Morgunblaðið - 21.08.1999, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Prófmál Neytendasamtakanna gegn
matvælaframleiðendum
Sex manns buðu sig
fram tii samstarfs
AÐ MINNSTA kosti sex manns
höfðu samband við Neytendasam-
tökin í gær og buðu sig fram til
samstarfs við samtökin um hugsan-
legt skaða- og eða miskabótamál á
hendur matvælaframleiðslufyrir-
tækjum. Pessir aðilar höfðu allir
sýkst af kampýlóbakter.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir að far-
ið verði mjög gaumgæfilega yfir
málsatvik þeirra sem hlut eiga að
máli þannig að ótvítrætt verði
hægt að sanna upptök smits. „Við
veljum úr það tilvik þar sem ótví-
ræðast liggur fyrir að um smit sé
að ræða af völdum matvæla. Allt
sem hefur komið fram til þessa
beinist að kjúklingum sem smit-
valdi,“ segir Jóhannes.
Sá sem yrði fyrir valinu tæki þar
með þátt í prófmáli sem Neytenda-
samtökin hyggjast höfða gegn mat-
vælafyrirtæki. „Þetta er mjög mikil-
vægt prófmál því þarna er ekki ein-
vörðungu um að ræða matarsýkingu
vegna kampýlóbakter heldur það
hvort matvælaframleiðendur, af
hvaða tagi sem þeir eru, dreifi mat-
vælum sem valda sýkingu hjá neyt-
endum. Ekld skiptir í þessu máli
hvaða sýkingu er um að ræða,“ segir
Jóhannes.
Hann segir að matvælaframleið-
endur hafi í raun og veru getað leyft
sér hvað sem er fram að þessu og
tími sé kominn til að taka á þessum
málum. „Þeir verða að bera ábyrgð á
því sem þeir eru að selja,“ segir Jó-
hannes.
FRÉTTIR
Áframhaldandi röskun og tafír á alþjóðlegu flugi
Tafir á sextán áfanga-
stöðum Flugleiða
ÁFRAMHALDANDI röskun og
tafir urðu á áætlunarflugi Flugleiða
í gær og var ekki von á að ástand
mála kæmist í samt lag fyrr en í
fyrsta lagi í dag, að sögn Einars
Sigurðssonar, aðstoðarmanns for-
stjóra Flugleiða. Tafir urðu á flugi
til sex áfangastaða félagsins í
Bandaríkjunum og tíu áfangastaða í
Evrópu og seinkaði flugi að jafnaði
um 3^ klukkustundir.
Mjög slæm áhrif
„Kaupmannahöfn er aðeins utan
við þessar tafir, þar sem við notum
Boeing 737-vélar, en þar sem við
notum Boeing 757 gætir tafa,“ segir
Einar.
Tvær Boeing 757-vélar Flugleiða
biluðu í fyrradag og ollu tafir af
þeim sökum keðjuverkandi áhrifum,
þannig að flug annarra véla raskað-
ist einnig. „Til að tengiflugsfarþeg-
ar yrðu ekki strandaglópar á Is-
landi urðum við að seinka tveimur
öðrum vélum einnig og þá voru fjór-
ar vélar búnar að verða fyrir mikl-
um töfum. Þá kom tvívegis upp bil-
un í annarri vélinni, þannig að þetta
ýtti hvað á annað. Áhrifin eru mjög
slæm, sérstaklega á þessum tíma,
en við höfum sett allt í gang til að
finna lausn,“ segir Einar. Ekki var
um stórvægilegar bilanir að ræða
en drjúgan tíma tók að finna þær.
Hann segir Flugleiðir bera marg-
víslegan kostnað vegna þessara
tafa, m.a. vegna leigu á vél, við-
halds- og viðgerðarkostnaðar vegna
vélanna sem biluðu, kostnaðar við
að koma farþegum áfram með vél-
um annarra flugfélaga, matar- og
gistikostnaðar o.fl. „Þetta eru
margir litlir liðir sem hrannast upp,
en það er nokkuð sem menn gera
ráð fyrir í sínum áætlunum að geti
komið upp. Þetta er ekki kostnaður
sem setur allt á slit, en samt tals-
verðir fjármunir," segir hann.
Einar kveður þá fjölmörgu far-
þega sem orðið hafa fyrir óþægind-
um af þessum sökum yfirleitt hafa
brugðist við af skynsemi og sýnt
málinu skilning. „Kerfið gengur yf-
irleitt vel og því ber mikið á því þeg-
ar atvik sem þessi koma upp,“ segir
hann.
Morgunblaðið/Kristján
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra ræddi við Nikolai Erma-
kov, sjávarútvegsráðherra Rússlands, í vinnslusal UA. Við hlið
þeirra stendur Ámi Steinar Jóhannsson alþingismaður.
Morgunblaðið/Arnaldur
Nikolai Ermakov og Árni M.
Mathiesen Sjávarútvegsráð-
herrar skoða skipasmíðastöð
TreQa ásamt föruneyti.
Rússar fjár-
festa í bát-
um frá
Trefjum
NIKOLAI A. Érmakov, sjávarút-
vegsráðherra Rússlands, heim-
sótti Trefjar ehf. í Hafnarfirði í
gærmorgun og hélt síðdegis til
Akureyrar. Tilefni heimsóknar-
innar í Trefjar var að fyrirtækið
hefur gert samning við sveitar-
stjómir í nokkmm fylkjum Rúss-
lands um smíði á hraðfiskibátum.
Trefjar hafa markaðssett bát-
ana, sem em af Cleopatra-gerð,
hjá sveitarstjórnum ýmissa fylkja
sem rétt hafa til strandveiða í
Rússlandi. Strandveiðar hafa lít-
ið verið stundaðar af Rússum og
er þessi samningur hluti af við-
Ieitni þarlendra stjórnvalda til
þess að gera sjávarútveginn arð-
bærari. Stefnt er að því að
Cleopatra-bátarnir gegni hlut-
verki í þessari endurnýjun. Bát-
arnir koma til með að landa afl-
anum á fiskmarkað og þess
vegna er yfirmaður stærsta fisk-
markaðs Moskvuborgar í för með
sjávarútvegsráðherranum.
Samningar sem Trefjar hafa
gert við Rússa kveða á um að
fimm bátar verði afhentir á
þessu ári. Líklegt er að fleiri bát-
ar verði smíðaðir fyrir Rússana á
næsta ári. Sá fyrsti verður af-
hentur á morgun og er gert ráð
fyrir að hann hefji veiðar á Mur-
mansk-hafsvæðinu í september.
Listinni varpað út
undir beran himin
LISTASAFN íslands mun færa
listina út í náttúruna á menning-
arnótt, þegar ljósmyndum af verk-
um í eigu safnsins verður varpað á
sýningartjald sem áformað er að
setja upp andspænis Listasafninu í
nágrenni við Tjarnarhólmann. Á
tjaldið verður varpað 120 myndum
úr eigu safnsins, sem tengjast nátt-
úru landsins í víðum skilningi. Sýn-
ing þessi er meðal fjölda listvið-
burða á dagskrá menningarnætur í
Reykjavík, sem verður sett kl. 15.45
í dag í Lýðveldisgarðinum við
Hverfisgötu og teygir anga sína um
alla borg langt fram á nótt.
Þema sýningarinnar er „Náttúr-
an í listinni - listin í náttúrunni" og
er henni ætlað að gefa vegfarendum
kost á að sjá verkin í nýju ljósi og
um leið að vekja athygli á þeim
menningarai-fi sem safnið geymir
og æskilegt er talið að sem flestir
fái að njóta. „Náttúran hefur verið
íslenskum myndlistarmönnum
óþrjótandi yrkisefni allt frá því
brautryðjendur nútíma myndlistar
komu fram í upphafi aldarinnar
með upphafna rómantíska sýn á
landslagið. Yngri kynslóð íslenskra
listamanna hefur fjallað um náttúr-
Féll ofan
í hver
SEXTÁN ára piltur brenndist
mikið er hann féll ofan í hver í
Hveradölum í gær. Pilturinn
var fluttur með sjúkrabíl á
gjörgæsludeild Landspítalans.
Samkvæmt upplýsingum frá
gjörgæsludeild er hann ekki í
bráðri lífshættu, en um alvar-
legan bruna er að ræða og er
líðan hans eftir atvikum.
una með öðrum hætti, sem endur-
speglar breyttan skilning á náttúr-
unni og myndmálinu sem slíku.
Myndasýning þessi mun bregða for-
vitnilegu ljósi á þróun íslenskrar
myndlistar á 20. öldinni," segir í
fréttatilkynningu frá Listasafni Is-
lands.
Sýningin hefst klukkan 23.00 og
er áætlað að hún standi í um hálfa
klukkustund.
■ Lesbók/Menningarnótt
------♦♦♦-------
Ríkisútvarp-
ið í kreppu
RÍKISÚTVARPIÐ er í tilvistar-
kreppu sem eykst og eykst, að því
er kom fram í máli Bjöms Bjarna-
sonar menntamálaráðherra í um-
ræðum á SUS-þingi í gærkvöldi.
„Við erum búin að móta almennu
útvarpslögin og tökum mið af þró-
un í Evrópu og annars staðar í
heiminum en ekki hefur gefíst
tækifæri til að laga starfsemi Rík-
isútvarpsins að breyttum sjónar-
miðum,“ sagði hann. „Það stendur
ríkisútvarpinu mjög fyrir þrifum
að ekki hefur náðst samstaða um
að breyta rekstrarfyrirkomulagi
þess. Þá er ég ekki að tala um af-
notagjöld heldur innra stjórnkerfi
útvarpsins. Þar þurfa einkarekstr-
arsjónarmið að koma meira inn í
ákvarðanatöku ef við ætlum á ann-
að borð að reka ríkisútvarp sem
stendur undir nafni.“
Hann sagðist ekki endilega vera
að tala um einkavæðingu ríkisút-
varpsins heldur vísaði hann til þró-
unar erlendis, m.a. í Noregi þar
sem stofnað hefði verið hlutafélag
um rekstur ríkisútvarpsins.
2® gimm
MENNINGARNÓTT
'■imggj3iBgjrÆssi6r
ALAUGARDÖGUM
1
H MOH(il NKLADSINS
LLji1DI>A1l
Menningarnótt í miðborginni
Myndhöggvarafélagið í Reykjavík
VAKAÐ
Cfl ‘ : . AF LIST;
cn ifiliH?
^ jjjgj!
FIRMA '99
03 Ymi i nýju
C0 fiSíG RÝMI
www.mbl.is
Grikkir áhugasamir um
Helga Sigurðsson B/2
Islendingar í sviðsljósinu
á HM í Sevilla B/3
••••••••