Morgunblaðið - 24.03.1999, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1999 67
SUM LEYNDAUMÁt MUNU
ÁS/E.KJA PIG ALLA ÆVI
Suma
ilanAlinmar - :Í--•—---""
rl TILBOÐ KB 400
w w w „ s#|«» r •»*»*» I«»-i s
SýndíA-sal kl. 5,7, 9 og 11.
B.i. 16.
Alinn upp
í skóginum,
sleppt lausum
í borginni.
BiII Charlize
PAXTON THERON
MAGNA0
BÍÓ
/001
l.ati&aYegí
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Gufubaðstofa Jónasar fertug
Gleðistund í gufu
ÞEIR voru hressir karlarn-
ir í Gufubaðstofu Jónasar á
dögunum er þeir héldu
upp á 40 ára afmæli stof-
unnar með sundkappann
sjálfan Jónas Halldórsson
sem heiðursgest. Hann sit-
ur hér fyrir miðju galvask-
ur, milli þeirra Ingva
Hrafns Jónssonar og Ragn-
ars Halldórssonar. Jónas
verður 85 ára í júní en er
jafnan yngstur í anda er
hann mætir á hverjum
laugardegi vestur á Aust-
urströnd 1, þar sem stofan
er til húsa. Um 60 manns
mættu í gleðskapinn.
a r
■A
A
A
p r tpp p 'rp p
j IJpA I rA
ALVHRU BÍÚ! mDolby
r —jzz. STAFRÆniT STÆRSTfl t.iæi mn mfa
= = ..HLJBÐKERFI í | U Y
ni ■ ainn nna hiwii ■ ■ * ^ '
OLLUM SOLUM! U
PAICII AI)
Einstök grinmynd sem sat á toppnum I
Bandarikjunum (þrjár vikur. Robin Williams
var tilnefndur til Golden Globe verðlauna
fyrir leik sinn I myndinni.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
JllLIA ROBERTS
Stepmom
Slisan Sarandon
w w w . h l íihtm«vie.«om
Sýnd kl.
6.50.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B. i. 16.
Sýnd kl. 5, 9 og 11.
Arshátíð Grunnskólans á Blönduósi
Hlustaðu á regnið sigr-
aði í „Blönduvision“
Blönduósi. Morgunblaðið.
NEMENDUR Grunnskólans á Blönduósi héldu
árshátíð sína á föstudaginn. Margt var til
skemmtunar og má þar nefna leikritið „Ævintýri
á harða disknum" eftir Ólaf Hauk Símonarson
og hina geysivinsælu „Blönduvision“-
söngvakeppni.
Leikritið „Ævintýri á harða disknum", sem
fjallar um þá Nonna og vélmennið Manna sem
leita foreldra hins fyrmefnda á harða disknum í
tölvunni, var flutt með tilþrifum af krökkunum
og var þeim óspart klappað lof í lófa.
„Blönduvision“-söngvakeppnin hefur verið
órjúfanlega tengd árshátíð Grunnskólans á
Blönduósi í gegnum tíðina og notið fádæma vin-
sælda. Hefur þar margur æskumaðurinn stigið
sín fýrstu skref á söngvabrautinni. I ár voru flutt
sex söngatriði og sigurvegari að þessu sinni var
stúlka úr 8. bekk, Viktoría Jóhannsdóttir og
söng hún lagið „Hlustaðu á regnið“. Um undir-
leik sáu tónlistaiTnenn á Blönduósi.
I tengslum við árshátíðina kom út skólablaðið
Vit hvar í er að finna þverskurð af lífi og starfi
grunnskólanema á Blönduósi í máli og myndum.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
VIKTORÍA Jóhannsdóttir sigraði í
„Blönduvision", en hún söng lagið
Hlustaðu á regnið.
Hárprúðar glysballöður
lÓMJXT
Geisladiskur
COLOURS
Geísladiskurinn Colours. Lagasmíð-
ar, textar, útsetningar, gítarar,
hljdmborð, slagverk, bassi, forritun,
upptökur og hljóðblöndun: Pétur
Einarsson. Aðrir hljóðfæraleikarar:
Magnús Orri Grímsson, Bragi Har-
aldsson, Birgir Jóhann Birgisson,
Edda Borg Ólafsdóttir, Bjami Svein-
björnsson, Pétur Lúðvík Jónsson,
Charlotta María Guðmundsdóttir,
Kristján Þór Guðmundsson. Klapp-
meistarar: Guðmundur Kr. Unn-
steinsson og Halldór Gunnarsson.
Upptökur fóru fram í heimahljóðveri
Péturs Einarssonar 1998. Lengd: Uin
45 mín.
PÉTUR Einarsson, eða P6 eins
og hann kallar sig í bransanum, er
líklega sá eini á landinu sem smíðar
almennilegar glysballöður. Enda er
Gene Simmons Kizzmaður hans
helsta átnínaðargoð. P6 byrjaði að
rokka einn síns liðs ái’ið 1992 en gaf
út sinn iyrsta geisladisk, Prologus,
árið 1995. Nú er kominn út diskur-
inn Colours, sem ekki aðeins er
hægt að hlusta á, heldur er líka
hægt að smella honum í tölvuna og
skoða þar’ myndbandsklippur af
goðinu hárprúða, sjá viðtöl, myndir
og fleira. Ég lét mér nægja að
hlusta á tónlistina.
FRAMMISTAÐA krakkanna í leikritinu var með miklum ágætum.
„Mér finnst ég hafa eitthvað að
segja og ég vil segja það með tónlist
minni,“ segir Pétur um tónsmíðar
sínar. Það er óneitanlega mikill til-
finningaþungi á Colours og drama-
tíkin, sem textarnir leggja áherslu
á, eru aldrei langt undan. Brot úr
textanum Fly without: Wanna see
you fly without, so high _ She’s like
the wind in the night. Wanna be
there hold you on my own. She
wants to cry but her tears are all
alone. She’s all alone. Og sóló! Kon-
ur sem eru eins og vindurinn, flugið
og tárin, þetta þekkjum við öll.
Pétur er eins og áður sagði dálítið
í glysdeildinni en einbeitir sér þar
hvað helst að tregafullum ballöðum
ski-eyttum gítarsólóum og værðar-
legum röddunum. Ég er ekki í
nokkrum vafa um að Austur-Evr-
Litrík tískuúr í
ópa myndi falla að fótum Pét-
urs ef hann brygði undir sig
betri gítamum og smellti sér
í tónleikaferð austur. Enda er
það sá heimshluti sem
Scorpions, Whitesnake og fé-
lagar selja hvað mest af plöt-
um. Annars segist Pétur ekki
vera upptekinn af frægðinni.
„Það er ekki frægðin eða pen-
ingarnir sem ég stefni að. Ég
vil aðeins fullnægja listræn-
um metnaði mínum,“ segir
Pétur og útskýrir ef til vill
þannig hvers vegna ekki ber
meira á honum en ella.
Það eru gítarar á Colours og mik-
ið af þeim. Gjaman skríða angur-
værir brotnir hljómar undh’, leiknir
á kassagítar og rafmögnuðu hetju-
sólóin seitla dramatísk inn á milli.
Til að auka enn á tilfinningavelluna
skellir Pétur nokkrum strengjum
inn á hápunktum og bætir iðulega
enn bleiku ofan á bleikt með rödd-
unum sínum, eins og til dæmis í tit-
illagi disksins. Þar nær hans sér
virkilega á flug í We are the world-
stemmningunni, nema hvað það er
þó sæmilegt lag. Augnablik disksins
myndi ég segja að væri spiladósin í
byrjun lagsins Shy love, sem er án
söngs. Einnig pínulítið munnhörpu-
hljóð í sama lagi sem varir í um 2
sekúndur en er mjög fallegt.
Kristin Björk Kristjánsdóttir
KÍNVERSKAR sýningarstúlk-
ur sýndu nýjustu úrin frá sviss-
neska framleiðandanum
Swatch á kynningarliátíð í Sj-
anghæ á dögunum. Swatch hóf
með sýningunni auglýsinga-
herferð í Kína til að kynna
ódýru tískuúrin sín en aukinn
kaupináttur íbúanna er talinn
verða til þess að þeir fylgist
betur með tískunni frá hinum
vestræna heimi.