Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
187. TBL. 87. ARG.
LAUGARDAGUR 21. AGUST 1999
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Atökin í Dagest-
an breiðast út
Rússar gera 37 sprengjuárásir á stöðv-
ar skæruliða á einum sólarhring
Makatsjkala, Moskvu. AFP, Reuters.
ÁTÖK milli uppreisnarmanna aðskilnaðarsinnaðra múslíma og rúss-
neskra stjórnarhermanna í sjálfstjórnarlýðveldinu Dagestan breiddust í
gær út til norðurhluta þessa syðsta héraðs rússneska sambandsríkisins,
þegar rússneski herinn kom sér fyrir með þungavopn víðar um héraðið
til að mæta árásum sem óttast er að skæruliðar muni freista að beina
gegn óbreyttum borgurum.
Leyniskyttur Tsjetsjníu-megin
landamæranna skutu í gær einn
rússneskan hermann til bana og
særðu annan nærri bænum Kizlyar í
Norður-Dagestan, eftir því sem tals-
maður innanríkisráðuneytisins í
Makatsjkala, höfuðstað Dagestans,
greindi frá.
Rússar svöruðu með því að gera
37 sprengjuárásir með þyrlum og
herþotum á stöðvar skæruliða. Þetta
eru þyngstu loftárásirnar sem Rúss-
ar hafa gripið til frá því þeir hófu
herförina gegn uppreisnarmönnum
hinn 7. ágúst sl. Hermt var að 20
skæruliðar hefðu fallið í árásum
gærdagsins. Að minnsta kosti 40
rússneskir hermenn hafa fallið frá
því átökin hófust og á að gizka 500
skæruliðar.
Tölur um þetta eru hins vegar
nokkuð á reiki og skæruliðar neita
alfarið þeim staðhæfingum rúss-
neskra stjórnvalda að mikið mann-
fall hafi átt sér stað í röðum skæru-
liðanna.
Minnir Kremlverja
á Tsjetsjníu-hrakfarirnar
Fram að þessu hafa átökin aðal-
lega verið um nokkur fjallaþorp í
Botlikh- og Tsumadin-sýslum í Suð-
vestur-Dagestan, en loftárásir gær-
dagsins náðu einnig til staða í Tsjet-
sjníu þar sem Rússar telja að skæru-
liðar hafi komið sér upp bækistöðv-
um til innrása í Dagestan. Pessi
framvinda átakanna hefur aukið á
áhyggjur manna í Moskvu um að
ófriðurinn muni breiðast meira út og
fari að minna óhugnanlega mikið á
hrakfarastríðið í Tsjetsjníu sem háð
var á árunum 1994-1996 og lyktaði
með niðurlægjandi ósigri Rússa og
viðvarandi óstöðugleika á svæðinu.
Reuters
Leiddur af
leikvelli
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í
frjálsíþróttum var sett við hátfð-
lega athöfn á Olympíuleikvangin-
uin í Sevilla á Spáni í gær.
A myndinni má sjá hvar maður
í gervi Giraldillas, lukkudýrs
mótsins, er leiddur af leikvelli en
maðurinn hafði teiknað pólitískan
áróður - þar sem þess var krafist
að baskneskum föngum í spænsk-
um fangelsum yrði leyft að af-
plána dóma sína í Baskalandi - á
búning Giraldillas.
Álitleg
launa-
hækkun
Harare. AFP.
ROBERT Mugabe, forseti
Zimbabve, skammtaði sér og
ríkisstjórn sinni nýlega álitlega
launahækkun þrátt fyrir að
efnahagsástand í landinu hafi
vart verið verra í nítján ára
stjórnartíð Mugabes en einmitt
núna. Greindu fjölmiðlar í
Zimbabve frá því í gær að
Mugabe hefði fyrirskipað að
laun hans og ráðherra hans
skyldu fara í fimmtíu þúsund
Zimbabve-dollara á mánuði,
hækkun sem nemur 182%.
Haft var eftir Chen Chimu-
tengwende, ráðherra upplýs-
ingamála, í dagblaðinu Daily
News í gær að hækkunin væri
réttlætanleg enda hefðu laun
ráðherra í Zimbabve verið með
því lægsta sem þekktist í þess-
um heimshluta.
Talsmaður verkalýðsfélag-
anna í landinu kvaðst hins vegar
gjörsamlega orðlaus yfir
aðgerðum Mugabes forseta.
Liðsmenn tyrkneska hersins unnu að björgunarstörfum í einu úthverfa Istanbúl í gær.
Reuters
Óttast að allt að fjörutíu þúsund manns hafí farist í Tyrklandi
„Skelfilega" margir
enn týndir í rústunum
Bursa, Ankara, Genf. Reuters, AFP.
TYRKIR sögðu í gær að enn lægi
„skelfilega" margt fólk grafið í
húsarústum víðs vegar um svæði
það, sem hvað verst varð úti þegar
jarðskjálfti reið yfir norðvestur-
hluta Tyrklands aðfaranótt þriðju-
dags. Búið var að finna yfir tíu þús-
und lfk í húsarústunum í gær en
talið var að enn væru þrjátíu og
fimm þúsund manns fastir í rústun-
um. Sérfræðingar Sameinuðu þjóð-
anna sögðu að endanleg tala fórnar-
lamba gæti því orðið allt að fjörutíu
þúsund manns, enda þykja lfkur á
að fólk finnist á lífi minnka með
hverjum degi sem líður.
„Tölurnar eru skelfilegar. Mjög
margt fólk er grafið í húsarústunum.
Miklu fleiri en við höfðum talið,"
sagði tyrkneskur embættismaður í
samtali við Eeuters. Sérfræðingar
sögðu mikla hættu á að farsóttir
breiddust út á hamfarasvæðinu, en
aðstæður eru afar erfiðar. Hitinn er
miMll og skemmdir á vatnslögnum
valda því að ekkert rennandi vatn er
að fá, auk þess sem sífellt stækari
óþefur af Ukum, sem enn á eftir að
grafa, eykur smithættu. „Kannski er
okkar versta vandamál nú hættan á
farsóttum," sagði Bulent Ecevit, for-
sætisráðherra Tyrklands, í gær.
„Versti jarðskjálfti í
sögu Tyrklands"
Milljónir Tyrkja tóku þann kost
að sofa utandyra í nótt og fyrrinótt
af ótta við að viðvaranir helsta jarð-
skjálftafræðings Tyrklands, um að
vænta mætti fleiri skjálfta, myndu
rætast.
Stjórnvöld lögðu hins vegar aUt
kapp á það í gær að slá á angist
þeirra, sem búa á skjálftasvæðinu,
og sögðu ómögulegt að segja fyrir
um hvort eða hvar jarðskjálftar riðu
yfir.
Ecevit fór ekkert í launkofa með
þá skoðun sína að jarðskjálftinn á
þriðjudag hefði verið „einn af þeim
verstu í sögu mannkyns og sá öflug-
asti í sögu Tyrklands". Hann neitaði
hins vegar ásökunum um að tyrk-
nesk stjórnvöld hefðu brugðist hægt
og Ula við hörmungunum og sagði að
aUt væri nú gert til að aðstoða þá
sem urðu iUa úti í jarðskjálftanum,
sem og til að bjarga eins mörgum úr
húsarústum og auðið væri.
Fjármálasérfræðingar í Ankara
spáðu því í gær að Tyrkland myndi
þurfa erlenda fjárhagsaðstoð upp á
tuttugu tíl tuttugu og fimm miUj-
arða bandaríkjadala, eða rúmlega
fjórtán hundruð mUljarða ísl. króna,
vegna náttúruhamfaranna.
Friðargæsla í Kosovo-héraði
Rússar hóta að
draga sig úr KFOR
Moskvu, Berlín. AFP, Reuters.
FULLTRÚAR rússneskra stjórn-
valda hótuðu því í gær að Rússar
myndu fiytja friðargæsluhða sína í
Kosovo úr héraðinu og sögðust ekki
vUja að rússneskar hersveitir tækju
þátt í aðgerðum KFOR, friðar-
gæslusveita Atlantshafsbandalags-
ins (NATO), þar sem þeim væri Ula
stjórnað.
„Ef aðgerðir KFOR fara í vissan
farveg, mun þátttaka Rússa í sUk-
um aðgerðum ekki vera möguleg,"
var haft eftir þeim Leonid Ivashov
hershöfðingja og Borís Mayorsky,
fulltrúa rússneska utanríkisráðu-
neytisins í málefnum Kosovo, í frétt
ínterfax-fréttastofunnar í gær.
Bættu embættismennirnir því þó
við að enn sem komið væri myndu
Rússar halda Uði sínu innan héraðs-
ins.
Sögðu þeir að ályktanir Samein-
uðu þjóðanna sem kveða á um hlut-
verk og starfsskyldur KFOR væru
virtar að vettugi þar eð öryggi
Serba í Kosovo-héraði væri ekki
tryggt vegna ógna frá vopnuðum
liðsmönnum Frelsishers Kosovo
(UCK). Stjórnvöld í Moskvu hafa að
undanförnu kvartað undan því að
friðargæslusveitir KFOR hafi
brugðist skyldum sínum og ekki
komið í veg fyrir flótta Serba úr
. héraðinu. TaUð er að aðeins um
2.000 Serbar séu nú í Pristina, hér-
aðshöfuðstað Kosovo, í samanburði
við þá 40.000 sem þar voru, áður en
stríðið á Balkanskaga braust út.
Reuters
Námsmenn í Belgrad kveikja á
kertum á afmælistertu, í tilefni
af 58 ára afmæli Júgdslavíufor-
seta í gær. Kakan á að tákna
gömlu Júgóslavíu og sneiðarn-
ar svæðin sem MUosevic hefur
misst í stríðsrekstri súium á
Balkanskaga sfðan árið 1991.
Verð á hrá-
olíu hækkar
London. AFP.
HEIMSMARKAÐSVERÐ á hráolíu
fór upp fyrir 21 bandaríkjadal á
tunnuna í gær og hefur ekki verið
hærra um langt skeið. Raunar hefur
tvöföldun átt sér stað frá því í febrú-
ar en þá var verð á olíu komið niður
fyrir tíu dali á tunnuna.
Talið er að eldurinn, sem kviknaði
í helstu olíuhreinsistöð Tyrklands í
kjölfar jarðskjálftans á þriðjudag,
sem og hættan á að hvirfilbyljir á
Mexíkóflóa trufluðu olíuframleiðslu í
Bandaríkjunum, hafi haft áhrif á að
verð á olíu fer enn hækkandi. Var
því spáð í gær að markaðsverðið
gæti enn hækkað og jafnvel farið
upp í 23 dali á allra næstu vikum.
Sérfræðingar sögðu hins vegar að
hugsanlegt væri að verð færi lækk-
andi á ný tækju aðildarlönd OPEC,
samtaka helstu olíuríkja heims, upp
á því að auka skyndilega framboð á
olíu í því skyni að hámarka gróða
sinn nú þegar verðið er hátt,