Morgunblaðið - 09.06.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.06.1999, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forseti íslands setur 124. löggjafarþing „A Alþingi fer samviskan með æðsta dómsvaldið“ ALÞINGI íslendinga, 124. löggjaf- arþing, kom saman í fyrsta sinn í gær eftir alþingiskosningarnar í vor. Biskup íslands, Karl Sigurbjöms- son, fiutti í upphafí nokkur blessun- arorð í þingsalnum en að því búnu las forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, upp úr forsetabréfi um að þing skyldi saman komið og lýsti því yfir að Alþingi Islendinga væri sett. ,Asamt forseta lýðveldisins eru al- þingismenn, hver og einn og sem heild, handhafar mestu ábyrgðar sem sjálfstæð lýðræðisþjóð getur veitt. Frá þeirri ábyrgð er hvorki hægt að flýja með tilvísun til flokks- hollustu né hagsmunavalds. Hér fer samviskan með æðsta dómsvald,“ sagði forseti Islands m.a. í þingsetn- ingarræðu sinni. Að henni lokinni risu alþingismenn úr sætum og minntust fósturjarðarinnar með fjórföldu húrrahrópi. Halldór Ásgrímsson, sá þingmað- ur sem næstlengsta þingsetu hefur að baki, tók því næst við stjórn þingfundarins og bauð sérstaklega þá fimmtán þingmenn sem ekki áttu sæti á Alþingi á síðasta kjörtímabili velkomna til starfa. Af þeim hafa sjö setið áður á Alþingi sem vara- menn og tveir sem aðalmenn. „Ég ALÞINGI vil láta í ljós þá ósk að störf Alþingis verði okkur alþingismönnum til sóma og landi og þjóð til heilla,“ sagði Halldór ennfremur. Halldór Blöndal forseti Alþingis Eftir að nýir þingmenn höfðu undirritað drengskaparheit að stjórnarskránni, var Halldór Blön- dal, fyrsti þingmaður Norðurlands- kjördæmis eystra, kjörinn forseti Alþingis með 33 atkvæðum. Tutt- ugu og sex þingmenn greiddu ekki atkvæði. „Ég þakka háttvirtum al- þingismönnum það traust sem þeir hafa sýnt mér með því að kjósa mig sem forseta alþingis," sagði Halldór Blöndal m.a. „Ég tel það skyldu Morgunblaðið/Kristinn BISKUP Islands, herra Karl Signrhjörnsson. flutti nokkur blessunarorð fyrir þingsetninguna í gær, en að því búnu las Ólafur Ragnar Grímsson forseti íslands upp úr forsetabréfi og lýsti því yfir að þingið væri sett. mína að vinna að því að gott sam- starf megi takast við háttvirta þing- menn um störf Alþingis. [...] Eg óska ríkisstjóminni velfarnaðar í störfum og vona að samstarf hennar og Alþingis megi verða gott og landi og þjóð til blessunar." Að loknu ávarpi nýkjörins forseta Alþingis fór fram kosning fjögurra varaforseta þingsins. Guðmundur Ámi Stefánsson, Samfylkingunni, var kjörinn fyrsti varaforseti þings- ins, Guðjón Guðmundsson, Sjálf- stæðisflokki, var kjörinn annar varaforseti, ísólfur Gylfi Pálmason var kjörinn þriðji varaforseti og Ámi Steinar Jóhannsson, Vinstri- hreyfingunni-grænu framboði, var kjörinn fjórði varaforseti. RÁÐHERRAR ríkisstjórnar íslands og alþingismenn ganga fylktu liði upp í þingsal Alþingishússins. ÚRVALÚTSÝN 585 4000 4 FERÐASKRIFSTOFA ÍSIANDS RAÐSTEFNUR 5854400 \ FERÐASKRIFSTOFA ÍSLANDS VlÐSICiPTAFBRÐiR 585 4400 FERÐASKRIFSTOFA ÍSLANDS ÍNNANLANDSDEILD 585 4300 Þingkonur stilla sér upp fyrir 19. júní- blaðið TUTTUGU og tvær konur sitja nú á Alþingi Islendinga og hef- ur hlutur þeirra aldrei verið meiri í sögu lýðveldisins Is- lands, en alls eru þingmennirn- ir 63. Af því tilefni stilltu þing- konurnar sér upp fyrir ljós- myndara blaðs Kvenréttindafé- Iags íslands, 19. júní, og náði Morgunblaðið þessari mynd við það tækifæri. Á myndina vantar aðeins eina alþingis- konu, Katrínu Fjeldsted, þing- mann Sjálfstæðisflokksins. Hin- ar voru mættar glaðbeittar til leiks við upphaf þingsetningar í gær. Morgunblaðið/Kristinn Síld innan lögsögunnar SÍLD úr norsk-íslenska sfldarstofn- inum fékkst innan íslenskrar land- helgi í gær en þá bámst fréttir um að færeyska skipið Saxaberg hefði fengið um 370 tonn af síld rétt innan landhelgislínunnar um 200 mflur norðaustur af Langanesi. Islensku skipin streyma nú á miðin eftir sjó- mannadag og komu fyrstu skipin á miðin í gærkvöldi. Þá bámst fréttir um að Guðrún Þorkelsdóttir SU hafði fengið um 400 tonn af sfld í einu kasti innan landhelginnar í gærkvöldi og sprengt nótina í öðm kasti en það fékkst ekki staðfest. Ánægjulegar fréttir Hjálmar Vilhjálmsson fískifræð- ingur sagði í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi fréttimar vera ánægjulegar og vonandi gengi sfldin enn lengra inn í lögsöguna. „Það er ekki útlokað að hún taki sama rúnt og í fyrra. Það var dálítið kalt þama norður frá fyrr í vor en ef yfirborð sjávar hefur hlýnað getur sfldin allt eins skotist vestur á bóginn og möguleikamir verða meiri þegar sunnar dregur,“ sagði Hjálmar. Sfldarleiðangur um miðjan mánuðinn Sfldarrannsóknarleiðangur Haf- rannsóknastofnunar, sem hefst laust eftir miðjan júní, er gagngert ætlaður til að kanna gönguleiðir norsk-íslensku síldarinnar. Leið- angursstjóri verður Jakob Jakobs- son, fyrrverandi forstjóri Hafrann- sóknastofnunarinnar. Afrýja ekki dómi um ólögmætt útboð BANDARÍSKA dómsmálaráðu- neytið hefur ákveðið fyrir hönd hersins að áfrýja ekki þeirri niður- stöðu alríkisdómstólsins í Was- hington frá í febrúar síðastliðnum að útboð vegna flutninga milli Is- lands og Bandaríkjanna fyrir varn- arliðið sé ekki í samræmi við milli- ríkjasamning. Skipafélögin Atlants- skip á íslandi og Transatlantic Lines í Bandaríkjunum hafa annast flutningana og áfrýjuðu þau dómn- um. Eimskip óskaði eftir því að flutn- ingamir skyldu boðnir út meðan málið er fyrir áfrýjunarréttinum en hann hafnaði því og hefur Eimskip nú farið fram á að sú ákvörðun verði endurskoðuð. Þórður Sverrisson, framkvæmdastjóri flutningasviðs Eimskips, segir að margir mánuðir geti liðið þar til áfrýjunarrétturinn kemst að niðurstöðu, jafnvel hálft til heilt ár, og því hefur Eimskip óskað eftir flýtimeðferð á málinu. Með þeirri ákvörðun að áfrýja ekki málinu eru bandarísk stjórn- völd að mati Þórðar að viðurkenna að bandaríska hemum hafi orðið á mistök við útboðið og þá niðurstöðu dómsins að milliríkjasamningur hafi verið brotinn. Þórður segir þau rök vera fyrir beiðni Eimskips um nýtt útboð meðan málið er fyrir áfrýjun- arréttinum að á meðan annist tvö skipafélög flutningana á gmnni út- boðs sem dæmt hafi verið ólög- mætt, félög sem eru í eigu banda- rískra aðila. Því væri rétt að nýtt útboð færi fram strax.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.