Morgunblaðið - 23.02.1999, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Lögregla og björgunarsveitarmenn á þönum við að aðstoða ökumenn
Morgunblaðið/Kristján
ANNA Dóra Gestsdóttir var aö moka frá bíl sínum í Asveginum
í gærmorgun.
Allt á kafi í
snjó nyrðra
„AÐKOMAN var heldur leiðinleg,"
sagði Heimir Rögnvaldsson hjá
byggingafyrirtækinu Spretti á Akur-
eyri í gærmorgun, en fyrirtækið
varð fyrir nokkru tjóni í stórhríðinni
um helgina. Mótauppsláttur í par-
húsi sem Sprettur er að byggja við
Skessugil fauk um koll, en að sögn
Heimis var vitlaust veður í Gilja-
hverfí frá fóstudegi og alla helgina.
Mikill erill var hjá lögreglu á
Akureyri, en margir ökumenn áttu
erfítt með að komast leiðar sinnar í
kófinu og ófærðinni. Sumir voru svo
óheppnir að festa bfla sína í sköflum
og kom þá oft til kasta lögreglu,
sem hafði í nógu að snúast. Félagar
í björgunarsveitum voru í við-
bragðsstöðu en að sögn Olafs As-
geirssonar aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns þurfti að aðstoða fjölda öku-
manna. Umferðin gekk þó óhappa-
laust fyrír sig.
Kvörtuðu ekki
um verkefnaleysi
Við utanverðan Eyjafjörð er nú
gífurlega mikill snjór, allt á kafí að
sögn heimamanna. Búið var að gera
göng um aðalgöturnar í Ólafsfirði en
að öðru leyti er ófært innanbæjar,
nema fyrir þá sem þeysa um á
vélsleðum eða fara um fótgangandi.
Sömu sögu er að segja frá Dalvík, en
þar var búið að ryðja örfáar götu í
gærdag og almennt varla fært inn-
anbæjar nema vel útbúnum jeppum.
Félagar úr björgunarsveitum vora á
þönum við að aðstoða fólk að komast
á milli staða. „Þeir kvörtuðu ekki
YNGSTA kynslóðin kann alltaf jafn vel við sig í sköflunum. Þessar
ungu stúlkur í Giljaskóla notuðu frímínúturnar til að leika sér í skafli
fyrir framan skólann sinn.
„ÞETTA er algjör siyókista," sagði Bjarni Kristinsson, sem var að
moka bflinn upp fyrir framan heimili sitt í Síðuhverfi á Akureyri.
um verkefnaleysi, strákarnir," sagði
Felix Jósafatsson, varðstjóri lög-
reglunnar á Dalvík.
Eftir að veðrinu slotaði þurftu
margir að moka bfla sína upp úr
snjósköflum. „Þetta er algjör snjóa-
kista,“ sagði Bjarni Kristinsson einn
þeirra sem þurfti að grípa til skófl-
unnar í gærmorgun, en hann býr í
Síðuhverfí. I Asveginum rakst ljós-
myndari á Önnu Dóru Gestsdóttur
sem líka var sveitt við moksturinn.
Krakkarnir í Giljaskóla voru öllu
kátari með snjóinn og notuðu frí-
mínúturnar til að klífa snjóskaflana
fyrir framan skólann.
Háskólinn á Akureyri
Ahersla á dreif-
býlislækningar
Námsstaður hefur áhrif á básetu
Morgunblaðið/Kristján
ÞRÍR finnskir þjálfarar í listhlaupi á skautasvellinu við Krókeyri. F.v.
Satu-Maria Hellstén, Leena-Kaisa Viitanen og Marjo Kristinsson, for-
maður listhlaupsdeildar SA, en hún hefur verið búsett á Akureyri til
ijölda ára.
Þrír fínnskir þjálfarar kenna
listhlaup hjá SA
Skautahöll breytir
allri aðstöðu
MARJO Kristinsson, formaður
listhlaupsdeildar Skautafélags
Akureyrar, sagði að bygging
skautahallar á Akureyri myndi
gjörbreyta allri aðstöðu féiagsins
og auk þess lengja skautatímabil-
ið til mikilla muna. Einnig myndi
iðkendum Qölga í kjölfarið.
Marjo sagði jafnframt að með
tilkomu ðkautahallarinnar uiyndi
öll búningsaðstaða batna mikið.
Hún sagöi félagið ha£a mikinn
áhuga á aö ná til skólabarna. Það
kalli á töluverðan undirbdning
sem oftar en ekki hafi farið úr
skorðum vegna óhagstæðs veður-
fars. „Við þyrftum helst að vera
úr gúmmfí, þvi við höfum þurft
að vera svo sveigjanleg og end-
urskipuleggja allar áætlarnir
okkar svo oft.“
Mikil vakning hefur verið hjá
ungum stúlkum á listhlaupi og
nú æfa hátt í 40 stúlkur þá grein
skautaíþróttariuuar og einnig
nokkrir ungir drengir. Vegna
hins mikia áhuga eru nú þrír
finnskir þjálfarar að leiðbeina^
ungu skautafólki i listhlaupi.
Leena-Kaisa Viitanen -er að
þjálfa hjá félaginu annan vetur.-
inn í röð en hún stundar jafn-
framt nám í kennaradeild Há-
skólans á Akureyri. Maijó er
einnig að þjálfa listhlaup Iijá fé-
laginu og um helgina bættist
þriðji þjálfarinn í hópinn, Satu-
María Hellstén, en hún mun halda
námskeið á Akureyri næsta hálfa
mánuðinn í svokölluðu hóplist-
hlaupi. Hún mun einnig halda slík
námskeið í Reykjavík.
STAÐSETNING náms getur haft
mikfl áhrif á val brautskráðra
kandídata varðandi búsetu, en
meirihluti brautskráðra kandídata
frá Háskólanum á Akureyri starfar
á svæðum utan höfuðborgarsvæðis-
ins. Rúmlega þriðjungur starfandi
hjúkrunarfræðinga við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri hefur braut-
skráðst frá Háskólanum á Akureyri.
Þetta kom fram í erindi Elsu Frið-
finnsdóttur, lektors og setts for-
stöðumanns heilbrigðisdeildar Há-
skólans á Akureyri, á fundi þar sem
fjallað var um nám í dreifbýlislækn-
ingum/hjúkrun. Á vegum landlækn-
isembættisins og Háskólans á Akur-
eyri er nú unnið að því að koma á
slíku námi við háskólann.
Nefndi Elsa að strax við undir-
búning náms í hjúkrunarfræði við
Háskólann á Akureyri hefði þess
verið gætt að reyna að efla sjálfs-
traust nemanna til að gera þeim
kleift að starfa sjálfstætt í dreifbýli
og koma í veg fyrir það sem kallað
væri „lært hjálparleysi", en þess
gætti á stundum hjá nemum sem
fengju alla sína verklegu þjálfun á
stofnun þar sem allt væri til afls og
sérfræðingar á hverju strái. Tveir
námsáfangar eru kenndir sérstak-
lega við háskólann í þessu skyni. Þá
iæfur áhersla verið lögá á að hjúkr-
unai'nemar stundi verknám á lands-
-byggðinni. Einnig befur þess verið
gætt í námsskrá iðjuþjálfa að'búa þá
undir að starfa í dreifbýli.
Elsa sagði að Háskólinn á Akur-
eyri hefði einkum fjóra þætti fram
að færa varðandi nám í landsbyggð-
arlækningum; skipuiag og faglega
stjórnun námsins, en háskólinn væri
dreifbýlisskóli sem tæki mið af þörf-
um og væntingum íbúa þar, kenn-
ara, reynslu' af fjarkennslu og end-
ur- og símenntunarsvið Rannsókn-
arstofnunar Háskólans á Akureyi'i.
FSA reiðubúið til samstarfs
Þorvaldur Ingvarsson, lækninga-
forstjóri Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri, sagði sjúkrahúsið vel í
stakk búið til að koma að kennslu
lækna í heilsugæslunámi, hann fagn-
ar umræðunni sem nú er komin af
stað og lýsir FSA tilbúið til samstarfs
í þeim efnum. „Við höfum góða
möguleika á að koma að kennslu
heilsugæslulækna," sagði Þorvaldur
og nefndi m.a. að þar væri stunduð
almenn læknisfræði á breiðum
grunni, samstarf við Heilsugæslu-
stöðina á Akureyri væri gott og hvað
ýmsar sérgreinar varðaði væri FSA
góður kostur til kennslu læknanema
og lækna í byrjun sémáms.
Þorvaldur sagði að eitt þeirra
vandamála sem dreifbýlið ætti við
að stríða væri hversu erfitt væri að
fá hæft starfsfólk til starfa bæði í
heilsugæslu og á sjúkrahúsum.
Sjaldan hefði verið möguleiki á að
manna þessar stofnanir til framtíðar
eða til að mæta aukningu í staif-
semi, mönnun hefði tekið mið af
verkefnum dagsins. Heilmikið mætti
læra af þeim framförum sem urðu á
Akureyri og fleiri stöðum á Norðu'r-
landi eftir að Háskólinn á Akureyri
var stofnaður og námsbraut í hjúkr-
un hófst. Það efldi sjúkrahúsið og
byggðir norðanlands. Verði umrætt
læknanám tekið upp við Háskólann
á Akureyri telur Þorvaldur að
sjúkrahúsin á Sauðárkróki, Húsa-
vík, Siglufirði og Norðfirði eigi að
koma sterkt inn í umræðuna auk
heilsugæslustöðva á Noður- og
Austurlandi.
Stórtdnleikar með
norðlenskum lista-
mönnum
Barnið þitt
og barnið
mitt
„BARNIÐ þitt og barnið mitt,“ er
yfirski'ift stórtónleika sem Kvenfé-
lagið Hlíf á Akureyri efnir tii með
norðlensku listafólki laugardaginn 6.
mars næstkomandi í Iþróttahöllinni
á Akureyri. Tónleikarnir eru haldnir
í tilefni af fyrirhugaðri opnun nýrrar
barnadeildar við Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri.
Meðal þein-a sem fi-am koma er
hljómsveitin PKK, Inga Eydal og
Daníel Þorsteinsson, Kii-kjukór Gler-
árkirkju, Álftagerðisbræður og Stef-
án R. Gíslason, Tjarnarkvartettinn,
Kai-lakór Eyjafjarðar, Óskar Péturs-
son, Helga Bryndís Magnúsdóttir og
Hulda Björg Garðarsdóttir, ung norð-
lensk söngkona, nýútskrifuð úr Royal
Academy of Music í Lundúnum.
Kynnir verðm- Gísli Sigurgeirsson.
Allur ágóði af tónleikunum mun
renna til tækjakaupa fyrir barnadeild
FSA. Mörg fyrirtæki í bænum hafa
heitið stuðningi sínum við tónleikana,
en félagið treystir einnig á góða þátt-
töku almennings og velunnara bama-
deildarinnar. Kvenfélagið Hlíf varð
90 ára nú nýverið og var ákveðið í til-
efni af því að efna til þessa stórátaks.
Síðastliðinn aldarfjórðung hefur fé-
lagið beitt kröftum sínum nær ein-
göngu til söfnunar til tækjakaupa fyr-
ir barnadeildina og samtals gefið tæki
að andvirði 11,2 milljónir króna á nú-
virði. Það tæki sem nú er safnað fyrir
er svokallað bráðalækningakerfi með
einni móðurtölvu á vakt og 4-5 út-
stöðvum við ním sjúklinga, en það
fyigist með öndun, líkamshita, púls og
blóðþrýstingi.
----------------
Bygging skautahallar
við Krókeyri
Sjö verktak-
ar vilja
taka þátt í
alútboði
SJÖ verktakafyrirtæki munu taka
þátt í alútboði vegna byggingai'
skautahallar á svæði Skautafélags
Akureyrar við Rrókeyri, en frestur
til að lýsa yfír vilja til þátttöku í út-
boðinu rann út í gær.
Fyrirtækin sjö eru Verkafl hf.,
Vermfl- ehf., Armannsfell hf., Svein-
björn Sigurðsson ehf. og ístak hf., öll
í Reykjavík, og SJS-verktakar ehf.
og Arnarfell ehf. á Akureyri.
Guðmundur Guðmundsson yfir-
verkfræðingur hjá Akureyrarbæ
sagði að valdir yrðu úr hópnum fímm
verktakar sem fengju í hendur út-
boðslýsingu og ættu þeir að skila inn
tilboðum innan ákveðins tíma. Um
miðja næstu viku á að liggja fyrir
hvaða verktakar munu taka þátt í út-
boðinu.
Gert er ráð fyrir að skautahöllin
með öllu sem henni tilheyrir kosti
ekki meira en 150 milljónir ki’óna.
Samkvæmt áætlun sem gerð hefur
verið á að vera hægt að hefja æfingar
undir þaki eigi síðar en 15. október
næstkomandi, húsið skai fullbúið 30.
janúar árið 2000 og verkefnum við
lóð, gerð bílastæða og öðrum frágangi
á að vera lokið 30. júní árið 2000.
SNJÓ kyngdi niður á Akureyi-i
um helgina og er víða ógreið-
fært heim að húsum. Þeim vin-
samlegu tilmælum er því beint
til húseigenda að moka snjó
heim að dyrum sínum tii að
gera blaðberum auðveldar fyrir
að koma blaðinu til skila.
Húsei^endur
moki snjó