Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ VALDABARÁTTAí VALHÖLL WAGNERS Óvissa ríkir um fram- tíð óperuleikhússins í Bayreuth og hefur kastljós fjölmiðla beinst að fjárhagserfíðleikum, uppfærslum og síðast en ekki síst að fjöl- skyldudeilum vegna arftakans. Kristín Marja Baldursdóttir skýrir frá leitinni að eftirmanni Wagners. margir að dagar óperunnar væru taldir, en aftur var það eig- inkonan sem hljóp í skarðið. Winifred, eiginkona Siegfrieds, tók við stjórninni og naut þar fjárhagsaðstoðar Adolfs Hitlers, sem var einlægur aðdáandi Wagners. Winifred sem var af enskum ættum gekk í nasista- flokkinn og var foringinn heima- gangur í Villa Wahnfried, heimili Wagner-fjölskyldunnar. Synir Winifreds og Siegfrieds, Wi- eland og Wolfgang nefndu hann gjarnan Úlf frænda. I stríðslok var óperuleikhúsinu í Bayreuth lokað en sex árum síð- ar var reksturinn kominn í fullan gang aftur undir stjórn Wielands Wagners. Wieland þótti mjög list- rænn stjórnandi og í tíð hans rann upp blómaskeið í Bayreuth. Uppfærslur hans vöktu í senn hneykslun og hrifningu. Talið er að Gertrud eiginkona hans, sem var frábær danshöfundur, hafl átt stóran þátt í velgengninni, og ekki má gleyma að Wolfgang Wagnerfjölskyldan, Gudrun, Kat- harina og Wolfgang Wagner. SÍÐASTA óperuhátíðin í Bay- reuth á þessari öld, sú 88. í röðinni, hófst núna í lok júlí með nýrri upp- færslu á Lohengrin. Á þeim tíma- mótum spyrja menn sig hvort þeir megi vænta þess að sjá óperur Wagners í Bayreuth á nýrri öld. Margir telja að óperunni hafí hnign- að hin síðustu ár og nefna í því sam- bandi ólistrænar uppfærslur, fjár- hagserfiðleika og stjómanda sem hefur setið lengur en gott þykir. Wolfgang Wagner sem verður brátt áttræður, hefur ekki enn nefnt hugsanlegan arftaka sinn, þótt hann hafí gefíð ýmislegt í skyn, og hefur það skapað nokkra úlfúð meðal þeirra sem hlut eiga að máli. Fjár- mál óperunnar voru mjög í brennid- epli eftir að ný ríkisstjórn ákvað að draga úr árlegum niðurgreiðslum til hennar en kunnugir segja að fjár- málin séu ekki rót vandans, þau megi leysa með fjárstuðningi og vel- vilja góðra manna. Rót vandans í Bayreuth sé stjórnandinn og tvístr- uð fjölskylda Wagners. Þegar Richard Wagner lést árið 1883 tók Cosima, eiginkona hans og dóttir Franz Lists, fyrst um sinn að sér stjórn óperunnar sem þá var í öldudal. Siegfried, sonur hennar og Wagners, tók síðan við stjórntaumunum og hélt um þá til dauðadags árið 1930. Þá héldu Þjófstartað með dixflandi IWM.IST Tjarnarsalnr RáOhúss Reykjavíkur HIGH SIERRE JAZZ BAND Bryan Shaw kornett, Howard Miyata básúnu, Pieter Meijers klarinett og sópransaxöfón, Bruce Hutddelstone pianó, Stan Iluddleston banjó, Earl McKee súsafón og söngur, og Charlie Castro trommur. Gestir: Randy Morr- is trompet, Joep Peeters altósaxófón, Árni ísleifsson pianó, Nile-Bertil Da- hlander trommur og Ruby Wilson söngur. Fimmtudagur 19. ágúst. ÞÁ GETUR maður farið að hlakka til Jazzhátíðar Reykjavíkur, en hún verður sett í Ráðhúsinu 8. september nk. I hádeginu á fimmtudag fengu Reykvíkingar forskot á sæluna því þá hélt bandaríska dixílandhljómsveitin High Sierre Jazz Band hljómleika í ■•vTjarnarsal Ráðhússins. Á efnis- skránni voru klassísk djasslög í bland við dægurflugur einsog jafnan má heyra hjá hvítum dixflandhljómsveit- um nútímans. Hljómsveitin er hluti af „djassá- höfn“ skemmtiferðaskips frá Hol- land American line, sem er á djass- siglingu um Norður-Atlantshafíð og beggst við festar í Reykjavík og á Akureyri. Meðan farþegar skoða Þingvelli, Gullfoss og Geysi leika þeir félagar í höfuðborginni í boði stjómar Jazzhátíðar Reykjavíkur. Og þó fóru ekki allir í skoðunarferð, áköfustu aðdáendur hljómsveitarinn- ar sátu í Ráðhúsinu og sumir skeið- uðu um salinn með spenntar regn- hlífar, einsog þeir væru á götum New Orleans, meðan Earl beljaði Cake walking babys from home eftir Clarence Williams. Hljómsveitin var stofnuð í smá- bænum Three Rivers í Kaliforníu fyrir 23 árum. Hrynsveitin hefur verið að alla tíð, en blásurum skipt út og þá gjarnan leitað til Los Angeles, því ekki býður 2000 manna smábær uppá fjölmenna blásarasveit. Stfllinn er hvítt dixfland af ætt Lu Watters og Turk Murphys, en Lu var einn af forvígismönnum endurreisnarstfls- ins New Orleaníska og stofnaði árið 1940 hljómsveit í anda kreólabands King Olivers. Síðan hefur dixílandið lifað góðu lífí í Kaliforníu. Það verður að segjast sem er að lítið andríki var í leik hljómsveitar- innar. Hrynsveitin stíf og lítill sann- færingarkraftur í sólóum blásar- anna. Þetta á svosum við um flestar dixflandhljómsveitir eftirstríðsár- anna sem líktu eftir gömlu meistur- unum frá New Orleans og klikkuðu meirað segja ekki á fölsku tónunum úr frumsólóunum sem stældir voru. Besta hljómsveit af þessu tagi sem ég hef heyrt er víkingasveit Papa Bue frá Amager, en það var vegna þess að hann hafði einleikara á borð við trompetistann Finn Otto Han- sen, sem hingað kom með Ole Fess- or, og klarinettuleikarann Jprgen Svare, sem hér lék er fyrstu ís- lensku djasstónleikarnir, tónleikar Jonna í Hamborg og félaga, voru endurgerðir. Efnisskrá hljómsveitarinnar var fjölbreytt m.a. New Orleans stomp King Olivers og The Mooche eftir Duke Ellington. Einn besti sóló tón- leikanna var básúnusóló Miyata í Wabash blues, sem hann blés með dempara. Síðasta lagið á efnisskránni var That’s a plenty og lék Árni Isleifs þá á píanóið og þá loks vissi maður með réttu að píanó var í salnum. Auka- númerið var svo Doktor Jazz eftir Jelly Roll Morton og komu þá ýmsir af „djassáhöfninni" til liðs við band- ið. Gaman var að heyra þann gamla sænska trommara Dahlander sem lengi lék með m.a. Terry Gibbs, Chet Baker og Teddy Wilson og lifnaði heldur yfir hrynsveitinni þá stuttu stund. Svo fór söngkonan Ruby Wil- son á kostum og urraði í söng sínum einsog Jelly Roll gerði á RCA-Victor upptökunni 1926. Hefði verið gaman að heyra meira í henni. Vernharður Linnet Óperuleikhúsið í Bayreuth þar sem valdabarátta er háð. Der Spiegel Dóttir Wielands Wagner og helsti keppinauturinn, Nike. bróðir hans tók af honum ómakið þegar fjármál og rekstur voru ann- ars vegar. Þegar Wieland lést árið 1966 tók Wolfgang við. Fjárhagslega hefur rekstur óperunnar undir stjóm Wolfgangs gengið vel til þessa, eða allt þar til rfldsstjómin ákvað að draga úr fjárstuðningi, en hann hef- ur hins vegar verið gagnrýndur fyr- h- skort á listrænni stefnu og val á hljómsveitarstjórum sem hafa ekki nógu mikið vit á tónlist Wagners að sögn Wagnerista og gagnrýnenda. En kreppan sem nú ríkir í Valhöll Wagners er að miklu leyti til komin vegna eftirmanns Wolfgangs, sem enginn veit enn hver verður. I skjölum Richard Wagner-stofn- unarinnar stendur að stjómandi óp- eruleikhússins í Bayreuth skuli ætíð bera nafnið Wagner. Af niðjum Wagners era fáir karlmenn nefndir til sögunnar eftir að Gottfried sonur Wolfgangs var gerður útlægur úr Bayreuth. Gottfried sem kom hing- að til lands fyrir nokkrum árum, skrifaði bók um tengsl Wagner-fjöl- skyldunnar við Adolf Hitler og nas- ismann frá upphafi, og vakti bókin mikla athygli þegar hún kom út fyr- ir tveim áram. Wolfgang Wagner gaf þá út yfirlýsingu til fjölmiðla þar sem hann fordæmdi son sinn og bókina. Gottfried sem um tíma var talinn líklegastur arftaki Wolf- gangs, er því ekki nefndur þegar fjallað er um eftirmann Wagners. Aftur á móti er mönnum tíðrætt um dætur Wielands og Wolfgangs, og ekki síst um eiginkonu þess síðar- nefnda, Gudranu, fædda Mack. Wolfgang er tvígiftur. Með fyrri konu sinni Ellen Drexel eignaðist hann Evu og Gottfried, en með seinni konu sinni Gudranu Mack, sem er 25 áram yngri en hann, eignaðist hann dótturina Katharinu sem nú er rúmlega tvítug. í viðtali við Wagnerhjónin í „Der Spiegel", segir Wolfgang að hann muni ekki hverfa frá óperanni fyrr en fjármálin séu komin í gott horf og geti menn því reiknað með hon- um sem stjórnanda nokkur ár til viðbótar. Hann hafi hins vegar lagt fram skriflega tillögu um eftirmann, eða eftirmenn sína. Sú tillaga sé geymd í læstum skáp hjá formanni tónlistarhátíðarinnar og verði tekin til umfjöllunar í október. Gudrun sem var ritari tónlistar- hátíðarinnar áður en hún giftist Wolfgang, hefur lýst því yfir að hún sé reiðubúin til að taka við stjórntaumum þegar eiginmaður hennar dregur sig í hlé. Þeir sem til þekkja segja reyndar að hún hafi nú þegar alla þræði óperunnar í hendi sér. Enginn efast um færni hennar í rekstrarstjórnun en aftur móti telja menn að undir stjórn hennar muni uppfærslur ekki öðl- ast það listræna yfirbragð sem helst þykir nú á vanta. Gudrun hefur að auki fengið orð fyrir að vera sjúklega metnaðargjörn og athyglissjúk. Helsti keppinautur eiginkonunn- ar og sú sem hefur gagnrýnt upp- færslur Wolfgangs hvað mest, er Nike dóttir Wielands. Hún er á sex- tugsaldri eins og Gudrun og þykir afar lík langömmu sinni Cosimu. Nike sem hefur erft óendanlegt hugmyndaflug föður síns og hvassa tungu hefur skrifað bók um óperur Wagners og fengið lof fyrir. En hún fær ekki atkvæði Wolfgangs svo mikið er víst því í síðustu bók sinni heldur hún því fram að Wolfgang eigi að miklu leyti sök á veikindum föður hennar og ótímabærum dauða. Eva, 54 ára dóttir Wolfgangs af fyrra hjónabandi er oft nefnd sem kandidat. Hún þykir raunsæ og ákveðin og hefur að baki reynslu sem aðstoðarmaður óperastjórn- enda í Bretlandi og Frakklandi. Eins og stendur þykir mörgum þó Bayreuth vera of stór biti fyrir hana og tekur faðir hennar undir þau orð og segir að hún hafí ekki nægilega reynslu þar eð hún hafí aldrei þurft að taka ákvarðanir sem ábyrgur stjórnandi. Yngri dóttir Wolfgangs Kathar- ina er aðeins 21 árs og því enn óskrifað blað. En hver veit nema að stóllinn bíði hennar í framtíðinni því auk þess að vera með blóð Wagners í æðum er hún að læra bæði við- skiptafræði og leikhúsfræði, auk þess sem hún hefur aðeins tekið þátt í uppfærslum. Margir spá því að framtíðin í Bayreuth hljóði upp á móður og dóttur. Wolfgang neitar að tjá sig um tilvonandi eftirmann en segist þó vera hlynntur samvinnu tveggja aðila og vilji gjarnan sjá eiginkonu sína í hlutverki annars stjórnand- ans. Daniel Barenboim sem hefur oft stjórnað uppfærslum í Ba- yreuth hefur þrásinnis verið nefndur sem samstarfsmaður frú- arinnar, og þá sá sem sjá mundi um listrænu hliðina, en Wolfgang hefur til þessa vísað þeim orðrómi á bug. Barenboim hefur einnig tjáð sig um málefni óperuleikhússins, nú síðast í „Die Zeit“. Hann segir að tími endurskoðunar í Bayreuth hafi runnið upp fyrir minnst þrem árum og að farsælast fyrir óperu- leikhúsið væri að tveir héldu um stjórnartaumana í framtíðinni. Hann telur hins vegar ólíklegt að hann verði annar þeirra. Þegar hann er spurður hvaða afleiðingar eilífar fjölskyldudeilur hafi á tón- listarhátíðina í Bayreuth, svarar hann stutt og skýrinort: Fjölskyld- an getur þvegið þvotta sína heima hjá sér. Ef að líkum lætur verður það kona sem sest við þvottabalana í Bayreuth. Það yrði þá ekki í fyrsta sinn sem eiginkona tæki að sér stjórnina. í ljósi þess að sjálfur meistarinn Richard Wagner, leit á konur sem óæðri verur og sýndi þeim jafnvel lítils- virðingu, er það nokkuð kald- hæðnislegt að þær skuli hvað eft- ir annað bjarga óperuleikhúsinu hans heittelskaða. (Byggt á Reuter, Der Spiegel, Die Zeit og The Economist)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.