Morgunblaðið - 07.02.1999, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
■k
OPIÐ LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 12-15
Armúla 1, sími 588 2030 - fax 588 2033
Steínar S. Jónsson. sötustjór
Bjórn Hansson, lögfr. aöiufulltrúi.
Pórunn ÞórÓardóttir, söJufulltrúi.
Ouóný Leósdóttir, sölululttrúi.
Sigrlður Gunntauflsdóttir, skjalagÐrð
Nellang: borflirOborgir.ia
FUNAFOLD - EINBÝLI Á EINNI HÆÐ
Vorum aö fá í sölu þetta glæsitega einbýlishús sem er 193 fm með innbyggöum 41 fm bílskúr,
ásamt ca 30 fm sólskála með kamínu. Mjög góð suöurverönd meö góöu útsýni. V. 18,5 m.
2873
REYKJAVEGUR - MOSFELLSBÆ - GÓÐ STAÐSETNING
OPIÐ HÚS HJÁ MARINÓ OG INGILEIF
í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 14 TIL 16.
Stórt og glæsilegt einbýlishús, 240 fm, auk bílskúrs, 38 fm og gróðurskála 40 fm. j húsinu eru 3
stór svefnherbergi og má auöveidlega fjolga um önnur tvö. Stór gróin lóð, um 1.100 fm. Húsið
v allt hið snyrtilegasta, sannkölluð fjölskylduparadís. V. 17,0 m. 1761
EIGINAMH)mMN
m
_____________________________ Startsmenn: Sverrir Kristmsson lögg. fasteignasali, sölustíóri.
Porleifur St Guömundsson.B Sc.. sölum., Guömundur Sigurjónsson lögfr. og lögg fasteignasali, s
Sfefán Hrafn Stefánsson lögfr., sölum.. Magnea S. Sverredóttir, lögg. msfeianasali, sölumaöur.
Sími 588 9090 • Fax 588 9095 • SÍAiimúlu 2
Opið í dag, sunnudag, kl. 12-15.
HÚSNÆÐl ÓSKAST 3811
Hæðir í vesturborginni
oskast. Höfum trausta kaupendur aö1 20-
160 fm sórhæðum í vesturborginni. Mjög góðar
greiðslur í boöi. Nánari uppl. veitir Sverrir.
Einbýlishús í Garðabæ ósk-
ast - staðgreiðsla .Traustur kaupan-
di hefur beðið okkur að útvega 250-400 fm gott
einbýlishús í Garðabæ. Fallegt útsýni æskilegt.
Staögreiðsla í boði. Nánari uppl. veitir Sverrir.
fbúð í lyftuhúsi Óskast. Traustur
kaupandi óskar eftir 140-170 fm góðri íbúð í
nýlegu lyftuhúsi miðsvæðis með stæði í
bílageymslu. Gott útsýni og húsvörður æskilegt.
Klapparstígur - Skúlagata -
staðgreiðsia. Traustur kaupandi óskar
eftir 3ja herb. góðri íbúð með útsýni.
Staögreiðsla í boði.
EINBÝLI ÓSKAST - STAÐ-
GREIÐSLA. höfum fjársterkan
KAUPANDA AÐ GÓÐU EINBÝLISHÚSI I
ÞINGHOLTUM, VESTUR BORG-INNI EÐA
MIÐBORGINNI. HÚSIÐ MÁ KOSTA 25-30
MILLJ. STAEK3REIÐSLA (EIN ÁVlSUN) í BOÐI.
RAÐHÚS. '.in
Flúðasel - raðhús. Vorum að fá í
sölu glæsilegt raðhús á tveimur hæðum með bíl-
skýli og stórum garði. Húsið skiptist m.a. í stofu,
eldhús, 4-5 svefnherb. og tvær snyrtingar. Falleg
eign í góðu hverfí. V.11,6 m. 8438
Aðaltún - raðhús. Vorum að fá í sölu
152 fm raðhús á einni hæð auk tumherbergis
ásamt bílskúr 33 fm. Húsið er staðsett undir
Lágafellskirkju í Mosfellsbæ. Arkitekt er Vrfill
Magnússon og ber húsið glöggt merki þess. V.
13,3 m. 8334
4RA-6 HERB. WCM
Kelduland - útsýni. vommaðfái
einkasölu 4ra herb. bjartaog fallega íbúð á 3.
hæð (efstu). Glæsilegt útsýni og frábær staðset-
ning. Ákv. sala. V. 8,2 m. 8424
Ljósheimar - góð stað-
setning. Vorum að fá í einkasölu 91,0fm
4ra herb. íbúð á 2. hæð á þessum eftirsótta stað.
íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu, hol,
gang, eldhús og bað. 8431
Vesturbær - 3ja herb. vommaðfá
í einkasölu 69 fm 3ja herb. íbúð á 4. hæð í fjöl-
býli. íbúðin skiptist í forstofu, rúmt eldhús, stofu,
baðherb. og tvö svefnherb. Góö sameign.
Eftirsótt staðsetning. Húsið er nýlega tekið í |
gegn að utan. V. 6,5 m. 8432
Hringbraut. Vorum aö fá í einkasölu fal-
lega 80,9 fm íbúö á2. hæð við Hringbraut. íbúðin
skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, aang og
svefnherbergi. Aukaherbergi fylgir í risi.lbúðin er
öll hin snyrtilegasta. 8440
Miðsvæðis - 3ja herb. vomm að
fá í einkasölu 3ja herb. 70 fm íbúð nálægt
miðbænum. Tvö rúmgóð svefnherbergi, góð
stofa, eldhús og baðherbergi. Sérgeymsla í kjal- |
lara og þvottahús í sameign. V. 6,1 m. 8433
Grafarvogur - falleg 3ja
herb. Vorum að fá í einkasölu mjög fallega U
3ja herb. íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli í nýja H
hverfinu íGrafarvogi við Korpúlfsstaði. Vandaðar -
innr. og gólfefni. Góð lofthæð í stofu. Búið er að í
reisa sökkla fyrir tvöföldum bílskúr og miklu
geymslurými. V. 9,3 m. 8395
ATVINNUHÚSNÆÐI ÓSKAST fjf §
Glæsileg skrifstofuhæð. Vorum |
að fá til sölu um 700 fmskrifstofuhæð, efstu I
hæð, í þessu húsi. Lyfta. Góð bílastæði. Fallegt j
útsýni. Friðsæll staður á vaxandi svæði. Hæðinni í,
mætti skipta í tvær einingar, u.þ.b. 550 og u.þ.b. ,
150 fm einingar. Stærri hlutinn skiptist m.a. í |
móttöku, 14 herbergi, fundarsal, eldhús,
skjalageymslu, tækjarými, snyrtingar o.fl. í ú
minna rýminu eru móttaka, tvær skrifstofur, stórt ;
vinnurými, kaffistofa og eldhús. öll hæöin er |
nýinnréttuð og skipulag er mjög gott. Allar
innréttingar eru vandaöar. Góð lýsing. |
Lagnastokkar. Allt skipulag og innréttingar eru
hannaðar af fagmönnum. Hæðin selst í einu lagi.
1,2
í DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Snotra týnd
PERSABLÖNDUÐ, ljós-
grá, 9 mánaða læða týndist
frá Barmahlíð 18 31. janú-
ar sl. um hádegisbilið.
Finnandi er vinsamlegast
beðinn um að hafa sam-
band við Guðfinnu Hákon-
ardóttur, Barmahlíð 18,
sími 552 8808 eða 897 4027.
Munið eftir
smáfuglunum
NU þegar frosthörkur eru
og veður válynd er ekki úr
vegi að minna á smáfugl-
ana sem erfitt eiga með að
afla sér viðurværis. Gott er
að gefa þeim fuglakorn en
ekki síður að láta smá fitu
fylgja með. Þar sem kettir
eru nálægt er gott að setja
fæðuna á bílskúrsþök eða
svalir.
Mannréttindi?
í VELVAKANDA á föstu-
dag eignaði einhver Laufey
Elsa mér þau völd að geta
ráðið heilu samfélagi með
öfgum. Eg verð að hryggja
hana með því að ég hef
ekki þau völd að geta
stjórnað ráðherrum,
Vinnueftirlitinu, Vinnuveit-
endasambandinu og
verkalýðsfélögunum sem
mótuðu og samþykktu nýj-
ar reglur um tóbaksvarnir
á vinnustöðum - sem hún
segir jaðra við brot á
mannréttindum reykinga-
fólks. Fólk skilgreinir
mannréttindi augljóslega á
ólíka vegu - og hættir
mörgum til að vera með
eigin hagsmuni í huga í
stað heildarinnar. Eg
þekki ekld einn einasta
reykingamann sem vill
skaða aðra eða vera valdur
að krabbameini annarra
með óbeinum reykingum.
I ljósi nýrra reglna um
tóbaksvarnir á vinnustöð-
um hafa nokkrir reykinga-
menn tjáð sig opinberlega
um skerðingu á persónu-
frelsi, brot á mannréttind-
um og fasisma en sjón-
deildarhringur þeirra
virðist ekki ná út fyrir eig-
in reykjarmökk. Þeir virð-
ast einvörðungu hugsa um
sín eigin mannréttindi en
ekki þeirra sem eru í návist
þeirra. Vel upplýst fólk
þekkir skaðsemi tóbaks-
reyks mætavel og er óþarfi
að fjölyrða um það. Mark-
mið laga um tóbaksvarnir
eru að draga úr
tóbaksneyslu og þar með
því heilsutjóni sem hún
veldur og vemda fólk fyrir
áhrifum tóbaksreyks.
Þetta hefur óneitanlega í
för með sér að það þarf að
takmarka aðstæður þar
sem reykingar eru heimil-
ar. Eru það ekki mannrétt-
indi að fá að anda að sér
heilnæmu lofti í stað þess
að vera umlukinn eiturefn-
um sem aðrir framkalla?
Tillitssemi er allt sem þarf
- og ekki síst heilbrigð
skynsemi.
Eg efast ekki um að
Laufey Elsa sinni þvi starfi
sem hún gegnir af kost-
gæfni - enda ráðin til þess.
Eg var ráðinn til að sinna
tóbaksvörnum og reyni
sömuleiðis að gera það af
kostgæfni. Því miður sjá
margir rautt þegar
tóbaksvamir era annars
vegai' og telja að ég sé al-
valdur í þeim efnum. Eg er
framkvæmdastj óri
Tóbaksvamanefndar sem
er ráðherraskipuð nefnd og
það liggur í hlutarins eðli
hvert starfsvið hennar er.
Þorgrímur Þráinsson.
Tapað/fundið
Spariskór fannst
TE LPNASPARISKÓR
fannst fyrir utan Klepps-
veg 46. Uppl. í síma
568 1287.
Kanina fæst gefins
HVIT og grá, 11 mánaða,
kanína, fæst gefins á gott
heimili. Kanínan hlýðir
nafni og er mjög falleg,
blíð og góð. Uppl. í síma
569 1201 á virkum dögum
og 869 3063.
Kötturinn Púki týndur
SVARTUR, fíngerður
fress tapaðist frá Hraun-
kambi í Hafnarfirði mánu-
dagskvöldið 1. febrúar.
Púki var með gráa ól með
mörgum bjöllum. Fólk er
beðið að líta inn í bílskúra
og þvíumlíkt. Uppl. í síma
895 8561 eða 565 7761.
Leitað að
páfagaukseiganda
EG er að leita að eiganda
páfagauks af tegundinni
„blaekheaded caique“ sem
keyptur var í Dýraríkinu í
desember ‘97. Hann er
grænn á baki, hvítur á
maga, svartur á haus og í
rauðgulum „buxum“. Vin-
samlega hafið samband við
Gunnlaugu í síma 552 8130
e. kl. 20. Jafnframt óska ég
eftfr góðu páfagaukabúri.
Víkveiji skrifar...
KURNESINGURINN Amar
Gunnlaugsson var í vikunni seld-
ur frá enska 1. deildarfélaginu
Bolton Wanderers til Leicester City,
sem leikur í úrvalsdeildinni. Sam-
kvæmt fréttum er Arnar orðinn dýr-
asti íslenski knattspyrnumaðurinn -
kaupverðið er sagt einhvers staðar á
bilinu 240 til 290 milljónir króna, og
þar með ljóst að hagnaður Bolton af
viðskiptum með Amar em orðinn
talsverður. Víkverji man ekki betur
en Bolton hafi fengið hann frá Akra-
nesi fyrir nokkrum missemm fyrir
100 þúsund pund; andvirði um ellefu
og hálfrar milljónar króna! Amar
virðist því hafa rúmlega tvítugfald-
ast í verði þann tíma sem hann lék
með Bolton.
Oft er það þannig þegar knatf>
spymumenn eru seldir milli félaga
að heimamenn, í þessu tilfelli Akur-
nesingar, semja þannig við söluna að
þeir fái ákveðið hlutfall af sölu-
verðmæti viðkomandi leikmanns,
verði hann seldur aftur innan tiltek-
ins tíma. Fróðlegt verður að heyra
hvort Skagamenn hafi hagnast eitt-
hvað á því að Arnar var seldur frá
Bolton til Leicester.
XXX
ANDSMENN hafa ekki farið
varhluta af prófkjörsslag undan-
farinna vikna, m.a. vegna fjölda
greina til stuðnings þátttakendum
hér í blaðinu. Víkverji hefur fylgst
grannt með gangi mála, og fannst
vinnubrögð tveggja frambjóðenda
einkar athyglisverð. Marðar Arna-
sonar, sem lenti í sjötta sæti próf-
kjörs Samfylkingarinnar í Reykjavík
um síðustu helgi, og Ai'na Johnsen,
alþingismanns og þátttakanda í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í Suður-
landi sem fram fór á föstudag og í
gær.
Þeir fóru ótroðnar slóðir að einu
leyti, nefnilega því að fá and-
stæðinga í pólitík til liðs við sig í
baráttunni. Mörður fékk Hannes
Hólmstein Gissurarson til rökræðna
við sig á fundi, sem örugglega hefur
verið gott herbragð - og Merði án
efa til framdráttar meðal vinstri
manna. Best gæti Víkverji trúað að
hann hafí fengið mörg atkvæði
vegna málflutnings Hannesar á
fundinum!
XXX
ARNI Johnsen fékk Svavar
Gestsson, alþingismann, til að
skrifa grein í Suðurgarð, blað sem
Ami gaf út vegna prófkjörsins. Þar
segir Svavar m.a.: „Fyrir hvom ætli
það sé verra að ég skrifi grein í
kosningablað Arna Johnsen? Mig, af
því að þar með sé ég að staðfesta að
ég sé orðinn í besta lagi fölrauður í
pólitík eða Ama sem þannig stað-
festir að hann verði jafnvel að leita
þeirra sem eru rauðastir og hættu-
legastir af öllum í augum stuðnings-
manna Sjálfstæðisflokksins á Suður-
landi. Eg dæmi ekki um það síðar-
nefnda en lít í eigin barm og skrifa
þessar línur sama daginn og ég er að
fara að halda ræðu hjá KR; nýbúinn
að halda ræðu hjá Skeljungi og segi
líklega nokkur vel valin orð um þar
næstu helgi hjá Fóstbræðmm. Er
hægt að komast lengra til hægri en
vera samt til vinstri, en ég? Fyrir
nærri tíu árum var ég ræðumaður á
fnndum hjá Alþýðubandalaginu í
Vestmannaeyjum. Rétt um það leyti
var ég menntamálaráðherra og Arni
var formaður í byggingarnefnd Þjóð-
leikhússins. Eg hældi Arna; af ein-
hverjum ástæðum hef ég ekki síðan
verið beðinn um að halda nema eina
ræðu í Alþýðubandalaginu í Vest-
mannaeyjum."
Margir skrifa í kosningablað
Arna, þar á meðal Þór Magnússon,
Þjóðminjavörður. Ami hefur verið
nokkuð lengi á þingi, en líklega er
ekki verið að vísa til þess með fyrir-
sögn greinarinnar: Stöndum vörð
um gamlar minjar...
XXX
GRÆNLENDINGAR eru miklir
veiðimenn eins og allir vita. ís-
lendingur, sem flutti til Nuuk fyrir
nokkrum árum, flutti inn í fjölbýlis-
hús fyrst eftir komuna til borgarinn-
ar - og taldi sig skynja strax að venj-
ur þar væru að einhverju leyti öðru-
vísi en annar staðar þar sem hann
hafði búið. Hérlendis var hann vanur
að sjá skilti í stigagöngum fjölbýlis-
húsa, þar sem fólk var til dæmis vin-
samlega beðið að ganga ekki inn á
skítugum skóm, eða að sölumenn
væru óvelkomnir, en í fjölbýlishús-
inu í Nuuk blasti við skilti með eftir-
farandi áletrun: Bannað að flá sel í
stigaganginum!