Morgunblaðið - 23.02.1999, Page 68

Morgunblaðið - 23.02.1999, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLANI, 103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Tónlistarmynd- bönd Bjarkar „Ein þau bestu sem gerð hafa verið“ TÓNLISTARMYNDBÖND Bjarkar Guðmundsdóttur fá lofsamlega gagnrýni í banda- ríska dagblaðinu The New York Times um helgina. Gagnrýnand- inn, Ben Ratliff, segir þau líklega einhver bestu tónlist- armyndbönd sem gerð hafi verið, þau séu súr- r o i iv 1^1 / Guðmundsóttir 1 G^lisk, an allrar til- gerðar og eins og draumur barns. Listræn án þess að skyggja á tónlistarmanninn Ratliff segir samvinnu Bjarkar og franska kvik- myndagerðarmannsins Michel Gondry hafa skilað sér í nokkrum frábærum stutt- myndum við tónlist Bjarkar. Segir gagnrýnandinn mynd- band Michel Gondry við lagið Bachelorette af plötunni Homogenic gott dæmi um það hvernig tónlistarmyndbönd geti verið listræn án þess þó að skyggja á tónlistarmanninn sjálfan. Pá segir hann myndband Gondry við lagið Human Behaviour vera ævintýri lík- ast. Það sé ríkt af hugmyndum og góðum söguþræði sem „venjuleg MTV-myndbönd“ séu aldrei. Ibúðalánasjóður 120 um- sóknir af- greiddar um helgina VEL gekk að vinna úr umsóknum um húsbréfalán um helgina og tókst að afgreiða 120 mál, að sögn Gunn- ars S. Björnssonar, formanns stjórnar íbúðalánasjóðs, en í síðustu viku gagnrýndi Félag fasteignasala í bréfi til félagsmálaráðherra seina- gang við afgreiðslu húsbréfalána. Gunnar sagði að með afgreiðslun- um um helgina væri búið að afgreiða frá íbúðalánasjóði frá áramótum 354 mál með útsendingu fasteignaveð- bréfa. Skráðar umsóknir væru orðn- ar 583 talsins. Af þeim væru 69 um- sóknir vegna nýbygginga sem tæki aðeins lengri tíma að afgi-eiða, en yrðu afgreiddar nú í vikunni. Þá væru um 160 mál í biðstöðu vegna þess að það vantaði gögn með um- sóknunum. Þessara gagna væri ver- ið að afla úti í bönkunum eða verið væri að veita einstaklingum ráðgjöf varðandi umsóknimar. Um leið og búið væri að skila gögnum tæki tvo daga að afgreiða þessar umsóknir. Gunnar sagði að bankamir væru komnir á fullt í greiðslumatinu. Hann teldi að mestu erfiðleikarnir í þessu sambandi væm að baki, þótt alltaf gætu komið upp einhverjir hnökrar. --------------- Fáir íslend- ingar teppt- ir í Olpum FÁIR Islendingar virðast gista skíðasvæðin í austurrísku og sviss- nesku Ölpunum þar sem snjóflóð óg fannfergi hafa lamað samgöngur og valdið manntjóni. Goði Sveinsson hjá Úrvali-Útsýn sagði að örfáir farþegar frá þeim væru í Lech og nokkrir til viðbótar væm væntanlegir þangað næstu daga. Flestir skíðamenn á vegum ferðaskrifstofunnar væru í ítölsku Ölpunum í góðu yfirlæti. Sömu sögu sagði Helgi Jóhanns- son, forstjóri Samvinnuferða-Land- sýnar. Hann sagði að fyrirtækið væri eingöngu með fólk á sínum vegum Italíumegin í Ölpunum; þar væru um 90 Islendingar en engin vandamál vegna fannfergis háðu fólki þar. 12 apótek sameinast í nýju hlutafélagi TÓLF APÓTEK, þar af þrjú á Akureyri, sjö í Reykjavík og tvö. á Selfossi og í Hveragerði, hafa stofnað hlutafélagið Hagræði hf. sem mun yfirtaka eignir og rekstur þessara apóteka um næstu mán- aðamót. Að því er forsvarsmenn félagsins segja er með sameiningunni stefnt að hagkvæmari rekstri útibúanna sem tryggt geti eðlilega samkeppni á lyfjamarkaði í framtíðinni. Samanlögð velta apótekanna er um 1,2 milljarðar króna en til sam- anburðar er áætluð velta eins helsta keppinautarins, Lyfju hf., á þessu ári 1 milljarður króna. Hlutafélagið er, að sögn for- svarsmanna félagsins, svar við þein-i þróun sem verið hefur á lyfjamarkaði á undanfórnum miss- erum þar sem keðjur hafa myndast sem gera samkeppnisstöðu hefð- bundinna apóteka erfiða. „Þjónusta mun batna því Ijóst er að afgreiðslustöðum verður fjölgað frá því sem nú er,“ sagði Sigmund- ur Ófeigsson frá Akureyrarapó- teki, stjórnarformaður hins nýja félags. Sigmundur segir að áformað sé að opnuð verði lyfjaútibú i verslun- um KEA og Nettó í framtíðinni og t.d. er að hans sögn gert ráð fyrir lyfjaverslun í fyrirhugaðri verslun Nettó í Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík. ■ Samanlögð ársvelta/18 £ A annað hundrað Bolvfkinga á fundi um snjófldðavarnir Rafmagnslínur lagfærðar RAFMAGNIÐ var komið á alla bæi á Reykjaströnd um kaffileyt- ið í gær eftir tæplega tveggja sólarhringa rafmagnsleysi. Fjór- ir rafmagnsstaurar féllu undan þunga snjóflóðs sem féll af mikl- um krafti úr Innstalandsskál í Tindastóli síðdegis á laugardag. Rafmagnslína slitnaði á 1.700 m kafla í flóðinu. Mikið fannfergi/6 Morgunblaðið/RAX _ iviorgunDiaoio/naiiaor öveinDjornsson BOLVIKINGAR virða fyrir sér hugmyndir verkfræðinga, um að grafa rás ofan við byggðina í Bolungarvík, við upphaf fundar í gær. Hættan meiri en gert var ráð fyrir Bolungarvík. Morgunblaðið. Á ANNAÐ hundrað manns mætti á fund sem bæjarstjórn Bolungarvík- ur efndi til í gærkvöldi til að kynna áfangaskýrslu um mat á snjóflóða- hættu og frumhönnun á varnar- mannvirkjum. í skýrslunni kemur fram að snjóflóðahætta í Bolungar- vík er talin mun meiri en áður hefur verið gert ráð fyrir. I máli Árna Jónssonar, verkfræð- ings hjá Hniti, kom fram að hættan er það mikil að hefðbundin varnar- virki, eins og snjóflóðagarðar duga ekki. Því er lagt til að skoðaðar verði hugmyndir um mikla rás ofan við alla byggð í Bolungarvík. Kostn- aður við hana er áætlaður um millj- arður til að verja hús þar sem um helmingur bæjarbúa býr. Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri, sagði að niðurstaðan væri dökk, dekkri en nokkurn hefði órað fyrir. Velti hann fyrir sér hvort þessi mikli kostnaður væri réttlætanlegur og varpaði fram þeirri spurningu hvort ekki væri unnt að draga úr kostnaði við varnarmannvirki með samblandi af rýmingu og vamargörðum. í fyrirspurnum og athugasemd- um fundarmanna kom fram að menn veltu mest fyrir sér forsend- um hættumatsins, hvort hættan væri virkilega jafnmikil og fram kæmi. Margir fyrirspyrjenda töldu ekki tímabært að ræða varnar- mannvirkin sjálf fyrr en forsend- urnar væru komnar á hreint. ■ Garðarnir stóðust/34

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.