Morgunblaðið - 23.02.1999, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 59
FÓLK í FRÉTTUM
TYRKNESKI leikstjóriim Yesim
Ustaoglu faðmaður af spænsku
leikkonunni og forseta dómnefnd-
ar Angelu Molina eftir að hún
var verðlaunuð með bláa englin-
um fvrir myndina „Guenese
Yolculuk".
Kúrda lífið í miðborg Berlínar
skammt frá bíóhúsum kvikmynda-
hátíðarinnar, hlaut myndin verð-
skuldaða athygli. Leikstjórinn er
Tyrki, leikararnir Kúrdar og í
fyrsta skipti er töluð kúrdíska í
tyrkneskri mynd en það hefur verið
bannað hingað til.
Myndin The HI-LO Country fékk
silfui'bjöminn sem best leikstýrða
myndin á hátíðinni. Leikstjórinn
Stephean Frears tók við verðlaun-
unum en var við það tækifæri púað-
ur niður því viðstaddir voru óá-
nægðir með val dómnefndarinnar.
Hinn þekkti franski leikstjóri
Bertrand Tavernier fékk verðlaun
alþjóðlegrar kvikmyndagagn-
rýnendanefndar iyrir mynd sína Ca
Commence Aujourd’hui en mynd-
inni var einnig mjög fagnað af
berlínskum fjölmiðlum. Nýjasta
mynd hrollvekjumeistarans Davids
Gronenbergs „eXistenZ", sem er
allt í senn vísindaskáldsögu-, hroll-
vekju-, spennu- og njósnamynd, var
verðlaunuð með silfurbirni sem
besta listræna myndin.
Berlinale í nýrri Berlín
Árið 2000 mun hátíðin fagna
hálfrar aldrar afmæli í nýjum kvik-
myndahúsum og skemmtihöllum í
nýiTÍ miðborg á Potzdamer-Platz.
Berlín er borg í miklum umsvipting-
um sem á að baki stórbrotna sögu.
A næsta ári munu þýska ríkis-
stjórnin og sambandsþingið flytja
höfuðstöðvai- sínar til Berlínar. Á
Potzdamer-Platz, sem eitt sinn var
líflegasta torg Ervópu, rísa nú
skýjakljúfar og allt í kring er gert
að gömlum höllum eða nýjar reistai'
fyrir ráðherraliðið frá Bonn.
Á kvikmyndahátíðinni í ár kom
hins vegar glögglega í ljós að Berlín
hefur einnig upp á annað og meira
að bjóða en merkilega byggingarlist
víðs vegar um borgina. I borg sem
eitt sinn var skipt á milli tveggja
landa, þar sem fjórðungur íbúanna
er útlendingar, þai' sem andstæður
mætast við hvert götuhom, er
mannlífið fjölbreytt. Það er því ekki
að undra þótt gróska hlaupi í kvik-
myndagerðarmenn að nota Berlín,
sem skiptir um andlit ár hvert, sem
baksvið íyrir sögur sínar. Alls sex
kvikmyndir á hátíðinni í ár eru frá
Berlín, sem er meira en nokkuru
sinni fyrr. Tvær þeirra voru í sam-
keppnisflokki og voru báðar verð-
launaðar. Berlín er að breytast og
færist nær því að geta kallast
heimsborg dag frá degi. Berlinale-
hátíðin ber einnig merki um þær
pólitísku og menningarlegu breyt-
ingar sem átt hafa sér stað á síðast-
liðnum áratug og mun halda áfram
að þróast samfara þeim.
SEAN Penn fyrir miðju í stórmyndinni The Thin Red Line.
DANSKI leikstjórinn Soren
Kragh Jacobsen með silfur-
bjöminn fyrir dönsku dogma-
myndina Síðasta söng Mifune.
þýskur leikari að nafni Michael
Gwisdek fyrir túlkun sína á eldri
kaupsýslumanni sem sækir Berlín
heim og lendir þar í ýmsum hrakn-
ingum. Nachtgestalten eða Nætur-
verur fjallar um skuggahliðar
Berlínarborgar, um heimilislausa,
flóttamenn og ungar vændiskonur
sem þrátt fyrir örlög sín eiga sér til-
vist sem sjaldan er sagt frá.
Shakespeare ástfanginn, sem er
tilnefnd til þrettán Óskarsverð-
launa, fór ekki tómhent frá Berlín
en höfundar myndarinnar, Tom
Stoppard og Marc Norman, hlutu
Þrátt fyrir yfírhönd bandarískra kvik-
mynda hefur hátíðin ekki tapað frum-
leikanum sem hún er rómuð fyrir.
Rósa Erlingsdóttir fylgdist með hátíðinni
og úrslitakvöldinu á sunnudag.
TRÍÐSÁDEILUMYND
Terrence Malicks The Thin
Red Line hlaut í ár hin eft-
irsóttu aðalverðlaun Berl-
inale-hátíðarinnar, gullbjöminn.
Myndin er gerð eftir skáldsögu
James Jones From here to Etern-
ity og er fyrsta verkefni Malicks
síðan hann sagði skilið við
Hollywood eftir gerð myndanna
Badlands (1973) og Days of Heaven
(1978). Malick, sem löngum hefur
veigrað sér við að koma fram opin-
berlega, heiðraði Berlinale með því
að standa örfáar mínútur á sviði
Zoo-Palast og taka sjálfur á móti
verðlaununum. En líkt og fyrir
tuttugu árum veitir hann blaða-
mönnum ekki viðtöl og lætur lítið
fyrir sér fara.
Titill myndarinnar skírskotar til
bandarísks orðtaks er segir að að-
eins örþunnur rauður þráður skilji
að heilbrigði og geðveilu í samfélagi
mannkynsins. Hún er mikilfengleg-
ur óður til lífs og náttúru, hörð
ádeila á sturlun stríðsins en í nafni
þess verða fyrrnefnd skil að engu.
Mannskepnan og náttúran mega sín
lítils gagnvart herskáum mai'kmið-
um stríðandi ríkja sem senda her-
menn sína á vit dauðans eftir til-
gangslausa bardaga. Sögusviðið era
bardagar Bandaríkjamanna og
Japana árið 1942 á eynni Gu-
adalcanal í Kyrrahafi. Stjörnur
myndarinnar era þekktir
Hollywood-leikarar en með aðal-
hlutverk fara Nick Nolte, Sean
Penn, Woody Harrelson og Elias
Koteas. Malick er vel að verðlaun-
unum kominn því bæði áhorfendur
og gagnrýnendur fógnuðu myndinni
ákaft á hátíðinni. Ljóðræn umgjörð
myndarinnar fyrir tilstilli meistara-
legrar kvikmyndatöku á mikilfeng-
leika náttúrunnar og heimspekileg-
ar samræður persónanna fram í
rauðan dauðann gera The Thin Red
Line að verðlaunamynd með rentu.
Þjóðverjar sigursælir
Þýsku leikkonurnar Maria
Sehrader og Juliane Köhler sem
fóru með aðalhlutverk í opnunar-
mynd hátíðarinnar Amiée og Jagu-
ar hlutu báðar silfurbjörninn fyrir
leik sinn. Myndin byggist á sam-
nefndri bók Ericu Fischer sem seg-
ir frá eldheitrí ást tveggja kvenna í
Berlín árið 1943. Bókin er sann-
söguleg og byggð á endurminning-
um Lily Wurst sem er önnur aðal-
persóna myndarinnar. Þarna er 'á
ferðinni þýsk stórmynd, tilfinninga-
þrungin saga um ástir samkyn-
hneigðra kvenna á tímum nasism-
ans.
Baksviðið er myrkasta tímabil
þýskrar sögu þegar Berlín var und-
ir járnhæl Gestapó-lögreglunnar.
Glæpir stríðsins og þýskra nasista
eru í bakgrunni en myndin beinir
sjónum að einstökum mannlegum
örlögum. Hamingja kvennanna er
skammvinn því Jaguar, sem er gyð-
ingur, er handtekin af Gestapó og
send í útrýmingarbúðir. Hvarf
hennar er inntak myndarinnar; hin
ódauðlega ást tveggja einstaklinga
sem ekki fá að njótast.
Þriðju leikaraverðlaunin hlaut
ÍRSKI leikstjórinn Stephen
Frears með silfurbjörninn fyrir
leikstjórn á nútimavestranum
Hi-Lo Country.
silfurbjörainn fyrir besta handritið.
Danska dogmamyndin Síðasti söng-
ur Mifune í leikstjórn Soren Kragh-
Jacobsen, en hún var án efa vin-
sælasta mynd samkeppnisflokksins,
fékk sérstök verðlaun dómnefndar
og aðalleikkona myndarinnar, Iben
Hjele, hlaut viðurkenningu fyrir
leik sinni.
Besta evrópska myndin, Ferðin
til sólarinnar, kom að þessu sinni
frá Tyrklandi en hún fjallar um bar-
áttu kúrdíska minnihlutans fyrir
sjálfstæði sínu. Fyrir tilstilli þeirra
pólitísku atburða, sem kostuðu þrjá
Malick
hreppti g^ull
björninn
Kvikmyndahátíðin í Berlín, Berlinale,
þótti í ár takast með eindæmum vel.
ÞÝSKU
Ieikkon-
urnar
Maria
Schrader
og Lily
Wust, sem
lifði af hel-
fórina, með
silfurbirn-
ina sína fyrir
frammistöð-
una í Aimée
og Jaguar.