Morgunblaðið - 07.02.1999, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Vaxandi fjöldi einstaklinga bínst umhverfis- og náttúruverndarsamtökum
Er umhverfisvernd
EINSTAKLINGAR og
félög sem láta sig nátt-
úruvemdar- og um-
hveríismál varða hafa
verið dugleg við að
draga sig saman í
stærri félagasamtök að undan-
förnu. I síðasta mánuði voru Um-
hverfíssamtök Islands stofnuð og
seint á síðasta ári bundust útivi-
starfélög sameiginlegum samtök-
um þegar Samút var stofnað.
Af sögu náttúruvemdarsamtaka
að dæma virðist sem stofnun
þeirra komi í sveiflum og haldist í
hendur við ákveðna atburði í þjóð-
félaginu. Fyrsta aldan, ef svo má
segja, í stofnun umhverfíssamtaka
merktist hérlendis á áttunda ára-
tugnum og voru framkvæmdir við
Laxárvirkjun meðal annars hvati
að henni, auk þess sem straumar
utan úr heimi hafa eflaust haft sín
áhrif á þróun mála. Samtök um
náttúruvernd á Norðurlandi, Nátt-
úruverndarfélag Suðvesturlands
og fleiri landshlutasamtök voru
stofnuð. I kringum 1975 var svo
Samband íslenskra náttúruvernd-
aifélaga stofnað og um 1980 voru
Landverndarsamtök Blöndu stofn-
uð. Fæst þessara félaga starfa enn
í dag, en svo lítur út fyrir að önnur
alda náttúmvemdarsamtaka sé
hafin.
Þótt hér verði ekki um tæmandi
úttekt að ræða má nefna fjölda fé-
laga sem stofnuð hafa verið á und-
anförnum árum og misserum, svo
mörg að sumum hefur þótt nóg um
og eru famir að spyrja sig hvort
þörf sé á svo miklum fjölda frjálsra
félagasamtaka sem láta sig varða
sama málefnið. Þegar að er gáð eru
áherslur þessara samtaka ólíkar og
misjafnt hve viðhorf þeirra til nátt-
úmvemdar em afdráttarlaus.
Kannski er því eðlilegt að stofnuð
séu ný samtök fremur en að menn
gangi til liðs við þau sem fyrir em,
þar sem mörg félaganna hafa verið
stimpluð sem öfgahópar og nokk-
urra fordóma hefur gætt í þeirra
garð. Þó má ekki gleyma að þau
hafa veitt nauðsynlegt aðhald og
bent á það sem betur geti farið í
aðgerðum stjórnvalda með tilliti til
náttúmnnar, eða mótmælt aðgerð-
um þeirra. En á hinn bóginn er
kannski ekki eðlilegt að svo mörg
samtök séu starfandi. Það sýnir
e.t.v. sundurleitni og sundrung
meðal hóps sem í raun ætti að
standa þéttar saman í baráttu
sinni.
Nýstofnuð regnhlífarsamtök
Þau samtök sem síðast vora
stofnuð og vakið hafa athygli
manna em Umhverfíssamtök Is-
lands. Em þau stofnuð með það að
leiðarljósi að vera vettvangur allra
sem vilja vinna að umhverfismálum
og vemda þau lífsgæði sem felast í
náttúra landsins og hreinu um-
hverfí á hnattræna vísu. A annað
hundrað manns gerðist félagar á
stofnfundi samtakanna sem hald-
inn var í janúar. Að sögn Stein-
gríms Hermannssonar, formanns
samtakanna, era þau regnhlífar-
samtök félaga sem láta sig náttúm-
verndar- og umhverfismál varða.
Steingrímur segir að fyrir stofn-
fundinn hafí verið haldinn undir-
búningsfundur með fulltrúum frá
ýmsum útivistar- og umhverfis-
samtökum, sem hafí ólík markmið,
og láti sig ýmist varða útivist,
skógrækt eða almenna náttúra- og
landvernd. Steingrímur segir að
flest starfandi náttúmvemdar- og
umhverfissamtök hafí ólíkar
áherslur, auk þess sem mörg félög
séu staðbundin. En eftir að hafa
skoðað jarðveginn hafí hann sann-
færst um að þörf væri á heildar-
samtökum fyrir náttúmverndar-
fólk. Samtökin munu bjóða for-
ystumönnum þessara félaga að
taka sæti í fulltrúaráði samtak-
anna, til þess að sem flestir komi
að umræðunni. „Við teljum feng í
því að fá slíkt fólk inn til breiðari
umræðu," segir Steingrímur. Að-
spurður segist hann vonast eftir
því að samtökin eigi gott samstarf
við stjórnvöld.
„Við vonum að sú samstaða sem
menn ná, verði viss þrýstingur á
stjómvöld, en við hugsum okkur að
við munum eiga gott samstarf við
þau og hafa áhrif á að þau marki
langtíma umhverfisstefnu sem við
getum sætt okkur við,“ segir Stein-
grímur.
Ólíkar áherslur innan aðildar-
félaga Landverndar
Landvernd er regnhlífarsamtök
fyrirtækja, stofnana og samtaka
sem vilja vinna að málefnum nátt-
úraverndar. Þau vom stofnuð árið
1969 og em upp undir 60 fyrirtæki,
stofnanir og félagasamtök aðilar að
Landvernd. Meðal þeirra em Al-
þýðusamband íslands, Verka-
mannasamband Islands, Ung-
mennafélag Islands, Kvenfélaga-
samband íslands, Bændasamtök
íslands, Vinnuveitendasamband
íslands, Samband íslenskra sveit-
arfélaga, Landsvirkjun, Hið ís-
lenska náttúmfræðifélag, lands-
hlutasamtök um náttúravemd og
fleiri félög. Aðilar að Landvernd
geta því verið rúmlega tvö hundrað
þúsund, ef talið er í einstaklingum,
þó það sé ekki raunhæfur
mælikvarði á stærð samtakanna.
Aðildarfélög Landverndar spanna
mjög breitt svið þótt þau hafí öll
Morgunblaðið/RAX
FRÁ mótmælum náttúruverndarfólks gegn framkvæmdum við Hágöngumiðlun síðastliðið sumar.
það sameiginlega markmið að
styðja málefni náttúravemdar, en
samtökin hafa náttúmvernd, land-
græðslu og vernd íslenska menn-
ingararfsins að leiðarljósi.
Jón Helgason, formaður Land-
verndar, segir að ólík viðhorf til
náttúruvemdar þrífíst innan sam-
takanna og einstök félög séu með
sérstakar áherslur. Segir hann
samtökin upphaflega hafa verið
stofnuð til að sameina óhk viðhorf
til náttúraverndar, en hann telji
nauðsynlegt að öll sjónarmið komi
fram. Jón segir að einstaklingsað-
ild hafi minnkað með áranum en
aðild félagasamtaka aukist þar á
móti. „Að undanförnu hafa verið
stofnuð nokkur félög sem hafa
bundið sig við sérstök verkefni. Til
dæmis Gróður fyrir fólk, sem
bundið er við Landnám Ingólfs, og
Samtök um óspillt land í Hvalfírði
sem stofnuð vora vegna athafn-
anna sem þar hafa verið. Hvað
varðar nýstofnuð Umhverfíssam-
tök íslands lítur út fyrir, miðað við
þær yfirlýsingar sem þaðan hafa
komið, að hlutverk þeirra sé mjög
svipað og Landverndar," segir Jón
Helgason.
Starfssvið skarast ekki
Steingrímur Hermannsspn, for-
maður Umhverfíssamtaka íslands,
segist aðspurður ekki telja að
starfssvið nýstofnuðu samtakanna
skarist á við Landvernd. „Við telj-
um starf Landverndar mikils virði
en ég veit ekki til þess að neinir af
forystumönnum umhverfis- eða
útivistarsamtaka séu meðlimir í
þeim samtökum, það eru fyrst og
fremst ýmis fyrirtæki og stofnanir.
Þannig að Landvernd er byggð
upp á öðram grundvelli en Um-
hverfissamtök íslands,“ segir
Steingrímur.
Auk samtaka sem rúma ólík
sjónarmið um náttúravemd og
innihalda fjölda aðila með mismun-
andi áherslur era til nokkur sam-
tök með mjög afdráttarlausa af-
stöðu til náttúraverndarmála. Með-
al þeirra era Náttúravemdarsam-
tök Islands sem stofnuð vora um
mitt ár 1997. Félagið leitast við að
framfylgja markmiðum sínum með
því að veita stjómvöldum og fram-
kvæmdaraðilum gagnrýnið aðhald
og tryggja upplýsingastreymi til
almennings. Arni Finnsson situr í
stjórn þeirra og segir að samtökin
telji ákaflega nauðsynlegt að
stjórnvöld virði rödd slíkra sam-
taka. Hann bendir á yfírlýsingu
sem umhverfisráðherrar um 50
ríkja samþykktu í Árósum í Dan-
mörku sl. sumar, þar sem viður-
kennd er nauðsyn þess að frjáls fé-
lagasamtök um náttúruvernd séu
með við ákvörðunartöku og njóti
stuðnings stjórnvalda.
Félagar í Náttúravemdarsam-
tökum íslands era á fjórða hund-
rað og þeim hefur fjölgað töluvert
undanfarið, að sögn Arna. Félagið
var stofnað í kjölfar pmræðu _um
skipulag miðhálendis Islands. Árni
segir að í kringum þá umræðu hafí
skapast ákveðinn hópur sem vildi
vemda hálendið. Upp úr því vora
samtökin stofnuð, og láta sig varða
allt sem lýtur að náttúravernd, þar
á meðal hnattræn málefni á borð
við loftslagsbreytingar af völdum
gróðurhúsaáhrifa og mengun sjáv-
ar.
Að sögn Árna hafa samtökin átt
ánægjulegt og gagnlegt samstarf
við önnur samtök með svipuð
markmið, eins og Félag um vernd-
un hálendis Austurlands, Fugla-
verndarfélagið, Samtök um óspillt
land í Hvalfirði og Náttúravernd-
arsamtök Austurlands. Hafa þau
sent ályktanir og áskoranir til
stjómvalda er varða náttúravernd-
armál.
Viðhorfsbreyting átt sér stað
Staðbundin náttúravemdarsam-
tök sem miða að verndun ákveðins
svæðis og hafa orðið til vegna
ákveðinna aðgerða eða fram-
kvæmda, era þónokkur hérlendis.
Samtök um óspillt land í Hvalfírði
(SÓL) vora stofnuð árið 1996 í kjöl-
far framkvæmda sem þar vora fyr-
irhugaðar við álverið á Grandar-
tanga. Samtökin hafa sem mark-
mið að vemda umhverfí Hvalfjarð-
ar auk almennrar náttúru- og um-
hverfisverndar. Milli 2-300 virkir
félagar era í samtökunum en fé-
lagsmenn og stuðningsaðilar era
3.000. Félagið er aðili að Land-
vemd og era forsvarsmenn þess
einarðir í afstöðu sinni til náttúra-
verndar.
Ólafur Magnússon, formaður
samtakanna, segir algera viðhorfs-
breytingu hafa orðið í þjóðfélaginu
til umhverfis- og náttúravemdar.
„Það er í tísku núna að vernda
náttúrana og allir vilja vera með.
En við megum ekki gleyma því að
mörg samtök hafa mætt mikilli
andstöðu og fordómum í gegnum
árin, en hafa unnið mikið starf í
þágu náttúraverndar. Við fögnum
því að stofnuð hafi verið samtök
sem ætla að sameina náttúra-
verndarsamtök, en okkur finnst í
hæsta máta óeðlilegt að þeir aðilar
skuli koma utan frá,“ segir Ólafur
Magnússon.
Gróður fyrir fólk í Landnámi
Ingólfs era samtök sem miða að
því að græða upp land á Suðvestur-
horni landsins og starfa í samstarfi
við sveitarfélög og fyrirtæki á
svæðinu. Þau vora stofnuð vorið
1997 og era félagar á þriðja hund-
rað auk félagasamtaka og sveitar-
félaga. Að sögn Jónu Fanneyjar
Friðriksdóttur, hafa samtökin í
huga að ganga í nýstofnuð Um-
hverfissamtök Islands.
Líf og land era samtök sem vilja
stuðla að jafnvægi í þróun um-
hverfis mannsins og halda hlífi-
skildi yfir byggingarlist, menning-
arverðmætum og náttúru landsins.
Félagið var stofnað árið 1978 og er
enn starfandi. Félagsmenn era
rúmlega eittþúsund og hefur fjöldi
þeirra verið stöðugur í nokkurn
tíma, að sögn Páls Björgvinssonar,
formanns félagsins.
Sjálfboðaliðasamtök um náttúra-
vernd vora stofnuð árið 1986 að
breskri fyrirmynd. Vinna þau að
ýmsum endurbótum á friðuðum
svæðum og náttúranni almennt og
láta sig náttúravernd almennt
varða. 150 manns era í samtökun-
um, að sögn Jóhönnu Jóhannes-
dóttur, formanns félagsins.
Félag leiðsögumanna er bæði
fag- og stéttarfélag en lætur sig
varða náttúruvemdar- og umhverf-
ismál, að sögn Borgþórs S.
Kjærnested, formanns félagsins.
í tísku?
Náttúru- og umhverfisverndarsamtökum
hefur vaxið fiskur um hrygg að undan-
förnu. Bæði hefur félögum í þeim fjölgað
og mörg ný samtök hafa verið stofnuð. Er í
tísku að vernda náttúruna eða eru augu
Islendinga að opnast fyrir sjálfsögðum
hlut? Ragna Sara Jónsdóttir kynnti sér
fjölda þessara samtaka, baráttumál þeirra
og hlutverk í þjóðfélagslegri umræðu um
umhverfis- og náttúruverndarmál.