Morgunblaðið - 09.06.1999, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999
AKUREYRI
MORGUNB LAÐIÐ
Trúðurinn Skralli 25 ára og heimsækir leikskóla á Norðurlandi í sumar
A
Anægjan er öllu
yfirsterkari
TRUÐURINN Skralli á 25 ára af-
mæli í sumar en af því tilefni mun
hann leggja upp í mikla ferð um
Norðurland og heimsækja böm á 23
leikskólum á svæðinu fi-á Hvamms-
tanga til Vopnaíjarðar nú í sumar og
hlakkai- mikið til.
Pabbi hans Skralla, Aðalsteinn
Bergdal leikari, sagði að trúðurinn
hefði orðið til fyrir hálfgerða slysni
en hann fór fyrst á stjá 4. ágúst 1974
á bindindishátíð sem haldin var á
Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit. Sá
sem átti að skemmta börnunum á
hátíðinni forfallaðist á síðustu
stundu og voru þá góð ráð dýr en
leitað var til Aðalsteins sem með
skömmum fyrirvara tók málið að
sér. Aðalsteinn hafði fyrr þetta ár
leikið í Strompleik Halldórs Laxness
hjá Leikfélagi Akureyrar, en gerfið
sem hann kom fram í minnti á trúð,
hvítur andlitsmaski og rauðar kinn-
ar. Einhverju sinni fór hann með
Gesti Einari Jónassyni félaga sínum
út á götu í gerfmu og tóku þeir m.a.
upp á að stjórna umferð um götur
ALureyrar. Hugmyndin um Skralla
kviknaði í framhaldi af þessu uppá-
tæki, en trúðurinn hjólaði fram í
Hrafnagil á tveggja manna reiðhjóli
og skemmti þar börnum við góðar
undirtektir þó hann væri kúguppgef-
inn eftir hjóltúrinn.
„Eg skottaðist þama í tvo þrjá
tíma með halarófuna á eftir mér og
hafði feikigaman af og ekki sá ég
betur en krakkarnir væru himinlif-
andi líka,“ sagði Skralli þegar hann
rifjar atburðinn upp.
Skralli þykir ekki sérlega vel gef-
inn og þó að hann hafi náð þessum
aldri er hann á svipuðu þroskastigi
og þegai' hann fyrst kom fram. Þó að
hann geti á stundum verið pínulítið
andstyggilegur er hann í raun besta
sál og ekki vantar viljann til að læra.
Þau eru mörg bömin sem lagt hafa
sig fram um að kenna honum eitt og
annað en það er eins og það gleymist
furðu fljótt. „Það hefur sína kosti að
vera seinþroska," segir Skralli, en
bætir við að það séu eiginlega allir
góðir við sig. Löggan skammaði
hann bara pínulítið einu sinni þegar
hann keyrði of hratt og svo var
stöðumælasekt sem hann fékk eitt
sinn felld niður.
Hefiir einu sinni reiðst
A löngum ferli hefur Skralli reynt
eitt og annað en bara tvisvar og
hálfu sinni hefur fólk reiðst honum,
aðallega fyrir klaufalegan misskiln-
ing. Trúðar mega hins vegar ekki
reiðast, en samt hefur það hent
Skralla að reiðast einu sinni. Þá var
hann á ferðinni í sundlaugargarði á
Spáni og tveir strákar, Breti og íri,
lögðu sig alla fram um að gera hon-
SKRALLI er jafnan með halarófu af krökkum á eftir sér hvar sem
hann fer. Aðeins einu sinni á ferlinum hefur hann reiðst og tvisvar og
hálfu sinni hefur fólk reiðst honum.
um lífið leitt. Þeir útbjuggu
drullukökur sem þeir hentu í Skralla
og voru honum til ama á alla lund.
Þegar hann svo sat á hækjum sér og
spjallaði við litla stúlku fékk hann'
allt í einu þetta ógurlega spark neð-
an undir sig. Þrátt fyrir að því fylgdi
ómældur sársauki var hann fljótur
að snúa sér við og náði þeim breska
sem var við það að leggja á flótta.
Honum var vísað út úr garðinum fyr-
ir tiltækið.
Á sömu skónum í 23 ár
Skórnir hans Skralla vekja hvar-
vetna sem hann kemur athygli, en
SKÓRNIR hans Skralla eru
orðnir 23 ára gamlir. Þeir
þykja afar óhentugir til akst-
urs en heldur skárri til knatt-
spymuiðkunar.
Morgunblaðið/Kristján
„ÞAÐ hefur sína kosti að vera
svolítið seinþroska," segir
Skralli sem skemmtir börnum
á leikskólanum Hlíðabóli á
Akureyri.
þeir eru nú orðnir 23 ára gamlir.
Skralli fékk Halldór skósmið á Akur-
eyri í lið með sér við að búa þá til.
Gamlir spariskór eru límdir á botn-
inn, en svo var Morgunblaðinu troðið
inn í skóna sem uppfyllingu. Skómir
hafa reynst sem hin bestu skíði, en
eru aftur á móti afar óheppilegii' til
aksturs.
„Ég myndi segja að ég hafi bara
elst þokkalega vel,“ sagði Skralli.
„Og á meðan gigtin er ekki að hrjá
mig verða ég á ferðinni áfram, en þá
má vel vera að ég fari eitthvað að ró-
ast. Þetta hefur oft verið ansi erfitt,
en þegar maður er kominn af stað
verður ánægjan öllu yfirsterkari,
það gefur mikið til baka að skemmta
börnunum."
Meó einu
handtaki býróu
til boró í
mióaftursætinu.
Einnig fáanlegt
meó kæliboxi.
„Flugsætisboró“
fyrir yngri
farþega
í aftursæti.
Mikió
farangursrými sem
hægt er aó stækka
enn meira.
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Amýetíammtí Méfane Scénic
Fjarstýró
hljómtæki meó
geislaspilara,
stjórnaó úr stýri.
4 loftpúóar:
bílstjóri, farþegi
í framsæti
og hlióarpúóar.
Tvö hólf í gólfi fyrir
framan aftursæti.
Auóvelt er aó taka
aftursætin úr, eitt,
tvö eóa öll þrjú.
Þau eru
ótrúlega létt.
Aukabúnaóur á mynd: Álfelgur