Morgunblaðið - 12.05.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1999 25
ERLENT
Ráðherrafundur um framtíð Vestur-Evrdpusambandsins
Fyrstu skrefin stigin í
átt að samruna við ESB
Bremen. AFP.
UTANRÍKIS- og varnarmálaráð-
herrar 21 Evrópuríkis, sem með
einum eða öðrum hætti eiga aðild
að Vestur-Evrópusambandinu
(VES), tóku á tveggja daga ráð-
stefnu sem lauk í Bremen í gær
fyrsta skrefíð í átt að sameiningu
VES við Evrópusambandið, ESB.
Fyrstur til að hringja útfarar-
bjöllum VES, sem stofnað var sem
vamarbandalag V-Evrópurílq'a ár-
ið 1948, var Rudolf Scharping,
vamarmálaráðherra Þýzkalands,
sem hvatti í ávarpi við upphaf ráð-
herrafundarins á mánudag til þess
að VES, sem ísland er sem NATO-
ríki aukaaðiii að, verði sameinað
ESB fyrir árslok 2000. Hann sagði
samruna stofnananna tveggja
nauðsynlegan til að gera evrópska
stefnumótun á sviði öryggis- og
vamarmála skilvirkari, en varaði
við „gagnslausri tvöföldun“ á hlut-
verkum sem VES deilir nú þegar
með NATO, og á vamarmálakerf-
um sem nú þegar em fyrir hendi í
hverju aðildarríki fyrir sig. Verka-
skiptingin verði að vera skýr.
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýzkalands, sagði fram-
kvæmdaatriði stofnanalegs sam-
mna VES og ESB verða tekin til
umræðu á leiðtogafundi ESB sem
fram fer í Köln í byrjun júní.
Jean-Pol Poncelot, vamarmála-
ráðherra Belgíu, sagðist sammála
því að þessi fundur í Bremen
markaði endalok VES, en sagði
sammnaferlið taka tíma vegna
þess hve „mörg og flókin viðfangs-
efni“ þurfi að leysa í því sambandi.
Scharping sagði VES ekki endi-
lega munu hverfa af sjónarsviðinu
iyrir árslok 2000, en sagði það geta
gagnazt sem eins konar „brú“ fyrir
NATO-ríki sem sækjast eftir aðild
að ESB, sem og fyrir „lönd sem
ekki tilheyra NATO en vilja gjam-
an eiga gott samstarf við það“.
Athygli vakin á
hagsmunum Islands
I ávarpi sem fastafulltrúi Islands
hjá VES, Gunnar Pálsson, flutti á
fundinum í fjarvem utanríkisráð-
herra, var áréttuð sú ósk íslenzkra
stjórnvalda að í frekari þróun evr-
ópskrar öryggis- og varnarmála-
stefnu, m.a. með hugsanlegum
breytingum á stöðu VES gagnvart
ESB, verði gætt að núverandi rétt-
indum og skyldum aukaaðildar-
ríkja VES. í því þuifi að vera sam-
ræmi á milli niðurstaðna leiðtoga-
fundar NATO í Washington og fyr-
irhugaðs leiðtogafundar ESB í
Köln.
Aðeins tíu ESB-ríki era fullgildir
aðildar að VES. Hlutlausu ríkin
Finnland, Austurríki, Irland og Sví-
þjóð em áheymaraðilar, sem og
Danmörk, sem er jafnframt í
NATO. NATO-ríkin Tyrkland, Nor-
egur, ísland, Pólland, Tékkland og
Ungverjaland em einnig aukaaðilar.
Alls hefur VES 28 ríki innan sinna
vébanda, ýmist sem fullgilda aðila,
aukaaðila, áheymaraðila eða sam-
starfsaðila („associate partners").
forðast
pínlega gjöf
GJAFAKORTIN
FÁST
í KONFEKTBÚÐINNI
Opið: mán.- fim. 10.00 -18.30
fös. 10.00-19.00
lau. 10.00-18.00