Morgunblaðið - 14.08.1999, Síða 76

Morgunblaðið - 14.08.1999, Síða 76
5* Hefur þitt fyrirtæki efni á aö eyöa tíma starfsfólksins í biö? Það er dýrt að láta starfsfólkið bíða! jSölvukerfi sem virkar MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Burðarás í hópi stærstu eigenda nýrrar fískvinnslu á Þingeyri Fjárfestir í kvóta fyrir hálfan milljarð EIGNARHALDSFÉ LAGIÐ Burð- arás er meðal stærstu eiganda í físk- vinnslufyrirtæki sem verður stofnað á Þingeyri í dag. Aðrir stórir eigend- ur verða útgerðarfyrirtækið Vísir hf. í Grindavík, Tryggingamiðstöðin og Byggðastofnun. Stofnhlutafé verður um 400 milljónir og kvótinn um 2.000 þorskígildistonn en fjárfest verður í kvóta fyrir hálfan milljarð. ísafjarðarbær fékk 387 tonna byggðakvóta frá Byggðastofnun og fær nýja fyrirtækið hann. Vísir legg- ur fram 1.000 tonn af eigin aflaheim- ildum og að sögn Egils Jónssonar, stjórnarformanns Byggðastofnunar, er stefnt að því að fyrirtækið kaupi 600 tonn af þorskkvóta, en áætla má að kaupverðið verði tæpur hálfur milljarður. Ekki verður fjárfest í skipakosti því Vísir leggur til skip og kvóti fyrirtækisins verður skráður á þau. Athygli vekur að helstu eigendur fyrirtækisins eru íjársterkir aðilar sem koma ekki af Vestfjörðum. Egill segir að sú staðreynd gangi ekki gegn markmiðum Byggðastofnunar um uppbyggingu á landsbyggðinni. „Það að fara í samstarf með þessum fyrirtækjum var besti kosturinn í stöðunni og kannski sá eini sem til- tækur var til þess að ná fram þess- um mikilvæga árangri.“ ■ Burðarás/22 A bóla- kafi í sund- lauginni EKKI er alltaf nauðsynlegt að svamla á yfírborðinu þegar menn fara í sund og sjálfsagt að kanna eftir bestu getu und- irdjúpin í sundlauginni ef svo má að orði komast. Þannig get- ur maðurinn líka kafað drykklanga stund jafnvel þótt hann hafí ekki tálkn eins og fískar. Vissara er þó að hafa sæmilega snör sundtök til að reka höfuðið upp úr á ný þegar h'ður að því að lungun kalli á loft. Eltur á 170-190 km hraða LÖGREGLAN á Blönduósi handtók í gærkvöldi mann, sem eltur hafði verið um Langadal á 170-190 km hraða. Maðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögi'eglu en lét af ofsaakstrinum þegar hann kom inn í bæinn á Blönduósi þar sem vegartálmi hafði verið settur upp. Að sögn lögreglunnar barst henni tilkynning klukkan 19.20 um mann á bíl á Vatnsskarði sem rásaði um veginn og hleypti ekki umferð fram úr sér. Lögreglan á Sauðárkróki fór á vettvang en þegar maður- inn varð hennar var gaf hann í og ók vestur í Húnaþing. Lög- reglan á Blönduósi ætlaði að mæta manninum og stöðva aksturinn við brúna yfir Svartá en þegar hann kom þar að á ofsaferð ákvað lögreglan að hleypa honum fram hjá. Síðan var ekið á eftir manninum um Langadal þar sem bifreið hans náði 170-190 km/klst. hraða á 5-10 mínútna tímabili. Við svo búið hætti lögreglan að sögn formlegri eftirför og dró þá úr hraðanum. A meðan voru gerð- ar ráðstafanir til að setja upp vegartálma á Blönduósi til að stöðva aksturinn þar. Maðurinn nam staðar við vegartálmann. Að sögn lögreglu kom þá í ljós að maðurinn er sjúklingur og var honum ekið á sjúla-ahús í Reykjavík í gær- kvöldi. „Þetta var svakalega hættu- legt á tímabili. I hvert sinn sem hann ók fram úr bíl sá maður fyrir sér að árekstur gæti orðið en fyrir einhver mildi fór allt á besta veg sem hægt var,“ sagði Gunnar Sigurðsson, lögreglu- maður á Blönduósi, í samtali við Morgunblaðið. Andstaða borgarbúa ekki hunsuð INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, . IMfcrgarstjóri í Reykjavík, segir í grein í Morgunblaðinu í dag að ef al- menn andstaða komi fram við tillög- ur um byggingar á lóðum í Laugar- dal, eftir að kynning hafí farið fram á þeim, muni meirihluti borgarstjóm- ar ekki hunsa mótmæli borgarbúa. I greininni segir hún: „Skipulags- tillagan er nú til auglýsingar og al- mennrar kynningar. Borgarbúum gefst kostur á að kynna sér hana og koma athugasemdum sínum á fram- færi. Það er sjálfsagt og eðlilegt að fram fari almenn umræða um ágæti UUögunnar og borgaryfírvöldum ber V«r vega og meta þau rök sem fram koma. Ef almenn andstaða er meðal 'borgarbúa við skipulagstillöguna mun meirihlutinn í borgarstjórn ekki hunsa þær raddir, öndvert við það sem Davíð Oddsson og Sjálfstæðis- flokkurinn gerðu þegar tugþúsundir Reykvíkinga mótmæltu byggingu . Ráðhiíssins “ ■ Deiliskipuiag/54 Stjdrnarformaður Scandinavian Holding um hlutinn í FBA Gefið til kynna að dreifð eign væri ekki skilyrði GUÐMUNDUR Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON og stjómarformaður eignarhaldsfélags- ins Seandinavian Holding, segir að þegar spari- sjóðimir hafi gengið eftir svörum frá ríkisstjóm- inni um hvernig staðið yrði að sölu á 51% hlut ríkissjóðs í FBA hefðu þeir ekki fengið skýr svör. „Þegar athygli okkar var vakin á því að ríkissjóð- ur kynni að hafa frjálsari hendur um sölu á bréf- unum en áður var um talað, þ.e.a.s. að dreifð eignaraðild væri ekki eins afdráttarlaust skilyrði og áður var rætt um, varð okkur ljóst að það var talsverð áhætta fólgin í þessari fjárfestingu okk- ar,“ sagði hann. „Við gætum hafa setið uppi með þriggja milij- arða fjárfestingu án þess að hafa náð markmiði okkar,“ sagði Guðmundur. „Ef okkur hefði verið ljóst hvort og með hvaða hætti ríkisstjómin hyggst selja hlutabréf sín í FBA og að þau áform færu saman við okkar hugmyndir er líklegt að við hefðum ekki tekið ákvörðun um sölu núna.“ Guðmundur telur að umræðan, sem skapast hefur um sölu á hlut sparisjóðanna í FBA til ORCA, beri keim af því að menn átti sig ekki á hvaða lögmál gildi á hlutabréfamarkaði. Guðmundur segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvemig fjármunirnir sem fáist við söluna verða notaðir. „Við munum að sjálfsögðu skoða alla þá möguleika sem kunna að gefast í einkavæðingaráformum ríkisstjómarinnar. Ef við teljum að einhver kaup á hlutabréfum ríkisins falli að hagsmunum sparisjóðanna með einhverja uppstokkun í huga munum við að sjálfsögðu skoða þau mál vandlega." Ekki ætlunin að viðhalda leynd Fjórir einstaklingar veita forystu fjóram hóp- um fjárfesta sem mynda eignarhaldsfélagið Orca SA í Lúxemborg, þeir Jón Ólafsson, Þorsteinn Már Baldvinsson, Jón Ásgeir Jóhannesson og Eyjólfur Sveinsson. Félagið á nú 28% hlut í FBA, sem skiptist jafnt milli hópanna fjögurra. í yfir- lýsingu sem aðstandendur Orca sendu frá sér í gær segir að það hafi aldrei verið ætlunin að við- halda leynd yfir því hverjir ættu hlut að máli. „Staðreyndin er einfaldlega sú að kaupin vora ekki endanlega frágengin fyrr en með samþykkt stjómar Scandinavian Holding í gær. Kaupendur vildu ekki leggja nöfn sín við viðskipti fyrr en þau væra fullfrágengin," segir þar. Aðspurður hvort þessir fjórir aðilar hefðu stað- ið saman að kaupunum frá upphafi eða hvort breyting hefði orðið á samsetningu hópsins eftir undirritun samninga við Scandinavian Holding sagði Eyjólfur Sveinsson, stjómarformaður Orca SA: „Þessi hópur náði mjög fljótt og vel saman. Við höfum ákveðið að ræða ekki nákvæmlega at- burðarásina." ■ Fjórir hópar/4 ■ Menn átta sig/38

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.