Morgunblaðið - 21.08.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.08.1999, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Olía lekur enn úr E1 Grillo EKKERT lát virðist vera á olíuleka úr flaki E1 Grillo sem liggur á botni Seyðisíjarðar. Á þess- ari mynd sem tekin var yfir fiakinu í gær má greina olíuflekki á sjávarfletinum. Lögreglan á Seyðisfirði kannaði ástandið í gær og sagði að olíuflekkirnir yfir flakinu færu síst minnkandi. Fúkalyfjafóðrun í landbúnaði talin hættuleg mönnum Ekki leyfíleg hérlendis í BRESKRI skýrslu um notkun fúkalyfja í landbúnaði segir að bein tengsl séu milli notkunar þeirra og vaxtar „ofurveira“ eins og E-coli, salmonellu og kampýlóbakter. Petta kom fram í dagblaðinu Daily Tel- egraph í fyrradag og þar er ráða- mönnum bent á að banna svokallaða fúkalyfjafóðrun. Slík fóðrun hefur aldrei verið leyfð hérlendis. Halldór Runólfsson yfirdýralækn- ir sagði í samtali við Morgunblaðið að þessi gagnrýni á fúkalyf ætti fyrst og fremst við þá sem notuðu þau stöðugt til fóðrunar, en að hans sögn er það gert víða til þess að halda niðri bakteríum sem draga úr vexti dýranna. Halldór sagði að fúkalyfja- fóðrun væri algengust í svína-, hænsna- og kálfarækt, en væri ekki leyfileg hérlendis. Að sögn Halldórs getur stöðug fúkalyfjafóðrun leitt til þess að það myndist stofnar af t.d. E-coli, salmonellu og kampýlóbakter sem eru ónæmir fyrir fúkalyfjum. „Ef þessar bakteríur eru í mat- Hópur hugsanlegra fjárfesta um byggingu álvers á Austurlandi RÆTT hefur verið um það meðal hugsanlegra fjárfesta í álveri á Austurlandi að kalla til liðs við sig Bond Evans, sem var tengdur við- ræðum sem fram fóru milli stjórn- valda og Atlantsálshópsins svo- nefnda, sem gerði athuganir á byggingu álvers á Keilisnesi. „Það hefur ekki verið gengið frá neinu slíku. Bond Evans þekkir ágætlega til hér á íslandi og menn hafa velt því fyrir sér hvort hann Rætt um að leita til Bond Evans gæti komið hópnum til aðstoðar. Það hefur ekkert verið ákveðið í þeim efnum, enda eru menn ekki komnir í þá stöðu að ákveða slíkt. En það er rétt að þessari hugmynd hefur verið velt upp,“ segir Erlend- ur Magnússon hjá Fjárfestingar- banka atvinnulífsins. Forsvarsmenn fimm íslenskra fyrirtækja, sem í sumar hafa skoðað arðsemi þess að leggja fram hlutafé í álver á Austurlandi, hittust á fundi í gær. Þar voru rædd ýmis útfærsluatriði. Erlend- ur segir að ekki sé búist við því að komin verði niðurstaða í þessi mál fyrr en í fyrsta lagi í byrjun sept- ember. vælunum og það vill svo slysalega til að það verður sýking út frá rangri meðhöndlun matvælanna þá getur fólk sýkst af þessum ónæmu stofn- um og þá verður mjög erfitt að lækna það,“ sagði Halldór. í grein breska blaðsins kom fram að Svíar leyfðu ekki notkun fúkalyfja í landbúnaði. Að sögn Halldórs hefur fóðrun með fúkalyfjum ætíð verið bönnuð á íslandi, ísland væri eina landið í Evrópu sem hefði aldrei leyft slíka fóðrun. Hann bætti því við að þótt Svíar leyfðu ekki fúkalyfja- fóðrun í dag hefði hún verið leyfileg þar allt til ársins 1986. Fúkalyf aðeins notuð til lækninga hérlendis Halldór sagði að hér væru fúkalyf aðeins notuð til lækninga. „Fúkalyfjunum er kannski komið til skila með fóðri, en slík fóðurgjöf varir bara i stuttan tíma. Við slíka gjöf er farið eftir fyrirmælum dýra- læknis og þess gætt að afurðir fari ekki á markað fyrr en útskolunar- tíma er lokið. Fúkalyfjagjöf til lækn- inga hefur því ekki sömu áhrif og stöðug fúkalyfjafóðrun." Aukning kampýlóbakter-sýkinga hérlendis undanfarið hefur því ekk- ert með fúkalyfjafóðurgjöf að gera, að sögn Halldórs. „Eg var á fundi yfirdýralækna á Norðurlöndum í byrjun vikunnar og þar vakti ég máls á aukningu kampýlóbakter-sýkinga hérlendis og þá kom í ljós að kollegar mínir höfðu sömu sögu að segja frá sínum heima- löndum, en höfðu hins vegar ekki svör við því hvaðan þessi sýking væri komin.“ Hannes Hlífar Stefánsson valinn Skákmaður Norðurlanda á 100 ára afmæli Norræna skáksambandsins Einvígi Friðriks og Bent Larsens hápunktur hátíðarhaldanna Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. MIÐPUNKTUR afmælishátíðar, sem haldin var í Tívolí í gær í til- efni af aldarafmæli Norræna skáksambandsins, var einvígi þeirra Friðriks Ólafssonar og Bent Larsens. Einvíginu lauk með sigri Larsens. Friðrik átti um tíma mjög góða möguleika í seinni skákinni, en einvíginu lyktaði með bráðabana, sem Bent Larsen vann. Að loknu einvígi Friðriks og Bents Larsen áttust við þeir Hannes Hlífar Stefánsson og Jonny Hector, hinn sænski. Þar fór Hannes með sigur af hólmi, vann með tveimur vinningum gegn einum. Eftir það var tilkynnt val á Hannesi sem Skákmanni Norðurlanda 1999. Einvígi Friðriks og Bents Lar- sen var haldið í minningu þess að éinvígi þeirra félaga í Reykjavík 1956 um Norðurlandatitilinn þykir einn eftirminnilegasti atburðurinn í sögu sambandsins. Einar S. Ein- arsson framkvæmdastjóri Visa Is- land stýrði verðlaunaafhendingu, en Niels Helveg Petersen utanrík- isráðherra Dana afhenti verðlaun og viðurkenningar, en hann er annálaður áhugamaður um skák. Einvígið 1956 lengi í minnum haft „Við tefldum kannski ekki af sömu leiftrandi andagiftinni og í gamla daga. Ég þurfti aðeins að Hannes Hlífar Stefánsson átta mig á manngangin- um,“ sagði Friðrik með bros á vör að loknum átök- um gömlu kempnanna. Friðrik sagðist hafa haft gam- an af keppn- inni, þó hann væri ögn ryðg- aður. „En ég fann áhugann fljótt vakna við taflborðið og andann örvast. Ég má vel við úrslitin una, því Bent Larsen er atvinnumaður í greininni, enda fann ég strax að hann er miklu þjálfaðri en ég.“ Það er hið magnaða einvígi þeirra Friðriks og Bent Larsens í Reykjavík 1956, sem svo mjög er ( minnum haft að fundur þeirra fé- laga við skákborðið var eðlilegur miðpunktur hátíðarhaldanna í gær. „Það var hálf galin stemmn- ing þá,“ segir Friðrik, er hann rifj- ar þetta upp. Það fór skákfár um landið og áhuginn var gríðarlegur. Friðrik sagði að það gleddi sig vissulega að einvígið væri enn í minnum haft og það væri heiður að því að fá að keppa nú á afmæl- ishátíðinni, auk þess sem það vekti angurværar tilfinningar. Friðrik Ólafsson Bent Larsen Það var þó stutt í glaðværðina, því þama var Helgi Ólafsson einnig staddur. Hann benti á að þeir Friðrik og Bent væru báðir 64 ára og á skákborðinu væru einmitt einnig 64 reitir. „Við verð- um þá að bæta við reitum á næsta ári,“ varð Friðrik þá að orði með glettnisglampa í augum. Helgi var ekki fæddur, þegar þeir Friðrik og Larsen tókust á í Reykjavík 1956, en segist fyrir stuttu hafa náð í úr- klippur frá einvíginu og séð af þeim að þetta hefði verið mjög sérstakur atburður. „Þetta var yfirþyrmandi reynsla,“ segir Bent Larsen, þeg- ar hann er spurður út í einvígið 1956. Hann stundar enn skák full- um fetum, býr í Argentínu og skrifar daglega um skák í Ekstra Bladet. „Þessi gríðar- legi áhugi, sem einvígið vakti, var alveg ein- stakur og varð til þess að þetta var svo minnisstæð og áhrifamikil reynsla,“ segir Larsen. Larsen tefldi nýlega á minn- ingarmóti um skákmeistar- ann Petrosjan í Rússlandi. Skákáhugi hefur lengi verið mik- ill þar, en Larsen sagðist ekki geta fundið betur en að áhuginn væri minni nú en fyrir þrjátíu ár- um. Á mótinu hitti hann Boris Spassky, sem margir íslenskir skákáhugamenn kannast við, ekki síst eftir að hann tefldi heims- meistaraeinvígi við Bobby Fischer á íslandi á sínum tíma. „Það er alltaf jafn þægilegt að hitta Spassky, en hann teflir ekki mikið núorðið," segir Larsen. Undiralda og dulin spenna „Það var þung staða í skákinni, mikil undiralda og dulin spenna," segir Helgi Ólafsson glettnislega um skák þeirra tvímenninganna Friðriks og Larsens. Friðrik hafi staðið sig með sóma, sérstaklega framan af, þegar hann átti væn- lega möguleika í endatafli annarr- ar skákarinnar. Helgi tók þátt í fjöltefli, sem þeir Helgi Áss Grét- arsson og Jón Viktor Gunnarsson tóku einnig þátt í. Ymislegt var gert til hátíðar- brigða í gær, en það var einmitt fyrir nákvæmlega einni öld að Norrænasskáksambandið var stofnað í Tívolí. Auk fjölteflis á fjórtán borðum við stóra gos- brunninn í Tívolí, fyrir framan tónleikahúsið, þar sem einvígi þeirra Friðriks og Larsens fór fram, var einnig teflt þar með lif- andi mönnum. Norðurlandameist- aramótið í skák var einnig haldið í vikunni. I tilefni afmælisins var gefin út bókin „Nordisk sjakk i 100 ár“ eft- ir Óstein Brekke. Stiklað er á stóru í sögu félagsins. Þar rifjar Friðrik upp minningar frá nor- rænu skákkeppnunum 1950 og 1953 og Bent Larsen segir frá keppninni 1956. Frá því 1950 hafa verið útnefnd- ir 38 norrænir stórmeistarar. Sví- ar eiga fjórtán norræna stórmeist- ai-a, Islendingar níu, Danir sjö og Finnar og Norðmenn hvorir um sig fjóra. Sex íslendingar hafa orðið Norðurlandameistarar í skák. Baldur Möller varð norrænn meistari bæði 1948 og 1950, Frið- rik Ólafsson hreppti titilinn bæði 1953 og svo aftur 1971, Ingi R. Jó- hannsson 1961, Freysteinn Þor- bergsson 1965, Margeir Pétursson 1987 og Jóhann Hjartarson 1997. Auk þess að sigra titilinn í hinu eftirminnilega móti 1956 varð Bent Larsen Norðurlandameistari aftur 1973.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.