Morgunblaðið - 09.06.1999, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 09.06.1999, Qupperneq 29
28 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 + MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 29 ■ STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrírnur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. STEFNURÆÐA FORSÆTISRÁÐHERRA NÝKJÖRIÐ Alþingi kom saman til fundar í gær og flutti Dav- íð Oddsson, forsætisráðherra, stefnuræðu nýrrar ríkis- stjórnar sinnar síðdegis í gær en umræður um stefnuræðuna fóru fram í gærkvöldi. í stefnuræðu sinni gerði forsætisráðherra að umtalsefni þær áhyggjur, sem hafa vaknað meðal almennings undanfarnar vikur vegna verðlagsþróunar í landinu, og sagði: „Þær verðlagshækkanir, sem eru að verða á þessum árshelm- ingi, eiga þó fæstar rót í spennu á innanlandsmarkaði. Olíuverðs- hækkanir, ótrúverðugar hækkanir á tryggingaiðgjöldum og er- lendar hækkanir eiga þar stærstan hlut að máli. Það er umhugs- unarefni, að við mat á hækkunarþörf tryggingafélaganna er ekki litið til þess, að nýjar bifreiðar, með miklu hærri öryggisstaðla en hinar gömlu, hafa verið fluttar til landsins síðustu þrjú til fjögur ár. Tryggingafélögin hafa haft gríðarlegar fjármagnstekj- ur af sjóðum sínum og mikilli lánastarfsemi til bifreiðakaupa, svo fátt eitt sé nefnt. Óhjákvæmilegt virðist að fara nákvæmlega yfir þær forsendur, sem félögin hafa gefið sér. A hinn bóginn er já- kvætt, að flestar spár benda nú til þess, að olíuverð muni lækka hratt á ný en álverð muni fara hækkandi." Þessi ummæli Davíðs Oddssonar benda ótvírætt til þess, að ríkisstjórnin hyggist ekki taka iðgjaldahækkun tryggingafélag- anna athugasemdalaust. Má því búast við frekari tíðindum af þeim vettvangi. Iðgjaldahækkunin hefur mikil áhrif á vísitöluna og þess vegna er mikið í húfi. En jafnframt því að gefa til kynna, að ríkisstjórnin líti ekki á hækkanir tryggingafélaganna sem afgreitt mál, lagði forsætis- ráðherra áherzlu á, að við núverandi aðstæður í efnahagsmálum þyrfti að auka almennan og opinberan sparnað og sagði um það efni: „Afar mikilvæg eru þau áform ríkisstjórnarinnar að efna til markvissra aðgerða til þess að auka almennan sparnað og hvetja landsmenn til slíks sparnaðar. I því sambandi er sérstaklega tal- að um að skapa skilyrði til að verja auknum fjármunum til lífeyr- issparnaðar. Þær stórbrotnu breytingar, sem orðið hafa í ís- lenzku efnahagslífi á þessum áratug, hafa fleygt okkur fram til þess bezta, sem þekkist í efnahagsmálum í okkar heimshluta. Sparnaðurinn hefur ekki fylgt þróuninni nægilega vel eftir og þar þarf hugarfarsbreyting að verða. Ríkisvaldið getur með margvíslegum hætti lagt grunn að slíkri breytingu." Davíð Oddsson vék að sjávarútvegsmálum í ræðu sinni og sagði m.a.: „Það er athyglisvert, að svonefnt veiðileyfagjald, sem áður tröllreið umræðunni og átti öll mein að lækna, náði engu flugi í kosningabaráttunni.“ I þessu sambandi er ástæða til að minna á, að fyrir tæpu ári kaus Alþingi svokallaða auðlindanefnd til þess að „fjalla um auð- lindir, sem eru eða kunna að verða þjóðareign", eins og segir í samþykkt Alþingis. Þar segir ennfremur: „Nefndin kanni einnig hvernig staðið skuli að gjaldtöku fyrir afnot af auðlindum í sam- eign þjóðarinnar, með hliðsjón af þeim gjöldum, sem fyrir eru. Nefndin kanni möguleika á að nota auðlindagjald til að tryggja að afrakstur sameiginlegra auðlinda skili sér á réttmætan hátt til þeirra, sem hagsmuna hafa að gæta. Um verði að ræða hóf- legt gjald, sem varið verði til að standa undir rannsóknum og til að stuðla að vernd og sjálfbærri nýtingu auðlindanna og réttlátri skiptingu afrakstursins, m.a. til að styrkja byggð í landinu.“ I ljósi þess, að bæði stjórnarflokkar og stjórnarandstöðuflokk- ar stóðu að þessari samþykkt og að fulltrúar stjórnarflokkanna vísuðu ítrekað til starfa nefndarinnar í kosningabaráttunni, þeg- ar að þeim var sótt um svör um afstöðu þeirra til gífurlegrar óánægju almennings með óbreytt kerfi, verður að ætla að nokk- uð almenn samstaða hafí verið um að láta á það reyna, hvort þetta nefndarstarf mundi skila raunhæfum tillögum um þetta efni, og það hafi átt mestan þátt í því að minna var rætt um gjaldtöku vegna nýtingar auðlindanna við strendur landsins en ella hefði orðið. Það er svo umhugsunarefni, hvort slík gjaldtaka gæti orðið þáttur í að ná þeim markmiðum, sem forsætisráð- herra lagði svo þunga áherzlu á í stefnuræðu sinni, þ.e. að stór- auka sparnað landsmanna. I stefnuræðu sinni ítrekaði Davíð Oddsson þau sjónarmið, sem hann lýsti í ræðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í marzmánuði sl. og síðar í kosningabaráttunni, og sagði: „En árétta skal, að við endurskoðun á ramma sjávarútvegsins ætla menn sér að skoða ítarlega öll þau gagnrýnisatriði, sem sett hafa verið fram á undanförnum árum, og meta hversu raunhæf þau eru, hversu sanngjörn þau kunna að vera og bregðast við með skynsamleg- um hætti.“ I ræðu sinni á sjómannadaginn vék Arni Mathiesen, sjávarút- vegsráðherra, að sama máli og sagði hættu á „... að óeining og ósætti um fiskveiðistjórnunarkerfið geri atvinnugreininni ókleift að starfa og skila arði í þjóðarbúið“. Ummæli Davíðs Oddssonar fyrir og eftir kosningar og Arna Mathiesen eftir að hann tók við embætti sjávarútvegsráðherra verða ekki skilin á annan veg en þann, að forystumenn Sjálf- stæðisflokksins muni vinna markvisst að því á næstu mánuðum að vinna að sáttum um nauðsynlegar breytingar á fiskveiði- stjórnarkerfinu., ■ , ,, HERRA forseti. Eg vil í upphafi míns mál's óska hinum nýkjörna forseta Alþingis til hamingju með kjör hans og bjóða háttvirta alþingismenn velkomna til þings, ekki síst þá sem setjast hér í sal í fyrsta sinn. Eg er sjálfur í hópi allmargra alþingismanna sem hér hefúr setið í átta ár og þykir ekki langur þingald- ur. Þó er svo komið að við upphaf þessa þings eru aðeins 14 þingmenn sem setið hafa lengur en átta ár. Þannig eru í mínum þingflokki, sem samanstendur af 26 alþing- ismönnum, aðeins þrír þingmenn með lengri starfsaldur en átta ár. Fullyrðingar um að menn sitji allt of lengi á þingi eiga því bersýnilega ekki við rök að styðjast og vera kann að breytingar á þingliðinu séu örari en hollt er fyrir stöðugleika og festu. Eg kann ekki skýringarnar á þessum miklu breytingum, en þær eru vissulega verðugt rannsóknarefni. Við komum til starfa nú um skamma hríð að loknum kosningum, samkvæmt ótvíræð- um ákvæðum stjórnarskrárinnar. Verkefn- in eru fá, eðli málsins samkvæmt. Stefnu- ræðu fylgii- ekki að þessu sinni upptalning lagafrumvarpa sem ríkisstjórnin muni leggja fyrir Alþingi. Þess háttar fylgiskjöl munu verða með stefnuræðu á hausti kom- anda. Sjálfur hef ég reyndar haft efasemdir um þá túlkun að rétt sé að flytja stefnu- ræðu á þessum sérstöku vorþingum eftir kosningar. Reynslan frá árunum íyrir 1991 sýnir að stjórnarmyndunarviðræður tóku oftast svo langan tíma að forsætisráðherr- ann var iðulega aðeins starfandi ráðherra á þessum fyrstu 10 vikum. Meginverkefnið nú er að gera Alþingi starfhæft, kjósa því stjóm og ganga frá nefndakjöri og öðrum lögmætum skyldum. Þá þarf að afgreiða frumvarp til stjórnarskipunarlaga um kjör- dæmamál, sem verður eingöngu til sam- þykktar eða synjunar, og samning um „Smuguveiðar", svo það helsta sé nefnt. Kosningaslagurinn var óvenju skammur í vor. Raunveruleg kosningabarátta stóð aðeins í rétt rúman mánuð og býst ég við að þróunin verði áfram í þessa átt og kosn- ingabarátta muni vart standa nema í þrjár vikur eða svo í framtíðinni, svo sem tíðkast víða. Þolinmæði fólksins í landinu gagnvart frambjóðendum, skrifum þeirra og auglýs- ingum, karpi og klögumálum alls konar, setur þessi tímatakmörk. Fyrir vikið færist kosningabaráttan enn meira í fjölmiðlana en áður, því augljóst er að frambjóðendur ná með gamla fundalaginu aðeins til lítils hóps manna á svo fáum vikum. Það leiðir aftur til þess að mörgum finnst lítið fara fyrir kosningabaráttunni og úr henni sé sá þróttur og kraftur, sem áður fyrr hafi fylgt þeim tímamótum. Á marga lund fór kosningabaráttan vel fram. Það er þó umhugsunarefni, hversu óá- byrgur leikurinn varð á stundum með orð í kosningayfirlýsingum einstakra flokka eða framboða. Líklegt er að kosningaúrslitin sannfæri flesta um að þess háttar kosninga- barátta eigi ekki framtíð fyrir sér. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa endurnýjað samstarf sitt í nýrri ríkisstjórn. Þeir gengu óbundnir til kosninga, svo sem venja stend- ur til. En það lá í lofti, og það skynjuðu frambjóðendur flokkanna fljótt, að veruleg- ur vilji var til þess í þjóðfélaginu að stjóm- arflokkarnir héldu samstarfí sínu áfram, næðu þeir saman um stefnuyfirlýsingu og samstarfsform. Hvort tveggja hefur gengið eftir. Herra forseti. Stefnuyfirlýsing stjómarflokkanna er ljós og skýr. Þar er lagður sá grandvöllur sem samstarfið mun byggjast á. Að sjálf- sögðu er forðast að fara út í smáatriði og sparðatíning, eða einstakar útleggingar á hinni almennu stefnumörkun sem í slíkum yfirlýsingum á að felast. ............... Hitt má þingmönnum vera ljóst að við vinnslu stefnuyfirlýsingarinnar, var af hálfu flokkanna farið mjög nákvæmlega í gegnum hvern einasta ----------------------- málefnaþátt sem þar er nefndur. Að baki orðunum býr því mikil umræða og skoðana- skipti forystumanna flokkanna tveggja. Þannig hefur farið fram víðfeðm forvinna sem létta mun mjög alla útfærslu einstakra þátta stefnuyfirlýsingarinnar. I upphafi stefnuyfirlýsingar flokkanna segir svo: „Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks mun vinna áfram í anda þeirra meginsjónarmiða sem lýst er í stefnuyfirlýsingu flokkanna frá 23. apríl 1995. Með samstarfi flokkanna hófst mikil framfarasókn þjóðarinnar. Við aldahvörf verða undirstöður velferðar landsmanna treystar enn frekar og sköpuð skilyrði fyrir bættri afkomu þeirra. Stjórnarflokkarnir leggja áherslu á samheldni og eindrægni þjóðarinnar, samvinnu vinnuveitenda og launþega, dreifbýlis og þéttbýlis. Með því að virkja framtak einstaklinga í þágu auk- innar verðmætasköpunar verður áfram Forgangsatríði ríkisstjórnar- innar að ríkissjóður verði rekinn með umtalsverðum afgangi Stefnuyfirlýsing stj órnarflokkanna ljós og skýr stuðlað að hagsæld, félagsleg- um umbótum, afkomuöryggi einstaklinga og fjölskyldna, ekki síst þeirra sem höllum fæti standa. Ríkisstjómin vill auka veg menntunar og rannsókna sem eru forsenda fyrir nýsköpun í atvinnulífinu. Áfram verður unnið að markaðssókn iyrir íslenskar vörur og þjónustu á erlendum mörkuðum. Efnt verður til samstarfs viðerlend fyrirtæki og þjóðir og hvatt til fjárfestingar erlendra aðila á Islandi. Með markvissum ráð- stöfunum verða undirstöður byggðar í landinu treystar. Ný upplýsingatækni verður nýtt í þágu efnahagslegra framfara og uppbyggingar í atvinnulífinu, vísindarann- sókna, menntunar, lista og hvers kyns menningarmála um land allt. Á árinu 2000 fagnar þjóðin þúsund ára afmæli kristni- töku og landafunda í Vestur- heimi. Kristin trú og gildi hafa mótað mannlíf í landinu og verið þjóðinni ómetanlegur styrkur. Þessa verður minnst með margvíslegum hætti, m.a. sérstökum hátíðahöldum á Þingvöllum. Með aðgerðum sínum á kjörtímabilinu hyggst rfldsstjómin byggja á þeim grunni sem fýrri kynslóðir lögðu með þrautseigju og eljusemþ og skapa skilyrði þess að Island verði í fremstu röð meðal þjóða heims sem land tækifæra, efnahagslegra og menningarlegra framfara á nýrri öld.“ í þessum upphafsorðum stefnuyfirlýsingarinnar er lýst þeirri meginhugsun sem að baki hennar býr og þeim almennu mark- miðum sem stjómarflokkamir hafa sam- einast um að treysta. Það er þeirra sameig- inlega mat að gangi þau almennu markmið eftir, ásamt hinu helsta sem fjallað er um í þeim fjölmörgu liðum sem eftir fylgja, sé lítill vaífi á að þjóðin sigli góðan byr inn í nýja öld. Hún nái að skipa sér þar í fremstu röð meðal þjóða, bæði hvað almennan efna- hag varðar, en ekki síður hitt, að búa sér ramma að farsælu og heilbrigðu mannlífi, sem stenst jöfnuð við það besta sem þekk- ist. Það var inntak kosningamálflutnings beggja flokkanna að þeir myndu leitast við að tryggja stöðugleika í efnahagsmálum og skapa skilyrði fyrir áframhaldandi hagvöxt og auka þjóðhagslegan sparnað. Nú láta sumir sem svo, að þeir hafi af- hjúpað ný og óvænt sannindi; að viðskipta- hallinn væri veralegur og því hafi verið andmælt fyrir kosningar en viðurkennt eftir kosn- ingar. Ekkert er fjær sanni. Viðskiptahalli er ekkert leyndarmál. Hið opinbera gefur upplýsing- ar um hann á mánaðar- fresti og jafnvel oftar ef þannig stendur á og þær upplýsingar hafa reyndar sýnt að viðskiptahallinn fer nú jafnt og þétt minnk- andi. Hitt er annað mál að sá mikli upp- gangur og kraftur sem nú er í íslensku at- vinnulífi hefur leitt til nokkurs launaskriðs og verðlag hefur hækkað nokkuð umfram það sem spár við áramót gerðu ráð fyrir. En það voru svo sannarlega ekki ábyrg við- brögð við því viðfangsefni, að koma fram í kosningabaráttu með tillögur um ótrúlega útgjaldaaukningu fyrir þjóðarbúið á nýju kjörtímabili og setja um leið aðalatvinnu- veg þjóðarinnar í fullkomið uppnám. Ef þær forskriftir sem þar vora boðaðar hefðu breyst í raunveruleika hefði mikið uppnám orðið í efnahagsmálum. Þær verðlagshækk- anir sem era að verða á þessum árshelm- ingi eiga þó fæstar rót í spennu á innan- landsmarkaði. Olíuverðshækkanir, ótrú- verðugar hækkanir á tryggingaiðgjöldum Stefnuræða Davíðs Oddssonar forsætisráðherra á Alþingi í gær Morgunblaðið/Kristinn DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra flytur stefnuræðu sfna á Alþingi í gær. Halldór Blöndal nýkjörinn forseti Alþingis er í forsetastól. og erlendar hækkanir eiga þar stærstan hlut að máli. Það er umhugsunarefni að við mat á hækkunarþörf tryggingafélaganna er ekki litið til þess að nýjar bifreiðar, með miklu hærri öryggisstaðla en hinar gömlu, hafa verið fluttar til landsins síðustu þrjú til fjögur árin. Tryggingafélögin hafa haft gríðarlegar fjármagnstekjur af sjóðum sín- um og mikilli lánastarfsemi til bifreiða- kaupa, svo fátt eitt sé nefnt. Óhjákvæmi- legt virðist að fara nákvæmlega yfir þær forsendur sem félögin hafa gefíð sér. Á hinn bóginn er jákvætt að flestar spár benda nú til þess að olíuverð muni lækka hratt á ný, en álverð muni fara hækkandi. I þessu sambandi era vissulega allir sam- mála um að það er miður þegar verð sumra vara og þjónustu hækkar. Slíkar breyting- ar geta verið fylgifiskar sérlega fjörlegs efnahagslífs, eins og okkar er nú um stund- ir. Þannig spá nú ýmsir 3-4% verðbólgu á árinu. Hins vegar mega ábyrgir stjórn- málamenn ekki gera sig seka um að halda einhverju allt öðru að fólki en efni standa til. Upphrópanir á borð við óðaverðbólgu, tímasprengjur og hrun era langt frá því að eiga við. Þær þjóna því engum öðrum til- gangi en þeim að kynda undir og um leið að að hræða fólk frá skynsamlegri hegðun. Aðalatriðið við núverandi aðstæður er að auka almennan og opinberan sparnað, og að því er markvisst unnið eins og fram kemur síðar í máli mínu. Hvernig sem á stefnuyfirlýsingu rflds- stjórnarinnar verður litið er ekki efni til að ætla annað en að stöðugt verðlag og góð samkeppnisstaða atvinnulífsins muni tryggja að Island geti mætt auknu fram- boði á vinnuafli. Um leið væri tryggt það efnahagslega öryggi sem við höfum búið við undanfarin fjögur ár. Ríkisstjórn síðasta kjörtímabils lækkaði skuldir ríldssjóðs með afar markvissum hætti. Og sú sem tekin er við, byggir á sama grunni og á sama vilja. Og ekki er vafi á að það er forgangsatriði af hennar hálfu að ríkissjóður verði ekki að- eins rekinn í jafnvægi, heldur með umtals- verðum afgangi. Allt bendir til þess að rík- -4- Tryggja að ísland verði áfram land tækifæranna issjóður verði rekinn með ágætum afgangi á þessu ári og ríkisstjómin hefur sett sér það mark að gera enn betur við gerð næstu fjárlaga. Þannig verður spomað gegn vá á borð við langvarandi viðskiptahalla. En við minnumst þess glöggt að við fjárlagavinnu síðasta kjörtímabils var stjórnarandstaðan yfirleitt andsnúin öllum þeim aðgerðum sem miðuðu að því að tryggja að ríkissjóður hefði þá stöðu sem hér var lýst. Er vonandi að yfirlýsingar nú eftir kosningar, sem ganga að vísu þvert á kosningaloforðin, bendi til þess að stjómarandstaðan muni stefna í sömu átt og ríkisstjórnin og muni nú taka á með henni við fjárlagavinnu og fjárlagaafgreiðslu til að ná þessum mark- miðum. Eftir slíku samstarfi verður auðvit- að leitað. Herra forseti. Nú skipa tólf ráðherrar rfldsstjórn, en höfðu verið mest ellefu áður. Meginástæð- an er sú að með breyttum þjóðlífsháttum hafa þær skoðanir fengið vaxandi fylgi sem hafa talið óheppilegt að sami ráðherra færi með fleiri en eitt ráðuneyti til lengri tíma þar sem þau meginmarkmið sem ráðuneyt- unum ber að fylgja gætu skarast illilega. Því er ekki haldið fram að sú skipan sem við bjuggum við, hafi leitt okkur út í miklar ógöngur. En það fyrirkomulag að hver ráð- herra beri ábyrgð á einum samkynja mála- fiokki er mjög í takt við tíðarandann og þá hugsun sem ríkjandi er varðandi stjóm- skipun og stjómsýslu landsins. Ríkisstjórn- in telur jafnframt nauðsynlegt að gera rækilega úttekt á Stjórnarráðinu, verkefn- um ráðuneytanna og hvar og hvernig þeim verði best skipað. Því er sérstaklega tekið fram í stjórnarsáttmála að lögin um Stjóm- arráð íslands, skipan ráðuneyta og verk- efni þeima, verði endurskoðuð, með hlið- sjón af þeim breyttu aðstæðum sem orðið hafa í þjóðfélaginu. Strax í upphafi verður Seðlabankinn færður undir forsætisráðu- neyti sem efnahagsráðuneyti og Byggða- stofnun verður samþætt atvinnuþróunar- starfsemi undir iðanaðarráðuneyti. Jafn- framt er sá fyrirvari sleginn af þessum ástæðum og fleiram að stjómarflokkamir hljóti að taka til endurmats verkaskiptingu sín á milli og eftir atvikum einnig hvernig mönnum er skipað til verka. Það er þýðingarmikið að þingið skynji strax á fyrstu starfsdögum sínum þá meg- inþætti sem skína í gegnum stjómarsátt- málann. Þar kemur fram vilji til þess að skapa einstaklingum og atvinnulífi aukið svigrúm til þess að vinna að eigin hag og annarra, bæta samkeppnisstöðu þessara aðila gagnvart útlöndum og að draga úr annmörkum sem óþjált ríkiskerfi getur lagt á starfsemi manna í landinu. Það er grein af sama meiði að ákveðið er, að við endur- skoðun á skattalöggjöf eigi að draga úr jað- aráhrifum og mismunun í skattkerfinu, gera skattlagninguna einfaldari og tryggja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs hvað skattlagningu varðar. Það er einnig þýðing- armikið að boðað er að skattareglurnar verði þannig úr garði gerðar að þær verði hvetjandi fyrir framkvöðla á sviði rann- sókna og þróunar og almennrar nýsköpun- ar í atvinnulífinu. Herra forseti. Undanfarin fjögur ár hefur tekist að end- urbæta flest skólastig landsins í samvinnu við foreldra og skólafólk. Margar jákvæðar breytingar hafa jafnframt verið gerðar á háskólastiginu. Ljóst er að á kjörtímabilinu verður lögð mikil og aukin áhersla á æðri menntun í landinu. Með aukinni alþjóða- væðingu vinnumarkaðarins þurfum við að leggja áframhaldandi og aukna rækt við mannauðinn. Þar kemur hinn nýi og spenn- andi heimur upplýsingatækninnar sífellt meira við sögu og við Islendingar verðum að halda því forskoti sem við höfum. Kemur fram í stjórnarsáttmála að við sölu ríkisfyr- irtækja verði sérstaklega litið til upplýs- ingahraðbrautarinnar þegar ákveðið er hvernig skuli verja söluandvirðinu. Þá verða lögð drög að því á næstunni að losa þungamiðjuna \ fjar- skiptamálum okkar Islend- inga, Landssímann, úr viðjum ríkisrekstrar. Vissulega þarf að huga að ýmsu við slíka að- gerð, en takist hún vel, tel ég einsýnt að hún muni efla enn og styrkja upplýsingasamfé- lag þjóðarinnar um leið og samkeppni er tryggð og kost- ir einstaklinganna verða fleiri og ódýrari. Afar mikilvæg era þau áform ríkisstjórnarinnar að efna til markvissra aðgerða til þess að auka almennan sparn- að og hvetja landsmenn til slíks spamaðar. í því sam- bandi er sérstaklega talað um að skapa skilyrði til að verja auknum fjármunum til lífeyr- isspamaðar. Þær stórbrotnu breytingar sem orðið hafa í íslensku efnahagslífi á þess- um áratug hafa fleygt okkur fram til þess besta sem þekk- ist í efnahagsmálum í okkar heimshluta. Sparnaðurinn hefur ekki fylgt þróuninni nægilega vel eftir og þar þarf hugarfarsbreyting að verða. Ríkisvaldið getur með marg- víslegum hætti lagt grunn að slíkri breytingu. Málefni aldraðra munu koma mjög við sögu, sem eng- um kemur á óvart eftir mikla umfjöllun nú á því ári sem sér- staklega er við þann hóp kennt. Slík málefni breytast hins vegar frá kynslóð til kyn- slóðar. Hagur eldri borgara hefur aldrei verið betri á ís- landi en nú er. En samt má enn gera betur. Allir era sammála um að gefa verði færi á sveigjanlegum starfslokum á vinnumarkaði. Með bættri heilbrigðisþjón- ustu og auknu heilnæmi nútímasamfélags er fólk vinnufært mun lengur en áður. Því er fráleitt að dæma fólk á besta aldri frá störf- um til þess eins að hlýða almanakinu. Eins er ljóst að besta og varanlegasta aðgerðin til þess að íslenskir eldri borgarar búi við jafn- góð eða betri skilyrði og aðrir er að auka veg spamaðarins, og þá ekki síst lífeyrisspam- aðar í landinu. Menn geta með skattalegum úrræðum náð árangri hvað þetta varðar. Einnig er rétt að örva áhuga manna til þess að taka beinan þátt í uppbyggingu atvinnu- lífsins, til að mynda með hlutafjárkaupum. Það er einnig í þeim anda að hleypa lífi og krafti í íslenskt þjóðlíf og efnahagsstarfsemi, að gefa fyrirheit um að leitast verði við að styðja framkvöðla í atvinnulífi. Þá er rétt að vekja at- ............ hygli á því að stefnuyfir- lýsingin undirstrikar að í starfsemi ríkisstjómar- innar sem heildar skuli skoðaðir möguleikar fólks í hinum dreifðari byggð- Gefa verður færi á sveigjanlegum starfslokum um landsins. Slíkt framtak verður ekki ein- göngu fyrir meðalgöngu Byggðastofnunar, sem þó hefur unnið ágætt verk og fær nýtt og aukið hlutverk samkvæmt þeim hug- myndum sem stefnuyfirlýsingin greinir frá. Þegar yfirlýsingin er lesin grannt kemur fram að í flestum einstökum þáttum hennar er jafnframt litið til byggðasjónarmiða og með hvaða hætti afmarkaðar aðgerðir Al- þingis og ríkisstjómar geti haft áhrif til góðs í þeim efnum. Til að mynda felast miklir möguleikar í upplýsingatækninni sem á að fá aukið vægi og mun ekki síst nýtast landsbyggðinni, ef rétt er á haldið. Við vonumst til að á þessu kjörtímabili ná- ist að snúa vörn í góða sókn í þessum mikil- vægu málum. Það er einnig augljóst að vilji nTdsstjórn- arinnar stendur til þess að treysta stöðu ís- lensks sjávarútvegs og jafnframt að tryggja frið um hann. Nauðsynlegt er að setja skýrar og skilmerkilegar reglur sem hann á að geta búið við til lengri tíma. Hafnað er hugmyndum um smáskammta- lækningar annars vegar og óútfærðar bylt- ingar hins vegar, en kjósendur gáfu að von- um lítið fyrir slíkan málatilbúnað í kosning- unum. Það er athyglisvert að svonefnt veiðileyfagjald, sem áður tröllreið umræð-í unni og átti öll mein að lækna, náði engu flugi í kosningabaráttunni. Virtist það reyndar aðeins nefnt þar til málamynda af fyrram heittrúuðum fylgismönnum. En árétta skal að við endurskoðun á ramma sjávarútvegsins ætla menn sér að skoða ít- arlega öll þau gagnrýnisatriði sem sett hafa verið fram á undanfömum árum og meta hversu raunhæf þau eru, hversu sanngjöm þau kunna að vera, og bregðast við með skynsamlegum hætti. Eg tel að sú niður- staða í stefnuyfirlýsingunni sé í mjög góðu samræmi við úrslit kosninganna og þá um- ræðu sem fór fram. Oljósum hugmyndum byggðum á illa rökstuddum fullyrðingum, þar sem hvað rak sig á annars horn, var hafnað af almenningi í kosningunum með eftirminnilegum hætti. Það ættu menn að láta sér að kenningu verða. Herra forseti. Útlit er fyrir að Atlantshafsbandalagið sé að ná markmiðum sínum í Kósóvó, þótt eigi eftir að leysa vanda sem upp kom fyrir tveimur dögum varðandi framkvæmd frið- aráætlunar þeirrar sem fyrir liggur. I átök- unum vegna Kósóvó hefur Atlantshafs- bandalagið enn sannað gildi sitt, sýnt að það gegnir lykilhlutverki í Evrópu og er ómissandi fyrir frið og stöðugleika í álfunni. Staðfesta bandalagsríkjanna hefur auðvitað ráðið úrslitum við að tryggja þann árangur sem náðst hefur. Þegar Júgóslavíustjórn áttaði sig á að borin von væri að treysta á * að óeining kæmi upp í bandalaginu og þeg- ar hún trúði að bandalagið hefði vilja til að halda út til sigurs, gaf hún eftir. En málið er enn ekki í höfn og staðfestu því áfram þörf líkt og ætíð er reyndin þegar einræðis- og kúgunaröfl eiga í hlut. Vaclav Havel, forseti Tékklands, kallaði nýlega aðgerðir Atlantshafsbandalagsins vegna Kósóvó „“yrstu mannréttindastyrj- öldina í Evrópu“. Það er rétt að aðgerðirn- ar gegn Júgóslavíu snerust ekki um völd og áhrif yfir löndum eða landsvæðum. NATO hafði ekki aðra hagsmuni að verja en rétt- { indi þess fólks, sem hrakið hafði verið frá heimilum sínum og beitt ótrúlegu harðræði. íslendingar öxluðu að sínu leyti ábyrgð á ákvörðunum Atlantshafsbandalagsins og munu taka þátt í að græða þau sár sem út- sendarar stjórnvalda í Belgrad hafa valdið. Það starf verður bæði tímafrekt og kostn- aðarsamt. I stefnuyfirlýsingunni er í knöppu máli vikið að nokkram helstu þátt- um í utanríkisstefnu ríkisstjórnarinnar og vísa ég til hennar um það efni. Herra forseti. í stuttri stefnuræðu gefst einungis tóm til að víkja að örfáum þáttum þeirrar stefnuyfírlýsingar sem hefur verið birt öll- um almenningi í landinu og fengið býsna góðar viðtökur. Þar er vikið að flestum þeim meginsjónarmiðum sem efst hafa ver- ^ ið á baugi að undanfórnu. Þar era reifaðar hugmyndir um heilbrigðismál með nýjum hætti, þar er vikið að þörfinni á því að skoða almannatryggingakerfið og lífeyris- kerfið til þess að ná fram sem hagkvæm- astri uppbyggingu þessa kerfis í þágu eig- enda þess. Þar er farið orðum um þá mögu- leika sem era fyrir hendi til þess að styrkja stöðu fjölskyldunnar í einstökum þáttum, en segja má að stefnuyfirlýsingin í heild lúti ekki síst að því að tryggja heilbrigðan efnahagsgrann fjölskyldunnar. Þar er gerð grein fyrir því að gert verður sérstakt átak í baráttunni við fíkniefnavandann þannig að þeirri vá verði haldið frá íslenskri æsku og þeir að- ilar sem gera sér mat úr eitrinu í orðsins fyllstu { merkingu, fái makleg málagjöld. Þá er einnig ----------- fjallað um náttúravernd og nauðsyn þess að skapa sátt milli skyn- samlegrar nýtingai- auðlinda og náttúra- vemdarsjónarmiða, því að hvor tveggju era grundvallaratriði þegar litið er til langtíma hagsmuna komandi kynslóða á Islandi. Allir þessir þættir, sem og þeir sem ég hef áður getið um, gefa heildstæða mynd af verkum ríkisstjómarinnar og þeim vænting- um sem hún vill skapa við aldahvörf. Hún sýnir ríka trú flokkanna og forystumanna þeirra á þeim möguleikum sem fyrir hendi *- eru til þess að skapa hér öflugt mannlíf. ^ Yfirlýsingin er heitstrenging um að tryggja að ísland verði áfram land tækifæranna þar sem æskufólkið á fleiri kosti en nokkra sinni fyrr. Ef þetta gengur eftir, er víst að ekki hefur verið til einskis barist. Þau öfl era fjöl- mörg sem við mennimir fáum ekki ráðið við. Það setur okkur auknar skyldur á herðar að stýra því vel sem við völdum. f Góðar stundir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.