Morgunblaðið - 12.05.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1999 29
Söng-
skemmtun í
Kirkjuhvoli
KÓR SFR og Starfsmannakór
Orkuveitu Reykjavíkur halda
sameiginlega tónleika í Kirkju-
hvoli í Garðabæ í kvöld, mið-
vikudag, kl. 20.30. Tónleikarnir
eru uppskera vetrarstarfsins
og efnisskráin samanstendur
af ýmsum lögum sem mörg
hver tengjast sumarkomunni.
Stjómandi kórs SFR er Páll
Helgason. Stjórnandi kórs
Orkuveitu Reykjavíkur er
Svana Víkingsdóttir, píanóleik-
ari kórsins er Þóra Fríða Sæ-
mundsdóttir og einsöngvari er
Rúnar Einarsson.
Aðgangur er ókeypis.
Tónleikar
Tónlistarskóla
Garðabæjar
TÓNLEIKAR Tónlistarskóla
Garðabæjar verða haldnir í
Kirkjuhvoli, safnaðarheimili
Vídalínskirkju. Næstu tónleikar
verða í kvöld, miðvikudags-
kvöld, kl. 18.30. Flutt verður
blokkflaututónlist írá barokk-
tímanum, píanó- og fiðlunem-
endur koma fram svo og söng-
nemendur Margrétar Óðins-
dóttur. Að lokum leikur
strengjasveit skólans, undir
stjóm Unnar Maríu Ingólfs-
dóttur, m.a. Leikfangasinfóníu
Haydns.
Fjórðu tónleikamir verða
föstudaginn 14. maí kl. 19.
Leikið verður á píanó, sembal,
fiðlur og blásturshljóðfæri.
Blásarasveit skólans og kamm-
erblásarasveit leika undir
stjóm Edwards Frederiksens.
Fimmtu tónleikamir verða
miðvikudaginn 19. maí kl. 19.
Þar koma fram blásarasveitir
yngri nemenda ásamt nemend-
um á píanó, gítar og blásturs-
hljóðfæri.
Síðustu tónleikamir verða
svo fóstudaginn 21. maí kl. 20
en þá koma fram nemendur
Snæbjargar Snæbjamardóttur.
LISTIR
Útgáfa diskasafns með fremstu píanóleikurum aldarinnar
Eitt af stærstu verkefnum
sem ráðist hefur verið í
IMECALUX
SÁ SIÐUR er ekki alveg nýr af
nálinni í tónlistarheiminum að út-
gáfufyrirtæki taki sig til og setji á
markað hljómdiska er eiga að inni-
halda allt það besta sem frá til-
teknum listamanni hefur komið.
Oftar en ekki er verið að reyna að
tryggja eins mikinn gróða og
mögulegt er og því er það ekki
alltaf hinn listræni metnaður sem
býr að baki slíkum útgáfum. Ut-
gáfa klassískrar deildar Phihps-út-
gáfufyrirtækisins á diskasafni, sem
hlotið hefur heitið „Frábærir pí-
anóleikarar tuttugustu aldarinn-
ar“, getur hins vegar ekki tahst
annað en metnaðarfull og sjálfir
segja talsmenn Philips að um sé að
ræða „stærsta verkefni sem út-
gáfufyrirtæki hefur nokkurn tíma
ráðist í“.
Það sem hins vegar gerir útgáf-
una ekki síst merkilega er sú stað-
reynd að Philips fékk við þetta
verkefni til liðs við sig öll hin stóm
útgáfufyrirtækin, og einnig sum
þeirra minni, í því skyni að gera
diskasafnið sannarlega eins mark-
tækt yfirht yfir helstu píanóleikara
aldarinnar og hugsanlegt er. Sam-
vinna sem þessi er nánast óþekkt
og skapar verkefninu talsverða
sérstöðu.
Fyrstu hljómdiskamir í safninu
komu út seint á síðasta ári og alls
verða um 200 diska að ræða í safn-
inu. Tveir diskar em í hverri útgef-
inni einingu og telur hver tveggja
diska eining um 150 mínútur af
tónhst. Samanlagt er um að ræða í
kringum fimmtán þúsund mínútur
af tónhst með mörgum af fremstu
hstamönnum aldarinnar.
Sjö snillingum gerð
sérstök skil
Sextíu og níu píanóleikuram em
gerð sérstök skil í safninu og bein-
ist athyglin sérstaklega að sjö mik-
ilhæfum hstamönnum, þeim
Claudio Arrau, Alfred Brendel,
Emil Gilels, Vladimir Horowitz,
Wilhelm Kempff, Sviatoslav Richt-
er og Arthur Rubinstein. Ekki að-
eins era þeir taldir meðal fremstu
listamanna á sínu sviði heldur er
jafnframt til mikið af uppteknu efni
með þeim, upptökur sem standast
þær gæðakröfur sem Tom Deacon,
útgáfustjóri verkefnisins, setti í
upphafi.
Deacon segir hins vegar í sam-
tah við International Herald Tribu-
ne að því miður hafi ekki verið
hægt að hafa listamenn eins og þau
Moriz Rosenthal, Guiomar Novaes
og Ginu Bachauer með í diskasafn-
inu, einfaldlega vegna þess að gæði
þeirra upptakna, sem til era með
leik þeiira, vora ekki nægilega
mikil, eða vegna þess að listafólkið
var ekki lengur upp á sitt besta
þegar það loksins fór í hljóðver.
Listamennirnir era annars af
ýmsum toga og frá ólíkum löndum.
Ignacy Jan Paderewski er elstur
þeirra listamanna sem getur að
heyra í þessu diskasafni. Pader-
ewski var fæddur 1860 og þótt sér-
fræðingar séu víst ekki á eitt sáttir
um snilld Paderewskis var frægð
hans slík að Tenórarnir þrír hefðu
fallið í skuggann. Yngstur er Rúss-
inn Jevgení Kissin, sem fæddur er
1971. Þótt hans verði sjálfsagt get-
ið enn frekar þegar næsta öld er
gerð upp í tónlistarsögunni fannst
verkstjóram útgáfunnar fyllsta
ástæða til að gera Kissin skil nú,
slíkum hæfileikum er Rússinn tal-
inn búa yfir.
Einstakt safn
Þegar hafist var handa við mark-
aðssetningu diskasafnsins í Frakk-
landi sáust menn ekki fylhlega fyr-
ir og í einni auglýsingu var fullyrt
að hér væri um að ræða safn með
„öllum bestu píanóleikuram aldar-
innar“. Deacon vill ekki ganga svo
langt og bendir á að menn séu vita-
skuld ekki ahtaf sammála um það
hver eigi heima í slíkri samantekt,
og hver ekki. Á hinn bóginn segist
Deacon stoltur af árangrinum. Hér
hafi tekist að safna saman öllu því
besta með mörgum af þeim bestu
og fullyrðir Deacon að ekki hafi
komið upp neitt ósætti við val lista-
manna.
Verkefnaval píanóleikaranna er
af ýmsum toga og jafnframt er að
finna ýmis fágæt verk, eða fágætan
flutning sem gefur diskasafninu
enn meira gildi. Samspil Lyubov
Braks og Marks Taimanovs á
tveimur svítum fyrir tvö píanó eftir
Rachmaninoff er í sérstöku uppá-
haldi hjá Deacon en þótt þau Bruk
og Taimanov, sem bæði vora fædd
1926, séu ekki meðal þekktustu
hstamanna aldarinnar segir
Deacon samleik þeirra engu líkan.
Ýmislegt annað hnossgæti er að
finna í safninu og segir í frétt
International Herald Tribune að
sannarlega gefist fólki tækifæri,
með útgáfu þessa safns hljómdiska,
til að kynna sér píanóleik margra
af fremstu listamönnum aldarinn-
HEFURÞ
Bjóðum mjög hentuga fataskápa.
Aðeins vönduð vara ur gæðastáli.
Mjög gott verð!
hjénusta ■ Þekkirtg»rádgjöf • Aratuga reynsla
MECALUX
gæði fýrir gott verð
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN .
.. UIVÍDWU/J- nLILUVLnjLUIV „ fgmx
trazsnsur&hm
SUNDABORG 1 ' SlMI S68-3300
0FNÆMISDAGUR
í LYFJU LÁGMÚLA
Lyfjafræðingur verður í dag í
lyfju Lágmúla milli kl. 13-18
og svarar spummgum um
ofnæmi og ofnæmislyf.
Kr. 495-
Lyfja Ligmúla 5, sími 533 2300
LYFJA
Lyf á lágmarksverðl
NÓATÚN
PYLSUPARTY
20 pylsur,
10 Myllu pylsubrauð,
III. Heinz tómatsósa
og 1 brúsi SS sinnep
599.-
NIOATUN
NÓATÚN117 • R0FABÆ 39 • LAUGAVEG1116 • HAMRABORG 14 KÓP. * FURUGRUND 3, KÓP.
ÞVERH0LTI 6, M0S. • JL-HÚSI VESTUR f BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68
HEIMASÍÐA NÓATÚNS WWW.nOatUll.iS