Morgunblaðið - 15.07.1999, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 5
UMRÆÐAN
Stretchbuxur
Nokkur orð
um ósannindi
FYRIR nokkru birti Geir
Hólmarsson tvær gi’einar í Morg-
unblaðinu þar sem hann gerir að
umtalsefni slaka tæknivinnslu þátt-
anna Maður er nefndur, sem Sjón-
varpið sýnir um þessar mundir, og
kallaði þá vinnslu „tæknilegan
subbuskap".
I Degi 2. júlí fjallar blaðamaður
um málið og ræðir við Jónas Sigur-
geirsson, forsvarsmann fyrirtækis-
ins Alvíss, sem ábyrgt er fyrir
vinnslu þáttanna, og spyr hvort
hann hyggist svara skrifum Geirs
Hólmarssonar. Jónas svarar:
„Hann á sjálfur að sjá sóma sinn
í að leiðrétta ósannindi sín. Eg vona
sannarlega að það hafi ekki haft
áhrif á hann, að hann er nátengdur
kvikmyndagerðinni Hugsjón, sem
hefur verið að móta hugmynd um
framleiðslu svipaðra þátta fyrir
Stöð 2. Það er því miður allt of mik-
ið um öfund og úlfúð í hópi kvik-
myndaframleiðenda.“
Við þessi ummæli er óhjákvæmi-
legt að gera nokkrar athugasemdir.
í fyrsta lagi er kostulegt að
Jónas skuli komast upp með að
kalla gagnrýni á ytri gerð þáttanna
„ósannindi". Hitt mun miklu nær
að þar liggi hinn beiski sannleikur.
Þættirnir eru illa gerðii’. Það finnst
ekki neinn fagmaður í kvikmynda-
gerð á íslandi sem heldur þvi fram
að þessh’ þættir séu vel unnir.
I öðru lagi er það ekki rétt að
Geir Hólmarsson sé nátengdur
kvikmyndagerðinni Hugsjón. Svo
vill til að hann er ekki í hópi þeirra
mörgu tuga kvikmyndagerðar-
manna sem unnið hafa fyrir Hug-
sjón á undaníornum árum. Geir er
hins vegar hálfbróðir eins af eig-
endum Hugsjónar og Jónas vísar
því væntanlega til ímyndaðs sam-
særis um að halda fram „ósannind-
unum“.
í þriðja lagi er hinn meinti
grundvöllur hins meinta samsæris
ekki fyrir hendi. Hugsjón hefur
ekki verið „að móta hugmynd um
framleiðslu svipaðra þátta fyrir
Stöð 2“. Hugsjón hefur öngva
hagsmuni, hvorki í bráð né lengd,
Sjónvarpsþættir
Mér er illa við, seglr
Björn Br. Björnsson,
að Jónas Sigurgeirsson
reyni að tengja nafn
Hugsjónar við sitt
vonda verk.
af því að bregða fæti fyrir Alvís og
hefur ekki gert neinar tilraunir í þá
átt.
I fjórða lagi kannast ég hvorki
við öfund né úlfúð í garð Jónasar né
kvikmyndagerðarinnar AIvíss. Það
má kannski heita úlfúð að svara
rangfærslum hans og þá verður svo
að vera. Um öfund er fráleitt að
ræða. Ég öfunda Alvís ekki af því
að framleiða sjónvarpsþætti fyrir
150 þúsund krónur og ég öfunda
Jónas sannarlega ekki af því verki
sem hann hefur skilað.
Mér er hins vegar illa við að
hann reyni að tengja nafn Hugsjón-
ar við sitt vonda verk.
Kvikmyndagerðin Hug-
sjón hefur á undanförn-
um tíu árum einkum ein-
beitt sér að framleiðslu
sj ónvarpsauglýsinga
með þeim árangri að við
höfum fengið fleiri verð-
laun fyrir sjónvarpsaug-
lýsingagerð en öll önnur
íslensk kvikmyndafyrir-
tæki til samans. Á þeim
markaði eru lykilorðin:
gæði og vönduð vinnu-
brögð. Af verkefnum á
sviði dagskrárgerðar má
nefna Skáldatíma; tólf
þátta röð um íslenska
rithöfunda sem sýndir
voru á Stöð 2, og sex þætti sem
Sjónvarpið sýndi í vetur undir sam-
heitinu Sönn íslensk sakamál. Hug-
sjón er þekkt fyrir allt annað en
þann tæknilega subbuskap sem Al-
vís hefur orðið ber að - og þannig
verður það áfram.
Mér finnst hug-
myndin að baki þátt-
unum Maður er
nefndur vera mjög
góð, sú hugmynd að
taka viðtöl við hund-
rað Islendinga í til-
efni aldamótanna.
Bæði eru viðtölin
ágætlega unnin frá
hendi spyrjenda og
vel virðist hafa tekist
til við val á viðmæl-
endum. Ekki aðeins
höfum við sem nú lif-
um gagn og gaman
af, heldur er heimil-
dagildi þessara við-
tala ómetanlegt. Þess
vegna er grátlegt að sjá gildi þessa
góða efnis rýrt með tæknilegum
vinnubrögðum sem tilheyi’a fortíð-
inni.
Höfundur er einn af eigendum
Hugsjónar.
Björn Br.
Björnsson
verslunarmiðst. Eiðstorgi,
sími 552 3970.
Randalín ehf.
v/ Kaupvang
7OO Egilsstöðum
sími 4/1 2433
Handunnar gesta- og
minningabækur fyrir:
✓ Ferminguna
✓ Brúðkaupið
✓ Merka ófanga
✓ Erfidrykkjuna
Leitið upplýsinga um sölustaði
Lauqavequr 54 • S: 552 2535
Póstsendum bækling
Breska budin
Vandaðir
SKOR
Landmannalaugar
Landmannalaugar eru ein fegurtta perla Islenskra öræfa. Pær aru i <f
sem umkríngd ér litskrúdugum liþarítfjöllum. Fró Landmannalaugum
í Þórsmörk liggur Laugavegurínn, ein fjalfarnasta gönguleió í ’^þyggó
'xm. •
- •.*.W . • fC!'
■ ....
V'
•m* vm.
... til daglegra nota
Scarpa Main
Léttir og þægilegir nylon-
og rúskinnskór á frábæru verði.
Verð: 5.990 kr.
... á fjöll ... alls staðar
Scarpa Jura ScarpaAdvance
Mjúkir og góðir alhliða gönguskór. Ótrúlega þægilegir og sterkir skór úr mjög
Saumalausir úr burstuðu leðrí. vönduðu leðrí með Gore-tex vatnsvöm.
Verð: I2.3S0 kr. Verð: 15.980 kr.
... svo dæmi séu tekini
Scarpa
skórnir
ganga
best...
...heldur þe'r gangandi
Snorrabraut 60 • 105 Reykjavík
SímiSll 2030 • Fax511 2031
www.skatabudin.is
Fæst einnig í helstu
sportvöruverslunum um land allt.