Morgunblaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 31
V opnaeftir-
litsmenn til
Bagdad
Amman, Bagdad, Sameinuðu þjóðunum. AFP, AP.
HOPUR alþjoðlegra vopnaeftirlits-
manna hélt í gær til Bagdad, höfuð-
borgar Iraks, og er markmið ferð-
arinnai- að loka tilraunastofu sem
fulltrúar vopnaeftirlitsnefndar Sa-
meinuðu þjóðanna (UNSCOM)
skildu eftir er þeir héldu frá landinu
við upphaf loftárásanna seint á síð-
asta ári. Þá munu eftirlitsmennirnir
eyða talsverðu magni af sinnepsgasi
er varð eftir við brottför UNSCOM.
Saddam Hussein, forseti íraks,
féllst á að leyfa eftirlitsmönnum að
koma til landsins, að því tilskyldu að
engin tengsl væru á milli þeirra og
UNSCOM.
Talsmenn Sameinuðu þjóðanna
sögðu í gær að fjórir sérfræðingar
frá Kína, Póllandi, Rússlandi og
Suður-Afríku myndu aka frá Amm-
an til Bagdad í fylgd Yaako Ylitalo,
yfirmanns hinnar yfirgefnu til-
raunastofu, og að Prakash Shah,
sérlegur fulltrúi aðalritara SÞ í
Irak, myndi fara fyrir hópnum. Er
talið að vopnaeftirlitsmennimir
muni dvelja í um viku við störf sín.
í Bagdad munu erindrekar frá
Rússlandi, Frakklandi og Kína -
þremur af fimm fastaríkjum örygg-
isráðs SÞ og þeim sem gagnrýnt
hafa viðskiptabann SÞ á írak - mæta
hópnum og fylgja honum uns mark-
miðum ferðarinnar hefur verið náð.
Richard Butler, fyrrverandi yfir-
maður UNSCOM, viðurkenndi
þann 1. júní sl., eftir ítrekaða gagn-
rýni fulltrúa Rússlands í öryggis-
ráðinu, að eftirlitsmenn UNSCOM
hafi skilið eftir um eitt kíló af sinn-
epsgasi á tilraunastofu sinni í
Bagdad. Sagði hann þó að mönnum
og umhverfi stafaði engin hætta af
efninu.
Bretar beita sér fyrir samstöðu
öryggisráðsins
Bretar fóru þess á leit við kín-
versk, frönsk og rússnesk stjórn-
völd á mánudag að. þau myndu ná
samstöðu um að binda endi á þrá-
tefli það sem upp hefur komið innan
öryggisráðsins vegna viðskipta-
bannsins á írak. Hvatti Sir Jeremy
Greenstock, sendiherra Bretlands
hjá SÞ, ríkin til að sýna samstöðu, á
lokuðum fundi öryggisráðsríkjanna
fimmtán á mánudag. Heimildamenn
AFP sögðu í gær að á fundinum
hefði Greenstock varað fulltrúa
ríkjanna - án þess að nefna hvaða
ríki ættu í hlut - við því að tefja fyr-
ir framgangi málsins.
Fundinum var frestað eftir að
Andrei Lavrov, fulltrúi Rússa, sagði
að ályktunardrög Breta næðu ekki
nægilega langt í þá átt að aflétta
viðskiptabanninu á Irak.
Deilt um notkun
þýzku á ESB-
fundum
Helsinki. Reuters.
PAAVO Lipponen, forsætisráð-
herra Finnlands, sagði í gær að
finnsk stjórnvöld myndu ekki gefa
eftir í tungumáladeilu sem upp er
komin við Þýzkaland og Austur-
ríki.
Deilan snýst um að Þjóðverjar
og Austurríkismenn krefjast þess
að hægt sé að nota þýzku á óform-
legum fundum ráðherraráðs Evr-
ópusambandsins (ESB), en Finn-
ar, sem tóku í byrjun þessa mán-
aðar við formennsku í ráðinu, telja
nóg að vinnumál á slíkum fundum
séu franska, enska og tunga for-
mennskuríkisins, þ.e. finnska.
„Einkum og sér í lagi ættu stór
ríki að axla ábyrgð fyrir allt [sam-
bandið] í stað þess að hugsa aðeins
um eigin upphefð," skrifaði
Lipponen í grein sem birtist í dag-
blaðinu Tuvun Sanomat.
Fulltrúar Þýzkalands og Austur-
ríkis sniðganga fundi
Fulltrúar Þýzkalands og Austur-
ríkis sniðgengu óformlegan fund
iðnaðarráðherra ESB sem fram fór
í Oulu 2.-3. júlí, og í gær staðfesti
embættismaður finnsku stjórnar-
innar að það sama yrði uppi á ten-
ingnum er menningarmálaráðherr-
ar ESB-ríkjanna hittast í Sa-
vonlinna á sunnudaginn.
Lipponen segist vilja einfalda
þær reglur sem gilda um tungu-
málanotkun í starfi ESB; skera
ætti niður fjölda þeirra vinnumála
sem notast væri við og bæta sam-
kvæmni í notkun þeh’ra. Hann
nefnir sem dæmi að á stjómarfúnd-
um Evrópska seðlabankans (ECB)
væri aðeins töluð enska, og gefur í
skyn að með því að láta undan
kröfu Þjóðverja yrði skapað for-
dæmi sem gæti leitt til þess að þess
yrði krafizt að þýtt yrði á enn fleiri
tungumál, svo sem spænsku og
ítölsku. Á formlegum fundum ráð-
herraráðsins er þýtt á öll 11 opin-
ber tungumál ESB.
Síðustu tvö formennskuríki voru
einmitt Þýzkaland og Austurríki,
en þau ríki sem gegndu formennsk-
unni þar á undan, Bretland, Hol-
land og Lúxemborg, létu öll einnig
þýða á þýzku á öllum fundum ráð-
herraráðsins.
imaffllbol
ÁSUNDBOLUM
Eitt verð kr.
n o 1 r
1 Æ! IREYS1 FINGAR - ÚTIVIST - BÓMI ■ Skeiíunni 19-S. 568 1717 i ULL
Hóta Pakistönum vopnavaldi
Nýju Delhí. Reuters.
GEORGE Fernandez, varnar-
málaráðherra Indlands, sagði í
gær að brottflutningur skæruliða
múslíma í Kasmír af því landsvæði
sem þeir hafa verið að berjast um
yfirráð yfir við indverska herinn,
færi fram samkvæmt áætlun.
Fernandes varaði hins vegar paki-
stönsk stjórnvöld við því að vopna-
valdi yrði beitt ef skæruliðarnir
yrðu ekki farnir af svæðinu á
föstudag.
Stjórnvöld í Indlandi halda því
fram að samkomulag hafi náðst við
pakistönsk stjórnvöld sl. sunnudag
um að skæruliðar skyldu hörfa frá
svæðinu fyrir föstudaginn, en
Tariq Altaf, talsmaður pakistanska
utanríkisráðuneytisins, neitaði
þessu á þriðjudaginn.
Ráðamenn á Indlandi segjast
ekki munu ræða við pakistönsk
stjórnvöld fyrr en skæruliðarnir
verða farnir á brott af svæðinu og
virða þá línu er skiptir Kasmír í
tvennt, í yfirráðasvæði Indverja og
Pakistana.
BMMHBRMBMMMHMMMMMM
Útsala-útsala
Meiriháttar útsala í Skæði
Otrúleg verð
Herraskór
Barnaskór
Dömuskór
Pollini töskur og smávara
Allt að
70% afsláttur
ÉlÍÍÍlIIÍP
^^fflfflÍffli ml
Kringlunrtí 8-12
Sími 568 9345
Rýmingarsala
Yr-«lnnin
Allt á að seljast
Ath. Einungis 3 dagar eftir
0-70%
afslattur af
öllum vörum
rfKœU
-^skórinn símS5lf
2966