Morgunblaðið - 21.04.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999 25
ERLENT
Ecevit og þjóðernissinnaðir hægrimenn unnu sigur
í tyrknesku þingkosningunum á laugardag
Auknar líkur á stjórn-
arsamstarfi fiokkanna
Morgunblaðið/RAX
s
Forseti Tyrklands á Islandi
Ankara. Reuters.
BULENT Ecevit, forsætisráð-
herra Tyrklands, virtist í gær
byrjaður að gefa flokki þjóðernis-
sinnaðra hægrimanna, Þjóðernis-
sinnaða framtaksflokknum
(MHP), undir fótinn hvað stjórn-
arsamstarf varðar en MHP bætti
óvænt fylgi sitt verulega í þing-
kosningum sem fram fóru í land-
inu á laugardag. Fréttaskýrendur
og stjórnmálamenn lýstu kosn-
ingaúrslitunum á mánudag sem
„pólitískum landskjálfta" en í gær
virtist sem tilhugalíf MHP og
Lýðræðislega vinstriflokksins
(DSP), flokks Eeevits, væri hafið
fyi’ir alvöru.
Til að flokkarnir geti myndað
stjórn saman þurfa þeir Ecevit og
Devlet Bahceli, leiðtogi MHP, að
líta framhjá fyrri samskiptum
flokkanna, sem voru afar storma-
söm á áttunda áratugnum. Börð-
ust stuðningsmenn flokkanna þá
hverjir við aðra á götum úti sem
leiddi að lokum til að her landsins
hrifsaði til sín öll völd. Frétta-
skýrendur segja að Ecevit verði
að vera sannfærður um að MHP
hafi sagt skilið við róttæka fortíð
sína, eigi hann að geta hugleitt
samstarf við flokkin. Hitt gæti
reynst þrautin þyngri fyrir Ecevit
að sannfæra stuðningsmenn sína
um að MHP sé nýr og breyttur
flokkur.
Ecevit lét hafa eftir sér í gær að
svo virtist sem Bahceli hefði tekist
að endurnýja MHP, og að flokkur-
inn væri ekki lengur jafn róttækur
og áður fyrr. A sama hátt sagði Ba-
hceli í samtali við tyrkneskt dag-
blað að Ecevit væri „vel metinn
stjórnmálamaður, með mikla
reynslu af tyrkneskum stjórnmál-
um“. Gat dagblaðið Radikal ekki á
sér setið og birti flennistóra fyrir-
sögn: „MHP og DSP daðra hvor
við annan“.
Gengi hlutabréfa
tekur kipp að nýju
Búið var að telja meirihluta at-
kvæðanna í gær og gáfu bráða-
birgðatölur til kynna að DSP-
flokkur Ecevits myndi fá 22,2% at-
kvæða, eða 133 sæti á tyrkneska
þinginu, þar sem 550 þingmenn
sitja. MHP, sem ekki tókst að fá
tilskilin 10% í kosningunum 1995,
virtist líklegur til að tryggja sér
130 þingsæti nú, en flokkurinn
fékk 18,2% greiddra atkvæða.
Bahceh virtist í gær útiloka sam-
starf við Islamska dyggðaflokkinn,
sem deilir ýmsum trúarlegum og
menningartengdum gildum með
MHP, og önduðu viðskiptajöfrar
léttar enda hefði slíkt stjórnarsam-
starf verið sannkölluð martröð í
augum málsmetandi manna á fjár-
málamörkuðum. „Mér sýnist sem
Dyggðaflokkurinn ætti að eyða
nokki-um tíma í stjórnarandstöðu,"
sagði Bahceli. íslamski dyggða-
flokkurinn fær sennilega um 112
þingsæti, fékk 15,1% fylgi í kosn-
ingunum.
Urslit kosninganna höfðu á
mánudag valdið svo miklum titr-
ingi á tyrkneskum fjármálamörk-
uðum aé gepgi hlutabréfa féll um
allt að 6%. I gær ollu hófsöm um-
mæli Bahcelis og Ecevits því hins
vegar að gengi hækkaði á nýjan
leik, og voru fjármálasérfræðingar
öllu glaðari í bragði en ella.
Þriggja flokka stjóm?
Sérfræðingar telja aðild Föður-
landsflokks (ANAP) Mesuts
Yilmaz að stjórnarsamstarfi mikil-
væga eigi að takast að hrinda efna-
hagsumbótum í framkvæmd í land-
inu og leiddu menn að því líkur í
gær að ANAP, sem fær líklega um
88 þingsæti, en flokkurinn fékk
13,4% greiddra atkvæða í kosning-
unum, kæmi að þriggja flokka
samsteypustjórn.
Ekki voni allir sannfærðir um að
þetta yrði raunin. Einn frétta-
skýrenda benti á að Bahceli gerði
sér vel grein íyrir þvi að ef Ecevit
mistækist, sem leiðtoga stærsta
flokksins, að mynda ríkisstjórn
fengi Bahceli væntanlega stjórnar-
myndunarumboðið næst. „Og ef þú
værir Bahceli, hvort vildirðu frekar
verða forsætisráðherra eða aðstoð-
arforsætisráðherra?"
SULEYMAN Demirel, forseti
Tyrklands, átti í gær klukku-
stundar viðdvöl hér á landi
ásamt föruneyti hans, en ferð
þeirra var heitið til Washington
þar sem forsetinn verður við-
staddur hátíðarfund Atlants-
hafsbandalagsins sem hefst um
næstu helgi. Demirel hefur áð-
ur komið til Islands, en það var
fyrir 50 árum er hann var á leið
til Bandaríkjanna í framhalds-
nám.
I samtali við Sverri Hauk
Gunnlaugsson, ráðuneytissíjóra
í utanríkisráðuneytinu, kom í
ljós að Demirel þekkti vel til
jarðhitamála Islendinga og
verkefna íslendinga í Tyrklandi.
Að sögn Sverris ræddu þeir um
ýmis mál og spurði forsetinn
mikið út í Island.
Þingkosningar stóðu yfir í
Tyrklandi um helgina og eru
endanleg úrslit þeirra ekki
kunn. Allt bendir þó til að Lýð-
ræðislegi vinstriflokkurinn
(DSP), flokkur Bulent Ecevits,
forsætisráðherra Tyrklands
hljóti mest fylgi en flokkur
hægrisinnaðra þjóðernissinna,
Þjóðernissinnaði framtaksflokk-
urinn (MHP) fylgir fast á eftir.
Er fylgi MHP mun meira en
inenn höfðu búist við fyrir kosn-
ingar.
Spurður um framgang kosn-
inganna sagði Demirel þær hafa
farið vel fram. „Þetta voru góð-
ar kosningar, þær fóru friðsam-
lega fram og um 35 milljónir
manna skiluðu sér á kjörstað.
Nú bíðum við lokaúrslitanna og
er þau liggja fyrir munum við
hefjast handa við að mynda nýja
ríkiss1jórn.“
Demirel vildi ekkert segja um
hvers konar samsteypustjórn
honum þætti vænlegust en lét í
ljós ánægju sína yfir þeirri
stjórn sem nú er við völd.
Um mikið fylgi við flokk þjóð-
ernissinna, MHD, vildi Demirel
lítið tjá sig en sagði framboð
flokksins löglegt eins og ann-
arra fiokka sem væru í framboði
og að því leyti stæðu þeir allir
jafnt að vígi.
síx ss s fctA3 • Knwjpyt
Kauptu þér pakKa3 0
af Sœlkerapoppi og þú
fœrð annan í kaupbœti!
StTTÓÞVNSDSSts
/ Kauptu þér pakka
af Chips Deluxe og þú
Fœrð annan í kaupbœti!
|^Kauptu þér 907g^
af Hunts tómatsósu
og þú fœrð önnur
9,07gjr:kau pb œ t i!
-—
KETCHUf
KETCHUP