Morgunblaðið - 21.04.1999, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skjót viðbrögð bænda og dýralækna vegna áður óþekkts afbrigðis lungnapestar
Bólusetning
hafín við
lungnapestinni
Morgunblaðið/Sverrir
BÆNDUR hlýddu af áhuga á útskýringar Sigurðar Sigurðarsonar, dýralæknis á Keldum, og Halldórs Run-
ólfssonar yfirdýralæknis á fundi um lungnapestina í gær.
Þorvaldur Jónsson, Sigurður Jónsson, Snorri Jóhannesson,
Brekkukoti. Hraunsási. Augastöðum.
Ólafur Kristófers- Dagbjartur Dagbjarts- Kolbeinn Magnús-
son, Kalmanstungu. son, Refsstöðum. son, Stóraási.
SAMÞYKKT var með öllum greidd-
um atkvæðum á fundi bænda í Borg-
arfirði að menn myndu bólusetja fé
sitt gegn áður óþekktu afbrigði
lungnapestar hér á landi sem fyrst
og var bóluefni til þess afhent í gær.
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir
á Keldum, og Halldór Runólfsson
yfirdýralæknir mæltu með því að
allir bændur af Hvítársíðu, úr
Hálsasveit, Reykholtsdal og Flóka-
dal bólusettu fé sitt hvort sem þeir
rækju það á afrétt eða ekki. Bændur
tóku vel í þessi tilmæli og vildu
menn tryggja að einstakir bændur
myndu ekki skorast undan þessum
tilmælum.
Sigurður mælti með því að féð
yrði bólusett sem fyrst þar sem
lungnapestin kæmi upp á mjög við-
kvæmum tíma. Mikilvægt væri að
bólusetja fyrir sauðburð svo mótefni
myndaðist í broddinum og þá þyrfti
ekki að bólusetja lömbin. „Eg sé
ástæðu til að bregðast hratt og ör-
ugglega við þessari pest af því af-
brigðið er áður óþekkt hér á landi og
við höfum ekki reynslu af því.
Reynslan hefur sýnt að okkar fé
bregst öðruvísi við ýmsum sjúkdóm-
um en fé erlendis, meðal annars
vegna langrar einangi-unar þess,“
sagði Sigurður í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Komist hjá niðurskurði
Halldór Runólfsson yfirdýralækn-
ir sagði á fundinum í gær að ekki
væri nauðsynlegt að hefja niður-
Ný þota til
Flugleiða
ÞOTA af gerðinni Boeing 757-
200, sem ber allt að 189 far-
þega, bætist í flugflota Flug-
leiða í dag. Tekið verður á
móti henni með viðhöfn þegar
hún lendir á Keflavíkurflug-
velli kl. 16:30.
Samkvæmt því sem fram
kemur í fréttatOkynningu frá
fyrirtækinu hafa tvær aðrar
þotur af sömu gerð verið
pantaðar hjá Boeing-verk-
smiðjunum og munu þær
verða afhentar árin 2000 og
2003.
Tvær stærri þotur, af gerð-
inni 757-300, bætast í flugflot-
ann árin 2001 og 2002.
skurð á fé að svo stöddu. Mikilvæg-
ara væri að hefja aðgerðir sem gætu
stemmt stigu við útbreiðslu pestar-
innar og fræðsla væri einn liður í
því. „Vitneskja frá útlöndum segir
okkur að þessi pest valdi tjóni þar
sem hún stingur sér niður. Bólu-
setning á að geta komið í veg fyi-ir
tjón og það er full ástæða til að taka
þetta föstum tökum og uppræta
pestina sem allra fyrst,“ sagði Hall-
dór.
Upptök sjúkdómsins í þessu til-
viki era óljós en vart varð við af-
brigðið á bænum Kalmanstungu í
Borgarfirði í febrúar sl. „Einhvern
veginn hefur þetta komið upp. Við
þekkjum þetta afbrigði ekki í sauðfé
hér á landi og engar líkur eru til
þess að þetta hafi borist frá útlönd-
um. Það er spurning hvort þessi
gerð bakteríunnar hafi verið hér án
okkar vitneskju eða hvort hér sé um
stökkbreytingu að ræða, án þess að
ég hafi hugmynd um það hvort þessi
baktería stökkbreytist," sagði Sig-
urður.
Að sögn Sigurðar getur sjúkdóm-
urinn einnig komið upp vegna
streitu í fé, ofkælingar, trekks,
snöggra fóðurskipta eða slæmrar
loftræstingar ef sýkillinn er til stað-
ar.
6-7% hjarðarinnar
veikjast
Smit þessa afbrigðis lungnapest-
arinnar lifir allt frá einum degi til
nokkurra daga utan kindarinnar.
Smit berst helst á milli við samgang
fjár og getur borist innan bæja með
skófatnaði og hlífðarfatnaði. Að sögn
Sigurðar getur fé sem veikist en lifir
af og fé sem smitast en veikist ekki
borið smit í sex mánuði eða lengur.
Pestin er bráður bakteríusjúkdómur
og getur fé gengið með smit í 10-14
daga eða lengur áður en einkenni
sjást. Algengt er að frá því einkenna
verður vart drepist kindur á 1-2
dögum og algengast er að 6-7%
hjarðarinnar veikist.
Á fjórða tug bænda voru á fundi
Sigurðar og Halldórs í Brúarási í
Hálsasveit 1 gær. Margir keyptu
bóluefni og kostar það 15 krónur á
hverja kind. Bólusetja þarf í tvígang
nú í vor, ær einu sinni í haust en
lömb tvisvar og svo tvisvar næsta
vor. Margir bændur í sveitarfélag-
inu byggja búskap sinn eingöngu á
búfénaði og ætluðu þeir sem Morg-
unblaðið ræddi við að bólusetja sem
fyrst.
Flestir vora tiltölulega rólegir yfir
ástandinu og trúðu því að allir
myndu bólusetja sitt fé og hefðu efni
á því. Nokkuð bar á áhyggjum af því
að einhver myndi skorast undan en
flestir voru þó bjartsýnir á að allir
gengju í verkið. Hagsmunir þeirra
sjálfra séu í húfi því skorist einhver
undan geti menn þurft að bólusetja
reglulega næstu áratugi.
Kostnaður viðráðanlegur
„Þegar svona kemur upp þurfa
allir að stilla saman krafta sína og
taka á málinu. Það er nauðsynlegt
að bregðast við áður en fénu verður
sleppt í vor,“ sagði Þorvaldur Jóns-
son, formaður fjallskilanefndar og
bóndi í Brekkukoti í Reykholtsdal.
Sigurður Jónsson, bóndi í
Hraunsási í Hálsasveit, sagði að sér
sýndist að ekki stefndi í neina kata-
strófu þar sem menn ætluðu að
bólusetja nú þegar. Sagði hann
kostnaðinn viðráðanlegan jafnvel
þótt bólusetja þyrfti fimm umferðir,
en stærstu búin væru með milli tvö
og fjögur hundruð fjár.
„Eg trúi ekki öðru en að allir
bólusetji. Skorist einhver undan get-
um við þurft að bólusetja næstu ára-
tugi. Það kemur einungis niður á
okkur sjálfum ef við geram það
ekki,“ sagði Snorri Jóhannesson,
bóndi á Augastöðum í Hálsasveit.
Olafur Kiistófersson, bóndi í
Kalmanstungu, er með á fjórða
hundrað kinda. Sjúkdómurinn kom
upp á bæ hans í febrúar og varð
hann var við hann þegar nokkrar
kindur drápust. Pestin gekk yfir á
þremur vikum og hætti fé að drep-
ast þegar hann gaf því lyf. 5% af
hjörðinni veiktust og segist Olafur
ekki geta gert sér í hugarlund hvers
vegna pestin kom upp.
„Við eram sjóaðir í svona hlutum
og það er ekkert annað að gera en
að bólusetja. Það bætist bara enn
ein bólusetningin við,“ sagði Dag-
bjartur Dagbjartsson, bóndi á Refs-
stöðum í Hálsasveit.
Kolbeinn Magnússon, bóndi að
Stóraási í Hálsasveit, sagði að menn
væru tiltölulega rólegir yfir pestinni
vegna skjótra viðbragða en bólu-
setja þyrfti milli 5-6.000 fjár. Sagði
hann að líklega myndi pestin ekki
seinka því að fénu yrði sleppt á af-
rétt í sumar.
Saga listarinnar eftir E.H.
Gombrich er vinsælasta
listasaga allra tíma og
hefur verið þýdd á um
30 tungumál.
„Þarf helst að vera til
á hverju heimili."
Morgunblaðið
N
Mál og menning
18 • Simi 515 2500 • Síðumúla 7 • Simi 510 2500
Stöðva ber
framkvæmd-
ir við Lauga-
veg 53b
ÚRSKURÐARNEFND skipu-
lags- og byggingarmála úr-
skurðaði sl. fimmtudag að
stöðva ætti byggingarfram-
kvæmdir við Laugaveg 53b þar
til fjallað hefur verið á ný um
kæruatriði nágrannanna sem
kært hafa framkvæmdina.
Nefndin felur borgarstjóm að
sjá til þess að framkvæmdum
verði hætt en í gær vom menn
þar enn að störfum. Að sögn
Magnúsar Sædal, byggingarfull-
trúa Reykjavíkurborgar, barst
úrskurðurinn honum í fyrradag.
„Ég reikna með að það sé í mín-
Morgunblaðið/Ásdís
um verkahring að stöðva fram-
kvæmdiraar og það mun ég
gera en ég reikna einnig með að
þessir aðilar sem eru að byggja
þarna og einnig hafa fengið úr-
skurðinn í hendur að þeir kunni
að lesa,“ sagði hann. „Mönnum
ber að fara að Iögum.“
■ Úrskurðarnefnd/61