Morgunblaðið - 15.07.1999, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
E-töflumál ríkissaksóknara dómtekíð í Hæstarétti í gær
Kröfur um sakfell-
ingn ítrekaðar
Morgunblaðið/Ásdís
KIO Alexander Briggs í Hæstarétti fyrir málflutninginn
í máli hans í gær.
Hæstiréttur hefur
dómtekið e-töflumál
ríkissaksóknara gegn
Kio Alexander Briggs
eftir að sýknudómi hér-
aðsdóms yfír ákærða
var áfrýjað 30. júní. Við
flutning málsins í gær
ítrekaði ríkissaksóknari
kröfur ákæruvaldsins
um sakfellingu ákærða
samkvæmt ákæru,
ásamt greiðslu sakar-
kostnaðar og upptöku
e-taflnanna. Dóms
er að vænta__________
innan skamms.
FRAM kom í málflutningi Boga
Nilssonar ríkissaksóknara í gær, að
ákæruvaldið legði áherslu á þá
staðreynd að e-töflurnar hefðu
fundist í farangri ákærða við leit
tollvarða við komu ákærða til
landsins 1. september í fyrra og því
hefði verið mikilvægt að kanna öll
atriði sem kanna þyrfti í tengslum
við aðdraganda ferðar hans til ís-
lands. Ennfremur legði ákæruvald-
ið áherslu á vitnisburð vitnis sem
sagðist hafa séð ákærða pakka efn-
unum í tösku sína áður en hann hélt
frá Spáni til Islands. Að mati ríkis-
saksóknara væri niðurstaða rann-
sóknarinnar sú að ekki stæði steinn
yfir steini í framburði ákærða um
aðdraganda ferðarinnar, þar með
talið farmiðakaupin, með hvaða
hætti hann fór út á flugvöll og
hversu lengi hann dvaldi í íbúð áð-
umefnds vitnis síðustu dagana fyr-
ir brottför.
Hefði frásögn ákærða af þessum
atriðum stangast á við vitnisburð
nokkurra vitna í málinu. Þannig
hefði ákærði t.d. ekki sagst hafa
hitt nokkum mann á flugvellinum
þar ytra fyrir brottfor sína, en þrjú
vitni væm til frásagnar um annað.
Þá væri frásögn ákærða af vem
sinni í íbúð eins vitnisins síðustu
dagana fyrir brottför ekki trúverð-
ug að mati ákæmvaldsins, en sú
frásögn hefði gengið út á það að
forðast umrædda íbúð. Hefði
ákærði sagst hafa sótt farangur
sinn í íbúðina en ekki gist þar, en
eitt vitni hefði sagt að ákærði hefði
verið búinn að dvelja í fbúðinni í tvo
daga áður en vitnið hélt til íslands
27. ágúst, sem stangast á við fram-
burð ákærða um að hann hafí verið
í íbúðinni síðustu tvo dagana í
ágústmánuði. Ályktaði ákæmvaldið
því að ákærði hefði dvalið lengur í
umræddri íbúð en hann vildi vera
láta.
Frásögn ákærða ekki trúverðug
Ríkissaksóknari lýsti efa sínum á
trúverðugleika frásagnar ákærða af
farmiðakaupunum og ferðinni út á
flugvöll, en þar stangaðist á frá-
sögn hans um að hann hefði keypt
farmiðann af einu vitni og frásögn
þess vitnis um að það hefði keypt
miðann handa ákærða. Hefði
ákærði ennfremur sagt að kunningi
vitnisins hefði ekið sér á flugvöllinn
en vitnið sagt að það hefði verið
með í för ásamt umræddu vitni.
Þá þætti frásögn ákærða af til-
gangi farar sinnar til íslands með
hliðsjón af útbúnaði hans, en hann
hugðist fá vinnu á sjó, ótrúverðug,
þar sem hann hefði verið peninga-
laus og ekki með annan fatnað en
léttan sumarfatnað.
í fyrsta framburði ákærða hjá
lögreglu eftir handtökuna sagði rík-
issaksóknari að ákærði hefði ekki
áttað sig á þeirri stöðu, sem hann
væri kominn í, þ.e. að einhver hefði
sagt lögreglu til hans. Hefði ákærði
þá sagt að hann hefði yfirgefið
tösku sína tvisvar sinnum, rétt fyrir
brottför, án þess að hafa gætur á
henni. Sagði ríkissaksóknari að það
væm algeng viðbrögð manna í
þessum kringumstæðum, þ.e. að
opna möguleika á því að einhver ut-
anaðkomandi hafi komið eiturlyfj-
unum íyrir í töskunni án vitundar
eigandans.
Verulegur vafi á sekt ákærða
Verjandi ákærða, Helgi Jóhann-
esson hæstaréttarlögmaður, sem
krafðist staðfestingar á úrskurði
héraðsdóms, sagði í ræðu sinni að
ákæruvaldinu hefði ekki tekist að
færa sönnur á ásetning ákærða og
að vemlegur vafi væri á sekt hans,
sem ætti að dæma honum í hag á
gmndvelli laga um meðferð opin-
berra mála.
Sá vafi sem um ræddi fælist m.a.
í því að engin fingrafararannsókn
hefði verið gerð og ekkert hefði
komið fram sem tengdi ákærða við
eiturlyfín, fjármögnun þeirra eða
innkaup. Þá hefði taska ákærða
legið ólæst fyrir allra augum í um-
ræddri íbúð á Spáni og hefði efnun-
um verið smokrað í töskuna eftir á.
Þá hefði vitnið sem sagði til ákærða
haft hagsmuni af því að koma e-
töflunum til landsins. Þá hefði með-
ferð geðlæknis á ákærða rennt
stoðum undir sakleysi hans og enn-
fremur væri ekki refsivert að ferð-
ast peningalaus á milli landa.
Krossnefur
ÞESSI sérstæði
fugl sást í fyrra-
dag á sveimi við
Höfðabrekku,
skammt austan
Víkur í Mýrdal.
Mun hér vera um
krossnef að ræða,
en að sögn Gunn-
ars Þórs Hall-
grímssonar fugla-
skoðara er hann
algengur flæk-
ingsfugl hér á
landi.
Krossnefur
mun þó frábrugð-
inn flestum öðr-
um flækingsfugl-
um sem hingað
koma að því leyt-
inu til að komur hans eru mjög
óreglulegar og sum ár kemur
hann í stórum hópum, en sést
ekkert önnur ár. Þá kemur
hann ekki hingað til lands með
vindum heldur mun skortur á
fæðu í varpheimkynnum hans
knýja hann til að leita hennar
annars staðar.
Að sögn Gunnars Þórs er
þessi krossnefur ekki einn á
ferð því í síðustu viku fréttist
af félaga hans á Selfossi, auk
þess sem hópur þessara fugla
í heimsókn
sást nýverið í Hrísey. Kross-
nefurinn hefur aðeins einu
sinni orpið hér á íslandi svo
vitað sé, en það gerðist á
Tumastöðum í Fljótshlíð í des-
ember árið 1994.
Eins og sjá má á myndinni
ber krossnefurinn nokkuð sér-
stakan gogg, en hann hentar af-
ar vel til að komast að fræjum
barrtijáa. Af lit fuglsins má
ráða að hér er fullorðinn karl-
fugl á ferð, en kvenfuglar eru
grænir og ungfuglar brúnleitir.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Framkvæmdir við Hafravatnsveg
Tryggir tengingu
við Nesjavallaveg
SKIPULAGSSTOFNUN hefur
hafið frumathugun á umhverfisá-
hrifum af lagningu nýs Hafra-
vatnsvegar milli Langavatns og
Hafravatns í Mosfellsbæ. Áætlað
er að framkvæmdir hefjist á þessu
ári og að fyrsta áfanga, sem er 3,4
km, verði lokið fyrir Kristnitökuhá-
tíðina árið 2000.
Markmiðið með lagningu vegar-
ins er að tryggja greiðar samgöng-
ur milli Suðurlandsvegar og Nesja-
vallavegar. Ráðgert er að færa
veginn frá núverandi vegarstæði
austan við Hafravatn vestur fyrir
vatnið og tengja hann Nesjavalla-
vegi á nýjum kafla.
Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu frá Skipulagsstofnun.
Náttúrufræðistofnun hefur gert
vettvangskannanir til að athuga
áhrif vegarins og hefur veglínan
verið færð til miðað við uppruna-
legar áætlanir til að hlífa votlendi á
svæðinu, í samræmi við athuga-
semdir stofnunarinnar.
Fi-ummatsskýrsla liggur nú
frammi á bæjarskrifstofum Mos-
fellsbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni,
Frummat á umhverfisáhrifum
lagningar nýs Hafravatnsvegar
milli Langavatns og Hafravatns
í Mosfellsbæ
hjá Borgarskipulagi Reykavíkur
og hjá Skipulagsstofnun. Frestur
til að gera athugasemdir vegna
framkvæmdanna rennur út 18.
ágúst 1999.
Léttir
og alvöru
fjallaskor
og allt þar
rmvic&
kr. 10.900
a miili
alpsna kr. 12.900
www.come.lo/utlsport
5?OTrr
ÚTIVISTARBÚÐIN
viðllmfer&rmi&töðna
Laugavegt 25 simi 551 8805'
SIIYII 551 9800
Morgunblaðið/Þorkell
KRAKKARNIR á Suðureyri
fækkuðu fötum á dögunum og
óðu út í pollinn sem þar er að
finna, enda veðurblíðan með ein-
dæmum mikil og full ástæða til
Blóðið kælt í
blíðunni
að kæla í sér blóðið. Yngri krakk-
arnir sýndu þó aðdáunarverða
skynsemi og stóðu á bakkanum
eða hættu sér ekki eins djúpt og
þau sem eldri eru og fífldjarfari.