Morgunblaðið - 21.04.1999, Page 76
Drögum næst
27: apríl
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
Heimavörn
Sími: 533 5000
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMllllÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Erfíðleikar við lestur
112 manns
bíða eftir
greiningu
LESTRARMIÐSTÖÐ Kennara-
háskóla Islands hefur hvergi
nærri getað annað eftirspurn á
greiningu á lestrarerfiðleikum. Nú
eru 112 manns á biðlista og hefur
verið hætt að taka niður nöfn
þeirra sem óska eftir þjónustunni.
Að sögn Rannveigar Lund, for-
stöðumanns Lestrarmiðstöðvar,
er ekki útlit fyrir að búið verði að
greina þá sem nú þegar eru skráð-
ir fyrr en í október nk. Af þessum
112 manns eru 60 grunnskólanem-
endur, 45 framhaldsskólanemend-
ur og sjö fullorðnir einstaklingar.
Að sögn Sölva Sveinssonar,
skólameistara Fjölbrautaskólans
við Ármúla (FÁ), er vandamál
dyslexíunema ekki einungis það,
að þurfa að bíða eftir greiningu,
heldur segir hann að fátt sé um
úrræði innan framhaldsskólanna
þegar nemendur hafa fengið
greiningu.
Bóluefni
afhent í
Borgarfirði
BÆNDUR í Borgarfirði tóku í
gær við bóluefni vegna afbrigðis
lungnapestar sem áður er óþekkt
hérlendis og komið er upp í Borg-
arfirði. Á fundi með Halldóri Run-
ólfssyni yfirdýralækni og Sigurði
Sigurðarsyni, dýralækni á Keld-
um, samþykktu bændur með öllum
greiddum atkvæðum að bólusetja
fé sitt sem fyrst til þess að stemma
stigu við útbreiðslu pestarinnar.
Pestin hefur til þessa aðeins fund-
ist á einum bæ í Borgarfirði, þar
sem átta kindur hafa drepist. Búið
er að bólusetja allt fé á bænum.
Gunnar Örn Guðmundsson, hér-
aðsdýralæknir í Borgarfjarðarum-
dæmi, og Hildur Edda Þórarins-
dóttir dýralæknir afhentu bænd-
um bóluefni eftir fundinn í gær.
■ Skjót viðbrögð/4
Samningur gerður milli íslands og Bandaríkjanna um aukna samvinnu
Nýtt varðskip komi einnig
að notum fyrir varnarliðið
RIKISSTJORNIN samþykkti í
gær að gerður verði samningur við
bandarísk stjórnvöld um aukna
samvinnu milli Landhelgisgæsl-
unnar og vai-narliðsins. Fyrir
liggja drög að samkomulagi milli
þjóðanna þar sem gert er ráð fyrir
að nýtt varðskip Landhelgisgæsl-
unnar verði hannað og byggt til að
fullnægja þörfum Gæslunnar og
vamarliðsins við samstai-f þeirra
við leit, björgun, eftirlit á sjó og
vamaraðgerðir, bæði við æfingar
og raunvemlegar aðstæður.
Samkvæmt minnisblaði sem
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra lagði fram á ríkisstjóraar-
fundi í gær er gert ráð fyrir því í
samningnum að stjórnvöld í
Bandaríkjunum verði íslenskum
stjómvöldum innan handar varð-
andi ýmsar tæknilegar útfærslur á
varðskipinu, tækjabúnað og þjón-
ustu.
Þjónar vel hagsmunum
vai-narsamstarfsins
Islensk stjórnvöld munu sjá til
þess að varðskipið sé til taks við
sameiginleg verkefni sem þjóðim-
ar standa að. Ennfremur er kveðið
á um að smíði skipsins skuli falin
aðilum er íslensk yfirvöld geti haft
fullnægjandi eftirlit með.
Samstarf Landhelgisgæslunnar
og vamarliðsins byggist á sam-
komulagi frá 1989 en talið er ljóst
að verulegt svigrúm skapist til að
auka samstarfið verði nýtt varð-
skip hannað og byggt með tilliti til
þess.
Ríkisstjómin samþykkti á fundi
23. mars sl. að leita samninga við
bandarísk stjórnvöld um samstarf
þjóðanna um smíði nýja varðskips-
ins fyrir Landhelgisgæsluna. Hef-
ur vamarmálaskrifstofan átt sam-
ráð við fjármálaráðuneytið, dóms-
málaráðuneytið og Landhelgis-
gæsluna í umboði þess um málið og
hefur auk þess átt allnokkra fundi
með fulltrúum bandarískra yfir-
valda.
Fyrir liggur að Bandaríkjamenn
vilja ganga til slíks aukins sam-
starfs við Islendinga og að báðir
aðilar telja það þjóna mjög vel
hagsmunum vamarsamstarfsins,
að því er fram kemur á minnisblaði
utanríkisráðherra.
■ Áhugi innan/35
Könnun Bókasambands Islands á lestn fullorðinna
Tvöfalt fleiri en
áður lesa aldrei bók
NÝ könnun Bókasambands ís-
lands leiðir í ljós að þeim fjölgar
sem ekki lesa bækur í frístundum.
Hlutfall þeirra sem ekki lesa
bækur í frístundum sínum sam-
kvæmt þessu rúmlega tvöfaldast
á ellefu árum því í lífskjarakönn-
un sem gerð var árið 1988 kváð-
ust 7% svarenda ekki hafa lesið
neina bók á heilu ári.
Árið 1988 sagðist helmingur
svarenda lesa 10 bækur eða fleiri á
12 mánuðum, en aðeins þriðjungur
merkti við yfir tug lesinna bóka
nú. Um 15% svarenda í könnun-
inni nú sögðust ekki hafa lesið bók
í heilt ár. Könnunin var gerð með-
al einstaklinga 18 ára og eldri.
Bókin stendur sig tiltölulega
vel í síharðnandi samkeppni
Bjöm Bjarnason menntamála-
ráðherra taldi niðurstöðumar
ekki gefa ástæðu til að örvænta
þar sem bókin stæði sig tiltölu-
lega vel í síharðnandi samkeppni
við aðra miðla á borð við kvik-
myndir, sjónvarp og Netið. Hann
ítrekaði hins vegar sögulegt hlut-
verk bókmennta á Islandi og
sagði lýðræðishefð og pólitíska
tilveru íslensku þjóðarinnar að
stórum hluta byggjast á heimild-
um og upplýsingum sem fengnar
væru úr bókum.
„Það er vissulega hættulegt
sögu- og samtímavitund þjóðar-
innar ef menn hyggjast ýta slík-
um staðreyndum til hliðar. Við
megum aldrei sofna á verðinum,
því bókin hefur jafnan verið meg-
inundirstaðan í þjóðlífi okkar,“
sagði Björn.
■ Ekki sjálfgefið/38
Morgunblaðið/Halldór
Kvöldverður í Þingvallabæ
GUNTIS Ulmanis, forseti Lett-
lands, og eiginkona hans Aina
Ulmane; Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Islands, Davíð Oddsson for-
sætisráðherra og Ástríður Thor-
arensen, eiginkona hans, fyrir ut-
an Þingvallabæinn í gærkvöld.
Forsætisráðherrahjónin buðu til
kvöldverðar í Þingvallabæ til heið-
urs forsetahjónum Lettlands.
■ Forseti Lettlands/10