Morgunblaðið - 07.02.1999, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.02.1999, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ KgMeirm Kjœmes G UÐMUNDUR er 31 árs. Hann varð stúdent frá Versl- unarskóla íslands 1988 og hélt eftir það til Bandaríkj- anna þar sem hann var við nám í Babson College í Boston. Aðalfag hans þar var Entrepreneurship, það sem kalla mætti frumkvöðlafræði. „Þá hlógu margir félaga minna; skildu ekki hvemig hægt væri að læra að verða frumkvöðull," segir Guðmundur. Hann lauk prófi frá Babson 1991. „Ég var snemma ákveðinn í því að stofna eigið fyrirtæki einn góðan veðurdag. Lokaverkefni mitt og Björns Kristjánssonar, félaga míns, frá Babson College var viðskiptaá- ætlun um að stofna skipafélag, reyndar með siglingar milli Islands og annarra staða í Evrópu í huga. Þeir hjá Eimskip og Samskip aðstoð- uðu okkur svolítið. Við sýndum þeim planið en ég held reyndar að þeim hafi ekki fundist það merkilegt. Töldu að þetta gæti ekki gengið.“ Eftir að Guðmundur lauk námi í Babson hóf hann fljótlega störf hjá hollenska skipafélaginu Van Ommeren í Bandaríkjunum. .Alfred heitinn Jolson, kaþólski biskupinn yfir íslandi, sem var guðfaðir minn, vissi að ég ætlaði að fá mér vinnu úti og hann hjálpaði mér; kom mér í samband við vin sinn í Greenwich í Coiinecticut sem kom mér í samband við nokkra aðila, meðal annars fram- kvæmdastjóra Van Ommeren í Stan- ford, Connecticut.“ Sjö ár hjá Van Ommeren Guðmundur var í eitt ár hjá fyrir- tækinu áður en það hreppti samning um flutning fyrir bandaríska_ herinn milli Bandaríkjanna og Islands. Samkvæmt milliríkjasamningi Is- lands og Bandaríkjanna frá 1986 ber að bjóða út flutninga fyrir varnarlið- ið og skipta þeim milli lægstþjóð- enda frá hvoru landi, þannig að 65% flutninga komi í hlut þess félags sem lægst býður, en 35% í hlut þess sem býður lægst í hinu landinu. „Frá 1986 hafa íslensku félögin verið með 65% flutninganna en þau bandarísku með 35%. Astæðan er sú að talsvert dýrara er að reka skip á bandarískum fána en öðrum. Því má segja að íslensku félögin keppi í raun um 65% hlutinn en þau bandarísku um 35% hlut fiutninganna, en banda- ríska félagið fær greitt nærri þrefalt hærra verð fyrir hverja gámaeiningu en það íslenska,“ segir Guðmundur. „Ég var enn blautur á bak við eyr- um þegar ég byrjaði hjá Van Ommeren; var að læra þetta og átti að vera aðstoðarframkvæmdastjóri Islandssigianna, en svo fór að ég sá alfarið um þær. Ári seinna settum við upp áætlun til Azoreyja fyrir her- inn og árið þar á eftir stofnuðum við félag um siglingar milli Norfolk og Bermúda. Þetta rak ég allt en 1996 leitaði hugurinn til þess að fara í MBA-nám, sem ég hafði lengi hugs- að mér að gera. Þegar ég tilkynnti forráðamönnum fyrirtækisins hvað ég hefði í huga, buðust þeir til að borga svokallað Executive MBA- nám fyrir mig við Colombia-háskól- ann sem ég gæti sinnt samhliða Guðmundur Kjærnested varð frægur fyrir að bjóða stórveldunum birginn í þorska- stríðunum. Nú stendur sonarsonur skip- herrans og alnafni einnig í brúnni; hefur stofnað tvö skipafélög, sem sjá um alla sjó- flutninga fyrir varnarliðið á Keflavíkur- ilugvelli milli Islands og Bandaríkjanna. Skapti Hallgrímsson hitti hinn unga at- hafnamann að máli, en Guðmundur yngri nam frumkvöðlafræði vestanhafs og starf- aði í sjö ár hjá skipafélaginu Van Ommeren - þar sem hann stýrði m.a. --------------7-------------------------- flutningum til Islands fyrir Bandaríkjaher. starfinu. Þar nam ég svo á hverjum föstudegi í tvö ár og kláraði MBA- námið í maí á síðasta ári.“ Guðmundur hætti störfum hjá Van Ommeren snemma árs í fyrra. „Þá var rekstur fyrirtækisins í Stan- ford í Connecticut seldur og ég átti að fara í olíuskipadeild fyiirtækisins í Frakklandi um leið og ég hafði lok- ið námi. Ég er góður vinur forstjór- ans í Evrópu og hugsaði málið, en niðurstaðan varð sú að stofna heldur mitt eigið fyrirtæki. Það skipti líka máli að kærasta mín, sem er banda- rísk, er í góðu starfi í New York; er sjóðstjóri hjá Metropolitan Museum og var ekki sérlega hrifin af því að fara til Evrópu.“ Tók fyrrverandi herbergis- félaga á orðinu Þegar þarna var komið sögu bar Guðmundur gamalt loforð upp á fyrrverandi herbergisfélaga sinn úr Babson College, Brandon Rose. Það var þess efnis að þegar (ekki ef) Guðmundur færi út í eigin viðskipti myndi Rose og fjölskylda hans að- stoða við það verkefni. „Ég var búinn að vinna við rekstur skipafélags í sjö ár og búinn að setja upp siglingar á þremur leiðum. Eg leit þannig á málið að ég væri orðinn sérfræðingur í þessu og gat sýnt fram á að ég hefði staðið mig vel. Það eina sem fyrirtækið lét mig hafa var fjármagn og það gat ég fengið annars staðar.“ Þar af leiðandi fannst honum orðið tímabært að láta gamla drauminn rætast; að stofna sitt eigið fyrirtæki. Guðmundur tjáði sig lengi vel ekki um hvemig eignasamsetningu fyrir- tækjanna væri háttað. „Eg gerði það ekki, vegna mála- ferlanna, en það er ekkert leyndar- mál. Við byrjuðum með fyrirtækið í Bandaríkjunum, Brandon og ég, og ég naut mjög góðra kjara hjá fjöl- skyldu hans. Eg talaði einnig við aðra fjárfesta og það hefði ekki verið neitt mál að fá einhverja aðra með sér. Ég var hins vegar búinn að þekkja Brandon í tíu ár, hafði búið með honum og vissi hvar ég hafði hann og tók hann því umfram aðra sem höfðu áhuga.“ Fjölskylda þessa fyrrverandi herbergisfélaga Guð- mundar rekur að hans sögn verk- takafyrirtæki, og veltir líklega um 200 milljónum dollara á ári. „Þau voru mjög sanngjörn, vegna þess að ég er vinur Brandons." Bandaríska skipafélagið, Transatlantic Lines, var stofnað í febrúar í fyrra og var upphaflega í eigu þeirra tveggja, Brandons Rose og Guðmundar, sem áttu sín 50% hvor. Nú á bandaríska siglingafyrirtækið American Autom- ar 51% en Brandon og Guðmundur 49% í sameiningu. Brandon Rose á svo 50% i íslenska félaginu, Atlantsskipum ehf., Guð- mundur á 49% og Símon faðir hans á 1%. Guðmundur hætti hjá Van Ommeren í byrjun febrúar og segist hafa gengið frá boði í siglingarnar fyrir herinn í byrjun mars. „I apríl var nokkuð ljóst að við værum lægst- bjóðendur og fengjum samninginn. Þá byrjaði vinna við að fara mjög ná- kvæmlega í gegnum öll gögn máls- ins. Passað var upp á að allt væri rétt, því þeir hjá hernum vildu hafa allt á hreinu. Guðmundur segir her lögfræðinga hafa komið að málinu ytra, fyrir herinn, fyrir vamarmála- ráðuneytið (Pentagon) og banda- ríska utanríkisráðuneytið - eins og venjulega, vegna þess að umræddir aðilar vilja að allt sé skothelt. Einnig hafi lögfræðingar skipafélagsins í Bandaríkjunum og lögfræðingur Atl- antsskips hérlendis farið gaumgæfi- lega ofan í saumana á samningunum. Og enginn sá neitt athugavert við samningana, segir Guðmundur. „Við gerðum þetta allt eftir kúnst- arinnar reglum. Það sem hefur breyst frá því að milliríkjasamning- urinn var gerður 1986 er að þá voru höft á því að erlendir aðilar ættu fyr- irtæki á Islandi, en nú eru engin höft á því nema í sjávarútvegi. I þeim samningi segir einungis að íslenskt skipafélag skuli eiga í hlut og Atl- antsskip er íslenskt skipafélag. Því hefur enginn mótmælt. Einnig segir að skip á bandarísku flaggi skuli sjá um þann hluta flutninganna.“ Guðmundur bauð síðastliðið vor í siglingar á vegum hersins frá Bandaríkjunum til Ascension-eyjar í Suður-Atlantshafi. „Það var í apríl eða maí, eftir að við buðum í sigling- arnar til íslands, en Van Ommeren bauð líka, ataðist í kerfinu úti við að setja út á okkur en á endanum hreppti reyndar þriðji aðili hnossið. Eftir á að hyggja er ég reyndar mjög feginn að við fengum ekki þann samning, vegna þess að ég var um það bil að klára Columbia-skólann og tíminn hentaði þvi ekki vel. Það var í raun líka gptt fyrir okk- ur að frestun vai-ð á íslandssamn- ingnum. Það gerði það að verkum að við vorum enn sterkari og betur und- ir það búnir að takast á við verkefn- ið, meðal annars vegna verðlækkana á leiguskipum og gámum - en verð- hrun varð á markaðnum vegna kreppunnar miklu í Asíu.“ Knappur tími Það var ekki fyrr en í haust að endanlega var ákveðið að úthluta fyrirtækjum Guðmundar, Atlants- skipum og TransAtlantic Lines (LLC) margumræddum siglingum milli Islands og Bandaríkjanna. „Úthlutunin vai' tilkynnt í lok september, en eftir að okkur er út- hlutað er keppinautunum gerð grein fyrir niðurstöðunni. Þá geta þeir fengið að setjast niður með þeim sem úthluta og fá síðan tíu daga til að áfrýja - sem bæði Eimskip og Van Ommeren gerðu. Eftir það fer málið til Ríkisendurskoðunar Banda- ríkjanna [General Accounting Office] og tekur einhvem tíma í meðferð þar, en á meðan erum við með samn- inginn, með því skilyrði að málið falli okkur í hag. Þegar keppinautar okk- ar sáu að Ríkisendurskoðunin væri sammála þeim sem úthlutuðu okkur flutningunum og myndi engu breyta ákváðu þeir að fara með málið í dómskerfið." Það var síðustu vikuna í október að Guðmundur og félagar fengu end- anlega á hreint að þeir hrepptu samninginn; eftir að hershöfðingi í landhernum hafði skrifað upp á hann. ,Áður en ég fékk samninginn undirritaðan af honum gat ég ekki leigt skip. Við höfðum því nánast engan tíma til þess að koma hiutun- um af stað.“ Eitt af þvi sem forráðamenn Van Ommeren hafa gagnrýnt er að Guð- mundur hafi ekki verið kominn með skip til siglinganna strax í upphafi; þeir túlka samninginn svo að stað- festing um að þau séu til reiðu verði að vera fyrir hendi strax og tilboðið er gert. „Það er eins og fyrir Odda að kaupa pappír áður en hann fær samninginn um að prenta síma- ski'ána,“ segir Guðmundur þegar þetta ber á góma. „Það varð svo ekki endanlega öruggt að við fengjum samninginn fyrr en skömmu áður en við áttum að byrja að sigla. Það er eins og Oddi fengi að vita með viku fyrirvara að hann ætti að prenta símaskrána, og þá væri pappírinn einhvers staðar í Kanada!“ Guðmundur segist aldrei hafa ótt- ast að áðurnefndur hershöfðingi staðfesti ekki samninginn með því að skrifa undir hann. „Þetta er hefð- bundið; allt eftir kúnstarinnar regl- um. Kerfið athugar allt svona mjög vel áður en endanlega er gengið frá. Á meðan voru svo Eimskip og ein- hverjir aðrir, sjálfsagt utanríkis- ráðuneyti íslands, að róa í Pentagon og öllum öðrum sem þeir gátu í þeirri von að niðurstaðan yrði önnur. Allan tímann reyndar, frá því í maí eða júní í fyrra og þangað til núna.“ Greint hefur verið frá bréfi (sem Morgunblaðið hefur undir höndum), sem íslenska utanríkisráðuneytið sendi varnarmálaráðuneyti Banda- ríkjanna sem trúnaðarmál í septem- ber síðastliðnum, þar sem þeirri skoðun er m.a. lýst að Atlantsskip hafi ekki burði til að annast flutning- ana. Guðmundur var spurður hvern- ig hann brást við þegar hann komst að þessum afskiptum íslenskra stjórnvalda? „Ég þekki fullt af fólki í utanríkis- ráðuneytinu og átti ekki von á að að- ilar þar myndu bregða fyrir mig fæti. Ég er líklega svo góðhjartaður að ég trúði ekki að svona lagað væri gert. Umræddu bréfi var komið til mín þegar ég var á fundi íslensk-am- eríska verslunarráðsins í Washing- ton í byrjun október. Þá vildi svo til að Halldór Ásgi'ímsson, utanríkis- ráðherra, var staddur þarna, ásamt Jóni Baldvin Hannibalssyni, sendi- herra í Washington og mörgum öðr- um úr utanríkisþjónustunni." Guð- mundur segir að hann hafi orðið hoppandi reiður þegar hann las bréf- ið, en í því segir utanríkisráðuneytið m.a.: „Ríkisstjóm íslands hefui'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.