Morgunblaðið - 21.04.1999, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Forseti Lettlands í skoðunarferð um suðvesturhorn landsins
FORSETARNIR skoðuðu og brögðuðu á saltfíski í saltfiskverkuninni
Vfsi hf. í Grindavík.
ULMANIS fékk hlýjar mdttökur í Grindavík þar sem hann sýndi ung-
um Grindvíkingum hvernig hitta á í körfu.
Snæddi þorskroð
og fór í Bláa lónið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FORSETI Lettlands heilsar Jdnasi Ingimundarsyni í Tdnlistarhúsi
Kdpavogs, en þar hlýddi hann á barnakdr Kársnesskdla.
DAGSKRÁ gærdagsins var þétt
skipuð hjá Guntis Ulmanis, for-
seta Lettlands. Meðal þess sem
Ulmanis gerði var að sýna hæfni
sína í smíðum, leika körfuknatt-
leik, baða sig í Bláa ldninu og
borða djúpsteikt þorskroð.
Eftir fund Ulmanis og Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra, sem
haldinn var í Ráðherrabústaðnum
í morgunsárið, voru nokkrir stað-
ir á suðvesturhorninu skoðaðir
með Olafí Ragnari Grímssyni, for-
seta íslands, og fylgdarliði þeirra.
Fyrst var Reykjavík skoðuð og
lauk þeirri skoðunarferð í nýjasta
grunnskdla borgarinnar, Engja-
skdla í Grafarvogi. Ingibjörg Sdl-
n'm Gísladdttir borgarstjöri tök á
mdti forsetunum ásamt um 70
börnum, sem stdðu við skólann
með þjóðfána Lettlands og íslands.
Gerður G. Óskarsdöttir,
fræðslustjdri Reykjavíkurborgar,
fræddi gestina um íslenska skdla-
kerfíð en í máli hennar kom m.a.
fram að ljúka ætti við einsetningu
skdla árið 2002. Ulmanis heilsaði
upp á nemendur í smíða- og
landafræðiti'ma, en í smíðastof-
unni var lionum gefín gestabök,
sem unnin var úr íslensku birki
og lerki af einum nemenda skdl-
ans, en áður hafði forsetinn tekið
sér sög í hönd og sýnt ungmenn-
unum lettneska handmennt.
Úr Engjaskóla var haldið í Ár-
bæjarlaug og þaðan til Grindavík-
ur, þar sem bæjarstjörnin tdk á
mdti gestunum í íþrdttahúsinu,
sem var þéttsetið af börnum jafnt
sem fullorðnum, en börnin fengu
frí úr skdla til að koma og sjá for-
setana. Eftir erindi bæjarstjdrans,
þar sem hann þakkaði Ólafí Ragn-
ari fyrir að koma með svo tigna
gesti í heimsókn, sýndu ungir Gr-
indvíkingar körfuknattleik. Að
Ieik loknum fékk Ulmanis að
spreyta sig með boltann og fyrsta
skotið rataði beint ofan í körfuna
við mikinn fögnuð áhorfenda og
Ólafs Ragnars. Ulmanis er mikill
íþróttaáhugamaður og mikil hefð
er fyrir körfuknattleik í Eystra-
saltslöndunum.
Baðaði sig í Bláa Ióninu
Ulmanis skoðað einnig tvö fyr-
irtæki í Grindavík sem tengjast
sjávarútvegi, en eins og komið
hefur fram telja Lettar sig geta
lært mikið af Islendingum í þeirri
atvinnugrein. Saltfiskverkunin
Vísir hf. og netagerðin Þorbjörn
hf. voru skoðuð, en þau eru bæði
rdtgrdin ijölskyldufyrirtæki, sem
starfað hafa í bænum í áratugi.
Eftir bað í Bláa lóninu fékk for-
seti Lettlands eilitla fræðslu um
lækningamátt ldnsins, snæddur
var hádegisverður í Eldborg, mdt-
tökuhúsi Hitaveitu Suðurnesja.
Síðan var ferðinni heitið til
Gullfoss og Geysis og þaðan til
Þingvalla, en fyrst var komið við í
hinu nýja Tdnlistarhúsi Kdpa-
vogs. I Tönlistarhúsinu var gest-
um boðið upp á djúpsteikt
þorskroð. Barnakdr Kársnessköla
söng síðan nokkur lög. Ferðinni
lauk á Þingvöllum þar sem borð-
aður var kvöldverður.
I dag Iýkur opinberri heimsdkn
forseta Lettlands, en áður en hann
yfirgefur landið heimsækir hann
Eimskip og BYKO, en þau hafa
verið að hasla sér völl í Lettlandi.
Þá mun hann einnig ræða við for-
ystumenn úr íslensku atvinnulífi í
Perlunni, þar sem hann snæðir há-
degisverð.
Öryrkjar og ellilífeyrisþegar efna til samráðs og lialda útifund
Hlutur aldraðra
og öryrkja
verði réttur
Morgunblaðið/RAX
Frá fréttamannafundi stjdrna Félags eldri borgara í Reykjavík,
Landssambands eldri borgara og Öryrkjabandalags Islands. F.h. Helgi
Seljan, framkvæmdastjdri Öryrkjabandalagsins, Ólafur Ólafsson, for-
maður FEB í Reykjavík, Haukur Þörðarson, formaður Öryrkjabanda-
lags fslands, Benedikt Davíðsson, formaður Landssambands eldri
borgara, Garðar Sverrisson, varaformaður Öryrkjabandalagsins, og
Ragnar Jörundsson, framkvæmdastjdri FEB í Reykjavík. Á myndina
vantar Guðríði Ólafsddttur, félagsmálafulltrúa Öryrkjabandalagsins.
Á KYNNINGARFUNDI sem
stjórnir Félags eldri borgara í
Reykjavík, Landssambands eldri
borgara og Öryrkjasambands Is-
lands efndu til í gær var „talnaleik-
fimi“ talsmanna ríkisstjórnarinnar
varðandi kjör örorku- og ellilífeyris-
þega gagnrýnd. Kynnt var sameigin-
leg barátta örorku- og ellilífeyris-
þega fyrir bættum kjörum.
Samtök öryrkja og ellilífeyrisþega,
sem saman telja 30 þúsund meðlimi,
boða til útifundar á Ingólfstorgi í dag
kl. 17:00. Tilgangur fundarins er að
sögn talsmanna að koma á framfæri
leiðréttingum á meintum missögnum
talsmanna ríkisstjómarinnar um
kjör öryrkja og ellilífeyrisþega.
Kröfur örorku- og ellilífeyrisþega
eru m.a. þær að almannatryggingar
verði stórefldar, grunnlífeyrir hækk-
aður verulega og í-ýmkað verði um
frítekjumörk, m.a. með lækkun jaðar-
skatta. Þá verði skattleysismörk
hækkuð í 85 þúsund krónur á mánuði.
Garðar Sverrisson, varaformaður
Öryrkjabandalagsins, sagði að ýmis-
legt væri að athuga við umræðuna
um kjör aldraðra og öryrkja; einkum
varðandi kjarasamanburð við Norð-
urlönd og kaupmáttaraukningu.
„Þama era stórar og mjög alvarleg-
ar rangfærslur sem hafa komist á
flot og eru endurteknar í hverjum
sjónvai'ps- og útvarpsþættinum á
fætur öðram auk blaðanna."
Benedikt Davíðsson, formaður
Landssambands eldri borgara, sagði
baráttuna fyrst og fremst snúast um
að knýja fram leiðréttingu á almanna-
tryggingagreiðslum miðað við launa-
tölur á síðustu áram. Hann gagn-
rýndi notkun ráðherra ríkisstjómar-
innar á nýbirtri Gallup-skýrslu um
hagi aldraðra. Þeir hreyktu sér af því
að 56,6% af öldraðu fólki hefðu ekki
fjárhagsáhyggjur. „En þetta segir
okkur að um 40%, eða um 10.000
manns, hafi fjárhagsáhyggjur!“
Benedikt kvaðst sammála heil-
brigðis- og tryggingaráðherra um að
þjóðarsátt um kjör öryrkja- og ellilíf-
eyrisþega sé æskileg. „En það þarf
þá fyrst að rétta af granninn til að
byggja þjóðarsáttina á og tryggja að
hún viðhaldist á jafnréttisgrandvelli
milli almennrar þróunar launa sam-
kvæmt mælingum Hagstofunnar og
tryggingagreiðslna. Þetta era
grundvallaratriði sem við viljum
byggja á. Við viljum samstarf við
væntanleg stjórnvöld um þessi mál.“
Ólafur Ólafsson, formaður eldri
borgara í Reykjavík, fullyrti að tölur
sem reiknaðar væru hérlendis fyrir
stjómmálamenn kæmu ekki heim og
saman við skýrslur hagstofa á Norð-
urlöndum, sem samtök örorku- og
ellilífeyrisþega styddust við.
Tryggingalöggjöfin of fldkin
Þá kvað Ólafur ófært hvað trygg-
ingalöggjöfín væri orðin flókin. Hann
tiltók dæmi af hjónum á dvalarheim-
ili sem hefðu orðið fyrir útgjöldum
vegna 1.100 króna hækkunar á
grunnlífeyri. „Fólk skilur ekki lengur
hvemig þetta almannatryggingakerfi
virkar. - Slæmt er þitt ranglæti,
vema þitt réttlæti, stendur í ein-
hvem íslenskri sögu,“.sagði Ólafur.
Guðríður Ólafsdóttir, félagsmála-
fulltrúi Öryrkjabandalagsins, kvað
sitt fólk langeygt eftir kjarabótum.
„Maður bindur vonir við að hverjir
sem það verða sem halda um stjórn-
artauminn næsta kjörtímabil leitist
þeir við að sýna þá réttsýni að fara í
gegnum þessi mál virkilega af al-
vöru.“
Á fundinum á Ingólfstorgi í dag
flytja ávörp Ólafur Ólafsson, Bene-
dikt Davíðsson og Haukur Þórðar-
son, formaður Öryi'kjabandalags ís-
lands. Kynnir verður Helga Soffía
Konráðsdóttir, formaður Prestafé-
lags íslands. Hörður Torfason
söngskáld tekur lagið.
Brot gegn
ákvæði
jafnrétt-
islaga
KÆRUNEFND jafm'éttismála
hefur komist að þeirri niðm'stöðu
að Ríkisspítalar hafi brotið gegn
ákvæðum jafnréttislaga við ráðn-
ingu í starf yfirlæknis bama- og
unglingageðdeildai- (BUGL)
Landspítalans. Kærunefndin tel-
m' að Ríkisspítalamir hafi brotið
gegn rétti konu sem var meðal
umsækjenda um starfið.
Umrædd kona, sem er barna-
og unglingageðlæknir, kærði
ráðninguna til kærunefndar
jafnréttismála. I niðurstöðu
nefndarinnar er þeim tilmælum
einnig beint til stjórnenda Rík-
isspítala að fundin verði viðun-
andi lausn á málinu.
Sérstök stöðunefnd sem mat
hæfni umsækjenda um starf yf-
irlæknis við deildina komst að
þeirri niðurstöðu að umrædd
kona væri hæfari en aðrir um-
sækjendur en þeir voru þó
einnig taldii' hæfir til að gegna
starfinu og var einn þehra ráð-
inn í stöðuna. Ríkisspítalamh'
bára það m.a. fyrir sig að fyrri
störf kæranda hjá BUGL hafi
skipt máli við val á umsækjend-
um um stöðuna og vísuðu sér-
staklega til áminningar sem hún
hlaut er hún starfaði á BUGL
árið 1994, m.a. vegna meintra
samstai'fsörðugleika. Ennfrem-
ur hafi legið fyi'h’ ákvörðun um
að segja henni upp störfum í
árslok 1994. Til þess kom þó
ekki þar sem hún ákvað sjálf að
segja starfi sínu lausu. Konan
mótmælti harðlega þessum sjón-
armiðum og taldi sig hafa sætt
ofsóknum af hendi yfii'manna.
Kæranefndin kemst að þeirri
niðurstöðu hvað þetta atriði vai'ð-
ar að um þrjú og hálft ár hafi liðið
frá því konan sagði starfi sínu
lausu og þar til staða sú sem deilt
vai' um vai' veitt og rúm fjögur ár
fí’á því hún fékk umrædda
áminningu. Kemst nefndin að
þeirri niðurstöðu að sá ágreining-
ur sem varð milli kæranda og yf-
irmanna hennai' þyki ekki rétt-
læta nú að gengið sé fram hjá
henni við ráðningu í starfið.
Kæranefndin bendir á að til að
jafnréttislögin nái tilgangi sínum,
verði að telja að atvinnurekanda
beri að ráða umsækjanda af því
kyni sem er í minnihluta í við-
komandi starfsgi'ein, ráði starfs-
reynsla, hæfni og menntun ekki
úrslitum. Fyrir liggi að einungis
ein kona gegnir stöðu yfu-læknis
hjá Ríkisspítölum en 69 karlar.
Fræðastyrkir
á afmæli Nato
SAMÞYKKT var á ríkisstjórn-
arfundi í gær að veita fjórum
fræðimönnum styrki í tilefni af
fimmtíu ára afmæli Atlantshafs-
bandalagsins, samtals að upp-
hæð tveggja milljóna ki'óna.
Tólf umsóknir bárust um
styrkina og fór dómnefnd, skip-
uð af menntamálaráðherra, yfh'
þær og gerði tillögur um styrk-
veitingarnar.
Dr. Valur Ingimundai'son
sagnfræðingur fær 700 þúsund
krónur til verkefnisins Islensk
utanríkisstefna, ímynd Atlants-
hafsbandalagsins og hlutverk Is-
lands í vestrænu samstarfi
1949-1989. Jakob F. Ásgeirsson
ríthöfundur fær 700 þúsund
krónur til verkefnisins Fjölmiðl-
amir og Nato. Baldur Þórhalls-
son stjómmálafræðingur hlýtur
300 þúsund krónur vegna verk-
efnisins Ahrif skilgi'einingai' á
sérstökum evrópskum öryggis-
hagsmunum innnan Nato á sam-
skipti íslands og Bandaríkjanna
og loks fær Guðni Th. Jóhannes-
son sagnfræðingur 300 þúsund
krónur til verkefnisins ísland,
Atlantshafsbandalagið og
þorskasfi'íðin 1972-1976.