Morgunblaðið - 07.02.1999, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1999 37
SKOÐUN
EES- SAMNINGURINN -
FIMM ÁR í FRAMKVÆMD
UM þessar mundir eru fimm ár
liðin frá gildistöku samningsins um
evrópska efnahagssvæðið. Hann
tók gildi hinn 1. janúar 1994. Eins
og haft var á orði í umræðum um
samningsgerðina á sínum tíma er
þessi samningur umfangsmestur
og mikilvægastur allra samninga
sem Island og reyndar öll önnur
aðildarríki EFTA hafa gert á
seinni tímum. Fimm ára afmælið
má vera tilefni til að líta yfir hvern-
ig til hafi tekist.
Rétt er að rifja upp að endanleg
niðurstaða varð sú að þrjú EFTA-
landanna, þ.e.a.s. Island, Liechten-
stein og Noregur, gerðust með
samningnum þátttakendur í innri
markaði ESB-landanna 15. Sömu
ákvæði, réttindi, skyldur og tæki-
færi eru því í gildi á flestum gi'und-
vallarsviðum viðskipta, atvinnurétt-
ar og margra annarra samskipta í
öllum EES-löndunum 18. Fólk og
fyrirtæki á öllu efnahagssvæðinu
eru þannig jafningjar. Samanlagð-
ur íbúafjöldi landanna á evrópska
efnahagssvæðinu er rneiri en 370
milljónir og þau standa fyrir yfir
40% alþjóðaviðskipta. Evrópska
efnahagssvæðið er því stærsta við-
skiptasvæði heims.
Halldór Asgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði nýlega í blaðagi’ein
að Evrópusamvinnan hefði gefið
Islendingum tækifæri á fjölmörg-
um sviðum, sem mikilvægt væri að
einstaklingar, fyrirtæki og samtök
nýttu sér. Þetta verður aldrei of oft
áréttað og jafnframt er ljóst að
áhrif samningsins eni þegar harla
mikil.
Umræðan á Islandi um kosti
þess að ganga inn í EES snerist á
sínum tíma fyrst og fremst um toll-
frjálsan aðgang að evrópska mark-
aðnum fyrir fisk. Gamli fríverslun-
arsamningurinn við það sem við nú
köllum Evrópusambandið var
ófullkominn á því sviði, þótt vel
væri séð fyrir iðnaðai'vörum. Með
EES-samningnum opnaðist mögu-
leiki til úrbóta fyrir fiskafurðir,
sem ágætlega rættist úr í niður-
stöðum samninganna.
Til þess að tryggja jafna aðstöðu
einstaklinga og fyrirtækja innan
alls EES tóku EFTA-löndin upp
viðeigandi hluta laga og reglna
ESB, svokallaðar ESB-gerðir, um
innri markaðinn. Þessar gerðir
varða að mestum hluta fjórfrelsið
svokallaða, þ.e. frjáls og hindrun-
arlaus viðskipti með vörur og þjón-
ustu, fullt frelsi í fjánnagnsvið-
skiptum og frjálsa för
fólks, og mynda þessi
atriði grunn samn-
ingsins.
Stöðugleiki og
hagræðing
Fjórfrelsið á EES-
svæðinu hefur leitt til
meiri samkeppni.
Tækifærum til við-
skipta hefur fjölgað
og hindrunum fækk-
að. Sameiginlegar
reglur gilda nú á öllu
svæðinu. Samningur-
inn minnkar einnig
veralega eða jafnvel
fellir niður ýmsar hindranir í vegi
viðskipta vegna skriffínnsku;
hindranir, sem kosta bæði fjármuni
og tíma þegar vörur era fluttar á
milli landa. Tollafgreiðsla og flutn-
Ahrif samningsins, seg-
ir Kjartan Jóhannsson,
eru þegar harla mikil.
ingur varnings yfir landamæri eru
nú einfaldari en áður.
Samningurinn hefur vissulega
sætt gagnrýni úr ýmsum áttum.
En þessi gagnrýni hefur farið
minnkandi eftir því sem reynsla af
EES hefur aukist. Margir forvígis-
menn í atvinnulífi telja samninginn
ótvírætt hafa verið Islendingum til
gagns í viðskiptum svo og á fjöl-
mörgum öðram sviðum. Greiður
aðgangur að stærsta markaðinum
fyrir innlenda framleiðslu og þjón-
ustu verður seint ofmetinn, sagði
Kolbeinn Kristinsson, formaður
Verzlunarráðs, nýlega í Morgun-
blaðinu og fullyrti um leið að allar
efasemdarraddir um mikilvægi
EES fyrir atvinnu- og efnahagslíf í
landinu væru löngu þagnaðar.
Fyrir utan beinan viðskipta-
hagnað sem ísland og EFTA-lönd-
in hafa haft af EES-samningnum
hefur ýmis annar ávinningur verið
ekki síður mikilvægur. Nefna má
að Island býr nú við samskonar
löggjöf um banka- og fjármála-
starfsemi og keppinautar þess,
sem er grundvöllur hagræðingar
og öflugrar nýsköpunar á sviðinu
innanlands. Þær breytingar hafa
styrkt íslenskt atvinnulíf og bætt
samkeppnisstöðu íslenskra fyrir-
tækja út á við. Samkeppnislöggjöf-
in er annað dæmi um
nútímalega löggjöf
sem er forsenda fram-
fara. Þar kemur opin
og frjáls samkeppni í
stað miðstýringar og
reistar era hömlur
gegn einokun, hvort
tveggja með hagsmuni
neytenda að leiðarljósi.
Iðja, félag verk-
smiðjufólks, gaf í vetur
út fræðslurit sem heit-
ir Aukinn réttur fyrir
íslenskt launafólk og
taldi útgefandi það
bæta úr brýnni þörf
fyrir upplýsingar um
réttindi sem þátttaka íslands í
EES færði launafólki. í grein í rit-
inu telur Guðmundur Þ. Jónsson,
formaður Iðju, að almennt hafi
EES-reglur styi'kt stöðu launa-
fólks á vinnumarkaði og skapað því
aukinn rétt.
Þannig hefur EES-aðildin á fjöl-
mörgum sviðum mótað lagaum-
hverfi sem stuðlar að framsækni í
atvinnulífi og veitir neytendum og
launaþegum um leið nauðsynlega
vernd. Þessar umbætur eru vafa-
laust mikilvægur þáttur í stöðug-
leika og efnahagslegum uppgangi
tíunda áratugarins. Réttarbæturn-
ar veita einstaklingum og fyrir-
tækjum aukið öryggi og svigrúm í
rekstri og fjárfestingum. I heild
má segja að aðildin að EES hafi
gert Islendingum kleift á undra-
skömmum tíma að laga sig að og
taka öflugan þátt í alþjóðlegu við-
skipta- og atvinnulífi.
Rannsóknir og þróun
En EES varðar fleira en við-
skipti. Þar er einnig um að ræða
aukna samvinnu á mikilvægum
sviðum svo sem í félags-, umhverf-
is—, upplýsinga-, ferða- og menn-
ingarmálum svo og menntun, rann-
sóknum og þróun. EFTA/EES-
löndin þrjú starfa með ESB-ríkj-
unum í 28 framkvæmdaáætlunum
ESB, einkum á ofangreindum svið-
um. EFTA-löndin leggja fjánnagn
til þessara verkefna og hafa áhrif á
stjórnun og stefnumörkun, og
njóta góðs af fjárveitingum til
áætlananna.
Björn Bjamason menntamála-
ráðherra hefur lagt á þetta áherslu
og haldið því fram að á fáum ein-
stökum sviðum hafi aðildin að EES
skipt okkur meiru en að því er varð-
ar menntun, rannsóknir og vísindi.
Þörf slíkrar samvinnu er talin
bi-ýn í Evrópu til að bæta sam-
keppnisstöðu ESB-ríkjanna gagn-
vart öðrum iðnaðarríkjum. Mark-
miðið var fyrst í stað að auka fjár-
festingu í rannsóknum og þróun og
að koma árangri af vísindastarfí til
skila út í atvinnulífið. Undanfarið
hefur ESB líka lagt áherslu á það
að rannsóknir eigi að stuðla að
aukinni atvinnu. Það fellur vel að
íslenskum hugsunarhætti, enda
hafa íslenskar stofnanir og fyrir-
tæki tekið þátt í þessu samstarfi af
miklum krafti og verulegir fjár-
munir hafa runnið til þeirra úr
rannsóknasjóðum ESB. Vilhjálmur
Lúðvíksson, framkvæmdastjóri
Rannsóknarráðs Islands, taldi í
nóvember sl. íslendinga hafa greitt
um 810 milljónir króna í framlög til
Evrópsku rannsóknarsjóðanna
samkvæmt EES-samningnum, en
fengið til baka um 1,4 milljarða.
Aukin alþjóðatengsl og áhrif
Þessar tölur segja hins vegar
ekki nær alla söguna. I gegnum
145-150 samstarfsverkefni í rann-
sóknum og þróunarvinnu eru ís-
lendingar í tengslum við um 500
aðila í einum 30 löndum og hafa
þannig öðlast þekkingu og sam-
bönd.
Og þegar ESB áformar nýjar
gerðir sem gilda eiga á innri mark-
aðinum gefst sérfræðingum frá
EFTA-löndunum kostur á að taka
þátt í undirbúningi tillagna. Þannig
eiga íslenskir vísinda- og embætt-
ismenn náið samstarf við kollega
sína frá sautján Evrópulöndum,
læra af þeim og koma á framfæri
reynslu og sjónai-miðum íslend-
inga. í umræðum um eftirlauna-
kerfi sem hófust fyrir u.þ.b. tveim-
ur árum kom til að mynda í ljós að
íslenska kerfið er að mörgu leyti til
fyrirmyndar og ESB-löndin gætu
ýmislegt af okkur lært.
Samningurinn er í senn geir-
negldur og í stöðugri þróun. Það
sem er fast fyrir í honum eru meg-
inreglurnar um innri markaðinn,
fjórfrelsið, svo og stofnanirnar sem
sjá um rekstur samningsins. En
það sem er í þróun er hins vegar
innri markaðurinn sjálfur. Nýjar
ESB-gerðir varðandi hann eru
teknar upp reglulega í samninginn
að undangengnum viðræðum milli
EFTA-landanna og ESB. Heimur-
inn breytist og markaðurinn með.
Hann þarf t.d. að lagast að nýrri
tækni. Nú er farið að stunda við-
Kjartan
Jóhannsson
skipti á Internetinu og setja þarf
reglur til að gæta öryggis neyt-
enda.
En breytingarnar á Evrópusam-
bandinu eru ekki síður stjómmála-
legar. Nýir sáttmálar sambandsins
útvíkka samvinnuna innan þess til
fleiri málaflokka, svo sem utanrík-
is- og öryggismála. Evi'ópuþingið
fær aukið hlutverk við almenna
stefnumótun og setningu reglna
innri markaðarins. Evrópska
myntbandalagið er orðið að veru-
leika. Spáð er að það muni þrýsta á
um enn aukið samstarf ESB-ríkj-
anna og samræmingu á ýmsum
mikilvægum sviðum innri markað-
arins, svo sem skattamálum.
Stækkun sambandsins er líklega
mesta pólitíska átak sem gert hef-
ur verið í Evrópu á okkar dögum.
Austur- og Mið-Evrópulöndin end-
urskipuleggja nú atvinnuvegi sína,
aðlaga löggjöf, og endumýja
stjórnkerfi og koma á eðlilegum
samskiptum aðila vinnumarkaðar-
ins. Innri markaðurinn mun
stækka verulega þegar ríkin bæt-
ast í hópinn og þau verða öll aðilar
að EES-samningnum.
EFTA-ríkin fylgjast því náið
með samningum um stækkunina til
austurs. Þau era vel í sveit sett til
að nýta sér þá miklu möguleika
sem þar opnast. EFTA-löndin eru
öll vel samkeppnisfær eftir 20 ára
frjálsa og harða samkeppni í Vest-
ur-Evrópu og 5 ára aðild að EES.
Þau era háþróuð og tæknivædd og
búin að ganga í gegnum þá miklu
aðlögun sem nú er að eiga sér stað
í löndum Austur-Evrópu.
Það er ljóst að Evrópusamband-
ið mun bæði stækka og styrkjast.
EFTA-ríkin verða að fylgjast náið
með öllum þessum breytingum. Á
grundveUi EES-samningins eiga
þau reglubundin samskipti við
stofnanir og forystumenn sam-
bandsins, fá upplýsingar og koma
sjónarmiðum sínum til skila. Bæði
saman og hvert um sig verða þau
sífellt að meta það hvemig hags-
munum þeirra sjálfra er best borg-
ið og hvernig þau geta lagt sitt af
mörkum tU að gera Evrópu alla að
betri bústað í framtíðinni.
Höfundur er framkvæmdastjóri
EFTA.
Upplýsingakerfi
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Simi 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
VERSLUNIN HÆTTIR
SÍÐASTI DAGUR Opið í dag kl. 12-18.
SPORTHÚS
REYKJAVÍKUR
Laugavegi 44
ALLT
Á AÐ SELJAST