Morgunblaðið - 07.02.1999, Page 16
16 SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ljúfir lundar og
djarfar dýfingar
KATRÍN Á. Johnson í Flat Space Moving.
LISTPAJVS
Borgarleikhúsið
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
Föstudagur 5. febrúar.
Á FYRSTU sýningu íslenska dansfiokksins
á nýju ári eru þrjú dansverk. „Flat Space
Moving" og „Diving“ eftir Rui Horta og
„Kæra Lóló“ eftir Hlíf Svavarsdóttur. Rui
Horta er portúgalskur að uppruna. Hann
lærði og starfaði sem dansari í New York á
áttunda áratugnum en tók við stjórnun
Companhia de Danca de Lisboa 1984. Hann
stofnaði SOAP Dance Theater Frankfurt árið
1991. Sá dansflokkur ferðaðist víða um heim
við góðan orðstír. Á síðasta ári sagði hann
skilið við SOAP dansflokkinn til að geta ein-
beitt sér að samningu nýrra verka. Hlíf
Svavarsdóttir er íslenskum dansunnendum
góðkunn. Hún var dansari við Het National
Ballett í Amsterdam í tíu ár og starfaði jafn-
framt sem danshöfundur í Hollandi áður en
hún tók við listrænni stjómun Islenska dans-
flokksins 1987-1989. Hún hefur samið nokkur
dansverk fyiir íslenska dansflokkinn, þar af
,Af mönnum", sem árið 1988 vann norræna
danshöfundasamkeppni. Síðastliðin átta ár
hefur hún verið stjómandi dansdeildarinnar
við Listaháskólann í Amheim í Hollandi.
Flat Space Moving:
Rui Horta
Dansarar: Chameron Corbett, Chad Adam
Bantner, Júlia Gold, Jóhann Freyr Björgvins-
son, Katrín Ingvadóttir, Katrín Á. Johnson,
Lára Stefánsdóttir. Tónlist: Philippe Deschapp-
er, Ground Zero, Beautiful People, Yens &
Yens, Norbert Zacharias. Lýsing: Rui Horta,
Elfar Bjarnason. Sviðsmynd: Rui Horta. Bún-
ingar: Kathy Brunner.
Fyrsta verk á dagskrá kallast „Flat Space
Moving" og er eftir Rui Horta. Grænn dúkur
afmarkar hreyfísvæði dansaranna sem týnast
inn á sviðið undir taktföstum tónum. í verkinu
draga dansararnir dúkinn saman og minnka
þannig hreyfíflöt sinn. Verkið spinnst út frá
einstakling sem fellur ekki í hópinn. Sá hinn
sami hagar sér öðravísi og traflar með hegð-
un sinni hina sem af alefli reyna að leiða hann
hjá sér. Verkið gengur að hluta til út á uppá-
tæki hans. Þetta var taktfast dansverk sem
dansararnir fundu sig vel í. Litlar snöggar
hreyfingarnar hentuðu þeim vel. Nýr meðlim-
ur dansflokksins, Chad Adam Bantner, fór
ágætlega með túlkun sína á persónu sem á
sjúklegan máta þráir athygli. Samspil hans og
hópsins var átakalítið en komst til skila.
Nokkuð bar á Katrínu Á. Johnson, sem tókst
vel upp í sýningunni. Vegna endurtekninga á
keimlíkum senum og einhæfrar tónlistar var
„Flat Space Moving" helst til langdregið. Af-
gerandi uppbrot hefði verið vel þegið.
Kæra Lóló:
Hlíf Svavarsdóttir
Dansarar: Chameron Corbett, Chad Adam
Bantner, Guðmundur Helgason, Hildur Óttars-
dóttir, Júlia Gold, Jóhann Freyr Björgvinsson,
Katrín Á. Johnson, Lára Stefánsdóttir. Tónlist:
Jean-Philippe Rameau. Lýsing: Elfar Bjarna-
son. Sviðsmynd: Kristján Jóhannsson. Búningar:
Hjördís Sigurbjörnsdóttir. Dramatúrg: Hafliði
Arngrímsson.
Verk Hlífar Svavarsdóttur, „Kæra Lóló“,
er annað verk á dagskrá. Dansverkið er til-
einkað móður höfundar. Það er samið við tón-
list Jean-Philippe Rameau, sem var uppi á ár-
unum 1663-1751. Hér er á ferð ljóðrænt hefð-
bundið dansverk. Höfundur er ekki að leita
nýrra leiða og leyfir tónlistinni að ráða ferð-
inni og leiða sig gegnum verkið. Verkið er óð-
ur til móður höfundar og fléttast inn í það
minningarbrot úr æsku. Verkið hófst á dansi
fjögurra kvendansara en skömmu síðar
þramma karldansarar klæddir kjólfötum inn
á sviðið með lunda í eftirdragi. Dansararnir
umvafðir flæðandi hreyfingum, sem er aðals-
merki höfundar, liðu um sviðið i vel hönnuðum
búningum að því er virtist átakalaust. Sviðs-
myndin stóð fyrir sínu. Hún var einföld, tjald
uppsviðs sem breytti um lit eftir andrúmslofti
verksins. Lundarnir tóku sig vel út á sviðinu.
Sú sena var hnittin og þjónaði tilgangi sínum
sem tilvitnun til fortíðar. Þetta dansverk ber
vott um hlýju og næmi höfundar sem skilar
sér í flæðandi hreyfingum dansaranna
og minningarbrotum þeim sem lágu í
andrúmslofti verksins.
Diving: Rui Horta
Dansarar: Chameron Corbett, Cliad
Adam Bantner, Guðmundur Helgason,
Julia Gold, Jóhann Freyr Björgvinsson,
Katrín Á. Johnson, Lára Stefánsdóttir.
Tónlist: Etienne Schwarcz. Lýsing: Rui
Horta, Elfar Bjarnason. Sviðsmynd: Rui
Horta. Búningar: Kathy Brunner. Að-
stoðarmaður höfundar: Jan Kodet.
Síðasta verk kvöldsins er „Diving"
eftir Rui Horta. Dansarar á sundfötum
spóka sig á sviðinu innan um vaskaföt.
Einn þeirra, Guðmundur Helgason, hef-
ur komið sér þægilega fyrir á stökk-
bretti og trónir yfír hópnum. Hann þyl-
ur ljóðræðu um hvemig draumur og
raunveruleiki mætast í vatni. Áhrif þess
að taka áhættu og stinga sér á kaf.
Hann færist allur í aukana þar til erfitt
er að greina orðaskil og skorar á sjálfan
sig að stinga sér. Þetta var stutt og
laggott dansverk. Ljóðræða og hreyf-
ingar Guðmundar undirstrikuðu draum-
kenndan blæinn og skiluðu sér vel sem
leiðandi þáttur í verkinu. Hann sýndi á
sér nýja forvitnilega hlið. Notkun renn-
andi vatns og ljóss róaði andrúmsloftið.
Rennandi vatnið gerði það að verkum að
tíminn virtist standa í stað rétt eins og
þegar kafað er undir yfirborð vatns.
Dansaramir skiluðu sínu hlutverki vel.
Þeir vora samstilltir án þess að verða
einslitir. Þetta verk var vel uppbyggt og
spennandi áhorfs frá upphafi til enda.
Þessi dansþrenna er mynduð af ólík-
um dansverkum. Sýningin býður upp á takt-
föst en ólík verk Rui Horta annarsvegar og
ljóðrænt verk Hlífar Svavarsdóttur hinsvegar.
Frammistöðu dansaranna er óhætt að lofa.
Þeir era vel settir hvað varðar danstækni og
fer fram í túlkun. Það er ekki á færi allra
dansflokka að flytja verk eftir Rui Horta og á
síðasta ári Jorma Uotinen og Jiri Kylián. Það
eitt og sér telst gæðastimpill fyrir íslenska
dansflokkinn og á án efa eftir að nýtast honum
hérlendis sem og á erlendum vettvangi. Þetta
er sýning sem ég mæli með.
Lilja Ivarsdóttir
WzisL;-, , . ■
er komin út
Dagskráin
3.-16. febrúar
/ allri sinni mynd!
Kíkt inn hjá
umsjónarmönnum
þáttarins Með hausverk
um helgar.
í Dagskrárblaðinu þínu.
Fjallað um sjónvarpsþætti
sem gera á eftir
Óskarsverðlaunamyndinni
L.A. Confidential.
Rætt við þingmenn um
hvernig sé að vera í beinni
útsendingu í sjónvarpi.
Veirufræðingur, sundmaður og kór-
stjóri hlutu Menningarverðlaun VIS
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BJÖRN Bjarnason menntamálaráðherra, sem viðstaddur var athöfn-
ina, óskar Herði Áskelssyni til hamingju. Á milli þeirra stendur Mar-
grét Guðnadóttir. Örn Arnarson er lengst til hægri.
FORSETI fslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, afhenti á
föstudag menningarverðlaun
VIS, en þau hlutu Margrét
Guðnadóttir, prófessor í veiru-
fræði við Háskóla Islands, Hörð-
ur Áskelsson, kórstjóri og org-
anisti við Hallgrímskirkju, og
Örn Arnarson sundmeistari,
íþróttamaður ársins 1998. Verð-
launin voru nú veitt í fjórða sinn
- og bar veitinguna upp á tíu
ára afmæli Vátryggingafélags
Islands.
Margrét Guðnadóttir hlaut
eina milljón króna í verðlaun
fyrir vísindaafrek, ekki síst störf
að þróun bóluefnis gegn visnu-
mæði í sauðfé, sem hún hefur
unnið að í hartnær áratug. Dr.
Margrét Iauk námi við Háskóla
íslands 1956 og stundaði fram-
haldsnám í Bretlandi og við
Yale-háskóla í Bandarfkjunum
1957-1960. Hún var sérfræðing-
ur í veirufræði við Tilraunastöð
HÍ á Keldum 1960-1969 og pró-
fessor í sýklafræði við lækna-
deild HI síðan.
Hörður Áskelsson, organisti
og kórstjóri í Hallgrímskirkju,
hlaut 500 þúsund króna verð-
laun fyrir afrek á tónlistarsvið-
inu. Hörður lauk tónmennta-
kennaraprófi og burtfararprófí í
orgelleik frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík og A-prófi í kirkju-
tónlist (kantors-prófí) frá Tón-
listarháskóla Rínarlanda í Diis-
seldorf 1981. Hann hefur verið
organisti við Hallgrímskirkju
frá 1982, fengist við tónmennta-
og orgelkennslu, kennt kór-
sljórn, stjórnað Mótettukór Hall-
grímskirkju og kammerkórnum
Schola cantorum frá stofnun og
verið listrænn stjórnandi Kirkju-
listahátíðar frá 1987.
Örn Arnarson, sundmaður og
íþróttamaður ársins 1998, hlaut
500 þúsund króna verðlaun fyrir
íþróttaafrek. Örn Arnarson setti
á síðasta ári 21 Islandsmet og
eitt Evrópumet, auk þess að
hafa hlotið silfurverðlaun á al-
þjóðlegum mótum og margs
konar viðurkenningar aðrar. I
síðasta mánuði setti Örn enn eitt
íslandsmetið Hann stundar nú
æfingar fyrir Ólympíuleikana í
Ástralíu haustið 2000, en mun á
þessu ári æfa og keppa í tólf
löndum.
I sljórn Menningarsjóðs VIS
sitja nú Kjartan Gunnarsson,
formaður, Axel Gíslason og
Benedikt Sigurðsson.
Stjórnandi
Katuaq — Menningarmiðstöð Grænlands
• / Staða stjórnand Katuaq —
Menningarmiðstöðvar Grænlands —
er laus frá 1. júlí 1999.
Kynnið ykkur starfsauglýsingu á
KATUAQ internetinu:
www.katuaq.gl