Morgunblaðið - 07.02.1999, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
i-
ÍÞRÓTTIR
Hvaða lið
tekur við af
MARGT hefur breyst í NBA-deildinni í körfuknattleik frá því að
Michael Jordan stal boltanum frá Karl Malone - og skoraði sig-
urkörfuna sem tryggði Chicago Bulls sjötta titilinn á tíu árum í
júní síðastliðnum. Jordan hefur lagt skóna á hilluna og Chicago
hefur verið stokkað upp. Án Jordans verður það hlutverk ein-
hvers annars að endurreisa ímynd deildarinnar eftir langt verk-
bann. Á meðan besti leikmaður allra tíma spilar golf í rólegheit-
unum munu aðrir stjörnuleikmenn og önnur lið reyna að fylla
skarð hans og meistaraliðs Bulls. „Við verðum að selja leikinn
að nýju til almennings og þótt Jordan hafi verið frábær sendi-
herra fyrir deildina munu vinsældir hennar halda áfram. Þeir
leikmenn sem spila áfram verða að gera sér grein fyrir hlutverki
sínu bæði innan sem utan vallar,“ sagði Lenny Wiikens hjá Atl-
anta nýlega en hann er sigursælasti þjálfari allra tíma.
Gunnar
Valgeirsson
skrifarfrá
Bandaríkjunum
Svipuð orð hafa verið á vörum
margra undanfarið. Flestir þeir
sem best til þekkja gera sér grein
fyrir því að erfitt
verður að fylla skarð
það sem Jordan skil-
ur eftir sig. Ungu
stjömurnar í deild-
inni verða því að taka sig til í leik
innan vallar og hegðun utan hans.
Að auki ættu ný tækifæri að opnast
hjá liðum sem Bulls hefur rutt úr
vegi á undanfórnum árum. Þau
munu eflaust halda körfuknatt-
leiksaðdáendum við efnið þótt alls-
herjargoðinn sé farinn.
Fyrsta prófraunin er nú um helg-
ina þegar fyrstu deildar leikirnir á
keppnistímabilinu fara fram. Liðin
byrja keppnistímabilið eftir óvenju-
stutt æfíngatímabil og 204 daga
verkbann. Búast má við að fyrstu
leikir liðanna verði erfiðir fyrir
suma að horfa á meðan leikmenn
finna sig með nýjum samherjum.
Fá lið eru í raun tilbúin í leikina og
þeir þeikmenn sem ekki eru í
toppæfingu gætu átt á hættu að
meiðast. Aðdáendur margra liða
munu þó eflaust kætast ef þau
byrja vel.
Uppstokkun Chicago Bulls, þótt
slæm sé fyrir aðdáendur liðsins,
gefur nú fjölmörgum öðrum liðum
von um að vinna titilinn. Þessi von
gæti gert það að verkum að aðdá-
endur þeirra fari að fylgjast með af
meiri ákafa. „Ég held að að
minnsta kosti tólf lið, sem halda að
þau eigi raunhæfan möguleika á
meistaratitilinum, mæti til keppni.
Þetta gæti orðið jafnasta keppnis-
tímabil okkar í mörg ár,“ sagði Da-
vid Stern, forseti deildarinnar.
Vegna styttingar á keppnistíma-
bilinu úr 82 í 50 leiki verður hver
þeirra mikilvægari en venjulega og
liðin munu spila fleiri leiki í viku
hverri en ella. Þau munu einnig
spila fleiri leiki í röð á útivelli.
þetta gerir það að verkum að þjálf-
arar liðanna verða að nota „vara-
mannabekkinn" meira en áður og
sumir af eldri leikmönnunum fá
meiri hvfld í leikjunum. Leikað-
ferðir gætu einnig þurft að breyt-
ast. „Við munum eiga í mun meiri
erfiðleikum að stífpressa allan völl-
inn en vernjulega þegar við spilum
svo marga leiki í röð,“ sagði Rick
Pitino, þjálfari Boston. „Það gæti
gert út af við suma leikmenn til
langframa," bætti hann við. Liðin
með bestu varamannabekkina
munu því eflaust gera það gott eft-
ir því sem lengra líður á keppnis-
tímabilið.
Það er þó aðdáendum NBA-
deildarinnar fyrir mestu að þrátt
fyrir allt mun keppnistímabilið
halda velli og þeir fá tækifæri til að
njóta leiksins að nýju. Þegar litið er
á styrkleika liðanna virðast fjögur
lið í Vesturdeildinni og tvö í Aust-
urdeildinni líklegust að blanda sér í
toppbaráttuna. í Vesturdeildinni
farnir á brott verður erfitt fyrir
Tim Floyd, hinn nýja þjálfara liðs-
ins, að koma Bulls svo mikið sem í
úrslitakeppnina.
Hvaða lið eru þá líklegust til að
taka titilinn af Bulls í Austurdeild-
inni? Indiana Pacers leikur nú sitt
síðasta keppnistímabil í Market
Square Arena í Indianapolis. Lairy
Bird sneri liðinu alfarið við í fyrra.
Pacers komst ekki í úrslitakeppn-
ina fyrir tveimur árum, en í fyrra
var það fimm stig frá því að slá
Chicago út. Ástæðan fyrir bjartsýni
margra á gengi liðsins er að það
kemur næsta óbreytt til leiks og
sennilega best undirbúið til keppni
af öllum 29 liðunum í deildinni. A
meðan önnur lið gátu ekki æft
óformlega (m.a. vegna þess hve
margir leikmanna þeirra voru með
Reuters
SCOTTIE Pippen náði sér ekki á strik í fyrsta leik sínum með
Houston Rockets. Hér sækir hann að körfu Los Angeles Lakers,
Kobe Bryant er í vörn, Travis Knight horfir á.
Reuters
BRYON Russel, leikmaður Utah Jazz, er treður knettinum í körfu
Chicago Bulls án þess að Andrew Lang komi vörnum við.
lausa samninga) æfðu leikmenn
Indiana saman í allt haust og í vet-
ur og það kann að koma liðinu
verulega til góða. Indiana hefur
komist í úrslit Austurdeildar þrjú
af undanfómum fimm árum og er
því sjóað lið í úrslitakeppninni.
„Flestir strákarnir í liðinu hafa
leikið saman lengi. Þeir eru fullir
sjálfstrausts og spila vel saman. Ef
einhver á slakan dag þá bætir alltaf
einhver upp fyrir það og meira get-
m’ maður ekki óskað af leikmönn-
um sínum,“ sagði Bird nú á blaða-
mannafundi í vikunni.
New York Knicks er alltaf með í
toppbaráttunni en aldurinn var far-
inn að segja til sín hjá liðinu í
fyrra. Forráðamenn liðsins tóku af
skarið fyrir skemmstu og skiptu á
John Starks og Chris Mills til
Golden State fyrir Latrell
Sprewell, sem hefur verið í keppn-
isbanni í rúmt ár eftir að hafa
reynt að kyrkja P.J. Carlesimo,
þjálfara Golden State, á æfingu.
Sprewell stóð sig vel í æfingaleikj-
um liðsins og ef hann fellur vel inn
í leik þess gæti Knicks veitt Indi-
ana harða keppni í Austurdeildinni.
Mikið mun velta í Patrick Ewing í
miðjunni, en hann er ekki í góðu
formi, enda miðjumaðurinn í samn-
inganefnd stéttarfélags leikmanna
við deildina. Ef Ewing verður ekki
fljótur í gang má búast við að New
York eigi erfitt uppdráttar.
Af öðrum liðum í Austurdeildinni
er helst að veðja á Miami Heat, en
fyrir utan miðherjann Alonzo Mo-
urning og bakvörðinn Tim Har-
daway er ekki mikið um skorara
hjá liðinu. Dan Majerle á enn við
langvarandi bakmeiðsl að stríða og
því munu aðrir leikmenn þurfa að
taka af skarið.
Atlanta Hawks er með gott byrj-
unarlið, en veikur varamannabekk-
urinn kann að verða liðinu að falli.
New Jersey Nets hefur styrkst frá
í fyrra og gæti orðið hættulegt í úr-
slitakeppninni. Jason Williams
verður sem fyix aðalmaðurinn hér,
en nýliðinn frá í fyrra, Keith Van
Horn, gæti sprungið út. Önnur lið
munu sennilega ekki koma til með
að bæta sér í toppbaráttuna í Aust-
urdeildinni og þá sérstaklega
eru Los Angeles Lakers, Utah
Jazz, San Antonio Spurs og Hou-
ston Rockets sigurstrangleg, en í
Austurdeildinni Indiana Pacers og
New York Knicks. Lítum nánar á
möguleika liða í báðum deildum.
Austurdeildin
Mörg lið í deildinni eru eflaust í
hefndarhug þegar þau mæta
Chicago Bulls. Liðið hefur haft svo
mikla yfirburði undanfarin ár að
erfitt hefur verið fyrir önnur lið að
yfirstíga þann hjalla. Liðin í Aust-
urdeildinni munu reyna að hefna
fyrir ósigra gegn Bulls undanfarin
ár og þar sem Jordan, Pippen, Rod-
man, Longley og Kerr eru allir
Utah lagði meistara Chicago
MEISTARAR Chicago Bulls
máttu þola tap í sínum fyrsta leik
er þeir heimsóttu Utah Jazz,
104:96. Karl Malone skoraði mest
fyrir heimamenn, 21 stig, en Jeff
Hornacek setti 17 stig. Toni Ku-
koc skoraði mest fyrir gestina -
hann skoraði 22 af sínum 32 stig-
um í seinni hálfleik.
í Los Angeles gerðist það að
stjörnuleikmennirnir Shaquille
O’Neal, Kobe Bryant og Eddie
Jones léku vel með Lakers, er
þeir mættu Houston Rockets-tríó-
inu, Charles Barkley, Hakeem
Olajuwon og Scottie Pippen.
Heimamenn fögnuðu sigri 97:91.
Barkley átti stórleik - skoraði 31
stig og tók 15 ráköst. Olajuwon
skoraði 11 stig og tók sjö fráköst.
Fyrir heimamenn skoraði O’Neal
30 stig, tók 14 fráköst og átti sex
stoðsendingar.
Gary Payton skoraði 28 stig
fyrir Seattle SuperSonics er liðið
færði nýja þjálfaranum Paul
Westphal sigur á Dallas Maver-
icks, 92:86.
Nick Anderson skoraði 19 stig
fyrir Orlando og Darrell Arm-
strong fimmtán og átti átta
stoðsendingar er Magic vann
New York Knicks 95:83.
Boston tapaði óvænt á heima-
velli fyrir Toronto. Kevin Willis
skoraði 28 stig fyrir gestina og
tók 16 fráköst og Doug Christie
skoraði 27 stig.
Gugliotta skoraði 24 stig og
tók sautján fráköst fyrir Phoenix
Suns, sem vann LA Clippers á
útivelli, 101:92.
Chicago?
i
i
i
i
i
i
i