Morgunblaðið - 09.06.1999, Qupperneq 1
127. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Skýstrokkur
Qlíklegt að Kínveijar beiti neitunarvaldi gegn samþykkt G-8 um Kosovo
Fundur NATO og Júgóslava um
brottflutning stóð fram á nótt
Washington, Kölji, Sameinudu þjóðunum, Belgrad, Moskvu. Reuters, AP.
BANDARISKA varnarmálaráðuneytið greindi frá því í gær-
kvöldi að sjá mætti merki um að serbneskar hersveitir í Kosovo
væru að undirbúa brottför frá héraðinu. Þó væru sveitirnar enn
ekki komnar af stað. „Það er ýmislegt sem bendir til þess að
Serbar séu að undirbúa brottfór,“ sagði Kenneth Bacon, talsmað-
ur ráðuneytisins. Herflugvélar Atlantshafsbandalagsins (NATO)
héldu áfram árásum á skotmörk í Serbíu í gær.
í Islendinga-
byggðum
ÖFLUGUR skýstrokkur gekk yfir
Islendingabyggðir á svæðinu um-
hverfis smábæinn Mountain í
Norður-Dakótaríki í Bandaríkjun-
um síðdegis á sunnudag. Morgun-
blaðið ræddi í gær við Joan Olson,
íbúa á svæðinu af íslenskum ætt-
um, sem hefur farið á slóðir ský-
strokksins og skoðað verksum-
merki. Sagði hún að aðkoman
hefði verið hræðileg, en fregnir
hafa borist af því að íbúðar- og úti-
hús bænda hafi gereyðilagst.
Mikil mildi þykir að eiliheimilið
Borg, sem nefnt er eftir Hótel
Borg við Austurvöll, skyldi sleppa,
en strokkurinn fór hjá örskammt
þar frá.
■ Miklar skemmdir/22
The Grand Forks Herald
UNGUR maður reynir að bjarga því sem bjargað verður úr hjólhýsi ömmu sinnar í bænum Mountain.
Bandaríkin segja merki um
að Serbar undirbúi brottför
í gærkvöldi áttu yfirmenn her-
sveita NATO og júgóslavneskir
hershöfðingjar fund um hvemig
staðið skuli að brottflutningi júgó-
slavneskra hersveita frá Kosovo.
Fór fundurinn fram í Kumanovo-
herstöð NATO í Makedóníu. Bacon
sagði að NATO vænti þess að Serbar
hæfu brottflutning liðs síns áður en
fundinum í Kumanovo lyki. NATO
myndi halda loftárásum áfram uns
staðfest væri að brottför væri hafin.
Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN
hafði í gærkvöldi eftir heimilda-
mönnum að helsti ásteytingarsteinn-
inn í Kumanovo væri hversu fljótt
hersveitir NATO myndu halda inn í
Kosovo eftir að Serbar hæfu brottför
sína.
Um hálfeittleytið í nótt stóð fund-
urinn enn, og fréttaskýrendur kváðu
það ekki góðs vita hve hann hefði
dregist á langinn.
Samkomulag G-8
Utanríkisráðherrar sjö helstu iðn-
ríkja heims, G-7, og Rússa komust í
gær að samkomulagi um drög að
ályktun er lögð var fyrir öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um friðar-
gæslu í Kosovo. Voru drögin rædd á
fundi ráðsins í gær, en verða ekki
samþykkt fyrr en í fyrsta lagi í dag,
að því er diplómatar sögðu í gær.
Kínverjar kváðust hins vegar
„eiga í erfiðleikum" með nokkur lyk-
ilatriði samningsdi’aganna. Þeir
kváðust standa fast á þeirri kröfu
sinni, að árásum á Serbíu yrði hætt
áður en serbneskar hersveitir hyrfi
frá Kosovo.
Bandarískir embættismenn sögðu
að sér hefði þó skilist, að Kínverjar
myndu ekki koma í veg fyrir að ör-
yggisráðið gæti samþykkt ályktun-
ina. Kínverjar, sem eiga fastafulitrúa
í ráðinu, hafa neitunarvald þar. Þeir
eru eina fastaríkið sem ekki tók þátt
í að semja ályktunardrögin.
Samkvæmt samkomulaginu, sem
G-8-hópurinn komst að í gær, verð-
ur öryggisráðið að heimila alþjóð-
legt herlið í Kosovo og borgai’alega
stjóm er send yrði til héraðsins,
samkvæmt forræði SÞ, til þess að
tryggja að landflótta íbúar, sem
taldir eru vera um 860 þúsund, geti
snúið heim á ný. Júgóslavnesk
stjómvöld hafa þegar sæst á áætl-
unina.
Talbott til Moskvu
Vamarmálaráðherra Rússlands,
Igor Sergeijev, sagði yfirmenn hers-
ins vera að setja saman nokkrar
áætlanir, er til greina kæmu, um
þátttöku Rússa í væntanlegri friðar-
gæslu. Taldi hann að allt að 10 þús-
und rússneskir gæsluliðar yrðu
sendir til Kosovo og yrðu ekki undir
stjóm NATO.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, ræddi við Borís Jeltsín Rúss-
landsforseta í síma í gær og sam-
þykkti Clinton að rússnesku gæslu-
liðamir lytu ekki stjóm NATO. Þá
samþykktu forsetamir að Strobe
Talbott, aðstoðamtanríkisráðherra
Bandaríkjanna, færi til Moskvu í dag
til þess að ræða nánar um væntan-
lega þátttöku Rússa í fríðargæsl-
unni. I símtalinu lýsti Rússlandsfor-
seti sig samþykkan ályktunardrög-
unum, en ítrekaði andstöðu rúss-
neskra stjómvalda við árásir NATO
á Serbíu.
Lionel Jospin, utanríkisráðherra
Frakka, sagði í gær, að friðargæslu-
liði í Kosovo yrði, er til kæmi, skipt
niður á fimm fjölþjóðleg svæði og
yrði hvert þeirra undir stjóm og á
ábyrgð aðildarríkis í NATO.
Stjórnarmyndunarviðræður í fsrael
Meretz setur
Barak í vanda
Jerúsalem. AFP.
VINSTRIFLOKKURINN Mer-
etz, sem lengi hefur verið hallur
undir Verkamannaflokkinn í Isra-
el, hefur óvænt orðið helsta hindr-
unin fyrir því að Ehud Barak, ný-
kjörinn forsætisráðherra, geti
myndað sterka meirihlutastjóm.
Meretz-flokkurinn, sem hefur
lengi verið hlynntur friðarviðræð-
unum við araba, hefur hafnað
áformum Baraks um að mynda
stjóm með Shas, flokki heittrúaðra
gyðinga, sem hefur einnig stutt
friðarviðræðumar.
Meretz kveðst ekki lengur geta
lagt blessun sína yfir aukin áhrif
flokka heittrúaðra gyðinga í isra-
elskum stjómmálum og allra síst
Shas-flokksins eftir að leiðtogi
hans, Arieh Deri, var dæmdur í
fangelsi fyrir spillingu í apríl.
Eftir áralangt samstarf við
Shas-flokkinn í fyrri stjórnum
Verkamannaflokksins hefur Mer-
etz tekið þá mótsagnakenndu af-
stöðu að vilja frekar mynda stjóm
með hægriflokknum Likud þótt
það kunni að torvelda friðarsamn-
inga við araba.
Amnon Rubinstein, þingmaður
Meretz, sagði að það væri óhugs-
andi að mynda stjórn með Shas
meðan flokkurinn væri undir
stjórn dæmds afbrotamanns og
virti ekki úrskurði veraldlegra
dómstóla landsins. Hann vísaði þar
til mótmæla Shas vegna nýlegra
dómsúrskurða þar sem forréttind-
um heittrúaðra gyðinga var hafn-
að.
■ Olmert býður sig fram/19
Talning í
Indónesíu
tafsöm
Jakarta. Reuters, AFP.
B.J. HABIBIE, forseti Indónesíu,
spáði því í gær að enginn flokkur
myndi ná að tryggja sér meiri-
hluta á indónesíska þinginu, en
fyrstu lýðræðislegu kosningarn-
ar í landinu fóru fram á mánu-
dag. Höfðu talsmenn stjórnar-
flokksins, Golkar-flokks Ha-
bibies, fyrr um daginn sagt að
þeir myndu virða vilja almenn-
ings og að liðsmenn Golkar væru
fyllilega reiðubúnir til að fara í
stj órnarandstöðu.
Þrátt fyrir spádóma Habibies
kváðust talsmenn stærsta stjóm-
arandstöðuflokksins, PDI-P-
flokks Megawatis Sukarnoputris,
sannfærðir um að PDI-P myndi
tryggja sér 40% atkvæða, eða
nægilega stórt hlutfall til að
flokkurinn geti ráðið ríkjum á
indónesíska þinginu.
Fréttaskýrendur sögðu hins
vegar óvarlegt að treysta þeim
AP
DAGBLAÐ í Jakarta lýsti í gær
yfir sigri Megawati Sukamo-
putri og flokks hennar.
tölum, sem birtar höfðu verið í
gær, því talning atkvæða gekk
afar hægt í gær og heilum sólar-
hring eftir að kjörstöðum var
Iokað var einungis búið að telja
um tvö prósent allra atkvæða.
Kasmirdeilan
Boða
viðræður
Dras, Nýju Delhí, Islamabad. Reuters, AFP.
STJÓRNVÖLD í Pakistan og Ind-
landi urðu í gær ásátt um að hefja
viðræður um hvemig draga megi úr
spennu í samskiptum ríkjanna
vegna Kasmír-deilunnar, sem bloss-
aði nýlega upp af fullum krafti.
Pakistan hafði stungið upp á við-
ræðum á mánudag en Indverjar þá
sagt að tímasetning fyrirhugaðra
viðræðna hentaði þeim ekki. I gær
sögðu þeir hins vegar að Sartaj
Aziz, utanríkisráðherra Pakistans,
væri velkomið að koma til Nýju
Delhí næstkomandi laugardag til að
eiga viðræður við indversk stjórn-
völd og tilkynntu Pakistanar síðar
að þeir myndu þekkjast boðið.
Atal Behari Vajpayee, forsætisráð-
hen-a Indlands, lét þau orð falla í
gær að eina málið, sem rætt yrði á
fundinum með Aziz, væri með hvaða
hætti Pakistanar kalla skæruliðana
til baka en Indverjar segja að innrás-
armennimir njóti stuðnings Pakist-
anstjórnar.