Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT • • Mál Kúrdaleiðtogans Abdullah Ocalans ESB hvetur til sann- gjarnra réttarhalda Reuters ÞRIR tyrkneskir saksóknarar á leið til yfirlieyrslu yfir Abdullah Öcalan í fangelsi á eynni Imrali í Marmarahafi. Lúxemborg. Ankara. Reuters. UTANRÍKISRÁÐHERRAR Evrópusambandsins (ESB) sendu í gær frá sér sameigin- lega yfirlýsingu þar sem þeir segjast vænta þess að tryggt verði að réttarhöld yfir Kúr- daleiðtoganum Abdullah Öcalan verði sanngjöm og al- þjóðlegum eftirlitsaðilum leyfður aðgangur að þeim. Talið er að yfirlýsingin muni leiða til meiri hörku í sam- skiptum ESB og tyrkneskra stjórnvalda en þau vöruðu ESB um helgina við því að beita þrýstingi í málinu. í yfirlýsingunni segir að þrátt fyrir að ESB virði full- veldi Tyrklands að fullu, ætlist það til að Tyrkir leysi vandamál sín með pólitískum hætti og að fullt tillit verði tekið til mannréttinda. „ESB hefur til hliðsjónar yfirlýsing- ar tyrkneskra stjórnvalda um að réttarhöldin yfir Öcalan verði sanngjörn," segir í yfir- lýsingu sem utanríkisráð- herramir undirrituðu á fundi sínum í Lúxemborg. Tyrkir gagnrýndu Grikki harðlega um helgina og sök- uðu grísk stjórnvöld um að hylma yfir með Öcalan og að- stoða skæmliða Kúrdíska verka- mannaflokksins (PKK) við öflun vopna. Tyrkneska dagblaðið Hiirri- yet birti frétt í gær þar sem sagði að Öcalan hefði tjáð tyrkneskum saksóknurum að Grikkir hefðu út- vegað skæruliðum PKK eldflaugar og ýmis vopn sem þeir notuðu í bar- áttu sinni fyrir sjálfstæðu Kúrdist- an. Hafa Tyrkir krafið grísk stjórn- völd skýringa á því hvers vegna þau aðstoðuðu Ócalan á flótta sínum undan tyrkneskri réttvísi. „Sýndarréttarhöld" í undirbúningi Britta Bohler, einn evrópsku lögmanna Öcalans, sagði í sjón- varpsviðtali í Þýskalandi í gær að stjórnvöld í Ankara væru að undir- búa sýndarréttarhöld yfir Öcalan. Sagði Bohler að hvorki hún né aðr- ir lögmenn Kúrdaleiðtogans hefðu fengið að sjá Öcalan síðan hann var tekinn höndum og færður til Imrali-fangelsiseyjunnar í Marm- arahafi. Lögfræðingum Öcalans yrðu aðeins gefnir 10 dagar til að undirbúa vörnina eftir að sakir gegn honum verða bornar fram hinn 25. mars. í gær sótti hópur 15 tyrkneskra lögmanna um að fá að verja Öcalan í réttarhöldunum sem ráðgerð eru. Margir þeirra hafa verið ákafir fylgismenn aukinna mannréttinda í Tyrklandi. Réttarhöldin sjálf verða senni- lega ekki fyrr en í apríl næstkom- andi en um sama leyti verða þing- kosningar í Tyrklandi. Er tíma- setningin talin vera einkar heppi- leg fyrir Bulent Ecevit forsætis- ráðherra sem berst fyrir endur- kjöri og er hann líklegur til að nota meðbyrinn í kjölfar hand- töku Ócalans sér til fram- dráttar. í nýjasta tölublaði Economist er lýst yfir áhyggjum af því að enginn tyrkneskur fjölmiðill hefur fjallað á gagnrýninn hátt um harða stefnu stjóm- valda gegn Kúrdum í suð; austurhluta landsins. I ljósi þess og almenningsá- litsins í Tyrklandi, sem er andsnúið öllum málamiðl- unum í átt að sjálfstjórn Kúrda, er talið líklegt að ekki sé að vænta opinberr- ar stefnubreytingar í mál- efnum þeirra u.þ.b. 15 milljóna Kúrda sem búa innan tyrkneskra landamæra. Handtakan dregur dilk á eftir sér í Þýskalandi Stjórnarandstæðingar í Þýskalandi sökuðu í gær Gerhard Schröder kansl- ara um að hafa stuðlað óbeint að öldu óeirða og ofbeldis um alla Evrópu í kjölfar handtökunnar á Öcalan. I síðust viku tóku Kúrdar yfir um 20 sendi- ráð Grikkja og fleiri ríkja í mót- mælaaðgerðum. Hafa þrír Kúrdar fallið í þeim átökum. Wolfgang Scháuble, leiðtogi Kristilegra demókrata í Þýskalandi, sagði að Schröder hefði átt að óska eftir framsali Öcalans frá Ítalíu í nóv- ember sl. Framsal til Þýskalands hefði opnað möguleikann á alþjóð- legum réttarhöldum yfir Öcalan en margir evrópskir stjórnmálaleið- togar telja þann kost bestan í stöð- unni. Otto Schily, innanríkisráðherra Þýskalands, varaði við því á sunnu- dag að ofbeldisverk af hálfu PKK kynnu nú að aukast. Varaði hann sérstaklega við sjálfsmorðsárásum og flugránum. Um hálf milljón Kúrda býr í Þýskalandi og er starf- semi PKK bönnuð þar með lögum líkt og í Tyrklandi. Reuters Allsherj arverkfall í Bangladesh STUÐNINGSMENN stjórnar- andstöðunnar í Bangladesh fóru í mótmælagöngu um götur höfuðborgarinnar Dhaka í gær. Mennirnir héldu kyndlum á loft og hvöttu landsmenn til þess að taka þátt í ailsherjarverkfalli sem hefjast átti í dag og standa í þrjá sólarhringa. Verkfallið er boðað á sama tíma og kjósa á til sveitarstjórna í landinu en stjórnarandstaðan hefur hvatt kjósendur til þess að virða þær að vettugi. Handtökur vegna Omag'h-tilræðisins Bc{fast. Reuters, The Daily Telegraph. LÖGREGLAN á Norður-írlandi sagðist í gær hafa handtekið nokkra menn til viðbótar við þá sjö sem írska og n-írska lögreglan handtók á sunnudag í tengslum við sprengjutilræðið í Omagh í ágúst á síðasta ári þar sem 29 manns fór- ust og yfir 300 særðust, en tilræðið er það mannskæðasta í sögu átak- anna á Norður-írlandi. Enginn hefur enn verið ákærður vegna aðildar að ódæðinu en und- anfamar vikur hafa talsmenn lög- reglunnar hins vegar sagt að rann- sókn málsins miðaði vel. Þeir vildu þó lítið tjá sig um handtökur helg- arinnar að öðru leyti en því að hóp- ur manna hefði verið færður til yf- irheyrslu. írsk dagblöð gátu greint frá því í gær að flestir hinna handteknu væru vel þekktir lýðveldissinnar, og að sumir þeirra hefðu áður verið yfirheyrðir vegna gruns um aðild að öfgahópum lýðveldissinna. Sagði The Dnily Telegraph frá því að einn mannanna hefði hlotið lausn úr fangelsi gegn tryggingu einungis fjórum mánuðum íyrir til- ræðið í Omagh. Bandaríkjamenn gagnrýna Evrópubúa og Japana á fundi sjö helstu iðnrfkja heims í Þýskalandi Vilja sjá aukinn hagvöxt í Evrópu og Japan Bonn. Reuters, The Daily Telegraph. FJÁRMÁLARÁÐHERRAR sjö helstu iðnríkja heims (G7) viður- kenndu á fundi sínum um helgina að efnahagshorfur í heiminum hefðu versnað. Hétu þeir því hins vegar að bretta upp ermarnar til að reyna að tryggja aukinn hag- vöxt. Ráðherrar G7-nTíjanna, sem komu saman til dagslangs fundar í nágrenni Bonn í Þýskalandi á laug- ardag, ásamt seðlabankastjórum í löndunum sjö, lýstu jafnframt yfir miklum áhyggjum vegna efnahags- vanda Rússlands. Sögðust fulltrúar G7-ríkjanna tilbúnir til að veita Rússum aðstoð til að takast á við erlendar skuldir sínar en að sú að- stoð ylti á því að Rússar næðu sam- komulagi við AJþjóðagjaldeyris- sjóðinn (IMF). Til að ná slíku sam- komulagi væri hins vegar ljóst að Rússar yrðu að samþykkja mun raunhæfari fjárlög fyrir árið 1999 en nýlega fóru í gegnum rússneska þingið. Fram kom í máli fulltrúa G7- ríkjanna, þ.e. Bandaríkjanna, Japans, Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Kanada og Italíu að þróunin frá síðasta fundi þeirra í október hefði þrátt fyrir allt verið jákvæð. Stöðugleiki virtist vera að komast á í Asíu eftir samdrátt og fjármálaöngþveiti, rólegra væri um að litast á verðbréfamörkuðum, Evrópusambandið hefði tekið evr- una í notkun og vextir hefðu verið lækkaðir í Bandaríkjunum, Evrópu og í Japan. „En skilyrði á fjármálamörkuð- um hafa versnað í nokkrum heims- hlutum og útlit er fyrir að hagvöxt- ur í heiminum verði eitthvað minni en að var stefnt. ÁJirifa fjármála- ólgunnar er nú einnig tekið að gæta í öðrum heimshlutum en þeim sem hún snerti beint,“ sagði í lokayfirlýsingu fundarins. Evrópubúar og Japanar hvattir til dáða Fjármálaráðherrarnir voru alls ekki sammála um orsakir þess efnahagsvanda sem nú steðjar að. Kenndu Evrópubúar og Japanar fjármálakerfinu sjálfu um vandann en Bandaríkjamenn vísuðu til lítils hagvaxtar í Evrópu og Japan. Efnahagur í Bandaríkjunum hefur reynst stöðugri en flestir áttu von á og mældist hagvöxtur þar á síð- asta ári 3,7%. Bandaríkjamenn hafa hins vegar af því áhyggjur hversu vöruskiptajöfnuður þeirra er óhagstæður og lagði Robert Ru- bin, fjármálaráðherra Bandaríkj- anna, mjög að starfsbræðrum sín- um að örva hagvöxt í heimalöndum sínum. Tók Michel Camdessus, fram- kvæmdastjóri IMF, undir varnað- arorð Rubins og minnti fundar- menn á að Bandaifkjamenn ættu heiður af um helmingi alls hagvaxt- ar í heiminum á síðasta ári. Ekki væri forsvaranlegt að Bandaríkin öxluðu slíka ábyrgð á hagvexti, sagði Camdessus, og ítrekaði að Evrópulöndin og Japan yrðu einnig að leggjast á árina með þeim, ekki síst þar sem fastlega væri reiknað með því að hagvöxtur í Bandaríkjunum færi minnkandi og yrði sennilega ekki nema 1,8% á þessu ári. „Við urðum sammála um að styrkja yrði til langframa stoðir efnahags í Evrópu. Spumingin er hins vegar hvemig við fóram að því,“ sagði Hans Tietmeyer, for- stjóri þýska seðlabankans, Bundes- bank. Oskar Lafontaine, fjármála- ráðherra Þýskalands, hefur farið fremst í flokki þeirra stjómmála- manna evrópskra sem vilja að vext- ir verði lækkaðir til að glæða eyðslu fólks og fjárfestingar. Að sögn Tiet- meyers mun Wim Duisenberg, bankastjóri Evrópska seðlabank- ans, hins vegar hafa gefið sterklega til kynna að vaxtalækkun kæmi ekki til greina; peningastefna í þeim 11 Evrópuríkjum sem tekið hefðu upp evrana væri nú þegar „hæfileg og gæfi nægt svigrúm". Hugmyndum um tengingu stærstu gjaldmiðlanna hafnað Fulltrúar G7-ríkjanna eyddu mestum hluta fundar síns í umræð- ur um horfumar í efnahagsmálum en ræddu þó einnig um hvemig styrkja mætti fjármálakerfið gegn áföllum. Eins og reiknað hafði verið með komu Bandaríkjamenn í veg fyrir að hugmyndir Frakka og Þjóðveija um frekari tengingu helstu gjaldmiðla heimsins, dollar- ans, jensins og evrunnar, næðu fram að ganga. Munu þeir Rubin og Alan Greenspan, bankastjóri bandaríska seðlabankans vera þeirrai- skoðunar að slíkt myndi setja peningastefnu Bandaríkjanna of þröngar skorður. G7-ríkin samþykktu hins vegar tillögur Tietmeyers um að setja á fót nýja eftirlitsnefnd sem fá mun það hlutverk að reyna að koma í veg fyrir áfóll eins og þau sem skollið hafa á Asíu, Rússlandi og Brasilíu undanfarin tvö ár. Kemur nefndin, sem hittast mun a.m.k. tvisvar á ári, til með að samræma vinnu alþjóða- fjármálastofnana, veita fulltrúum þeirra tækifæri til að skiptast á upplýsingum og gefa viðvaranir sjá- ist vísbendingar um að illa horfi með flæði fjármagns í heiminum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.