Morgunblaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
SOUTHELLA og íris í höfninni.
Landað á
E skifir ði
MIKIÐ var um að vera í Eski-
fjarðarhöfn í gær. Þá lönduðu
tveir erlendir togarar afla sín-
um í gáma og færeyska nðta-
skipið Krónborg kom með full-
fermi af loðnu til löndunar.
Þýzki togarinn íris var með
um 50 tonn af karfa, sem fóru í
gáma, og enski togarinn
Southella landaði 50 tonnum af
karfa í gáma.
Togararnir eru að veiðum
innan lögsögunnar og veiða úr
3.000 tonna karfakvóta Evrópu-
sambandsins. Karfinn fer í gáma
hér og fer síðan til sölu á fisk-
markaðnum í Bremerhaven í
Þýzkalandi.
KRÓNBORGIN kom með fullfermi af Ioðnu.
Rússar hafa enn ekki staðfest „Smugusamninginn“
Utvegsmenn mjög
órólegir yfir töfinni
„Við erum orðnir mjög órólegir yfir
þeirri töf sem orðin er á því að Rúss-
ar staðfesti Smugusamninginn. An
þess megum við ekki hefja veiðar,
en nú er bezti veiðitíminn að ganga
yfir. LÍÚ hefur þó ekki í hyggju að
stefna fjölda skipa þangað án þess
að staðfesting hafi fengizt. Það get-
ur vel verið að einhverjir fari, en það
er komið undh’ útgerð hvers skips
fyrir sig,“ segir Kristján Ragnars-
sonj formaður og framkvæmdastjóri
LÍÚ, í samtali við Morgunblaðið.
9.000 tonn
af þorski
Smugusamningurinn svokallaði
milli íslands, Noregs og Rússlands
um veiðar okkar í Barentshafi og
gagnkvæmar veiðiheimildir hinna
þjóðanna beggja, var undirritaður í
vor. Ríkisstjómir Islands og Nor-
egs hafa fyrir nokkrum vikum stað-
fest samninginn, en það hafa Rúss-
ar enn ekki gert. Ekki er hægt að
hefja veiðar samkvæmt samningn-
um fyrr en Rússar hafa staðfest
hann með formlegum hætti. Síðan
er Noregur gæzluaðili samningsins
og ber Rússum að láta Norðmenn
vita af staðfestingu sinni og þeir
láta okkur svo vita. Samkvæmt
samningum megum við Islendingar
veiða 9.000 tonn af þorski í Barents-
hafi á þessu ári, en af því magni
verður að greiða Rússum markaðs-
verð fyrir 1.670 tonn.
„Ég verð fyrir miklum þrýstingi
útgerðarmanna hér. Ég hef gengið
Hugsanlegt að
einhver skip haldi
þó til veiða
eftir því daglega í þrjár vikur við ís-
lenzk stjórnvöld að fá einhvem botn
í þennan samning, sem staðfestur
var á Alþingi fyrir mánuði síðan.
Okkur var sagt að hann ætti að
koma strax til framkvæmda svo
okkur gæfist kostur á að nýta þess-
ar heimildir á þessu ári. Samkvæmt
samningnum bar þeim einnig að
gera okkur grein fyrir því fyrir
löngu hvemig við ættum að standa
að því að kaupa þær aflaheimildir
sem okkur standa til boða sam-
kvæmt samningum, 1.670 tonn. Við
höfum engan botn fengið í það hvar
við eigum að bera niður til að spyrja
um það. Við eigum að borga eitt-
hvert markaðsverð fyrir þessar
heimildir, en við höfum ekkert feng-
ið að vita hvert það verð hugsanlega
verður.
Með öllu
óviðunandi
Útgerðarmenn vilja auðvitað ekki
láta sumarið fram hjá sér fara á
þessu svæði og finnst málið bera
keim af því að ætlunin sé að leyfa
okkur ekki að nýta þessar heimildir
í ár. Það er með öllu óviðunandi og
ekki í neinu samræmi við það sem
sagt var þegar samningurinn var til
umfjöllunar á Alþingi fyrir mánuði.
Við fáum engin svör önnur en „á
morgun, á morgun“. Þannig hefur
það gengið í þrjár vikur, en getur
ekki gengið öllu lengur,“ segir
Kristján Ragnarsson.
Kolaveiðar
í Bugtinni
Dragnótaveiðar í Faxaflóa
mega hefjast 15. júlí ár hvert
og standa þær til 15. desem-
ber. Fjórtán bátar hafa leyfi til
veiðanna og mega þeir veiða 35
tonn af skarkola hver. Það er
lækkun um 25 tonn frá síðasta
ári. Hlutur bolfisks má ekki
fara yfir 15% af heildarafla.
Veiáarnar má aðeins stunda
frá sjö að morgni til sjö að
kvöldi og ekki má veiða um
helgar. I fyrra voru helgarveið-
ar bannaðar á ákveðnu tímabili
en að ósk sjómanna var því
breytt'.
Hafrannsóknastofnun stóð
fyrir tilraunaveiðum í síðustu
viku og gáfu þær góð fyrirheit
um veiðarnar í sumar. Kolinn
er unnin hér heima og seldur á
Evrópu- og Bandaríkjamark-
að. Markaðshorfur eru góðar
og búast útgerðarmenn við
hærra verði en í fyrra.
FERÐALAGIÐ BYRJAR VEL HJA ELLINGSEN...
ítalskir gönguskór, stærðir 36-47.
AÐEINS 4.995- (áður 7.260-)
Allt í lax- og silungsveiði
Sjóstangir og hjól.
Nýkomnir flísjakkar f nýjustu litunum.
Verð frá 5.489-
Svefnpokar, tjalddýnur og álpokar.
Tjalddýnur kosta 998-
Svefnpokar kosta frá 5.495-
Ódýrir og fyrirferðalitlir vind- og
regnjakkar með hettu. Verð aöeins
4.031- Stakar buxur kosta 2.454-
Italskir gönguskór, stærðir 41-47.
AÐEINS 6.590- (áður 9.394-
W''
;&jt/ í
I ^ Gashitararnir vinsælu komnir aftur
^ssSÉ L |gk * *****
Sjónaukar og áttavitar.
Mikið úrval og hagstætt verð.
TILB0Ð
Stangarhaldarar fyrir bíla
á tilboOi, aöeins 6.681-
Óbrjótandi hitabrúsar fyrir heitt og
kalt. Verð frá 2.420-
Gasvörurnar í ferðalagið. Verðdæmi:
Gashella 2.398-, gaslukt 3.597-
gashitari 6.020-
Verðin eru án gaskúta.
NEOPRENE-vöðlurá 9.900-
Gúmmívöðlur og klofstígvél á tilboði.
Velkomin í fjórar
deildir með 9000
vörunúmer;
fata- og skódeild,
sportveiðideild,
almenna deild og
útgerðar- &
rekstrarvörudeild
Mikið af veiðitöskum.
Þessi kostar 2.694-
OPIÐ VIRKA DAGA 8-18 OG LAUGARDAGA 10-14
Grandagarði 2, Rvík, sími 552-8855 og 800-6288