Morgunblaðið - 15.07.1999, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ1999 4Ö"
Innantómt slagorð eða
lykill að nýju lýðræði ?
Á SÍÐUSTU mánuð-
um hefur hugtakið
„Staðardagskrá 21“
annað slagið heyrst í
umræðu manna á með-
al. Hins vegar vita sjálf-
sagt fáir hvað þessi orð
þýða. Þessari grein er
ætlað að varpa ljósi á
það.
Staðardagskrá 21 er
þýðing á ensku orðun-
um „Local Agenda 21“.
Um er að ræða heildar-
áætlun um þróun ein-
stakra samfélaga fram
á 21. öldina. Þessi áætl-
un á að vera nokkurs
konar forskrift að sjálf-
bærri þróun, þ.e.a.s. lýs-
ing á því hvernig samfélagið ætlar
að leggja sitt af mörkum til að
tryggja komandi kynslóðum viðun-
andi Ufsskilyrði á jörðinni. Áætlunin
snýst ekki eingöngu um umhverfis-
mál, heldur er henni ætlað að taka
jafnframt tillit til efnahagslegra og
félagslegra þátta. Eitt aðalatriðið í
hugmyndafræðinni sem að baki ligg-
ur, er að umhverfísmál verði aldrei
slitin úr samhengi við önnur mál,
heldur beri að skoða áhrif mannsins
á umhverfi sitt í víðu samhengi.
Akvörðunin um gerð Staðardag-
skrár 21 var tekin á heimsráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um umhverfi
og þróun í Ríó 1992 sem hluti af al-
þjóðlegri samþykkt sem nefnist
Dagskrá 21.
Samkvæmt samþykktinni frá Ríó
ber öllum sveitarstjórnum að koma
sér upp Staðardagskrá 21 í samráði
við íbúana á hverjum stað. Þessu
verki átti að vera lokið
árið 1996, en víðast um
heiminn fór starfið
hægt af stað. Á íslandi
mátti sjá fyrstu vís-
bendingamar um at-
hafnir í þessa átt á
Egilsstöðum, en á ár-
unum 1996-1997 tók
Egilsstaðabær þátt í
norrænu verkeftii um
undirbúning að gerð
Staðardagskrár. Á síð-
asta hausti hófst síðan
18 mánaða samstarfs-
verkefni umhverfis-
ráðuneytisins og Sam-
bands íslenskra sveitarfé-
laga, með það að mark-
miði að aðstoða íslensk
sveitarfélög við að koma sér upp
Staðardagskrá 21. Alls tekur 31
sveitarfélag þátt í verkefninu.
Virk þátttaka almennings er einn
af hornsteinunum í hugmyndafræð-
inni um sjálfbæra þróun og þar með
hugmyndafræðinni á bak við Staðar-
dagskrá 21. Ymsir hafa haldið því
fram, að í gerð Staðardagskrár felist
stórkostleg tækifæri í átt að nýju
lýðræði, þátttökulýðræði, sem að
hluta muni leysa hið hefðbundna
fulltrúalýðræði af hólmi. Staðardag-
skrá 21 er áætlun alls samfélagsins
og því þurfa allir hópar samfélagsins
að koma að verkinu, hvort sem þeir
eru kjörnir til þess með hefðbundn-
um hætti eður ei.
Hvað sem lýðræðinu líður, er ljóst
að gerð markvissrar langtímaáætl-
unar um sjálfbæra þróun hlýtur að
vera viðleitni í þá átt að skapa af-
komendum núverandi kynslóðar
Staðardagskrá 21
Virk þátttaka almenn-
ings er einn af horn-
steinunum í hugmynda-
fræðinni um sjálfbæra
þróun, segir Stefán
Gísiason, og þar
með hugmyndafræð-
inni á bak við Staðar-
dagskrá 21.
bærileg lífsskilyrði á jörðinni. í
skýrslu svokallaðrar Brundtland-
nefndar, sem birtist í bókinni Sam-
eiginleg framtíð vor (Our Common
Future) árið 1987, er sjálfbær þróun
skilgreind með eftirfarandi hætti:
Sjálfbær þróun er „þróun sem gerir
okkur kleift að mæta þörfum okkar
án þess að stefna í voða möguleikum
komandi kynslóða á að mæta þörf-
um sínum“. Sama hugsjón hafði ver-
ið orðuð löngu fyrr í máltæki frá
Kenýa, sem segir: „Við fengum jörð-
ina ekki í arf frá forfeðrum okkar.
Við höfum hana að láni frá bömun-
um okkar“.
Ef Staðardagskrá 21 getur fært
okkur nær markmiðinu um sjálf-
bæra þróun, þá er hún í það minnsta
hluti af lyklinum að bjartri framtíð.
Höfundur er umbvertisstjómunar-
fræðingur og verkefnisstjóri íslenska
Staðardagskrárverkefnisins.
Stefán
Gislason
FERÐAVORUR
BO-5u%
afsláttur
Göngutjald eða hjólatjald
Vandað, tvöfalt og vatnshelt 2 manna,
aðeins 2 kg. Tiiboð kr. 6.900,
verð áður kr. 9.900.
Buslulaugar og útileiktæki
Buslulaug, 120 x 180 sm, kr. 4.500
Buslulaug, 120 x 240 sm, mynd, kr.7.800
Róla einföld, nú kr. 4.900,
áður kr. 6.900. Róla á mynd, kr. 10.400,
áður kr.13.900.
Bakpokar, stórir og smáir
Dagpokar verð frá kr. 990
Mittistöskur frá kr. 490
Vandaðir 65 I pokar frá kr. 4.900
Vandaðir 65 I pokar frá kr. 5.400.
Hlíf á bakpoka kr. 900
Svefnpokar, margar gerðir
Verð frá kr. 3.200
-10°C verð kr. 4.800, áður 6.900,
-20°C verð kr. 5.900, áður 9.200.
Ármúla 40
Símar 553 5320,
568 8860
'IEIn stærsta sportvöruverslun landslns
Elferslunin
7I44RI
D
2 manna tjald í felulitum nú kr.
1.950, áður 3.900. 2 manna kúlutjald nú kr.
2.400, áður 3.900. 5 manna ristjald tvöfalt
tilboð kr. 12.900, áður 18.900.
SALOMON GONGUSKOR
Mjög vandaðir gönguskór. Frontera 5, Gore-Tex, kr. 7.900, áður 11.900
Leður gönguskór. Authentic 6, Gore-Tex, kr. 11.900, áður 18.300
Gönguskór verð frá kr. 2.900
wm
-
UTIVISTARFA TNAÐUR
Vandaður útivistarfatnaöur frá
SCANDA, VANDER, LOADSTONE og
fleirum. Fleece peysur, nærföt, sokkar,
hanskar, legghlífar og fleira.
svampdýna, verð frá kr. 690
Vindsæng, verð frá kr. 1.440
Dýna, sjálfuppblásin verð frá kr. 6.200
Pumpur, verð frá kr. 693
„Boxið er
alltaf klárt fyrir
veiðitúrínn“
ÍHORNto
Bubbi er mikill keppnismaður og gefst ekki upp fyrr en í fulla
hnefana. Til að verða ekki sleginn út af laginu, þegar á árbakkann
er komið, tekur hann enga sénsa. Hann notar veiðivörur sem
trgrstandi er á.
Veiðibúðiti í bænum
Hafnarstræti 5 • I0I Reykjavík • Sfml S5I 6760 • Fax S6I -4800
www.veidihomld.ls • olafur@veidihornid.is
Opið alla daga
EINN, TVEIR OG ÞRÍR 144.011