Morgunblaðið - 23.02.1999, Side 40

Morgunblaðið - 23.02.1999, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ ^40 ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 UMRÆÐAN Tryggingafélögin spara ! á kostnað launafólks EINS OG alkunna er olli setning skaða- bótalaga á árinu 1993 miklum vonbrigðum og kallaði á hörð viðbrögð lærðra og leikra. Skv. lögunum voru tjónþol- um langt í frá tryggðar fullar skaðabætur vegna líkamstjóna og tryggingafélögin högn- ' uðust ótæpilega. Nokkur bót var gerð í kjölfar baráttu Jóns Steinars Gunnlaugs- sonar hrl. og bætur hækkaðar. Nú er enn verið að lagfæra og hækka bætur sem er gott mál, en böggull fylgir skamm- rifi. Ráðist á lífeyrissjóðina og sjúkrasjóðina Samstöðu og samtryggingasjóðir launafólks eiga að borga brúsann því réttindi í þessum sjóðum eiga að koma til lækkunar skaðabótum sem ekki er skv. gildandi lögum. Frá skaðabótum launafólks skal draga 60% af örorkubótum lífeyrissjóð- anna. Að teknu tilliti til skatta nem- ur frádrátturinn 40% af eingreiðslu- verðmæti þein-a. í meðförum alls- herjarnefndar Alþingis er því síðan bætt við að 60% af bótum lífeyris- sjóðanna vegna tíma- bundinnar örorku og allar bætur sjúkrasjóða verkalýðsfélaganna skuli koma til frádrátt- ar skaðabótum launa- fólks vegna tímabund- innar örorku. Er verkalýðshreyf- ingin á móti því að skaðabætur verði hækkaðar? Svo er ekki vegna þess, að það er brýnt að hækka skaðabætur og þá sérstaklega til láglaunafólks. Það er hins vegar fásinna að láta sér detta það í hug að fjármagna þessar hækkanir með sparnaði launafólks og hegna launafólki þannig fyrir forsjálni sína og sparn- að í samtryggingasjóðunum. Dæmi um lækkun skaðabóta og sparnað tryggingafélaganna Gefum okkur að 28 ára iðnaðar- maður með tvö börn á framfæri verði fyrir bótaskyldu slysi og hljóti af því 100% varanlega örorku. Hann hefur verið félagi í Sameinaða líf- Skaðabótalög Það er fásinna að láta sér detta það í hug að fjármagna þessar hækkanir, segir Magnús M. Norðdahl, með sparnaði launa- fólks og hegna launa- fólki þannig fyrir for- sjálni sína og sparnað í samtryggingasj óðum. eyrissjóðnum í 11 ár og á þar 24,959 stig. Eftir að stigin hafa verið fram- reiknuð er reiknaður örorkulífeyrir hans kr. 86.032.00 á mánuði í 39 ár (þennan útreikning örorkulífeyiis er að finna á heimasíðu Sameinaða lífeyrissjóðsins httpái'www.lifeyr- ir.rl.is). Eingreiðsluverðmæti þessa lífeyris miðað við 4,5% ársávöxtun eru kr. 19.092.850.00. Skv. nýja frumvarpinu lækka skaðabætur hins slasaða launamanns um kr. 7.637.140.00 vegna þessara réttinda hans í Sameinaða lífeyrissjóðnum. Magnús M. Norðdahl Dramb er falli næst Útgerðarmaðurinn Magnús Kristinsson í Vestmannaeyjum held- ur því fram í blaðagrein nýlega að þingmenn bregðist óttaslegnir við kröfum krókabátasjó- manna í nýsettum lög- um og flytji aflaheimild- ir frá aflamarksflotan- um til sérvalinna króka- báta. Bendir Magnús á að landvinnslunni verði ekki haldið gangandi með því að gera út smá- báta og að daglegar þarfir landvinnslunnar virðist léttvægar í hug- um þingmanna. Vissu- -■* lega hefur það verið svo á undan- förnum árum að aflaheimildir hafa flust frá kvótakerfinu til krókabáta, líklega um 30 þúsund tonn af þorski. Ekki ætla ég að bera á móti því né heldur að það hafi endilega verið svo slæmt, en umfjöllun um þá þróun verður að bíða þar til síðar. En hitt er ekki rétt að þessu sinni hafi verið um tilflutning á aflaheimildum að ræða, það hef ég borið til baka í fyrri grein minni í Morgunblaðinu. Smábátaveiðar af nauðsyn Hitt er líka rétt að það dugar ekki að gera út smábáta í rysjóttri vetrar- tíð, landvinnslan þarf meira öryggi í —' öflun hráefnis. Það þekkja Vestfirð- ingar betur en margir aðrir. En eitt er hvað þarf og annað hvað menn geta. í öllum þorpum á Vestfjörðum hafa menn mátt horfa upp á það und- anfarinn áratug, sem fyrst og fremst hefur einkennst af niðurskurði í þorskveiðum og frjálsu framsali veiðiheimilda, að fyrirtæki sem voru máttarstólpar í atvinnulífi fóru á hausinn eða neyddust til þess að selja skip og kvóta. Útgerð á þessu veðurharðasta svæði landsins hefur í vaxandi mæli farið ofan í smábáta. Báta sem til skamms tíma voru sett- -.~’ir upp á kamb á haustin og ekki hreyfðir fyrr en eftir páska. Það er ekki af því að Vestfirðingar vildu það, heldur af því að þeir höfðu ekki efni á öðru. Til skamms tíma voru smábátaveiðar utan við kvótakerfið og þar þurfti ekki að kaupa veiði- heimildir. Þess vegna gátu framtaks- samir menn á Vestfjörðum hafið út- ,gerð þótt félitlir væru. Þeir þurftu ekki að kaupa kvótann af Magnúsunum í kvótakerfinu. Árið 1997 veiddu smábátar tæp- lega helminginn af þeim þorski sem vest- firsk skip veiddu. Með þessu er ég ekki að gera lítið úr hlut afla- marksskipa eða þýð- ingu þeirra fyrir vest- firskt atvinnulíf. En það er bara staðreynd að ef ekki hefði komið til stóraukin smábáta- útgerð á síðustu árum hefði orðið algert hrun á Vestfjörðum. Það er tómt mál að tala um að vestfirskar byggðir styrki sig á nýj- an leik með þeim leikreglum sem nú gilda, með því að kaupa kvótann á því verði sem Magnús vill selja. Það eru ekki viðskipti heldur nauðung. Það eru ekki viðskipti sem báðir aðil- ar hagnast á heldur arðrán seljanda. Svo beygðir eru Vestfirðingar enn ekki orðnir að þeir telji rétt að borga skatt til Vestmannaeyja fyrir réttinn til að róa út í Eldingar. Útgerðar- menn eiga að gera út á fiskveiðar en ekki arðrán. Þess vegna þarf að end- urskoða lögin um stjórn fiskveiða. Og það verður gert og tryggast að það verði undir forystu Framsóknar- flokksins. Landvinnslan í Eyjum En það var þetta með landvinnsl- una sem Magnús ber svo fyrir brjósti. Daginn eftir að grein Magn- úsar birtist í Morgunblaðinu mátti lesa á baksíðu Mbl. að útgerðarfyrir- tækið Bergur-Huginn í Vestmanna- eyjum hefði stefnt sjávarútvegsráð- herra og krafist bóta fyrir skerðingu á aflaheimildum skipsins Smáey VE. Fram kemur að aflaheimildir hafi verið skertar um 2700 tonn frá árinu 1985 vegna þess að útgerðarmaður skipsins ákvað að selja aflann til út- landa, samtals um 13.000 tonn af fiski. Umrætt ákvæði I lögunum var sett til þess að beina afla íslenskra skipa til vinnslu innanlands. Með hagsmuni landvinnslunnar í huga. Útgerðarmaðurinn segir í viðtali við Mbl. að þessi skerðing sé óþolandi mismunun. Mönnum sé mismunað eftir því hver kaupi af þeim fiskinn. Útgerðarmaðurinn er greinilega á móti því að íslenskur fiskkaupandi Kvótakerfi Það er tómt mál að tala um, segir Kristinn H. Gunnarsson, að vest- fírskar byggðir styrki sig á nýjan leik með þeim leikreglum sem nú gilda. fái fiskinn frekar en útlenskur. Hann er greinilega á móti því að verkafólk hér á landi fái vinnu við fiskvinnslu frekar en verkafólk erlendis. Þessi útgerðarmaður heitir Magnús Krist- insson. Sami maður og daginn áður skammaði þingmenn fyrir að grafa undan landvinnslunni með því að færa aflaheimildfr frá aflamarksbát- um til krókabáta. Ibúaþróun á Vestfjöi'ðum Að lokum það sem Magnús segir um tilflutning á kvóta. Hann sé ekki orsök þess að fólki fækkar á Vest- fjörðum, heldur fari íslenska vinnu- aflið þótt fiskurinn sé til staðar. Þessi staðhæfing er alveg fráleit. Fólksfækkun og undanhald í at- vinnulífinu hefur farið saman og mun gera áfram. Fjölgun er líka ná- tengd framförum í atvinnulífinu. Það er barnaskapur að halda að það að hafa kvóta tryggi bjarta framtíð, við vitum að það þarf fleira til. En sjávarútvegur er algjör undirstaða atvinnulífs á Vestfjörðum og án veiðiheimilda geta Vestfirðir ekki náð sér á strik á nýjan leik. Fram- farir þar verða að byggjast á því að nýta þá auðlindina sem er við bæj- ardyrnar og er ástæða þess að fólk býr á Vestfjörðum, þá kemur annað á eftir. Verðið á veiðiheimildunum er orðið svo hátt að engin leið er að reka útgerð og borga það sem upp er sett. Þess vegna eiga útgerðar- staðfr sem misst hafa kvótann sér ekki viðreisnar von í óbreyttu kerfi. Það er skynsamlegast fyrir útgerð- armennina að beita sér fyrir úrbót- um á þessu sviði áður en kerfið springur framan í þá. Hollt er að hafa í huga máltækið að dramb er falli næst. Höfundur er alþingismnður. Kristinn H. Gunnarsson Með öðrum orðum þá eru trygg- ingafélaginu spöruð útgjöld upp á hátt í átta milljónir og áhætta þess færð yfir á Sameinaða lífeyrissjóð- inn og eigin sparnað þessa iðnaðar- manns og félaga hans í Sameinaða lífeyrissjóðnum. Þannig er gi'afið undan hlutverki lífeyrissjóðanna og samtryggingu launafólks. Gagnrökin Með nýjum lögum um lífeyrissjóði var öllum gert skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði og þess vegna megi halda því fram að þessi breyting lendi ekkert frekar á launafólki en öðrum. Svo er ekki. Það er einungis hjá launafólki sem iðgjöldin til lífeyr- issjóðanna eni hluti umsaminna launa og einungis hjá launafólki voru iðgjöldin keypt fyrir kauphækkanir. Lög um lífeyrissjóði breyta ekki þessari grundvaliarstaðreynd. í greinargerð frumvarpshöfunda segir að 6% hluti atvinnurekanda til lífeyrissjóðs myndi tryggingu keypta af þriðja manni og þess vegna komi hún til frádráttar bótum eins og aðr- ar slíkar meðan 4% hluti launafólks myndi tryggingu keypta af launa- manni sjálfum og komi því ekki til frádráttar. Hljómar skynsamlega en í þessum rökum opinberast van- þekking frumvai’pshöfunda á tilurð og eðli lífeyrissjóðanna. Allt iðgjald- ið, 10%, erhluti kjarasamningsbund- inna Iauna og engu skiptir hvort at- vinnurekandinn skilar hluta þess eða ekki. A iðgjaldahlutunum er enginn eðlismunur og allt iðgjaldið myndar sparnað sem launafólk á og þann spamað á ekki að nota til þess að hygla tryggingafélögunum á kostnað launafólks. Onnur rök eru þau að tekið hafí verið tillit til bóta lífeyrisjóðanna fyrir gildistöku laganna 1993. Þessi rök halda ekki. I fyrsta lagi var mikill vafi á því hvort og þá hve mikið tillit var tekið til lífeyrisrétt- inda fyrir gildistöku laganna frá 1993. Einungis er hægt að byggja á óljósu orðalagi Hæstaréttar í nokkrum dómum og engri reglu. Nýja frumvarpið felur í sér þá óhagganlegu reglu að 40% lífeyris- réttinda skuli alltaf koma til frá- dráttar sem gengur miklu lengra en hægt er að réttlæta með vísan til dóma Hæstaréttar. Frumvarpið er því enginn stóri sannleikur í lög- fræði eða kjarabót fyrir launafólk sem slasast heldur málamiðlun um að létta réttmætri hækkun skaða- bóta af tryggingafélögunum yfir á sparnað launafólks. Þessi nýja regla er vafasamt nýmæli og felur í sér dæmafáan hroka gagnvart launa- fólki og eignaupptöku á lífeyris- sparnaði þess. Það kemur og ber- lega í ljós hvaða hagsmuna var gætt við samningu frumvarpsins þegar skoðað er hverjir voru kvaddir til ráðgjafar frumvarpshöfundum en það voru fulltrúar tryggingafélag- anna, Vátryggingaeftirlitsins og VSÍ. Eigendur lífeyrissjóðanna voru ekki spurðir enda „fórnar- lömbin“ yfirleitt ekki leidd til ráðu- neytis um eigin fórn þegar í hlut eiga hagsmunir launafólks. Höggnir þeir er hlífa skyldi Lokarök þeirra sem tjáð hafa sig um málið eru síðan þau að tiltölu- lega fáir þurfi að sæta lækkun skaðabóta vegna lífeyrisréttinda sinna og þar sem frumvarpið feli í sér svo miklar réttarbætur sé ásættanlegt að fórna hagsmunum þeirra og veita frumvarpinu braut- argengi. Þessu er ég hjartanlega ósammála. Kjör örorkulífeyrisþega á Islandi eru með þeim verstu sem þekkjast í þeim löndum sem við helst viljum bera okkur saman við og fátækt regla frekar en undan- tekning. Þeir tekjulægstu, sem jafn- framt fá lægstu skaðabæturnar ef þeir verða fyrir slysum, bindast samtökum í samtryggingasjóðum verkalýðshreyfingarinnar til þess að gæta hver annars. Þessi sam- staða hefur frá upphafi verið kjarn- inn í starfi verkalýðshreyfingarinn- ar og sjóða hennar og þessa sjóði á verkalýðshreyfíngin. Þar taka hinir mörgu sig saman um að gæta hinna fáu. Þetta er kjarni málsins og um þessa hagsmuni viljum við standa vörð og mótmælum þegar á þá er ráðist. ► Meira á Netinu Höfundur er héraðsdómslögmaður og lögfræðingur ASI. Yfírgangur í málefnum Stúdentablaðsins Dyslexíufélagið, fé- lag stúdenta við Há- skóla Islands með dys- lexíu, og Vaka fls. stóðu nýverið fyrir styrktarátaki fyrir nemendur með dyslex- íu. Hófst átakið með skemmtikvöldi í Þjóð- leikhúskjallaranum 18. febrúar sl. þar sem þeir listamenn sem fram komu gáfu vinnu sína og aðgangseyrir rann óskertur í hljóð- bókasjóð. Fréttatil- kynning um kvöldið var send til fjölmiðla Friðjón R. sem tóku málaleitan Friðjónsson okkar vel. Alls staðar birtist umfjöll- un um styrktarátakið nema í Stúd- entablaðinu, blaði allra stúdenta. Olli Stúdentaráð Eigí skoðanir stúdenta ekki upp á pallborðið ✓ hjá forustu SHI, segja þau Tinna Trausta- ddttir og Friðjón R. Friðjdnsson, fá þeir ekki birt innsent efni. það okkur miklum vonbrigðum þar sem Stúdentablaðið kom út daginn fyrir umrætt kvöld og er mikilvægur vettvangur til þess að koma upplýs- ingum á framfæri við stúdenta. Kvaðst ritstjóri Stúdentablaðsins hafa verið búinn að koma fréttatil- kynningunni að í blaðinu en „þurft að henda út vegna pólitísks efnis sem hafi orðið að vera í blaðinu“. Tinna Traustadóttir Það pólitíska efni sem birtist í blaðinu var ekki einungis hefðbund- in umfjöllun vegna kosninga heldur einnig ómerkilegar hnýtingar í garð þeirra sem voga sér að hafa aðra skoðun en hin alvitra forysta Stúd- entaráðs Háskóla íslands. Ofsókn- arbrjálæði forystu Röskvu er á svo háu stigi að þau virðast telja öll slög og myndir til að tryggja að Röskva fái jafnt og hvej' sem gagnrýnir störf stjórnar SHÍ. Af eigin raun höfum við kynnst því að eigi skoðanfr stúdenta ekki upp á pallborðið hjá forystu SHÍ fær viðkomandi ekki birt innsent efni í Stúdentablaðinu. Er það vegna þessa skapgerðarbrests for- ystu SHI að upplýsingar varðandi styrktarkvöldið komust ekki á framfæri í blaði allra stúdenta. Þannig grófu forystumenn Röskvu undan átaki til að_ bæta hag stúd- enta við Háskóla Islands sem eiga við sértæka námsörðugleika að stríða. Höfundar eiga sæti í framkvæmda- stjórn átaksins f.h. Vöku fls.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.