Morgunblaðið - 24.03.1999, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 24.03.1999, Qupperneq 50
4* 50 MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ HILDIG UNNUR ENGILBERTSDÓTTIR + Hildigunnur Engilbertsdóttir fæddist í Súðavík 10. janúar 1939. Hún lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 15. mars siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akranes- kirkju 23. mars. Hver dagur skiptir sköpum böls og gleði því skilur enginn dauðans miklu völd en þar sem áður yndi dags- ins réði er autt og tómt við harmsins rökkurtjöld. (Sveinbjörn Beinteinsson.) Með harm í hjarta kveð ég vin- konu mína sem lést langt fyrir ald- ur fram. Hún, sem virtist hreystin uppmáluð og engan gat grunað að óvinurinn lægi í leyni og ynni sitt verk svo hratt. Ég átti því láni að fagna að vinna með Vaddý í nokkur ár og þægi- legri manneskju í umgengni var vart hægt að hugsa sér. 011 störf vann hún með svo miklum þokka að unun var á að horfa. Pað var einhver hljóðlát mýkt yfir öllu hennar fasi. Oft var glatt á hjalla hjá okkur Reinarkonum, bæði í starfi og utan þess, og þar átti Vaddý stóran þátt. Hún gat hlegið af svo mikilli innlif- un að það hlaut að smita út frá sér og oft var hún hrókur alls fagnað- ar, ekki síst þegar hún greip gítar- inn í hönd og allir sungu af hjart- ans lyst. Vaddý var þeim einstæða hæfi- yj leika búin að geta laðað að sér fólk á öllum aldri og mikið gat hún ver- ið hlýleg við eldra fólk. Eitt sinn spurði ég ungan vin minn sem var þá nýlega byrjaður í leikskóla hvort honum fyndist ekki gaman þar. „Jú-hú,“ sagði sá stutti með stjörnur í bláu augunum sínum, „hún Vaddý er svo góð,“ og ein- lægnin leyndi sér ekki. Pannig var hún notaleg og hlý, alla gat hún umvafið með nærveru sinni einni saman. Ég veit með vissu að margir sakna vinar í stað, ekki síst hennar stóra fjölskylda sem hún .umvafði ást og umhyggju. Við Gulli vottum Asa, bömunum, barnabömunum og öðmm ættingj- um dýpstu hluttekningu okkar í þeirra miklu sorg. Ásdís Magnúsdóttir. Hann er stór hópurinn, utan ætt- ingja og venslafólks, sem saknar sárt við fráfall Hildigunnar Éngil- bertsdóttur eða Vaddýjar eins og hún var jafnan kölluð. Ég er ein þeitTa sem áttu þvi láni að fagna að ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 585 5892 Persónuleg, alhliöa útfararþjónusta. Áratöng reynsla. Sverrir Otsen, útfararstjóri Sverrir Einarsson, útfararstjóri Útfararstofa Islands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ kynnast þessari vel gerðu og hæfileika- ríku konu. Við störf- uðum saman í árarað- ir í Lionessuklúbbi Akraness og einnig um skeið í kvenna- kórnum Ym hér á Akranesi. Margar dýrmætar minningar á ég um samstarf okk- ar og vináttu, einkum í Lionessuklúbbnum. Vaddý var ávallt reiðubúin, hvenær sem á þurfti að halda, hvort heldur var í starfi eða leik og taldi aldrei neitt eftir sér. Hún átti oft fmmkvæði að því að vinna félagi sínu til heilla bæði í kvennakórnum og Lino- nessuklúbbnum. Vaddý hafði þann hæfileika að laða fólk að sér og ekki síst börn því hún starfaði um árabil á leik- skólum hér í bæ. Glaðværð var henni í blóð borin. Einnig hafði hún ríka tónlistarhæfileika, sem kom meðal annars fram í því að hún spilaði á gítar og söng óaðfmnan- lega, þó að hún hefði aldrei lært til þess. Þessara hæfileika hennar nutu bæði við félagar hennar og vinir og ekki síst börnin í leikskól- unum þar sm hún starfaði. Vaddý mín. Nú þegar þú ert öll eftir stutta en erfiða baráttu við ill- vígan sjúkdóm vil ég þakka þér all- ar skemmtilegu og góðu samveru- stundirnar sem við áttum saman í leik og starfi. Þú varst ávallt gef- andinn í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur og því er þín svo sárt sakn- að af öllum sem kynntust þér á lífs- leiðinni. Sárastur er þó söknuður ástvina þinna. Ásgeirs eiginmanns þíns, barna þinna, tengdabarna, ömmubarnanna og Sólrúnar systur þinnar, sem var þér svo náin. Ég bið algóðan Guð að blessa þau öll og veita þeim huggun í þungbærum harmi. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Nína Sigurðardóttir. Það er oft stutt á milli hláturs og gráts. I janúar sl. hittist leikfimi- hópurinn okkar í tilefni 60 ára af- mælis Vaddýjar og í dag erum við samankomnar til að minnast henn- ar. Fyrir tíu árum byrjuðum við í leikfimi. Þar hristist saman hópur sem hefur haldið sambandi síðan. Hópurinn hefur breiðan aldur og var Vaddý aldursforsetinn. Þótt hún væri nokkru eldri en við hinar fundum við ekki fyrir því. Vaddý var til í flest það sem okkur datt í hug. Við föndruðum fyrir páska og jól, saumuðum heilu leikfimigallana handa okkur, hittumst fyrir stóraf- mæli, þar sem alltaf þarf að halda fundi. Þar eru uppákomur skipu- lagðar og vísur samdar um viðkom- andi afmælisbarn. Það var alltaf gaman hjá okkur þegar við hitt- umst. Okkur þótti mjög gott að UTFARARSTOFA | OSWALDS sfMi 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN \ÐALSI'R/i:n 4B* 101 RLvVKJAVÍK LÍKKISTUVINNUSTOFA EWINDAR ÁRNASONAR hafa Vaddý með okkur, því við gát- um verið vissar um að þegar henni fannst nóg um fíflaganginn í okkur þá bremsaði hún okkur af og sá til þess að aldrei yrði gengið of langt. Síðast þegar við hittumst var það til að undirbúa afmæli Vaddýar sem var í janúar sl. Yfir undirbún- ingnum hvílir mikil leynd og má viðkomandi helst ekki vita af hon- um. Fyrir afmæli Vaddýjar komum við saman hjá einni úr hópnum og vorum að sjóða saman vísur um Vaddý þegar hún gekk framhjá stofuglugganum og hefur sjálfsagt vitað hvað var í gangi. Hún var samt mjög hissa þegar við birtumst í afmælinu hennar íklæddar risa- bleium, með snuð og slaufur í hár- inu og sungum fyrir hana úti á palli. Fjölskyldu Vaddýjar sendum við innilegar samúðarkveðjur og kveðj- um hana með niðurlagi vísu sem við fluttum í afmæli hennar. Vaddý okkar, Vaddý okkar, Vaddý, þú ert okkur öllum kær. Anna, Guðlaug, Guðrún A., Guðrún f., Lára, Soffía, Sigríður, Svandís og Valey. Ljósið sækir á, myrkrið hörfar. Daginn er farið að lengja. Þetta var sú sýn er við lionsfélagar í nálægð höfðum á baráttu Vaddýar við hinn mikla vágest sem krabbameinið er. Hún ljómaði og var full bjartsýni er ég hitti hana um miðjan janúar. Vágesturinn hafði hörfað, hún kenndi sér ekki meins. En það dimmdi aftur, hann kom tvíefldur til baka og eirði engu. Vaddý er lát- in. Þó að maður viti að dauðinn geti verið skammt undan, þá fyllist maður bjartsýni við góðu fréttirnar og höggið verður því enn meira er hinar slæmu koma. Hildigunnur eins og hún Vaddý hét fullu nafni var einn af stofnfé- lögum í Lionsklúbbnum Eðnu hér á Akranesi. Áður hafði hún verið í Lionessuklúbbi Akraness sem var forveri Eðnuklúbbsins. Við félag- arnir í Lionsklúbbnum erum sem ein fjölskylda. Fjölskylda sem fylgdist með baráttu hennar og gladdist yfir góðu fréttunum. Nú þegar höggvið hefur verið skarð í lionsfjölskylduna, kær félagi er lát- inn, reikar hugurinn til baka. I hverri fjölskyldu hefur hver sitt sérstaka verkefni. Verkefni Vaddý- ar var að skapa léttleikann, það gerði hún með gítarnum og söngn- um. Af vörum hennar bárust oft hnyttin tilsvör og sögur. Þá var oft hlegið dátt, húmorinn vantaði ekki hjá henni. Vaddý var félagslynd, lionsklúbburinn var ekki eini fé- lagsskapurinn sem naut krafta hennar. Hennar er saknað víða. Við félagar í Lionsklúbbnum Eðnu þökkum fyrir þau ár sem við nutum krafta og félagsskapar Vaddýar. Með von um að léttleiki hennar svífi yfír fundum og sam- komum okkar í framtíðinni. I lífi sínu átti Vaddý sér tryggan lífsfórunaut. Ási, missir þinn og fjölskyldu þinnar er mildll. Við Eðnukonur vottum þér, Ási minn, börnum, tengdabörnum, barna- börnum og öðrum ættingjum okkar dýpstu samúð um leið og við biðjum guð að veita ykkur þrek og styrk í sorg ykkar. Blessuð sé minning Hildigunnar Engilbertsdóttur. F.h. Lionsklúbbsins Eðnu, Rósa Pétursdóttir. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri mblómaverkstæði I INNAtel Skólavörðustíg 12, á horni Bcrgstaðastrætis, sími 551 9090. GÚSTA INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR + Dr. Gústa Ingi- björg Sigurðar- dóttir prófessor fæddist í Reykjavik 10. janúar 1934. Hún lést á sjúkra- húsi í Montpellier 19. febrúar stðast- liðinn og fór útför hennar fram í Mont- pellier 22. febrúar. Ég kom inn í fjöl- skyldu Gústu þegar ég giftist móðurbróð- ur hennar, Erlingi Þorkelssyni, árið 1936. Hún var aðeins 11 mánaða er ég kynntist henni fyrst, falleg, ljúf og rólynd. Þessar tvær fjöl- skyldur bjuggu í sama húsi að Tjarnargötu 43 í 24 ár, svo ég hafði gott tækifæri til að kynnast og fylgjast með uppvaxtarárum hennar. Snemma kom í ljós að Gústa var óvenju greind og gekk vel að læra. Hún var ári á undan sínum jafn- öldram í skóla. Hún fór fyrst í Austurbæjarskólann þar sem faðir hennar kenndi alla sína starfsævi og móðir hennar einnig, eftir að bömin komust á legg. Síðan lá leiðin í menntaskólann þar sem hún var jafnan dúx. Hún var tvo vetur hér heima í háskólanum við nám í ensku og frönsku, og lauk B.A. prófi þar, áður en hún fór til framhaldsnáms í Frakklandi, al- farin. Gústa var alla tíð mjög sam- viskusöm, bæði við nám og í starfi, enda hvött af foreldram sínum sem umvöfðu hana ást og kær- leika og hvöttu hana á allan hátt. Hún lét alltaf námið ganga fyrir öllu öðra og tók fremur lítinn þátt í glaumi og gleði á námsáranum, enda bar það árangur síðar. Á heimilinu bjó móðuramma og nafna hennar, Ingibjörg. Það var alla tíð mikill kærleik- ur þeirra í milli. Gústa var prinsessan í hús- inu, ólst upp með sex strákum, tveimur bræðrum sínum og fjóram sonum okkar. Hún var elst barn- anna svo það kom í hennar hlut að stjórna þessu liði sem var há- vaðasamt og fyrii'- ferðamikið eins og gefur að skilja. Rétt liðlega tvítug fór Gústa til fram- haldsnáms í Frakk- landi en kom heim á sumrin fyrstu árin. Eftir að hún varð fastráðin kennari við háskólann í Montpelli- er sem prófessor í germönskum fræðum, urðu heimkomur hennar færri og strjálli. Foreldrar hennar fóra hins vegar oft til hennar á sumrin og bjuggu þá í sumarhúsi hennar rétt fyrir utan Montpellier. Gústa giftist aldrei. Áhugamál hennar voru menntun, fræðsla og ferðalög. Á meðan hún hafði heilsu til, ferðaðist hún mikið um allan heim og var það oftar en ekki tengt starfi hennar. Síðustu árin hafði Gústa rýmri tíma og kom nokkram sinnum heim til fjölskyldu og vina. Oft hringdi hún líka fi'á Frakklandi og vildi fylgjast með hvernig gengi hjá frændfólkinu í námi og starfi. En hún var líka oft lasin þessi síð- ustu ár og var frá starfi tvö síðustu árin vegna veikinda. Hún komst á eftirlaun alveg um það leyti sem hún dó. Fyrir mína hönd og sona minna vil ég þakka Gústu fyrir öll þau ár sem við vorum saman í Tjamar- götu 43. Einnig þakka ég öll sím- tölin á seinni áram, allt var þetta gefandi og geymist í huga mér. Blessuð sé minning hennar. Kristín Kristvarðsdóttir. GUÐRÚN FRIÐFINNSDÓTTIR + Guðrún Frið- finnsdóttir fæddist á Galtastöð- um í Gaulverjabæj- arhreppi 30. apríl 1903. Hún lést á Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund 17. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðrún Jóhannesdóttir, f. 11. júlí 1867, d. 8. janúar 1936, og Friðfinnur Þorláks- son, f. 22. nóv. 1861, d. 2. aprfl 1908. Systkini Guðrúnar voru Krist- inn, Pálína, María og Guðbjörg sem öll eru látin. Guðrún giftist í maí 1945 Guð- mundi Jónssyni frá Ausu í Andakflshreppi, f. 17. mars 1888, d. 27. sept. 1977. Foreldr- Amma mín, Guðrún Friðfinns- dóttir, er látin í hárri elli, hennar er sárt saknað, en hvíldin hefur jafnframt verið henni kærkomin, þar sem fátt var eftir sem veitt gat henni ánægju. Amma fæddist í upphafi aldar- innar, býr fyrst í sveit og síðan í borg, og deyr í aldarlok. Kynslóð ömmu minnai' kynntist vinnuhörku á unga aldri. Sveitastörfm era erfið þegar engar vélar era tiltækar. Þegar amma sest að í höfuðstaðn- um vinnur hún aðallega í fiski. Amma tók til höndum þegar átti að vinna verk og af þeim sökum var hún eftirsóttur vinnukraftur. Amma var sérstaklega vel gerð kona, nægjusöm, æðralaus, dugleg, ar hans voru Jón bóndi Eggertsson og kona hans, Þor- björg Kláusdóttir. Fósturdóttir Guð- rúnar er Guðrún Guðlaugsdóttir. Hún er gift Magnúsi Vilhjálmssyni, dótt- ir þeirra er Guð- björg Magnúsdóttir. Guðrún vann aðal- lega við fiskvinnslu þar til hún giftist. Guðrún og Guð- mundur bjuggu á Blómvallagötu 7 og eftir að Guðmundur lést bjó hún þar ein þar til hún fluttist á Elli- og hjúkrunarheimilið Grund 88 áragömul. Utför Guðrúnar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. gestrisin og mikil hannyrðakona. Oteljandi era þeir munir sem hún hefur unnið um ævina. Henni féll aldrei verk úr hendi fyrr en á tí- ræðisaldri, þegar heilsan fór að gefa sig. Því var það henni mikið áfall þegar hún gat ekki lengur saumað og prjónað. Við mamma getum aldrei full- þakkað allt það sem hún gerði fyrir okkur. Far þú í friði, friðurGuðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Þakka þér fyrir allt og allt, elsku amma mín. Guðbjörg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.