Morgunblaðið - 14.08.1999, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ
34 LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
Þei, þei og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
Hnigin er sól í sjó.
Sof þú í blíðri ró.
Við höfum vakað nóg.
Værðar þú njóta skalt.
Þei.þeiogró.
Þögn breiðist yfir allt.
(Jóhann Jónsson)
SKUGGARNIR lengjast og nótt-
in fyllir meir og meir út í myrkrið
sem magnast með ágústmánuði.
Roði sólarkringlunnar hitar svart-
an massann svo að draumarnir
líða upp undir vfirborð svefnsins,
undir skýin og verða sýnilegir,
næstum áþreifan-
legir, þegar maður
teygir sig í loðið
vakandi rökkrið.
Draummynstrið
verður munúðar-
fullt og jarðneskar
langanir áberandi.
Að sænga með öfl-
um tíma og rúms
virðist leikur einn
og ilmur sköpun-
arinnar liggur í
loftinu. Birting
guðdómsins
magnast að lit og
formi svo draum-
urinn verður skýr
og snertanlegur,
ró rökkursins eyk-
ur flæðið og maður er ekki viss
hvort mann var að dreyma eða
ekki þegar vakan tekur við. Á
þessum stundum finnur maður
vel mátt draumsins til öflugra
hluta og vilja hans til að vera
manni forsjón góð. Skýrar draum-
myndimar gefa vökunni ærið að
moða úr svo allur dagurinn getur
farið í að átta sig á draum og
veruleika. Þarna er skissubók eða
tölva upplagt hjálpartæki til að
varðveita minnið svo manni gefist
færi á að kanna gögnin síðar og
ná utan um táknin til að þýða þau
á mannamál. Þá er maður kominn
feti lengra að skilja Guð, heiminn,
sjálfan sig og innri þarfir.
„Ein dreymin" sendir drauma
Ég er á ferðalagi um landið
með manni mínum og systrum,
ásamt fleira fólki. Við erum komin
að hóteli þar sem við biðjumst
gistingar. I móttökunni er maður
sem talar bjagaða íslensku, hann
segist eiga góð herbergi fyrir
konurnar en ekki eins góð fyrir
karlana. Ég ætla eitthvað að ræða
þetta við systur mínar en þær
vilja ekkert við mig tala. Ég sný
mér að manni mínum, þá er hann
allur að gera sig til og spyr mig
hvort ekki sé góð lykt af honum,
hann er þá með ilmvatnsglas í
hendi. Ég þefa af honum og segi
að mér finnist þessi lykt ekki góð,
þá rýkur hann að konu sem stend-
ur þar og grípur utan um hana.
Ég verð alveg óð af afbrýðisemi
og ríf í hárið á konunni. Hún var
með eldrautt hár. Ég sný hana
niður í gólf, en hún flýr æpandi
burt. Ég segi við manninn minn
að ég vilji fá lykilinn að herberg-
inu mínu og hann réttir mér hann.
Ég fer upp á loft og leita að her-
bergi 202. Það er mjög erfitt að
sjá númerin á herbergjunum enda
er heldur ekkert skipulag á þeim,
þar að auki eru gangarnir alla
vega bogadregnir og skrýtnir og
engin regla á nokkrum hlut. Loks
fmn ég 202 og opna með lyklinum.
Ég kem inn í stórt eldrautt her-
bergi með risastóru rúmi en í því
sofa tvær manneskjur. Ég geng
áfram inn í annað herbergi inn af
því fyrra, þar er flatsæng á gólfi
og þar sefur líka fólk, enn innar
eru aðrar dyr og þegar ég lít inn-
um þær blasir við risastór íþrótta-
salur, þar er enginn. Ég sný við
og flýti mér út aftur og ætla að
fara niður en þá er stigahandriðið
alsett eins og hnífsblöðum, mjög
oddhvössum, með stuttu bili á
milli, þannig að ég er að meiða
mig á þeim alla leiðina niður. Þeg-
ar ég er að verða komin niður sé
ég fólk sitja við borð og það er allt
að hlæja og skemmta sér yfir
óförum mínum. Loks kemst ég
niður og þá sé ég manninn minn,
með stóra rauðvínsflösku í hend-
inni, vera að setjast hjá fólki sem
er að skemmta sér. Þegar hann
sér mig tek ég eftir því að hann
verður ekkert glaður að sjá mig.
Draumur 2.
Ég og maðurinn minn erum
einhvers staðar stödd í fjallshlíð
þar sem allt er
morandi í berjum.
Það era bókstaf-
lega kolsvartar
þúfur út um allt.
Maðurinn minn er
með skóflu og
byrjar að rista
þúfurnar í heilu
lagi af jörðinni.
En ég er alveg
eyðilögð yfir því
að vera ekki með
neina dós eða
poka eða eitthvað
til að tína berin í.
Ráðning
Þessir draumar
virðast eiga sér
stuttan aðdraganda og eru um
það bil að rætast nú í ágúst/sept-
ember. Yfirskrift fyrri draumsins
mætti vera „Ástardraumur í
ágúst“ því hann fjallar um ástina í
þínu lífi, tilfinningai’ og kvaðir
sem fylgja því að deila með öðr-
um. Hann snýst að öllu leyti um
þínar tilfinningar sem þú vilt ekki
bera á borð (hótelið) en virðast
samt óljóst á vitorði annarra
(maðurinn í móttökunni). Rauði
liturinn er áberandi sem bendir til
þess að hér snúist ástin að miklu
leyti um samlíf, kynlíf sem þú
virðist hafa lagt á hilluna um
stund (maðurinn þinn reynir að
vekja löngun þína með ilmvatni og
öðrum brögðum en án árangurs
og þó). Viðbrögð manns þíns
reyna á þig og þú ferð í mikla
innri vinnu til að ná áttum. Sú sál-
köfun gefur ýmislegt í skyn, svo
sem að þú sért óklár á eigin sjálfi
(gangamir voru skrýtnir og engin
regla) en loks finnur þú þinn við-
miðunarpunkt (herbergi 202 en
tölurnar eru lýsandi fyrir draum-
inn 2=þið tvö, 0=engin samskipti,
2=þið saman). Fremsta herbergið
vísar til þeirrar miklu orku (ástar)
sem sefur í þér, innra herbergið
til orkunnar sem er þegar nýtt
(flatsængin) og innsta herbergið
til ónýttra hvílubragða (enginn
var í íþróttasalnum). Ákvörðun
þín að gangast valdi tilfinning-
anna á hönd virðist taka verulega
á þig (hnífsblöðin á handriðinu) og
að sá tími sem tekur þig að ganga
gegnum þessa erfiðleika geti
reynst of langur og allt glutrist
niður (fólkið hló að þér og maður-
inn þinn með rauðvínið virtist
ókátur að sjá þig). En seinni
draumurinn gefur í skyn að allt
fari að óskum, þótt þú sért ekki að
öllu leyti sátt og hann verði ögn of
ágengur loks er hann kemst í ber-
in.
Þeir lesendur sem vilja fá drauma
sína birta og ráðna sendi þá með
fullu nafni, fæðingardegi og ári
ásamt heimilisfangi og dulnefni til
birtingar til:
•Þeir lesendur sem vifja fá
drauma s/na birta og ráðna sendi
þá með fullu nafni, fæðingardegi
og ári ásamt heimilisfangi og
dulnefni til birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaðið
Kringlunni 1
103 Reykjavík
Einnig má senda bréfin á net-
fang: krifri(a>xnet.is
Mynd/Kristján Rristjánsson
Þijár merkar draumnæt-
ur í ágúst.
LISTIR
Morgunblaðið/Golli
HRÓLFUR Sæmundsson og Ólafur Vignir Albertsson á æfingu fyrir
tónleikana í Víðistaðakirkju.
Ljóðaflokkur og aríur
í Víðistaðakirkju
HRÓLFUR Sæmundsson baríton-
söngvari og Ólafur Vignir Al-
bertsson píanóleikari halda tón-
leika í Víðistaðakirkju á morgun,
sunnudag, kl. 17. Tilefni tónleik-
anna er að Hrólfiir heldur nú út í
framhaldsnám við New England
Conservatory-skólann í Boston.
Á tónleikunum verður fluttur
Ijóðaflokkurinn Dichterliebe eftir
Robert Schumann og svo aríur
úr óperunum Töfraflautan, Don
Giovanni og Brúðkaup Fígarós
eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Þá verður flutt styttuatriði úr
Don Giovanni. Þar munu Hjálm-
ar Pótursson, bassi, Gunnar
Kristmannsson, barítón og kór
taka þátt í flutningnum.
Hrólfur hóf nám við Söngskól-
ann í Reylyavík haustið 1995
undir leiðsögn Guðmundar Jóns-
sonar og Ólafs Vignis Alberts-
sonar sem hafa verið hans aðal-
kennarar sfðan. Þaðan Iauk hann
áttunda stigi vorið 1998. Hann
lauk svo burtfararprófi þaðan nú
í vor.
Hrólfur hefur tekið þátt í nem-
endaóperu Söngskólans og fór
þar m.a. með hlutverk Papagen-
ós í Töfraflautunni eftir Mozart
og hlutverk Eisensteins í Leður-
blökunni eftir Johann Strauss.
Úr New England Conservatory
hafa komið sigurvegarar tveggja
síðustu Metropolitan-óperu-
keppna, inntökupróf í söngdeild-
ina eru ströng. Skólinn setur upp
þijár óperusýningar á ári þar
sem nemendum hans gefst kostur
á að spreyta sig á frægustu hlut-
verkum óperubókmenntanna,
jafnframt sem sótt er í smiðju
nýrri höfunda.
Tónleikar
á Dönskum
dögum
TÓNLEIKAR verða haldnir í
Stykkishólmskirkju á morgun,
sunnudag, kl. 16. Þessir tónleikar
eru liður í fjölskylduhátíðinni
Dönskum dögum sem haldin er í
Stykkishólmi þessa helgi, sjötta árið
í röð.
Að þessu sinni eru það eingöngu
heimamenn sem koma fram og
flytja létta tónlistardagskrá úr ýms-
um áttum. Sönghópur skipaður
söngfólki úr kór kirkjunnar og tón-
listarkennurum syngur blandaða
tónlist. Ingibjörg Þorsteinsdóttir og
Hólmgeir S. Þórsteinsson leika fjór-
hent á píanó. Daði Þór Einarsson
leikur á básúnu við undirleik Hólm-
geirs og Elísa Vilbergsdóttir sópran
syngur við undirleik Ingibjargar.
--------------------
Finni hlýtur
Norrænu
blaðamanna-
verðlaunin
FINNSKI gagnrýnandinn Timo
Hámáláinen fær Norrænu blaða-
mannaverðlaunin i ár.
Hámáláinen (f. 1945) er sagður
hafa lagt mikið af mörkum við
kynningu norrænna bókmennta og
bókamarkaðar í stærsta dagblaði
Finnlands og er lögð áhersla á að
hann sé einn hinna fáu sem upplýsi
finnskumælandi Finna um norræn-
ar bókmenntir.
Norræna bókmennta- og bóka-
safnanefndin, NORDBOK, veitir
verðlaunin, en nefndin fær í sinn
hlut árlega 6,2 milljónir danskra
króna sem hún úthlutar í því skyni
að styrkja norrænar bókmennta-
þýðingar og önnur verkefni á sviði
bókmennta og bókasafna.
Garðabær, Færeyjar
og Óli Steph.
TIÍMIST
Djasshálfð f Garðabæ
TRÍÓ ÓLAFSSTEPHENSENS
Sérstakur gestur Edvard Nyholm
Debess. Ólafur Stephensen píanó,
Tómas R. Einarsson og Edvard Ny-
holm Debess bassa og Guðmundur R.
Einarsson trommur. Kirkjuhvoll f
Garðabæ, þriðjudagskvöldið 10.
ágúst 1999.
FYRSTU djasshátíðinni í Garða-
bæ lauk með ljúfri sveiflu sl. þriðju-
dagskvöld þegar Tríó Ólafs Stephen-
sens, ásamt færeyska bassaleikaran-
um Edvard Nyholm Debess, lék í
troðfullu safnaðarheimili þeirra
Garðbæinga. Á föstudaginn hefst svo
djass- og blúshátíð á Selfossi, djass-
hátíð var í Eyjum um hvítasunnuna
og á Egilsstöðum í júnílok. Svo hefst
stóra djasshátíðin í Reykjavík 8.
september. Allar hafa þessar hátíðir
verið vel sóttar og virðast sumarleyfi
og ferðalög ekkert draga úr aðsókn -
enda fyllist allt af ferðalöngum þá
heimamenn halda á brott.
Tríó Ólafs Stephensens er elsta
starfandi djasshljómsveit hérlendis og
hefur ferðast víða um heim, auk þess
að leika hringinn í kringum landið. Er
þeir félagar léku á djass-, blús- og
fólkafestívalinu í Þórshöfn í Færeyj-
um kynntust þeir Edvard Debess
bassaleikara og tók hann í með þeim
félögum. Tómas hafði nokkra reynslu
af dúóleik með Ólafi Stolzenwal, nem-
anda sínum og samleikara, og féll
þeim félögum svo vel samstarfið að
hingað var Edvard boðið.
Tríóið lék fyrri hluta tónleikanna
Debess-laust. Allt frá fyrstu tónun-
um í Cute til þeirra síðustu, en það
lag rammar inn settin hjá Óla
Steph.-tríóinu, vissi maður á hverju
maður átti von. Tríóið er vel samspil-
að og sveiflan góð, mætti þó á stund-
um vera mýkri þegar píanistinn er í
Basie-grúfinu. Efnisskráin sam-
anstendur af þekktum viðfangsefn-
um djassleikara, flutningurinn engin
langloka og laglínan týnist aldrei.
Þetta fellur vel í geð „fólki sem hefur
lítið sem ekkert gaman af djassi",
einsog jafnan segir í fréttatilkynn-
ingum tríósins. Þó skal þess getið að
þetta fellur líka vel í geð þeim sem
hafa mjög gaman af djassi. Ekki er
það síst leikgleðin og húmorinn sem
smitar. Píanistinn því betri sem ein-
faldleikinn er meiri - og svo er
spennan byggð upp með blokkhljóm-
um. Útsetningarnar skondnar einsog
þegar Aek, Vármland du sköna er of-
ið inn í Close your eyes og píanistinn
óspar á tilvitnanirnar, meira að segja
Fats Waller í Just squeese me eftir
Duke Ellington og endað á Basie.
Eitthvað hafði tríóið verið að hug-
leiða hvort Billy Strayhom hefði
samið það lag. Svo er ekki því Ell-
ington skráði allt á vin sinn Stray-
horn, sem hann samdi er þeir unnu
saman, þótt hann keypti eitt og ann-
að eftir aðra. Aftur á móti er Take
the A train eftir Strayhorn og Things
ain’t what they used to be eftir son-
inn Mercher en það var eitt af betri
lögunum í bassadúói þeirra Tómasar
R. og Edvards N. og hefði verið
betra að hefja seinni hluta tónleik-
anna á þeim blús en Line for Lyons
sem hljómaði dálítið þvöglulega.
Edvard hefur léttari tón og nor-
rænni en Tómas sem slær girnis-
strengi einsog gömlu mennirnir.
Hljómur þeirra blandaðist þó
skemmtilega. Edvard lék m.a. Stolin
stef Tómasar með Maístjörnulokum
og svo léku þeir bráðskemmtilegan
karabíusöng eftir Tómas: Ég get
ekki sloppið. Tómas er fínn lagahöf-
undur, ég er handviss um að enginn
annar hérlendis hefði getað sett
þessi kunnuglegu stef saman á þenn-
an hátt.
Edvard lék með tríóinu síðustu lög
tónleikanna og bætti vel í sveifluna
og þegar tónleikum lauk risu tón-
leikagestir á fætur og klöppuðu
ákaft og uppskáru Takin a chance on
love. Svo kom Cute og velheppnaðri
djasshátíð í Garðabæ var lokið.
Vernharður Linnet
Fjallamyndir
í Galleru Sölva
ÁSDÍS Guðjónsdóttir sýnir krít-
armyndir í Galleríi Sölva Helga-
sonar í Lónkoti í Skagafirði dag-
ana 16.-31. ágúst. Myndimar eru
allar unnar á þessu ári með olíu-
krít á pappír.
Þetta er önnur einkasýning Ás-
dísar sem útskrifaðist úr MHÍ ár-
ið 1984. Hún leik kennsluréttinda-
námi frá HÍ 1992. Auk þess hefur
hún sótt ýmis framhaldsnámskeið.
Sýningin er opin alla daga.