Morgunblaðið - 09.06.1999, Side 19

Morgunblaðið - 09.06.1999, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 19 ERLENT Olmert býður sig fram í leiðtogakjöri Likud Reuters EHUD OLMERT strýkur yflr hárið á fréttamannafundi í gær, skömmu áður en hann tilkynnti framboð sitt. EHUD Olmert, borgarstjóri Jer- úsalem, tilkynnti í gær að hann hygðist bjóða sig fram gegn Ariel Sharon, fráfarandi utanríkisráð- herra Israels, í leiðtogakjöri Likud eftir ósigur flokksins í kosningunum í maí. „Ég vil verða leiðtogi Likud, end- urreisa flokkinn og færa hann aftur að miðju stjómmálanna í ísrael," sagði Olmert þegar hann tilkynnti ákvörðun sína á blaðamannafundi í Jerúsalem. Olmert tók fram að markmið sitt væri að verða forsætisráðherra og spáði því að næstu þingkosningar, sem verða ekki síðar en í nóvember 2003, „fari fram fyrr en ráðgert hef- ur verið“. „Ég yrði besti hugsanlegi frambjóðandi Likud gegn Ehud Barak [nýkjömum forsætisráð- herra], en núna er brýnasta verk- efnið að endurreisa flokkinn þannig að hann verðskuldi að stjóma land- inu, þegar þar að kemur.“ Sharon var skipaður formaður Likud til bráðabirgða þegar Benja- min Netanyahu, fráfarandi forsætis- ráðherra, lét af formennsku eftir að hafa beðið mikinn ósigur fyrir Barak. Samkvæmt stofnskrá Likud getur Sharon gegnt formennsku í flokkn- um í þrjá mánuði en stuðningsmenn hans hafa krafíst þess að umboðið verði framlengt í tvö ár til að tími gefist til að endurreisa flokkinn eftir kosningaafhroðið. Olmert kvaðst hins vegar andvíg- ur því að leiðtogakjörinu yrði frestað. „Ég tel að það verði að fara fram snemma í september eins og kveðið er á um í stofnskrá flokks- ins.“ Auk þess sem Netanyahu tapaði í forsætisráðherrakjörinu missti flokkur hans 13 þingsæti í kosning- unum. Hann fékk aðeins 19 þing- menn kjöma og hefur aldrei komið jafn illa út í kosningum. „Við höfum orðið fyrir miklum ósigri og það hefði mátt sjá fyrir löngu áður eftir að mikilvægir menn gengu úr Likud, einkum David Levy, Benny Begin, Dan Meridor, Ronni Milo og Yitzhak Shamir,“ sagði Olmert. Allir þessir menn ákváðu að ganga í aðra flokka vegna óánægju með stefnu Netanyahus. Olmert sagði að forgangsverkefni sitt yrði að fá „hundmð þúsunda“ gamalla stuðningsmanna Likud til að styðja hann á ný. Olmert hefur verið þingmaður í 25 ár og borgarstjóri Jerúsalem í tæp sex ár. Hann var endurkjörinn til fimm ára í borgarstjórakosning- um í nóvember. Hann var áður álit- inn einn af hörðustu hægrimönnun- um í Likud en hefur boðað hófsam- ari stefnu á síðustu árum. Netanyahu snýr sér að ræðumennsku Fyrirtæki í Washington, sem sér- hæfir sig í að útvega ræðumenn, kvaðst í gær hafa gert samning við Netanyahu um að hann flytti fyrir- lestra um stöðugleika, hagsæld, störf leiðtoga og fnðarumleitanir í Miðausturlöndum. Israelska dag- blaðið Yedioth Ahronoth sagði að Netanyahu myndi fá andvirði 4,3 milljóna króna fyrir hvern fyrirlest- ur. í einum fyrirlestranna, sem nefn- ist „hlutverk leiðtoga í nútímarík- inu“, hyggst Netanyahu m.a. fjalla um það „hvernig taka má á ein- semdinni" og ætti hann að geta talað af reynslu vegna brotthvarfs gam- alla bandamanna hans sem gátu ekki starfað með honum á valdatíma hans. Barak hallast að samstarfi við Shas Ehud Barak sagði í fyrradag að hann vildi enn mynda samsteypu- stjóm með Shas, flokld heittrúaðra gyðinga, og gaf þar með til kynna að til greina kæmi að sniðganga vinstriflokkinn Meretz, sem hefur verið í fyrri stjórnum Verkamanna- flokksins og hafnað samstarfi við Shas. „Shas er stór og lögmæt hreyfing og við þurfum hana í samsteypu- stjórn," sagði Barak. Hann bætti við að hann vildi einnig að Meretz yrði í stjórninni. Shas er þriðji stærsti flokkurinn á þingi ísraels, með 17 þingmenn af 120. Arieh Deri er enn leiðtogi flokksins þótt hann hafi látið af þingmennsku eftir að hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir spillingu í aprfl. Áður hafði Barak sagt að ekki kæmi til greina að hefja stjórnar- myndunarviðræður við Shas meðan flokkurinn væri undir stjóm Deris en hefur nú mildað þá afstöðu. „Ari- eh Deri getur ekki verið leiðtogi Shas þegar við semjum við flokkinn, en það er ekki skilyrði, heldur von okkar,“ sagði Barak í fyrradag. Sérfræðingar í ísraelskum stjóm- málum segja nú flest benda til þess að Barak hallist að stjómarsam- starfi við Shas og vilji halda opnum þeim möguleika að Meretz gangi í stjómina síðar. Meretz fékk tíu þingsæti í kosn- ingunum 17. maí og Verkamanna- flokkurinn 26. Erjur milli ættbálka í Nígeríu um yfírráð lands í gjöfulu héraði Cr GÓLFEFNABÚÐIN Borgartúni 33 ^jyæða flísar ^jyæðaparket í jpóð verð Cyóð þjónusta Brennsluofnar Dönsk hönnun og gæði. Stærðir: 3,5—9 kW. Verð frá aðeins kx. 56.905 stgr. Einar Farestveit&Co.hf. Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900 Hvaða aukaverkanir hefur lyfið? Blóðug átök á feniasvæði irri. Reuters. Warri. Reuters. SVEITIR nígeríska hersins gættu í gær mannvirkja alþjóðlegra olíufyrirtækja sem staðsett em á fenjasvæðinu í suður- hluta landsins og reyndu að stiila til frið- ar á svæðinu eftir blóðug þjóðflokkaátök undanfama daga. Síðustu helgi bárust fréttir af því að byggingar í Warri, hér- aðshöfuðborg fenjasvæðisins, stæðu í Ijósum logum og að skotið væri að al- mennum borguram. Hundrað íbúa reyndu að flýja borgina. Talið er að um 200 manns hafi látist í yfirstandandi átökum, þar af átján sl. föstudag. Átökin á fenjasvæðinu, sem er eitt gjöfulasta hérað Nígeríu og aflar ríkinu hvað mestra tekna, eru talin vera mikilvægur prófsteinn á hvernig Olusegun Obasanjo, nýkjörinn forseti Nígeríu, helst á málum. Obasanjo Átökin á fenjasvæðinu eiga sér langa sögu og eru rakin til deilna um yfirráð landsvæðis og valdastaða í héraðsstjórn- inni milli tveggja meginættbálkanna á svæðinu; Itsekiris-manna og Ijaws- manna. Urhobos, þriðji ættbálkurinn á svæðinu, er sagður hafa blandað sér í átökin og styðja Ijaws-ættbálkinn. Mikil fátækt er á fenjasvæðinu þrátt fyrir rík- ar olíulindir og er það talið hafa kynt undir langvarandi átökum ættbálkanna. Átökin brutust út í liðinni viku eftir að vopnuð ungmenni réðust á þorpið Arunton nærri Warri. Um tíma var talið að um 100 manns hefðu látist í átökum þeim sem í kjölfarið fylgdu í þorpinu og sendi ríkisstjórn Nígeríu því herinn á vettvang. Var höfnum lokað og gæslusveitir sendar til þéttbýlisstaða. Fréttaritari BBC í Warri sagði á mánudag að Obasanjo, nýkjörinn forseti landsins, þyrfti að grípa skjótt til að- gerða ef hann vildi koma í veg fyrir að átökin græfu undan völdum stjómarinn- ar. Er Obasanjo tók við völdum lauk fimmtán ára valdatíma hersins í Nígeríu. Fyrri rfldsstjómum hefur ekki tekist að leiða mál fenjasvæðisins til lykta en Obasanjo hefur heitið því að koma á var- anlegum friði í héraðinu. I gær virtist sem átökin væru í rénun pg að herinn hefði stjórn á aðstæðum. Ibúar Warri sögðu að nóttin hefði verið fremur tíðindalítil miðað við næturnai- þar á undan en að fólk sé enn að reyna að komast út af svæðinu. hefur svarið og einnig í Árnesapóteki, Húsavíkurapóteki og Egilsstaöaapóteki. www.lyfja.is Gæðin staðfest ! Niðurstöður þýsku skoðunarstofunnar DEKRA, sem árlega framkvæmir skoðanir á yfir 7 milljónum bíla sýndu að Fiat Bravo og Brava voru í besta ástandi þriggja ára gamalla bíla. Þetta er staðfesting á vandaðri smíð og öfluga gæðaeftirliti FIAT. Bravo og Brava fengu ennfremur hæstu einkunn í 100.000 km reynsluakstri Auto Motor und Sport, en blaðamenn völdu hann ,,Besta bílinn í millistærðarflokki". Staðalbúnaður: Fjórir loftpúðar, ABS hemlar, kippibelti, samlæsingar, fimm :***• hnakkapúðar, 8 ára ábyrgð á Istraktor gegnumtæringu. bIlar fybiií »ua SMIÐSBÚÐ 2 ■ GARÐABÆ • SIM I S 400 800

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.