Morgunblaðið - 14.08.1999, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Skammarleg vinnubrögð
stjórnar Heimdallar
ÞAÐ er sorglegt að
þurfa að segja það, en
svo virðist sem orð for-
manns Heimdallar séu
ekki meira virði en
pappírinn sem þau eru
skrifuð á. Ljóst er, að
fögur fyrirheit og lof-
orð hans um sanngimi í
^Ailltrúavali fyrir SUS-
ping, hafi verið lítið
annað en blekkingar.
Þetta eru stór orð en
þau koma frá mann-
eskju sem situr í stjóm
Heimdallar og hefur
sjálf orðið vitni að þeim
skammarlegu aðferð-
um sem beitt var við
fulltrúavalið.
Eins og þeim, sem málið þekkja,
er kunnugt um birti stjóm
Heimdallar nokkur viðmið um
hvemig að fulltrúavalinu yrði stað-
ið, á heimasíðu sinni. Þessum regl-
um var algjörlega ýtt til hliðar á
fundinum þegar valið sjálft fór
,/j?im. í stað þess að taka mið af
starfi fólks í Heimdalli og SUS vom
spánný viðmið, eins og hversu mikill
frjálshyggjumaður viðkomandi væri
og aldur umsælqenda, tekin í gagn-
ið. Þetta er auðvitað eins loðið og
annað sem komið hefur frá stjóm-
inni varðandi þetta mál. Stóð
kannski til að stjóm Heimdallar
raðaði hinum fjögur hundrað um-
sækjendum á einhvers konar frjáls-
hyggjuskala? Þá er ég viss um að
andstaða mín við lögleiðingu eitur-
Ma kæmi mér í vandræði gagnvart
®í'nfium sanntrúuðu félögum mínum í
stjóminni.
Þrátt fyrir að ég hafi ekki lýst
Ólöf Hreftia
Kristjánsdóttir
stuðningi mínum við
annan frambjóðand-
ann til formanns SUS,
þá virðist ég hafa legið
sterklega undir gran
um að fylgja ekki línu
formannsins. Nefna
má að umsóknir um
þingsetu, sem bárast í
tölvupósti, voru fram-
sendar til flestra
stjómarmanna
HeimdaUar tU grann-
skoðunar. En ekki tU
mín, hins granaða
stuðningsmanns
Jónasar Þórs Guð-
mundssonar. Þar að
auki var mér meinað
að líta yfir lista umsækjenda. Á
þessum lista lágu Ingvi Hrafn
Óskarsson og meðreiðarsveinar
hans, eins og ormar á gulli, enda
hlýtur að hafa verið mikið verk og
vandasamt að tryggja að fólk með
óæskUegar skoðanir slyppi ekki í
gegn.
Síðasta fimmtudagskvöld var ég
boðuð á fund tU þess að ræða full-
trúavaUð. Fundinn átti að halda á
heimUi formannsins. Sá fundur var
boðaður klukkan 22:30 og var ég
mætt á tUætlaðan stað á þeim tíma.
HeU klukkustund leið áður en meiri-
hluti stjómarinnar lét á sér kræla.
Hvað félagar mínir í stjóminni bar-
dúsuðu saman á meðan ég beið get
ég ekki sagt. Hitt er víst að eftir
stuttan fund var ákveðið að formað-
ur félagsins og jábróðir hans, Björg-
vin Guðmundsson, tækju sig saman
um að gera tiUögu í máiinu. Var
þetta gert undir því yfirskini að
stjómarmenn væra svo uppteknir
Heimdallur
Eg skammast mín, seg-
ir Ólöf Hrefna Krist-
jánsdóttir, fyrir þessi
lágkúrulegu vinnu-
brögð stjórnarinnar.
við vinnu að best væri að haga mál-
um svo. Eg var svo heppin að vera í
fríi og bauðst því tU að taka þátt í að
ganga frá listunum. Itrekaðar tU-
raunir mínar tU að ná í félagana í
gær reyndust hins vegar árangurs-
lausar, þar sem þeir tóku ekki símtöl
mín. Þessi tUlaga þeirra var svo af-
greidd í gær, á eins og hálfs klukku-
tíma haUelúja samkomu, þrátt fyrir
að hvergi bæri á að hin svo köUuðu
viðmið stjómarinnar væru í heiðri
höfð. Þar bókaði ég mótmæh við
þessum starfsháttum.
Eg skammast mín fyrir þessi lág-
kúralegu vinnubrögð stjómarinnar.
Aldrei hefði mig grunað að þeir
sjálfskipuðu útverðir frelsis og lýð-
ræðis, sem stjómarmenn Heimdall-
ar era, fómuðu hugsjónum sínum
og skoðunum svo sársaukalaust í
þeim eina tUgangi að tryggja vini
formannsins heppUegri stöðu í
kosningaslag sínum. Vonbrigði mín
era sérlega sár í Ijósi þess að ég
hafði lengi vel enga trú á að þær
áhyggjur, sem viðraðar hafa verið,
væru á rökum reistar. Annað hefur
komið í ljós.
Höfundur er stjómarmaður í
Heimdalli.
Einar K.
Þorsteinsson
^ Ámi
Árnason
Sjöfn Þórðardóttir
Jónas Þór til
forystu í SUS
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú
hafið sitt þriðja kjörtímabil í ríkis-
stjórn og hlaut flokkurinn frábæra
kosningu í nýafstöðnum alþingis-
aj^isningum. Ljóst að árangur eins
og sá sem flokkurinn hefur náð er
engum einum að þakka, heldur öfl-
ugri liðsheild félagsmanna flokks-
ins. Árangur flokksins er ekki síst
því að þakka að um árabil hefur
Samband ungra sjálfstæðismanna
haldið úti öflugu starfi og státar nú
af um 9.000 félagsmönnum. Mál-
efnavinna og ályktanir SUS eru
stór þáttur í starfinu og skiptir það
sköpum að hafa fólk með fjölbeytt-
an bakgrann til þess að standa að
starfinu. Svo hefur verið undanfar-
in ár og er ekkert útlit fyrir það að
starfið muni dragast saman heldur
þvert á móti er nú blásið til sókn-
ar.
Nýr formaður
Samband ungra sjálfstæðis-
manna heldur um næstu helgi sitt
35. þing. Þingfulltrúar munu við
mótun stefnu taka mið af því að
Formannskosning
Þannig mun félagið
næstu tvö árin, segja
Einar K. Þorsteinsson
------,---—■»-----------
og Arni Arnason og
Sjöfn Þórðardóttir, og
státa af formanni sem
skapar SUS jákvæða
og staðfasta ímynd.
þjóðin og heimurinn standa nú á
tímamótum. Tækifærin hafa sjaldan
eða aldrei verið meiri og stöðugleiki
þjóðfélagsins endurspeglast í athaf-
nagleði ungs fólks. Það er því mikil-
vægt að móta stefnu sem verður í
minnum höfð þegar h'ður fram á
næstu öld.
Öflugur málsvari ungra
sjálfstæðismanna
Fyrsti varaformaður SUS, Jónas
Þór Guðmundsson, hefur nú gefið
kost á sér sem formaður samtak-
anna næstu tvö árin. Við sem þekkj-
um til verka Jónasar Þórs í gegnum
félög okkar á Reykjanesi fögnum
þessari ákvörðun hans. Jónas Þór
þekkir starf SUS og aðildarfélag-
anna betur en flestir og er það sam-
tökunum gott veganesti inn í næstu
öld að hafa hann sem formann. Við
skoram á alla þingfulltrúa að veita
Jónasi Þór stuðning.
Þannig mun félagið næstu tvö ár-
in státa af formanni sem skapar
SUS jákvæða og staðfasta ímynd og
ekki síst Sjálfstæðisflokknum tæki-
færi til að leiða ungt fólk til bjartrar
framtíðar.
Veljum mann með reynslu í for-
ystusveit SUS, veljum Jónas Þór.
Einar K. er formaður Freyju, FUS
Grindavfk,
Ámi er formaður Loka, FUS Sand-
gerði/Garði/Vogum.
Sjöfn er formaður Baldurs, FUS
Seltjarnarnesi.
> ti>mbl.is
Fréttir á Netinu
Ödrengileg
vinnubrögð
Jónasarmanna
Á SÍÐUSTU dögum
hafa stuðningsmenn
Jónasar Þórs Guð-
mundssonar, sem býð-
ur sig nú fram til for-
manns SUS, skrifað
greinar þar sem efast
er um að málefnaleg
vinnubrögð séu viðhöfð
í, Heimdalli f.u.s., við
val á þingfulltrúum fé-
lagsins fyrir komandi
SUS-þing.
Það sem fær mig til
þess að stinga niður
penna er reynsla félaga
míns í SUS af vinnu-
Formannskosning
Umsækjandanum var
bent á að nær engar lík-
ur væru á, segir Arna
Hauksdóttir, að stuðn-
ingsmönnum Sigurðar
Kára í Hafnarfírði yrði
hleypt á þingið.
brögðum þeim sem stuðningsmenn
Jónasar Þórs iðka á meðan þeir
saka stjóm Heimdallar um ómál-
efnalegt val á þingfull-
trúum.
Skömmu eftir að
stuðningsmenn fyrr-
nefnds frambjóðanda
lýstu yfir áhyggjum
sínum um val stjómar
Heimdallar sótti félagi
minn um þingsæti í
Stefni, f.u.s. í Hafnar-
firði, þar sem Jónas
nýtur stuðnings for-
mannsins. Formaður
Stefnis byrjaði á því að
spyrja hvom fram-
bjóðandann umsækj-
andinn styddi. Svarið
var að hann tæki sjálf-
stæða ákvörðun og gæfi ekki upp
hvem hann styddi. Eftir það var
umsækjandanum bent á að nær
engar líkur væru á að stuðnings-
mönnum Sigurðar í Hafnarfirði yrði
hleypt á þingið og hann yrði að bera
umsóknina undir Jónas Þór Guð-
mundsson sem tæki síðan ákvörðun
í málinu.
Það eitt að stuðningsmenn
Jónasar saki stjórn Heimdallar um
ómálefnalegt val án nokkurs rök-
stuðnings er óviðunandi. Vinnu-
brögð þeirra sjálfra gera það svo
að verkum að allur þeirra málflutn-
ingur er þeim til háborinnar
skammar.
Höfundur situr i stjórn Heimdallar.
Ama Hauksdóttir
Opið bréf til sam-
gönguráðherra,
Sturlu Böðvarssonar
UNDIRRITAÐUR
hefur staðið í bréfa-
skriftum við ráðuneyti
yðar og sendi m.a. fýr-
irspum með 5 spurn-
ingum þann 20. mars
1998. Það var ekki fyrr
en einu ári og tveimur
mánuðum betur sem
loks barst svar frá
ráðuneytisstjóranum.
Þetta svar barst ekki
fyrr en ég hafði snúið
mér til umboðsmanns
Alþingis.
Svörin við spuming-
unum eru í sjálfu sér
bæði athyglisverð og
uggvekjandi þótt inni-
haldið sé heldur rýrt.
Spurt var hvað tefði mál rann-
Sjóslysarannsóknir
Hvað tefur mál Rann-
sóknarnefndar sjóslysa,
spyr Jóhann Páll Sím-
onarson, vegna m/s
Dísarfells sem sökk 9.
mars 1997?
sóknarnefndar sjóslysa vegna m/s
Dísarfells sem sökk 9. mars 1997.
I svarinu kemur fram að yfir-
völd í Antigua-Barbados hafi ekki
óskað eftir rannsókn á afdrifum
skipsins. Dísarfellið var sem sé er-
lent skip og þó svo að tveir ís-
lenskir sjómenn færust er ekki
ástæða til að rannsaka málið
vegna þess að einhver stjómvöld í
Mið-Ameríku sjá ekki tilefni til
þess. Er þetta það sem við sjó-
menn eigum að búa við á „íslensk-
um“ skipum í eigu ís-
lenskra útgerða en
flaggað undir fána er-
lendra þróunarlanda?
Af hverju er málið
ekki sent ríkissak-
sóknara þar sem hér
áttu tveir íslenskir
ríkisborgarar hlut að
máli? Þurftu íslensk
stjórnvöld að fá leyfi
til þess að vísa málinu
til hans frá Mið-Am-
eríku þó að útgerðin
sé í raun íslensk?
Önnur spurningin
var um Víkartind. Af
hverju hefur þetta mál
ekki verið rannsakað
ofan í kjölinn af íslenskum stjórn-
völdum? Getur erlend skip, sem
sigla á vegum íslenskra útgerða,
rekið á land við Islandsstrendur án
þess að íslensk stjórnvöld kanni
þau mál með öðrum hætti en með
lestri erlendra dagblaða? Ráðu-
neytið ber það fyrir sig í svari sínu
að einu spurnir sem það hafi um af-
drif málsins í Þýskalandi séu- af
lestri erlendra dagblaða! í þessu
slysi fórst einnig íslenskur sjómað-
ur við skyldustörf sín. Af hverju
var þessu máli ekki vísað til ríkis-
saksóknara?
Þriðja spumingin varðaði slys
um borð í Brúarfossi 31. ágúst
1996. Af hverju fær ekki sá ein-
staklingur, sem þar átti hlut að
máli, lokaniðurstöður rannsóknar-
innar í sínar hendur?
Að lokum: Er þess að vænta að í
þinni ráðherratíð muni borgaramir
ekki þurfa að standa í ómældri og
kostnaðarsamri aðgerð til að fá
fram viðunandi upplýsingar sem
snerta hagsmuni þeirra?
Með vinsemd og virðingu,
Ilöfundur er sjómaður.