Morgunblaðið - 21.04.1999, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Lífæðar 1999 opnuð
á Sauðárkróki
MYNDLISTAR- og Ijóðasýn-
ingin Lífæðar verður opnuð á
Heilbrigðisstofnun Sauðár-
króks á morgun, föstudag, kl.
15. Sýningunni var hleypt af
stokkunum á Landspitalanum
og kemur nú frá Sjúkrahúsi
Isafjarðar.
Tólf myndlistarmenn sýna
samtals þrjátíu og íjögur
myndverk og tólf ljóðskáld
birta átján ljóð.
Listamennimir em Bragi
Ásgeirsson, Eggert Péturs-
son, Georg Guðni, Haraldur
Jónsson, Helgi Þorgils Frið-
jónsson, Hreinn Friðfinnsson,
Hulda Hákon, Ivar Brynjólfs-
son, Kristján Davíðsson, Ósk
Vilhjálmsdóttir, Ragnheiður
Jónsdóttir og Tumi Magnús-
son.
Ljóðskáldin era: Bragi
Ólafsson, Gyrðir Eliasson,
Hannes Pétursson, Ingibjörg
Haraldsdóttir, ísak Harðar-
son, Kristín Ómarsdóttir, Sig-
urður Pálsson, Sjón, Matthías
Johannessen, Megas, Vilborg
Dagbjartsdóttir og Þorsteinn
frá Hamri.
Sýningunni á Sauðárkróki
lýkur 17. maí, en þaðan held-
ur hún til Fjórðungssjúkra-
húss Akureyrar.
Það er Islenska menningar-
samsteypan art.is sem gengst
fyrir sýningunni í boði Glaxo
Wellcome á Islandi.
EITT verkanna á sýningunni er eftir Huldu Hákon.
Vertu með fyrir kl. 12 í dag
Dagskrárblað Morgunblaðsins inniheldur dagskrá allra sjónvarps-
og útvarpsstöðva í hálfan mánuð. í blaðinu er einnig fjölmargt annað
efni, viðtöl, greinar, kvikmyndadómar, krossgáta og margt annað
fróðlegt og skemmtilegt efni sem fær fólk til að opna blaðið aftur
og aftur í hálfan mánuð.
Blaðinu er dreift með Morgunblaðinu og víðar um land allt.
Skilafrestur auglýsingapantana í næsta blað er til kl. 12 í dag
miðvikudaginn 21. apríl.
Karlakór-
inn Þrestir
syngur á
Akranesi
TÓNLEIKAR verða með Karla-
kórnum Þröstum úr Hafnarfirði í
sal Grundaskóla Akraness á morg-
un, sumardaginn fyrsta, kl. 20.30.
Stjómandi er Jón Kristinn Cortes.
Á efnisskránni eru íslensk og er-
lend lög m.a. þrjú lög eftir Jón Ás-
geirsson.
I Karlakómum Þröstum eru 60
söngvarar, og er kórinn elsti karla-
kór landsins, stofnaður 1912 af
Friðriki Bjamasyni. Kórinn hefur
haldið tónleika og sungið fyrii’
Hafnfirðinga í 87 ár og fékk verð-
laun Menningarsjóðs Hafnarborg-
ar á síðastliðnu vori.
Það er Tónlistarfélag Akraness
sem stendur fyrir tónleikunum
sem era síðustu áskriftartónleik-
amir á þessu starfsári.
6-5AV.
SJÁLFSMYND Gunnars S.
Magnússonar.
GSM-
sýning
í Listhúsi
Ófeigs
GUNNAR S. Magnússon opnar
GSM-sýningu í Listhúsi Ófeigs,
Skólavörðustíg 5, í dag, miðviku-
dag.
Á sýningunni kynnir Gunnar
myndamöppu sína. Myndirnar eru
silkiþrykktar og frá löngu tímabili á
ferli hans.
Gunnar stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskólann og Mynd-
listarskóla Reykjavíkur ásamt
framhaldsnámi við Statens kun-
stakademi í Ósló. Gunnar kenndi
við Myndlistarskólann og Æfinga-
deild Kennaraháskóla íslands.
Verk Gunnars S. Magnússonar má
sjá víða í listasöfnum landsins.
Sýningin stendur til 12. maí og er
opin á verslunartíma.