Morgunblaðið - 24.03.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.03.1999, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Atkvæði greidd um stofnaðild að Samtökum verslunar og- þjónustu á aðalfundi Kaupmannasamtaka Islands í dag Tekist á um framtíðar- skipulag samtaka verslunar Atök um framtíðarskipulag samtaka verslunarinnar setja svip sinn á aðalfund Kaupmannasamtaka Islands, sem haldinn er í dag. I samantekt Hjálmars Jónssonar kemur fram að tveir menn gefa kost á sér til formennsku í samtökunum. Benedikt Kristjánsson Birgir Rafn Jónson Á ADALFUNDI Kaupmannasam- takanna í dag takast á sjónarmið núverandi foi-ystu samtakanna sem vill að þau gerist stofnaðili að Sam- tökum verslunar og þjónustu sem í undirbúningi er að setja á laggirn- ar með þátttöku olíufélaga, trygg- ingarfélaga og ef til vill flutninga- fyrirtækja, auk fleiri aðila, en stofnunin er hluti af endurskipu- lagningu hagsmunagæslu fyrir- tækja í atvinnulífmu í Samtökum atvinnulífsins, og mótframboðs gegn núverandi stjóm samtakanna hins vegar, en aðstandendur þess vilja nánari samvinnu og jafnvel sameiningu hagsmunafélaga versl- unarinnar og hafna aðild að heild- arsamtökum atvinnulífsins, sem þeir telja að heyri til liðinni tíð. I opnu bréfí til kaupmanna, sem Margrét Pálsdóttir, Liverpool, Franch U. Michelsen, Franch Michelsen, Jón Gunnarsson, Rún, Hannes Vigfússon, Glóey, og Helga Thorberg, Blómálfinum, senda frá sér í fyrradag, þar sem tilkynnt er um framboð Birgis Rafns Jónssonar, M. Kjaran, til formanns og Björns Ágústssonai-, MEBA, til vai’aformanns, segir að á aðalfundinum standi kaupmenn frammi fyrir tveimur leiðum til þess að tryggja félagslega hags- muni sína. „Onnur leiðin snýr að samruna Kaupmannasamtakanna við fyrir- tæki í flutningum og tryggingum innan VSI. I því samstarfi hafa að- ilar atkvæðavægi í samræmi við fé- lagsgjöld og er þegar ljóst að stór- fyrirtæki í flutninga-, verslunar- og tryggingarþjónustu munu ráða þar lögum og lofum í krafti stærðar sinnar. Hin leiðin felur í sér að hafna aðild að VSI og auka sam- vinnu og jafnvel sameina þau tvenn samtök sem starfa að hagsmuna- málum verslunarinnar, Kaup- mannasamtök Islands og Samtök verslunarinnar. Með því móti yrðu mynduð öflug samtök verslunar- fyrh-tækja, þar sem hvert aðildar- fyrirtæki hefði eitt atkvæði án til- lits til stærðar eða innborgaðra fé- lagsgjalda, en slík tilhögun tíðkast m.a. innan Evrópusamtaka versl- unarinnar og í flestum frjálsum fé- lagasamtökum,“ segir meðal ann- ars í bréfinu. Er því lagt til að til- laga um frestun aðal- fundarins fram í maí verði felld, en þá á að vera búið að stofna Sam- tök verslunar og þjón- ustu, og að félagsmenn sameinist um að kjósa ofangreinda menn til forystu og stuðli „þannig að því að íslensk verslun sameinist um að hagsmuna stéttarinnar verði gætt af kaup- mönnum sjálfum og þar sem hver félagsaðili hefur eitt atkvæði án til- lits til umsvifa sinna eða félags- gjalda." Stærri fyrirtækin komi inn í félagsstarfið Benedikt Kristjánsson, formað- ur Kaupmannasamtakanna, og Skúli Jóhannesson, varaformaður, fara hins vegar þess á leit í bréfi til félagsmanna í fyrradag að aðal- fundurinn samþykki aðild að nýj- um samtökum verslunar og þjón- ustu en kosningum og lagabreyt- ingum verði frestað til framhalds- aðalfundar í maí. Ef fundurinn hafni þessari tillögu og komi til kosninga muni þeir gefa kost á sér áfram í formanns- og varafor- mannskjöri. I bréfínu segir jafnframt að stjórnin hafi í um tvö ár unnið með öðrum samtökum atvinnurekenda að endurskipulagningu samtak- anna þannig að þau verði ódýrara og öflugara tæki til að vinna að hagsmunum verslunarinnar. Um þetta hafi verið einhugur og engar aðrar tillögur litið dagsins ljós í stjórn samtakanna. Á undanförn- um áram hafi þeir fundið átakan- lega til þess að stærstu verslunar- fyrirtækin hafi kosið að vera utan KI og átt mörg hver beina aðild að Vinnuveitendasambandinu eða Vinnumálasambandinu. Þeir hafi þess vegna talið mikilvægt að fá samkomulag um nýtt skipulag sem tryggi að stærri fyrirtækin komi inn í félagsstarfið og taki sinn hluta af kostnaði. Þeir hafi einnig talið mikilvægt að sameina VSI og Vinnumálasambandið því gömul deilumál milli einkaframtaks og samvinnumanna heyri sögunni til. Nú hilli undir að þetta takist. Það sé að nást samkomulag um að sam- eina VSÍ og Vinnumálasambandið í ný heildarsamtök, Samtök atvinnu- lífsins (SA) sem byggi á sterkum aðildarfélögum í öllum helstu greinum. KI verði stofnaðili að Samtökum verslunar og þjónustu, og gæti áfram hags- muna smærri aðila en stóra verslunarfyrir- tækin komi einnig inn. Þá telji þeir olíusölu verslun og finnist áhugavert ef land- og sjó- flutningar komi einnig í þessi sam- tök, auk þess sem samvinnuversl- unin verði með. Ef til vill sé eðli- legra að tryggingafélögin eigi aðild að Samtökum fjármálafyrirtækja, en þau séu þó fyrst og fremst í þjónustu og sölu á henni. Ef þau vilji leggja samtökunum krafta sína telji þeir ávinning að því. „Við vitum að þessi fyrirtæki eiga í yfirgnæfandi hluta tilvika sameiginlega hagsmuni þótt auð- vitað keppi þau sín á milli. Ef til viðskiptalegra átaka kemur getum við rætt þau á vettvangi KÍ, en okkar samtök munu starfa áfram en þó í breyttri mynd. Við undir- strikum að með aðild að Samtökum verslunar og þjónustu er ekki verið að leggja KI niður. Þvert á móti er verið að styrkja samtökin til að takast á við breytta tíma. Við telj- um augljóst að það efli áhrif versl- unarinnar í þjóðfélagsumræðunni og í samstarfi við önnur starfs- greinasamtök atvinnurekenda að fá inn stóra verslunar- og þjón- ustufyrirtækin. Það léttir líka rekstur samtakanna og gerir okk- ur kleift að bjóða lægri félagsgjöld en aðrir gera og betri þjónustu," segir í bréfinu. Þeir segja ennfremur að þeir vilji þó ekki að stóra fyrirtækin fái yfirvigt í samtökunum og því sé ráðgert að hámarksárgjöld verði 500 þús. kr. Það tryggi að áhrif stærri aðilanna verði takmörkuð og sé sama form og Samtök iðnað- arins og Samtök ferðaþjónustunn- ar hafi valið, en þar sé hliðstætt sambýli stórra og lítilla fyrirtækja sem oft eigi í harðri samkeppni sín á milli. Þá kemur fram að þeim sýnist að atkvæðavægi verslunarfyrirtækj- anna innan Samtaka verslunar og þjónustu verði um 75% og af því hafi þjónustufyrirtækin nokkrar áhyggjur. Þá era meðtalin Kaup- mannasamtökin, samvinnuverslun- in Baugur, BYKO, IKEA, apótek- in, olíufélögin o.fl., en mörg stór- fyrirtæki á sviði verslunar hafa átt beina aðild að samtökum vinnuveit- enda tU þessa eða staðið utan þeirra. Vægi samtaka verslunar og þjónustu innan heildarsamtakanna er talið verða um 30%. Viðræður um sameiningu „Ég held að þetta framboð sé til- komið vegna þess að Kaupmanna- samtökin hafa ekki viljað samein- ast FÍS,“ sagði Benedikt Krist- jánsson, formaður KÍ, í samtali við Morgunblaðið, aðspurður um ástæður mótframboðsins. Hann sagði að á árinu 1997 hefðu Kaupmannasamtökin og Fé- lag íslenskra stórkaupmanna stað- ið í viðræðum um sameiningu. Þeim viðræðum hefði verið hætt vegna þess að það hefði ekki verið einhugur um að fara þá leið, hvorki í stjórn Kaupmannasam- takanna né í fulltrúaráði þeirra og því hefði tillaga þar að lútandi ekki verið lögð fyrir síðasta aðalfund samtakanna 1997. Stjórnin hefði hins vegar ákveðið að taka þátt í vinnu vegna heildarendurskipu- lagningar á samtökum atvinnuveg- anna, en sú vinna hefði staðið yfir frá því í janúar 1998. Stjóm og fulltrúaráð hefðu reglulega fylgst með áföngum í þeirri vinnu og engar aðrar tillögur komið fram í þeim efnum né andstaða við þessar hugmyndir. Benedikt sagði að það hefði oftar en ekki staðið samtökum verslun- arinnar fyrir þrifum í gegnum tíð- ina að stórfyrirtæki í verslun hefðu staðið utan samtaka verslunarinn- ar. I nýjum samtökum atvinnulífs- ins væri bein aðild fyrirtækja ekki fyrir hendi. Samtök ferðaþjónust- unnar hefðu orðið til og þar hefðu smáir og stórir aðilar sameinast í einum samtökum og teldu hags- munum sínum innan heildarsam- taka atvinnulífsins borgið með þessum hætti. Sama sjónarmið hefði ríkt innan Kaupmannasam- takanna. „Það liggur alveg ljóst fyrir að samtök verslunar og þjónustu verða stofnuð í næsta mánuði og málið snýst um það hvort Kaup- mannasamtök Islands sem hafa verið aðilar að samtökum atvinnu- veganna ætla að vera þar með eða ekki,“ sagði Benedikt. Hann sagði að það vekti athygli að fyrram formaður Félags ís- lenskra stórkaupmanna skyldi hafa gengið inn í Kaupmannasamtökin og byði sig fram til formanns, en Birgir Rafn var formaður Félags íslenskra_ stórkaupmanna á áram áður. FÍS gæti ekki firrt sig ábyrgð á því að gera þessa aðför að Kaupmannasamtökunum. Hann bætti því við að þeir væra að leggja það til við sína félags- menn að Kaupmannasamtökin yrðu áfram sterkt afl í verslun og viðskiptum. Atkvæðavægi kaup- manna í Kaupmannasamtökunum yrði eftir sem áður eitt atkvæði á mann. Kaupmannasamtökin yi'ðu til áfram. „Það er ekki verið að leggja þau niður, en ef það nær fram að ganga að það verður kjör- inn nýr formaður og varaformaður og þar af leiðandi ný stjórn í Kaup- mannasamtökunum, þá er það al- veg ljóst að með því framboði er bara verið að innlima Kaupmanna- samtökin inn í Félag íslenskra stórkaupmanna. Það er alveg óá- sættanlegt að það sé gert með þessum hætti,“ sagði Benedikt. Hann sagðist ekki vilja leyna því að á fundi stjórnar Kaupmanna- samtakanna fyrir viku síðan hefði komið fram önnur skoðun á hvert stefna bæri. „Það hafa verið uppi þau sjónar- mið hjá sumum aðilum að Kaupmannasamtökin og FÍS eigi að samein- ast, en um það hefur bara ekki ver- ið eining," sagði Benedikt enn- fremur. Miðlæg blönduð hagsmuna- samtök á undanlialdi Birgir Rafn Jónsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að hann liti svo á að Kaupmannasamtökin ættu frekar að reyna að stofna til sam- stöðu og samstarfs við Samtök verslunarinnar, eins og Félag ís- lenskra stórkaupmanna heitir nú, sem væru atvinnugreinasamtök verslunar, heldur en fara í sam- starf við Vinnuveitendasambandið eða Samtök atvinnulífsins, eins og þau ættu víst að heita. Tvennt réði þessari afstöðu. Annars vegar það að þróunin annars staðar í félags- uppbyggingu atvinnurekenda, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, væri á þá lund að atvinnugreina- samtökin hefðu verið að styrkjast, eins og iðnaður og verslun sérstak- lega, en stóru blönduðu miðlægu hagsmunasamtökin væru alls stað- ar liðin undir lok. Auk þess hefði verslunin verið að þjappa sér sam- an bæði fyrir vestan haf og í Evr- ópu og það væri sú þróun sem þeir vildu sjá verða hér. „Þess vegna stend ég í raun og vera fyrir það að Kaupmannasamtökin leiti eftir samstarfi við Samtök verslunarinn- ar, en ekki eftir smastai*fi inn í miðlæg samtök með óskyldum at- •vinnugreinum eins og til dæmis flutningum, tiyggingum og svo framvegis," sagði Birgir. Hann bætti við að hitt atriðið sem réði afstöðu hans væri at- kvæðisréttur og atkvæðisvægi- „Við teljum það alveg fráleitt að verslunin fari inn í samtök þar sem að atkvæðavægi fer eftir félags- gjöldum. Jafnvel þó á því sé þak teljum við að það sé mjög ólýðræð- islegt og mjög óeðlilegt að vera að- ilar að slíkum samtökum," sagði Birgir Rafn. Hann sagði að verslunin á Is- landi væri aðallega í þremur félög- um, þ.e. Kaupmannasamtökum Is- lands, Samtökum verslunarinnar og Bílgreinasambandinu. I öllum þessum félögum gilti sú regla að hver félagi hefði eitt atkvæði, jafn- vel í Bílgreinasambandinu, þar sem annars vegar væru stór bílaumboð og hins vegar h'til verkstæði með jafnvel einum til tveimur mönnum. Atkvæðavægi þyrfti ekkert að hafa með félagsgjöldin að gera. Stórfyr- irtæki þyrftu meiri þjónustu og hefðu meiri hag af því að vera í hagsmunasamtökum heldur en lítil fyrirtæki, en þegar kæmi að hinum lýðræðislega þætti, stefnumótun og öðram ákvörðunum ætti auðvit- að að vera eitt atkvæði á hvern að- ila. Birgir Rafn sagði að það væri 20-30 manna kjarni innan Kaup- mannasamtakanna úr öllum grein- um verslunar sem hefði hvatt hann til að gefa kost á sér. Hann væri sjálfur búinn að vera kaupmaður í 36 ár, en hann hefði allan sinn ald- ur starfað í þessari starfsgrein. Hann hefði gengið í Kaupmanna- samtökin á dögunum vegna þess að margir aðilar innan þeirra hefðu haft samband við sig og haft áhyggjur af þessari þróun og viljað hamla gegn henni. Þeir hefðu einnig haft fyi-ir því áreiðanlegar heimildir að samstaða hefði alls ekki verið innan Kaupmannasam- takanna um þá leið sem fyrirhugað var að fara. Hann sagði að Samtök verslun- arinnar hefðu alltaf verið þess mjög fýsandi að samstarfið yrði aukið milli samtakanna. Engir hags- munaái-ekstrar væra á milli þeirra lengur. Þessar greinar hefðu breyst mjög mikið á undanförnum áram og heildsölu- og smásölustigið í mörgum tilvikum rannið saman. Segja mætti að hagsmunasamtökin hefðu ekki fylgt þeirri þróun eftir sem orðið hefði hjá atvinnufyrir- tækjunum á markaðn- um. I raun og veru væri ekkert sem hamlaði þvi lengur að þessi samtök sameinuðust. Birgir sagði að það væri firra að halda því fram að stórkaupmenn væru að yfirtaka Kaupmannasam- tökin með þessu framboði. Kaup- mannasamtökin væru að fara í samstarf við VSÍ, sem væri félag stórra og sterkra fyrirtækja sem hefðu atkvæðavægi í samræmi við greiðslur félagsgjalda. „Samtök verslunarinnar era hins vegar álíka stórt félag og Kaupmannasamtök Islands og í báðum þessum félög- um er atkvæðaréttur jafn, þannig að ef það era kannski 400 aðilar í Samtökum verslunarinnar og 400 í Kaupmannasamtökum íslands þá eru þessir aðilar að fara inn í sam- starf á algjörum jafnréttisgrund- velli, þannig að ég hreint út sagt skil ekki svona málflutning. Ef ein- hver yfirtaka er í gangi þá er það náttúrlega á þessari leið sem for- maður og framkvæmdastjórinn era að reyna að fara með félagið. Það blasir alveg við,“ sagði Birgir Rafn ennfremur. Ólýðræðislegt að atkvæða- vægi fari eftir félags- gjöldum Framboðið vegna þess að KÍ hefur ekki viljað sameinast FÍS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.