Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 1
187. TBL. 87. ÁRG. LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Átökin í Dagest- an breiðast út Rússar gera 37 sprengjuárásir á stöðv- ar skæruliða á einum sólarhring Makatsjkala, Moskvu. AFP, Reuters. ÁTÖK milli uppreisnarmanna aðskilnaðarsinnaðra múslíma og rúss- neskra stjómarhermanna í sjálfstjómarlýðveldinu Dagestan breiddust í gær út til norðurhluta þessa syðsta héraðs rússneska sambandsríkisins, þegar rússneski herinn kom sér íyrir með þungavopn víðar um héraðið til að mæta árásum sem óttast er að skæruliðar muni freista að beina gegn óbreyttum borgurum. Reuters Liðsmenn tyrkneska hersins unnu að björgunarstörfum f einu úthverfa Istanbúl í gær. Qttast að allt að fjörutíu þúsund manns hafí farist í Tyrklandi „Skelfílega“ margir enn týndir í rústunum Reuters Leiddur af leikvelli HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í fijáisíþróttum yar sett við hátíð- lega athöfn á Ólympíuleikvangin- um í Sevilla á Spáni í gær. Á myndinni má sjá hvar maður í gervi Giraldillas, íukkudýrs mótsins, er ieiddur af leikvelli en maðurinn hafði teiknað pólitfskan áróður - þar sem þess var krafist að baskneskum föngum í spænsk- um fangelsum yrði leyft að af- piána dóma sfna f Baskaiandi - á búning Giraldillas. Álitleg launa- hækkun Harare. AFP. ROBERT Mugabe, forseti Zimbabve, skammtaði sér og ríkisstjórn sinni nýlega álitlega launahækkun þrátt fyrir að efnahagsástand í landinu hafi vart verið verra í nítján ára stjórnartíð Mugabes en einmitt núna. Greindu fjölmiðlar í Zimbabve frá því í gær að Mugabe hefði fýrirskipað að laun hans og ráðherra hans skyldu fara í fimmtíu þúsund Zimbabve-dollara á mánuði, hækkun sem nemur 182%. Haft var eftir Chen Chimu- tengwende, ráðherra upplýs- ingamála, í dagblaðinu Daily News í gær að hækkunin væri réttlætanleg enda hefðu laun ráðherra í Zimbabve verið með því lægsta sem þekktist í þess- um heimshluta. Talsmaður verkalýðsfélag- anna í landinu kvaðst hins vegar gjörsamlega orðlaus yfir aðgerðum Mugabes forseta. Leyniskyttur Tsjetsjníu-megin landamæranna skutu í gær einn rússneskan hermann til bana og særðu annan nærri bænum Kizlyar í Norður-Dagestan, eftir því sem tals- maður innanríkisráðuneytisins í Makatsjkala, höfuðstað Dagestans, greindi frá. Rússar svöruðu með því að gera 37 sprengjuárásir með þyrlum og herþotum á stöðvar skæruliða. Þetta eru þyngstu loftárásirnar sem Rúss- ar hafa gripið til frá því þeir hófu herförina gegn uppreisnarmönnum hinn 7. ágúst sl. Hermt var að 20 skæruliðar hefðu fallið í árásum gærdagsins. Að minnsta kosti 40 rússneskir hermenn hafa fallið frá því átökin hófust og á að gizka 500 skæruliðar. Tölur um þetta eru hins vegar nokkuð á reiki og skæruliðar neita alfarið þeim staðhæfingum rúss- neskra stjórnvalda að mikið mann- fall hafi átt sér stað í röðum skæru- liðanna. Minnir Kremlveija á Tsjetsjníu-hrakfarirnar Fram að þessu hafa átökin aðal- lega verið um nokkur fjallaþorp í Botlikh- og Tsumadin-sýslum í Suð- vestm-Dagestan, en loftárásir gær- dagsins náðu einnig til staða í Tsjet- sjníu þar sem Rússar telja að skæru- liðar hafi komið sér upp bækistöðv- um til innrása í Dagestan. Þessi framvinda átakanna hefur aukið á áhyggjur manna í Moskvu um að ófriðurinn muni breiðast meira út og fari að minna óhugnanlega mikið á hrakfarastríðið í Tsjetsjníu sem háð var á árunum 1994-1996 og lyktaði með niðurlægjandi ósigri Rússa og viðvarandi óstöðugleika á svæðinu. Moskvu, Berlín. AFP, Reuters. FULLTRÚAR rússneskra stjóm- valda hótuðu því í gær að Rússar myndu flytja friðargæsluliða sína í Kosovo úr héraðinu og sögðust ekki vilja að rússneskar hersveitir tækju þátt í aðgerðum KFOR, friðar- gæslusveita Atlantshafsbandalags- ins (NATO), þar sem þeim væri illa stjómað. „Ef aðgerðir KFOR fara í vissan farveg, mun þátttaka Rússa í slík- um aðgerðum ekki vera möguleg,“ var haft eftir þeim Leonid Ivashov hershöfðingja og Borís Mayorsky, fulltnia rússneska utanríkisráðu- neytisins í málefnum Kosovo, í frétt Jnterfax-fréttastofunnar í gær. Bættu embættismennimir því þó við að enn sem komið væri myndu Bursa, Ankara, Genf. Reuters, AFP. TYRKIR sögðu í gær að enn lægi „skelfílega" margt fólk grafið í húsarústum víðs vegar um svæði það, sem hvað verst varð úti þegar jarðskjálfti reið yfir norðvestur- hluta Tyrklands aðfaranótt þriðju- dags. Búið var að finna yfir tíu þús- und lík í húsarústunum í gær en talið var að enn væm þrjátíu og fimm þúsund manns fastir í rústun- um. Sérfræðingar Sameinuðu þjóð- anna sögðu að endanleg tala fómar- lamba gæti því orðið allt að fjömtíu þúsund manns, enda þykja líkur á að fólk fínnist á lífi minnka með hverjum degi sem líður. „Tölumar era skelfilegar. Mjög margt fólk er grafið í húsarústunum. Miklu fleiri en við höfðum talið,“ sagði tyrkneskur embættismaður í samtali við Reuters. Séríræðingar sögðu mikla hættu á að farsóttir Rússar halda liði sínu innan héraðs- ins. Sögðu þeir að ályktanir Samein- uðu þjóðanna sem kveða á um hlut- verk og starfsskyldur KFOR væra virtar að vettugi þar eð öryggi Serba í Kosovo-héraði væri ekld tryggt vegna ógna frá vopnuðum liðsmönnum Frelsishers Kosovo (UCK). Stjómvöld í Moskvu hafa að undanfómu kvartað undan því að friðargæslusveitir KFOR hafi brugðist skyldum sínum og ekki komið í veg fyrir flótta Serba úr héraðinu. Talið er að aðeins um 2.000 Serbar séu nú í Pristina, hér- aðshöfuðstað Kosovo, í samanburði við þá 40.000 sem þar vora, áður en stríðið á Balkanskaga braust út. breiddust út á hamfarasvæðinu, en aðstæður era afar erfiðar. Hitinn er mikill og skemmdir á vatnslögnum valda því að ekkert rennandi vatn er að fá, auk þess sem sífellt stækari óþefur af líkum, sem enn á eftir að grafa, eykur smithættu. „Kannski er okkar versta vandamál nú hættan á farsóttum," sagði Bulent Ecevit, for- sætisráðherra Tyrklands, í gær. „Versti jarðskjáifti í sögu Tyrklands" Milljónir Tyrkja tóku þann kost að sofa utandyra í nótt og fyrrinótt af ótta við að viðvaranir helsta jarð- skjálftafræðings Tyrklands, um að vænta mætti fleiri skjálfta, myndu rætast. Stjómvöld lögðu hins vegar allt kapp á það í gær að slá á angist þeirra, sem búa á skjálftasvæðinu, Reuters Námsmenn í Beigrad kveikja á kertum á afmælistertu, í tilcfni af 58 ára afmæli Jdgóslavíufor- seta í gær. Kakan á að tákna gömiu Júgóslavíu og sneiðam- ar svæðin sem Milosevic hefur misst í stríðsrekstri sínum á Balkanskaga síðan árið 1991. og sögðu ómögulegt að segja íyrir um hvort eða hvar jarðskjálftar riðu yfir. Ecevit fór ekkert í launkofa með þá skoðun sína að jarðskjálftinn á þriðjudag hefði verið „einn af þeim verstu í sögu mannkyns og sá öflug- asti í sögu Tyrklands“. Hann neitaði hins vegar ásökunum um að tyrk- nesk stjómvöld hefðu bragðist hægt og illa við hörmungunum og sagði að allt væri nú gert til að aðstoða þá sem urðu illa úti í jarðskjálftanum, sem og til að bjarga eins mörgum úr húsarústum og auðið væri. Fjármálasérfræðingar í Ankara spáðu því í gær að Tyrkland myndi þurfa erlenda fjárhagsaðstoð upp á tuttugu til tuttugu og fimm millj- arða bandaríkjadala, eða rúmlega fjórtán hundrað milljarða ísl. króna, vegna náttúrahamfaranna. Verð á hrá- olíu hækkar London. AFP. HEIMSMARKAÐSVERÐ á hráolíu fór upp fyrir 21 bandaríkjadal á tunnuna í gær og hefur ekki verið hærra um langt skeið. Raunar hefur tvöföldun átt sér stað frá því í febrú- ar en þá var verð á olíu komið niður fyrir tíu dali á tunnuna. Talið er að eldurinn, sem kviknaði í helstu olíuhreinsistöð Tyrklands í kjölfar jarðskjálftans á þriðjudag, sem og hættan á að hvirfilbyljir á Mexíkóflóa trufluðu olíuframleiðslu í Bandaríkjunum, hafi haft áhrif á að verð á olíu fer enn hækkandi. Var því spáð í gær að markaðsverðið gæti enn hækkað og jafnvel farið upp í 23 dali á allra næstu vikum. Sérfræðingar sögðu hins vegar að hugsanlegt væri að verð færi lækk- andi á ný tækju aðildarlönd OPEC, samtaka helstu olíuríkja heims, upp á því að auka skyndilega framboð á olíu í því skyni að hámarka gróða sinn nú þegar verðið er hátt. Friðargæsla í Kosovo-héraði Rússar hóta að draga sig úr KFOR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.