Morgunblaðið - 07.02.1999, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.02.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999 21 „Það er í tísku núna að vernda náttúr- una og allir vilja vera með. En við megum ekki gleyma því að mörg sam- tök hafa mætt mikilli andstöðu og for- dómum í gegnum árin, en hafa unnið mikið starf í þágu náttúruverndar.“ Stofnun náttúru- og umhverfis- verndarsamtaka á Islandi Félagar 1969 1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 ■ 1969 Landvernd 60 félagasamtök 1969 Ferðafélag Fljótsdalshéraðs 1970 Náttúruverndarsamtök Austurlands 150 Stofnuð í kjölfar andstöðu við Laxárvirkjun. Einnig stofnuð sambærileg samtök í flestum öðrum landshlutum, en þau eru ekki starfandi í dag. Félag leiðsögumanna - Fag- og 500 stéttarfélag leiðsögumanna 1975 Samband íslenskra náttúruverndar- samtaka - Hefur hætt starfsemi 1978 Líf og land - Stuðla að jafnvægi í umhverfismálum. 1.000 1986 Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvemd 150 Stofnuð að breskri fyrirmynd, vinna að endurbótum á friðuðum svæðum og náttúrunni almennt. 1996 Samtök um óspillt land í Hvalfirði - 3.000 Stofnuð í kjölfar áforma um byggingu álvers í Hvalfirði. 1997 Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs - 250 auk félaga Stofnuð til að sporna gegn jaróvegs- og samtaka tróðureyðingu á svæðinu. 997 Náttúruvemdarsamtök íslands - 400 Stofnuó í kjölfar umræðu um skipulag hálendisins. 1997 Félag um vemdun hálendis Austurlands 150 Stofnað í kjölfar hugmynda um virkjanir norðan Vatnajökuls,. 1998 SAMÚT samtök útivistarfélaga - 30.000 Stofnuð I kjölfar umræðu um breytingar á sveitarstjórnarlögum. 1998 Hálendishópurinn - Stofnaður í kjölfar aukinnar umræðu um virkjanir á hálendinu. 1999 Umhverfissamtök íslands - Stofnuð í 130 kjölfar aukinnar umræðu um virkjanir á hálendi íslands. Félagið hefur tekið þátt í umræðu undanfarið um miðhálendið og gef- ið út yfirlýsingar varðandi skipulag þess og nýtingu. Nálægt 500 manns eru í félaginu en þau voru stofnuð árið 1972. Stofnuð í kjölfar virkjunarhugmynda Eins og áður sagði voru á átt- unda áratugnum starfandi náttúru- verndarfélög eða samtök í flestum landshlutum, en flest þeirra hafa hætt starfsemi nú. Eitt shkt félag hefur þó starfað óslitið frá stofnun árið 1970, og eru það Náttúru- vemdarsamtök Austurlands. Að sögn Guðmundar Beek, formanns félagsins, hefur það fyrst og fremst einbeitt sér að náttúruvemd á Austurlandi, bai-ist fyrir friðlýs- ingu ýmissa svæða í fjórðungnum, og gegn framkvæmdum við Fljóts- dalsvirkun. Félagsmenn era á ann- að hundrað. Félagið er aðili að Landvemd og segist Guðmundur ekki skilja hvers vegna verið sé að stofna fleiri umhverfissamtök. „Eg skil ekki þessa nýju stofnun og veit í raun ekki til hvers þau voru stofn- uð. Náttúraverndarsamtök íslands eru til staðar og ég tel að þar ætti að vera pláss fyrir alla sem vilja starfa að náttúruverndar- og um- hverfismálum. Mér finnst undar- legt að menn skuli vera að dreifa kröftum sínum á þennan hátt,“ segir Guðmundur. Austurland er landshluti sem er einna ííkastur af náttúraverndar- samtökum. Félag um verndun há- lendis Austurlands er eitt þeima og var það stofnað fyrir hálfu öðra ári. Hvatinn að stofnun félagsins var „stórfelldar virkjunarhugmyndir norðan Vatnajökuls“, að sögn Þór- halls Þorsteinssonar, formanns samtakanna. Að hans sögn fjölgar félagsmönnum sífellt og era þeir orðnir talsvert á annað hundrað. Markmið samtakanna er meðal annai’s að veita stjórnvöldum að- hald og hefur félagið verið í sam- starfi við önnur náttúruverndar- samtök, en, að sögn Þorsteins, læt- ur það sig varða allt hálendið, ekki einungis hálendi Austurlands. Enn fleiri félög eru staðbundin á Austurlandi. Ferðafélag Fljóts- dalshéraðs hefur staðið að umræðu um umhverfismál í þau þrjátíu ár sem það hefur starfað, að sögn Þórhalls og hefur til að mynda í tvo áratugi reynt að koma á friðlýsingu Snæfells og Vesturöræfa. Um 160 manns era í félaginu. Útivistarfélög bindast samtökum Samtök útivistarfélaga voru stofnuð 9. nóvember sl. og vora 13 félög og landssambönd stofnaðilar að þeim. Félagar í samtökunum era yfir 30 þúsund en þeir era meðal annars meðlimir í félögum eins og Ferðafélagi íslands, Ferða- klúbbnum 4x4, Félagi húsbílaeig- enda, Fuglaverndarfélajgi íslands, Hellarannsóknarfélagi Islands, Is- lenska Alpaklúbbnum, Jöklarann- sóknafélagi Islands, Landssam- bandi hestamanna, Landssam- bandi íslenskra vélsleðamanna, Landssambandi stangveiðifélaga, Sjálfboðaliðasamtökum um nátt- úruvemd, Skotveiðifélagi Islands og Utivist. Gunnar H. Hjálmarsson, for- maður Samút, segir að samtökin hafi verið stofnuð í kjölfar um- ræðu um hálendið sem varð mjög áberandi þegar ræddar voru breytingar á sveitarstjórnarlögun- um. Utivistarfólk hafi fundið fyrir nauðsyn þess að tala einum rómi um þau mál gagnvart stjórnvöld- um. Gunnar segir að þótt samtök- in séu fyrst og fremst samtök úti- vistarfélaga þá sé óhjákvæmilegt að þau láti sig náttúruvernd varða, þar sem hún sé hluti af hagsmun- um útivistarfólks. Megintilgangur samtakanna er að standa vörð um rétt almennings til að umgangast náttúruna og vera málsvari þeirra félaga sem að þeim standa gagn- vart stjórnvöldum og öðrum í sameiginlegum hagsmunamálum. Samtökin hafa t.a.m. skorað á rík- isstjórn íslands og Alþingi að sjá til þess að fram fari mat á um- hverfisáhrifum Fljótsdalsvirkjun- ar. Gunnar segir að samtökunum hafi verið tekið vel af stjórnvöld- um. Stjórnin hafi sent bréf til ým- issa stofnana og þingnefnda til að kynna áherslur þeirra. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjun- ar, hafi til dæmis boðið fulltrúum samtakanna í spjall til að kynnast áherslum þeirra nánar. Auk fyrrgreindra samtaka eru ýmis félagasamtök sem eiga hags- muna að gæta er varða náttúra- og umhverfisvernd, þó þau vinni ekki beint með þau mál að leiðarljósi. Má þar nefna Skógræktarfélag ís- lands og Fuglavemdarfélag Is- lands auk útivistarfélaga sem flest era aðilar að Samút, svo og samtök starfsmanna sem vinna við lahd- vörslu, leiðsögn og fleira. Greinilegt er að vaxandi hópur fólks lætur sig náttúra- og um- hverfisverndarmál varða. Miðað við þann fjölda samtaka sem nú er starfandi er ljóst að flestir sem nú hugsa um að ganga í frjáls félaga- samtök af þessu tagi ættu að finna vettvang fyrir skoðanir sínar. Hins vegar er vert að athuga hvað það er í þjóðfélaginu hverju sinni sem vekur þennan áhuga meðal fólks þar sem stofnun slíkra félaga virð- ist ganga í bylgjum. ATLANTIC 21/2 sætis sófi, alkæddur svörtu nautsleðri. L205 sm.kr. 112.420,- PISA 21 /2 sætis sófi.með mjúku og endingargóðu Elmo leðri (hæsta gæðaflokki. Sessur bólstraðar með kaldsteyptum svampi og bakpúðar með polýdún L204 sm, kr. 138.620,- MIRAGE sófi. Glæsileg hönnun.Alklæddur flosmjúku anillnleðri. Sessur bólstraðar með kaldsteyptum svampi. Fæst I ýmsum litum. 3ja sæta sófi L214 sm.kr. 179.920,- STAR sófaborð. Krómað/kirsuberjalitað með I Omm glerplötu. B80 x LI40 sm.kr. 29.980,- :■ . - - " ■- : -7; HÚSGAGNAHÖLUN -þar sem úrvalið er meiral Bíldshöfði 20-112 Reykjavík Sími 510 8000 Ericsson 120 Dect Þráðlaus sími Tilboðsverð 15.980 Tilboðið gildir til 10. mars Nýtískulegur þráðlaus sími byggður samkvæmt nýjum DECT/GAP staðli. Hámarksgæði og öryggi. I • Þráðlaus sími með skjá • Handtæki 135 g j • Ending rafhlöðu 12 klst. í tali, uo klst í bið • 10 númera endurval • 10 númera skammval I • Stillanleg hringing • 5 mismunandi hringitónar • Hægt að tengja allt að 8 hand- tæki sama móðurtækinu og hægt að tala á milli þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.