Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.02.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 31 LISTIR Kátt, ljúft og krefjandi TðNLIST íslenzka óperan EINSÖNGSTÓNLEIKAR Inn- og erlend sönglög og óperu- aríur. Sópranarnir Hanna Dóra Sturludóttir og Amdís Halla Ásgeirsdóttir; Isabel Fernholz, píanó. Islcnzku óperunni, laugar- daginn 20. febrúar kl. 14.30. Á VEGUM Styrktarfélags ís- lenzku óperunnar var efnt til söngtónleika á laugardaginn var við allgóða aðsókn. Sviðið var um- girt svörtum tjöldum að baki og til hliða, og var það í sjálfu sér stemmningsaukandi. En því miður var sá agnúi á, að þykkur vefnað- urinn gleypti megnið af takmörk- uðum hljómburði salarins með þeim afleiðingum að ómfylling bæði söngradda og slaghörpu var hverfandi. Ekki virtist það par hvetjandi til söngs (þó að söng- konumar létu aðstæður sem minnst á sig fá), og varla hefur heldur verið þægilegt fyrir pí- anistann að hljóðfærið hljómaði líkt og umvafið svampi. Hafi ekki verið við neitt ráðið að sinni vegna leiktjalda yfirstandandi sýningar mætti þó ímynda sér að endur- varpsskermar á hjólum eins og í Háskólabíói gætu dregið úr slík- um vanda í framtíðinni. Að undanskildu tónmáli nútím- ans, sem var fjarri góðu gamni, var dagskráin fjölbreytt og spann- aði allt frá vínarklassík til síðróm- antíkur. Þær stöllur sungu saman sex dúetta með furðugóðum ár- angri miðað við þétt samliggjandi söngsvið, þ.e.a.s. Schön Blumelein eftir Schumann, Ave María og Á vegamótum Eyþórs Stefánssonar, Sull’aria (Mozart), Schelm, halt fest! (Weber) og hinn sjálfhæðna Art is Calling for Me e. Victor Herbert. Þess á milli var systurlega skipzt á sviðsljósi. Hanna Dóra St- urludóttir söng hið ljóðræna Widmung (Schubert), sló hnitmið- að á dramatískari strengi í Aller- seelen, Schlechtes Wetter og Wie sollten wir geheim sie halten (R. Strauss) og - með millilendingu á hugljúfum nótum Minningar Markúsar Kiástjánssonar (sem tónleikaskrá færði að vísu á reikn- ing Amdísar Höllu) - aftur yfir á léttari kordumar í Það kom söng- fugl að sunnan eftir Atla Heimi Sveinsson. Hún tjáði á hrífandi hátt hugarvíl greifynjunnar í Porgi, amor úr „Figaro“ Mozarts og hina löngu og kröfuhörðu aríu Wie nahte mir der Schlummer úr Töfraskyttu Webers með ekki síðri glæsibrag, að ekki sé talað um Oh! quante volte, aríu Giuli- ettu úr I Capuleti e i Montecchi (Bellini), sem vakti mikla og verð- skuldaða hrifningu salargesta. Amdís Halla Ásgeirsdóttir söng þrjú Schubert-lög - Atys, Auf dem Wasser zu singen og hið kven- rembings-kímna Die Manner sind méchant - fremur varfæmislega og fór ekki að „hitna“ að ráði fyrr en í íslenzku lögunum, þ.e. I dag skein sól Páls Isólfssonar, og þó einkum í Síðasti dansinn eftir Karl 0. Runólfsson, sem gustaði vera- lega af. Á fulla ferð var hún komin eftir hlé í Töfraskyttuaríu Onnu litlu, Kommt ein schlanker Bursch gegangen; enn meir í Rossini-arí- unni II mio ben sospiro e chiamo, og reis hæst í síðasta einsöngsat- riði sínu þetta síðdegi, Les oiseaux dans la charmille, aríu vélbrúð- unnar Olympiu úr Ævintýrum Hoffmanns eftir Offenbach, sem var sungin - og „leikin“ - með dill- andi öiyggi og kómísku næmi fyr- ir eftirhermu. Brá þar fyrir ótrú- lega fágaðri fagmennsku hjá ungri söngkonu sem enn á að heita í framhaldsnámi. Áðurnefndur dúett írsk-amer- íska óperettuhöfundarins Victors Herberts, Art is Calling for Me (bráðsmellið púðurskot á príma- donnu-fordildina), vakti mikla kátínu tónleikagesta í kostulegri útleggingu þeirra stallna, er urðu m.a. að kvitta fyrir góðar undir- tektir utan dagskrár með loðklór- uhvæsandi samsöng í kattardúett Rossinis. Undirleikur Isabel Fernholz var hinn fagmannlegasti - ávallt lipur, tillitssamur og ná- kvæmur - og hefði líkt og velupp- lagður sópransöngurinn vissulega átt skilinn hagstæðari hljómburð en hér þurfti að sæta. Ríkarður Ö. Pálsson Gítardúett- inn Doude- mano á Háskóla- tónleikum Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Nor- ræna húsinu miðvikudaginn 24. febrúar leikur gítardúettinn Dou- de-mano en hann skipa gítarleikar- arnir Hinrik Bjarnason og Rúnar Þórisson. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og eru um hálftími að lengd. Á tónleikunum verður flutt suður-am- erísk tónlist, verk eftir Astor Pi- azzolla (f. 1921, d. 1992)og Leo Brouwer (f .1939). Argentínska tónskáldið Astor Pi- azolla fæddist í Mar del Plata sem er bær sem liggur að Atlantshafi og er um 500 mílur frá Buenos Aires. Ungur flutti hann með fóður sínum til New York sem vildi að hann lærði á píanó en bandoneon eða tangóharmonikkan heillaði meir. Síðar þegai- hann var fluttur aftur til síns heimalands stofnaði hann sína eigin hljómsveit og fór í tónleika- ferðir og var virtur um allan heim. Leo Brouwer er Kúbverji fæddur í Havana árið 1939. Hann er eitt af- kastamesta og mikilvægasta nú- tímatónskáld gítarbókmenntanna. Hann hefur samið fjölda einleiks- verka og kammerverka fyrir gítar og hlotið ótal viðurkenningar fyrir störf sín. Hann hefur einnig verið mjög virkur sem hljóðfæraleikari og leiðbeinandi. Handhöfum stúdentaskírteina er boðinn ókeypis aðgangur, en fyrir aðra er aðgangseyrir 400 kr. ^mb l.is ALLTAf= GITTHVAÐ NÝTJ FRAMHALDSNÁM VIÐ Z KENNARAHÁSKÓLA íslands t-* ^ Kennaraháskóli Islands býður upp á framhaldsnám í uppeldis- og menntunarfræð- um. Rétt til að sækja um inntöku eiga þeir sem lokið hafa fullgildu starfsmenntanámi ’ á sviði kennslu, þjálfunar, uppeldis og umönnunar. Gilt er talið nám frá Fósturskóla íslands, Háskóla íslands, Háskólanum á Akureyri, íþróttakennaraskóla íslands, Kenn- araháskóla íslands, Kennaraskóla íslands, Þroskaþjálfaskóla íslands og öðrum skólum sem veita sambærilega menntun. Umsækjendur skulu hafa a.m.k. tveggja ára starfsreynslu. Unnt er að Ijúka framhaldsnámi við Kennaraháskóla fslands með tvennum hætti, með formlegri viðurkenningu (diplómu) eða meistaraprófi (M.Ed.). Nám sem leiðir til formlegrar viðurkenningar (diplómu) getur verið að lágmarki 15 einingar og að hámarki 60 einingar. Við 30 eininga framhaldsnám er hægt að bæta við 30 eininga námi til M.Ed. prófs. Hluti námsins er 15-30 eininga meistaraprófsverkefni. Haustið 1999 verður boðið nám á eftirtöldum sviðum ef næg þátttaka fæst: X Börn og unglingar með sérþarfir í skóla og samfélagi (30 eininga fjarnám, tvö ár), einkum ætlað leikskólakennurum, grunnskólakennurum og þroskaþjálfum. X íslenskukennsla (15 eininga fjarnám, eitt ár), einkum ætlað íslenskukennurum í grunn- og framhaldsskólum. X Stjórnun (forysta, þróunarstarf, matsfræði og gæðastjórnun; 30 eininga fjarnám, tvö ár eða staðbundið nám, eitt ár). Námið er einkum ætlað skólastjórum og stjórnendum deilda og stofnana, fag- og árgangastjórum, ráðgjöfum, kennurum og þroskaþjálfum sem stefna á stjórnunarstörf. X Tölvu- og upplýsingatækni (15 eininga fjarnám, eitt ár). Náminu er einkum ætlað að mennta frumkvöðla í upplýsingatækni í skólastarfi sem geta skipulagt og unnið að framkvæmd upplýsingamála í skóla- og uppeldisstofnunum og leiðbeint samstarfsfólki um notkun á tölvum og upplýsingatækni. X Uppeldis- og kennslufræði (30 eininga fjarnám, tvö ár). í náminu, sem ætlað er öllum starfsstéttum sem Kennaraháskólinn þjónar, er leitast við að dýpka þekkingu og skilning á undirstöðuatriðum uppeldis- og menntunar, s.s. uppeldisheimspeki, uppeldissögu, uppeldissálarfræði og námskrárfræðum. X Þroskaþjálfun fullorðinna (30 eininga fjarnám, tvö ár), einkum ætlað þroskaþjálfum. X Meistaranám til M.Ed. prófs (30 eininga fjarnám, tvö ár). Rétt til að sækja um meistaranám eiga nemendur sem lokið hafa 30 einingum í framhaldsnámi með að lágmarki fyrstu einkunn (7.25). Leiðbeiningar til umsækjenda, umsóknareyðublöð og inntökureglur fást á skrifstofu Kennara- háskóla íslands og á heimasíðum framhaldsdeildar (vefslóð: http://www.ismennt.is/vefir/uppvis). Nánari upplýsingar veita Guðrún Sóley Guðjónsdóttir verkefnastjóri kennslusviðs (sími 563 3898, árdegis, netfang soley@khi.is) og námsráðgjafar skólans (símar 563 3912 og 563 3913). Umsóknarfrestur er til 15. mars 1999. K Fiat Marea er sannkallaður lúxus skutbíll á mjög hagstæðu verði. Öryggisbúnaður með því besta sem þekkist og mikið farangursrými gera hann að ákjósanlegum kosti fyrir fjölskylduna. Marea Weekend ELX 1,6 16v Verð kr. 1.550.000 Istraktor Tvískiptur afturhleri eykur notagildi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.