem sameignar-
deildin veitir.
SÉREIGNARDEILD
Séreignardeild sjóðsins veitir móttöku viðbótariðgjalds
til eftirlaunasparnaðar. Hagræðið af viðbótarlífeyris-
sparnaði er augljóst því 2% viðbótariðgjald af launum
er ekki skattlagt við innborgun og að auki fá launþeg-
ar 0,2% mótframlag frá launagreiðanda.
Með því að velja Lífeyrissjóð verzlunarmanna sem
vörsluaðila séreignar þinnar ert þú þátttakandi í fjár-
vörslu sem sýnt hefur 7,7% meðalraunávöxtun á síð-
ustu 5 árum og rekstrarkostnað sem er með því lægsta
sem gerist eða aðeins 0,13% af eignum.
EFNAHAGSREIKMINGUR
31.12.1998
í milljónum króna
YFIRLIT YFIR BREYTINGAR Á HREINIMI EIGN
TIL GREIÐSLU LÍFEYRIS 1998
KENNITOLUR
1998
1997
í milljónum króna
1998
1997
1998
1997
Verðtryggð innlend skuldabréf 40.163 37.691
Sjóðfélagalán 7.189 7.046
Innlend hlutabréf 4.527 3.769
Erlend verðbréf 7.814 3.929
Verðbréf samtals 59.693 52.435
Bankainnistæður 548 470
Eignarhluti í Húsi verslunarinnar 221 150
Rekstrarfjármunir og aðrar eignir 64 64
Skammtímakröfur 408 368
Eignir samtals 60.934 53.487
Skammtímaskuldir -74 -128
Hrein eign til greiðslu lífeyris 60.860 53.359
Iðgjöld 3.788 3.121
Lífeyrir -1.214 -1.004
Fjárfestingartekjur 5.006 5.821
Aðrar tekjur 53 49
Fjárfestingargjöld -60 -43
Rekstrarkostnaður -75 -67
Endurmatshækkun rekstrarfjárm. 3 4
Hækkun á hreinni eign á árinu 7.501 7.881
Hrein eign frá fyrra ári 53.359 45.478
Hrein eign til greiðslu lífeyris 60.860 53.359
Raunávöxtun 7,7% 10,2%
Hrein raunávöxtun 7,6% 10,2%
Hrein raunávöxtun (5 ára meðaltal) 7,7% 7,5%
Rekstrarkostnaður í % af iðgjöldum 1,99% 2,14%
Rekstrarkostnaður í % af eignum 0,13% 0,14%
Lifeyrir í % af iðgjöldum 32,0% 32,2%
Fjöldi greiðandi sjóðfélaga 34.405 30.201
Rekstrark. á hvern greiðandi sjóðfélaga 3.278 3.296
Fjöldi lifeyrisþega 3.712 3.344
Fjöldi greiðandi fyrirtækja 4.553 4.000
Stöðugildi 19,2 16,6
SKIPTING VERDBREFAEIGNAR
SKIPTING FJÁRFESTINGA
HLUTABRÉF SJÓDFÉLAGAR
SKIPTING LIFEYRISGREIÐSLNA
MAKALÍFEYRIR
11,
BARNALÍFEYRIR
3.3%
ÖRORKULÍFEYRIR
24,5%
EIGNIR UMFRAM SKULDBINDINGAR
Ný tryggingafræðileg úttekt sem miðast við árslok 1998
sýnir að staða sjóðsins er góð þvf eignir nema 3.440
milljónum umfram skuldbindingar.
LÍFEYRISGREIÐSLUR
OG VERÐTRYGGING LÍFEYRIS
Á árinu 1998 nutu 4.187 lífeyrisþegar lífeyrisgreiðslna
úr sjóðnum að fjárhæð 1.214 milljónir samanborið við
1.004 milljónir árið áður, en það er hækkun um 20,9%.
Allar lífeyrisgreiðslur sjóðsins eru fullverðtryggðar og
taka mánaðarlega breytingum vísitölu neysluverðs.
Elli-, örorku og makalífeyrisgreiðslur eru í réttu hlutfalli
við þau iðgjöld sem sjóðfélagarnir greiddu til sjóðsins,
þ.e. hærri iðgjöld gefa hærri lífeyri.
ARSFUNDUR
Ársfundur sjóðsins verður haldinn 12. apríl nk.
kl. 17 í Gullteigi á Grand Hótel. Fundurinn verður
nánar auglýstur síðar.
UFEYRISSJOÐUR VERZLUNARMANIMA
Húsi verslunarinnar, 4. og 5. hæð
Sími 580-4000, myndsendir 580-4099.
Afgreiðslutími er frá kl. 9 - 17.
Heimasíða: www.lifver.is
Netfang: skrifstofa@lifver.is
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna 1998
Víglundur Þorsteinsson, formaður
Magnús L. Sveinsson, varaformaður
Benedikt Kristjánsson
Birgir R. Jónsson
Guðmundur H. Garðarsson
Ingibjörg R. Guömundsdóttir
Kolbeinn Kristinsson
Pétur A. Maack
Forstjóri sjóðsins er Þorgeir Eyjólfsson